Morgunblaðið - 22.06.1977, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JUNl 1977
7
Átök í
Alþýðuflokki
Á vrSavangi TFmans F
gnr er staldrað viS próf-
kjörsraunir Alþýðuflokks-
ins, sem nálgast suðu-
mark F innanflokkserjum,
einkum og sár F lagi F
ReykjavFk, þó vFðar sá vFg-
búist, t.d. f Norðurlands-
kjördæmi eystra, þar sem
Bragi Sigurjónsson, Bárð-
ur Halldórsson og Árni
Gunnarsson takast á um
takmarkað flokksfylgi.
TFminn segir orðrétt:
"Alþýðublaðið F Reykja-
vfk er hins vegar orðið
skelfingu lostið yfir þeim
úlfaþyt sem hafinn er með
kröftum vegna prófkjörs,
sem ákveðið hefur verið F
flokknum. Blaðið segir
fimmtudaginn 16. þ.m.:
„En þegar upp verður
staðið að loknu prófkjöri
munu Alþýðuf lokksmenn
standa saman sem einn
Gylfi Þ Glslason.
Eggert G Þorsteinsson
Benedikt Gröndal
maður og berjast til sig-
urs."
„Hið sanna er reyndar
að aldrei muni grimmi-
legri innbyrðis átök hafa
átt sár stað innan Alþýðu
flokksins en einmitt nú,
og er þá mikið sagt. Eink-
um á þetta við um próf-
kjörið F Reykjavfk, þar
sem Benedikt Gröndal,
formaður flokksins,
hyggst gefa kost á sár. en
á það á hættu að Gylfi Þ.
Gfslason muni eftir sem
áður ætla sár sætið, — þó
ekki væri nema til að sýna
hvers er mátturinn úr þvl
að dýrðin er hvort sem er
úti." Til viðbótar mætti
nefna Eggert G. Þor-
steinsson, þann framá-
manna Alþýðuflokks, sem
er F nánustum tengslum
við verkalýðshreyfinguna,
að Birni Jónssyni undan-
skildum, er einnig kann
að vera með F myndinni.
Almennings-
bókasöfn
Samband íslenskra
sveitarfélaga efndi til ráð-
stefnu um almennings-
bókasöfn í lok sl. árs.
Ólafur G. Einarsson, vara-
formaður sambandsins,
setti ráðstefnuna. í máli
hans kom m.a. fram, að
hér á landi störfuðu 250
almenningsbókasöfn f
224 sveKarfélögum, þar
af 30 bæjar- og héraðs-
bókasöfn, um 180
sveitarbókasöfn og 40
söfn f skólum, sjúkrahús-
um og hælum. Mörg safn-
anna væru að vfsu smá,
minni að vexti en fjölmörg
einkasöfn, en flest með
dýrgripi innan um sinn
bókakost, og bæru öll
vitni menningarviðleitni.
Það kom fram f ræðu
Ólafs að almenningsbóka-
söfn hefðu fyrst og fremst
sótt fjármagn, bæði stofn-
kostnað og rekstrarfé, til
sveitarfélaga, en hlotið til
þess að gera takmarkaðan
rfkisstyrk. Hér væri og um
dæmigert verkefni
sveitarfélaga að ræða, en
tryggja þyrfti sveitarfélög-
um það rúma tekjustofna,
að þau gætu sinnt þessu
og öðrum sérverkefnum
sfnum.
Starfsemi borgarbóka-
safns hefur verið Reykvfk-
ingum mikilvægt, þrátt
fyrir almenna bókaeign.
Bókabflar, sem sótt hafa
hin einstöku borgarhverfi.
heim, eru dæmi um nýj-
ung f þjónustu við borgar-
ana, sem reynst hefur
mjög vinsæl og er raunar
ómetanleg. Mjög mörg
sveitarfélög hafa og byggt
myndarlega yfir bókasöfn
sfn, sem orðin eru nokk-
urs konar menningarmið-
stöðvar f bæjum og héruð-
um.
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins 1977
SJÓNARMIÐ
S JÁLFST ÆÐISMANNA
Iðnaðarmál
íslenzkur iðnaður er ein þeirra
meginstoða, sem íslenzkt efnahags-
llf hvilir á. og þvi veltur á miklu.
hver vöxtur hans og viðgangur er
Þriðjungur þjóðartekna er frá iðnaði
og fjórðungur gjaldeyristekna. Iðn-
aðurinn hefur þvi verið helzti vaxtar-
broddur efnahagslifsins undanfarin
ár.
Sjálfstaeðisflokkurinn hefur sýnt
skilning sinn á þörfum iðnarins i
verki og haft forgöngu um margvis-
legar aðgerðir til að styðja og efla
stöðu íslenzks iðnaðar. Þrátt fyrir
þetta, er enn að finna misræmi
gagnvart iðnaðinum, sem gerir
framlag hans til þjóðarbúsins minna
en efni standa til, eins og fram
kemur I nýútkominni skýrslu Þjóð-
hagsstofnunar
Þvi skorar Landsfundur Sjálf-
stæðisflokksins á þingmenn flokks-
ins að vinna áfram að málefnum
iðnaðarins með þvi m a að beita sér
fyrir eftirfarandi atriðum:
1. Að iðnaðurinn fái sama að-
gang að fjármagni og aðrir fram-
leiðsluatvinnuvegir og á sömu kjör-
um
2. Kannað verði. hvaða áhrif
það mundi hafa á viðskiptatengsl
íslands og EFTA og EBE, ef leitað
yrði eftir framlengingu á aðlögunar-
tlma
3. Að iðnaðurinn búi við sömu
reglur varðandi greiðslur launa-
skatts og aðstöðugjalds og aðrir
framleiðsluatvinnuvegir
4. Kannað verði nú þegar hvort
ákvörðun um virðisaukaskatt sé til
hagsbóta Þar til hann kemur til
framkvæmda verði tekið upp endur-
greiðslukerfi á söluskatt og vöru
gjald af aðföngum
5. Að á næsta þingi veri frum-
varp um Tæknistofnun iðnaðarins
lögfest.
6. Að efla Útflutningsmiðstöð
iðnaðarins frá þvi sem nú er, þar
sem markaðsleit og sölustarfsemi
eru grundvallarforsendur þess, að
við eigum erindi I markaðsbanda-
lög.
Auk þess verkefnis að styðja og
efla framleiðslu- og þjónustuiðnað
skal stefnt að þvi að koma á fót
nýjum iðngreinum, sem umbreyta
innlendum auðlindum svo sem
sjávarafla. hráefnum landbúnaðar,
fallvötnum, jarðhita. jarðefnum á
arðbæran hátt i markaðshæfar af-
urðir
Með hliðsjón af hinni auknu þörf
fyrir iðn- og tæknimenntað fólk í
nútima þjóðfélagi verði áherzla lögð
á:
a) að sem fyrst liggi fyrir námsskrá
fyrir hinar ýmsu iðngreinar
b) iðnverkafólki verði gert mögu-
legt að hljóta starfsmenntun og
þjálfun, svo að starfsgeta og
hæfileikar hvers og eins fái notið
sín sem best
Aukin framleiðsla og framleiðni
eru forsenda bættra lifskjara Hag-
vöxtur verður ekki tryggður nema
þv! fjármagni, sem til ráðstöfunar er,
verði beint til þeirra greina, sem bezt
skilyrði hafa til að skila auknum arði
til þjóðarbúsins
íslenzkur iðnaður á að njóta jafn-
réttis og jafnræðis á við aðra höfuð-
atvinnuvegi þjóðarinnar og sam-
bærilegra starfsskilyrða og erlendir
keppinautar
Orkumál
Ein af meginforsendum efnahags-
legra framfara á íslandi er hagkvæm
nýting rikulegra vatns- og varma-
orkulinda Á síðustu árum hefur
gildi þessara auðlinda stóraukizt fyr-
ir tilverknað alþjóðlegra atburða Af
þessum ástæðum hefur aukin
áherzla verið lögð á framkvæmdir á
orkusviðinu og aukna nýtingu inn-
lendra orkugjafa í stað innfluttra.
Ber sérstaklega að fagna þeim mikla
árangri, sem náðst hefur á skömm-
um tíma i jarðhitaleit og hitaveitu-
framkvæmdum, sem hafa í för með
sér stórkostlegan sparnað innfluttra
orkugjafa.
1. Stefnt skal að því marki að
trY99ja öllum landsmönnum næga
orku, og kulu hagkvæmis- og
öryggissjónarmið ráða fjárfestingum
á orkusviðinu.
2. Breyta skal skipulagi á sviði
orkumála þanig, að aukin verði áhrif
einstakra héraða og landshluta og
orkuframleiðsla og orkudreifing sé í
höndum sjálfstæðra fyrirtækja með
eignaraðild ríkis, sveitarfélaga og
einstaklinga
3. Unnið skal áfram að mörkun
heildarstefnu I orkumálum. og skal
ákvarðanataka grundvölluð á henni
Með stöðugum rannsóknum á orku-
búskap skal séð um, að heildarstefn-
una megi endurskoða hvenær sem
þörf krefur.
4. Halda skal áfrm jarðhitaleit
og jarðhitarannsóknum og koma
upp jarðhitaveitum. þar sem að-
stæður leyfa og hagkvæmt þykir.
Kanna skal hagkvæmni hitaveitna i
þéttbýli, þar sem jarðvarmi er ekki
fyrir hendi með það fyrir augum, að
sem flestir landsmenn njóti þeirra
hlunninda sem hitaveitur eru Með
niðurfellingu tolla og skatta skal
stefnt að þvi að skapa þessum veit-
um jafna samkeppnisaðstöðu á við
aðrar orkuveitur og innflutta orku.
5. Stefnt skal að þvi að tengja
saman rafveitusvæði landsins til
þess að tryggja sem öruggastan og
hagkvæmastan rekstur raforkukerf-
isins og jafna þannig aðstöðu til
virkjunar i hinum ýmsu landshlut-
um.
6. Endurskoða skal gildandi raf-
orkuverð þannig, að innlendur at-
vinnurekstur fái raforku á sem bezt-
um kjörum Með aðgerðum i tolla-
og skattamálum skal stefnt að þvi að
lækka dreifingarkostnað raforku og
jafna samkeppnisaðstöðu hennar
við innflutta orku
7. Raforkuverð til orkufreks iðn-
aðar skal, eins og verið hefur,
ákveðið með sérstökum samnmg-
um, svo að raforkuverð til almenn-
ings verði hagstæðara en ella.
8. Mörkuð verði orkunýtingar-
stefna og ráðstafanir gerðar til að
orkuveitur og aðrar stofnanir leið-
beini um hagkvæmustu nýtingu
orku
9. Við nýtingu þeirra auðlmda.
sem felast i fallvötnum og jarð-
varma, skal leggja áherzlu á, að
náttúruverndarsjónarmiða verði
Christensen fjölskyldan
saekir ísland heim aftur
F'yrir nokkrum árum komu
hingað i heimsókn söngvarar frá
Bandarikjunum og sungu i
Bústaðakirkju við mikinn fögnuð
áheyrenda, sem voru eins margir
og kirkjan frekast rúmaði. Þessi
söngflokkur var byggður upp af
foreldrum með börn sin sex og
sungu þau ýmist öll saman eða
sitt i hverju lagi, auk þess sem
leikið var á hljóðfæri.
Söngur þeirra og framkoma
hreif áheyrendur mjög og urðu
margir til að panta plötur, sem
fjölskyldan hefur gefið út, svo að
söngur þeirra hefur heyrzt á ís-
landi alla tið siðan á mörgum
heimilum.
Nú leggja þau á ný leið sína til
íslands og munu syngja í Bústaða-
lyrkju á fimmtudagskvöldið kl.
8:30 og er aðgangur ókeypis og
allir velkomnir.
Faðirinn er prestur í Bandarikj-
unum, en nú eru þau að koma úr
söngferðalagi um Norðurlönd, og
þar sem þau fara heim strax á
föstudaginn, verður ekki um end-
urtekningu hljómleikanna að
ræða.
Hestamannamót
Eyfirðinga á
Melgerðismelum
Hestamannafélögin viö
Eyjafjörð gangast um
helgina, 25. og 26. júní fyr-
ir hestamannamóti á móts-
svæöi félaganna á Mel-
geröismelum.
Árdegis á laugardag verða kyn-
bótahross dæmd og eftir hádegi
fara fram dómar gæðinga í A og B
flokkum. Undanrásir kappreiða
hefjast kl. 4 á laugardag en keppt
verður i 250 metra skeiði, 250
metra stökki, 350 metra stökki,
800 metra stökki og 1500 metra
brokki. Á sunnudag verður dóm-
um kynbótahrossa og gæðinga
lýst og félagar úr hestamanna-
félögunum ríða í hópreið inn á
mótssvæðið. Þá verða úrslit i
kappreiðum.
Að sögn forsvarsmanna mótsins
eru fjölmörg hross skráð til
keppni á mótinu og meðal ánnars
16 hross í skeiði. Flest eru hrossin
úr Eyjafirði en nokkur hafa verið
skráð úr Skagafirði. Félögin, sem
standa að mótinu eru hesta-
mannafélögin Funi, E.vjafírði,
Léttir, Akureyri, Hringur, Dalvík,
Gnýfaxi, Ólafsfirði, Þráinn í
Höfðakaupstað og Hrossaræktar-
sambandið Haukur.
Happdrætti
Pólýfónkórsins
Dregið hefur verið í happdrætti
Pólýfónkórsins og upp komu
eftirtalin númer:
5876. Ferð fyrir tvo til sólar-
landa með Ferðaskrifstofunni Ut-
sýn. kr. 170.000. 7128. Ferð fyrir
tvo til sólarlanda með Ferðaskrif-
stofunni Utsýn kr. 170.000. 2453.
Ferð fyrir einn til sólarlanda með
Ferðaskrifstofunni Utsýn kr.
60.000. 7032. Hljómplötuúttekt
hjá Hljóðfærahúsi Reykjavikur
Laugavegi 96. 2729, 11448, 5015.
9155, 4203, 1037, 7474. 896. 5016,
alll 10 þús. kr. vinningar.
BÁTAURV
LIÐ
plastbátar frá Noregi
xodiac álbátar frá U.S.A.
starcraftm slöngubátar frá Frakklandi