Morgunblaðið - 22.06.1977, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JUNÍ 1977
Alþýðutónlist í Ósló
SAMKÓR Trésmiðafélags
Reykjavíkur og Lúðrasveit
Verkalýðsins verða fulitrúar
tslands á samnorrænu tónlistar-
móti, sem haldið verður í Ósló
dagana 30. júní tii 3. júlí næst-
komandi.
Þetta mót er haldið á vegum
Norræna Alþýðutónlistarsam-
bandsins. Innan þessa sambands
eru allir tónlistariðkendur innan
vébanda verkalýðshreyfinga
Norðurlanda, alls um tíu þúsund
manns.
Norræna Alþýðutónlistarsam-
bandið var stofnað árið 1947 og
hefur síðan haldið tónlistarmót
fjórða hvert ár. Það er í fyrsta
sinn nú í ár að íslendingar taka
þátt í þessu móti, enda var
íslenskt alþýðutónlistarsamband
stofnað í þessum mánuði.
Samkór Trésmíðafélagsins
hefur nú starfað í fimm ár.
Félagar i kórnum eru nú 50
talsins, aðallega trésmiðir og eig-
inkonur þeirra. Kórinn heldur
hljómleika fyrir styrktarfélaga
sina á morgun, fimmtudag, kl.
20.30 i sal Menntaskólans við
Hamrahlíð.
Þessir hljómleikar eru siðasti
liður í undirbúningi kórsins fyrir
Noregsferðina. Stjórnandi er
Guðjón Böðvar Jónsson.
Lúðrasveit Verkalýðsins var
stofnuð árið 1953 og hefur gengið
á ýmsu á ferli hennar. Starfsemi
sveitarinnar hefur aukist á
siðustu árum og nú eru félagarnir
26 talsins. Lúðrasveitin heldur
hljómleika í Austurbæjarbíói
næstkomandi laugardag og eru
Framhald á bls. 21
Hlaut þridja sætið á al-
þjóðlegu móti í Noregi
SKÓLAHLJÓMSVEIT Kópa-
vogs hreppti þriðja sætið á
alþjóðlegu móti lúðrahljóm-
sveita sem fram fór í Hamri í
Noregi í fyrradag, en alls tóku
48 hljómsveitir þar þátt f
þessari keppni. Mót þessi eru
haldin annað hvert ár og var
þetta í fimmta skipti sem það
var haldið. Fór hljómsveitin
utan sl. laugardag en hún fékk
til þess nokkurn styrk frá
menntamálaráðuneytinu.
Skömmu áður en hljómsveit-
in hélt utan kom á markaðinn
ný hæggeng hljómplata, þar
sem hljómsveitin leikur tón-
verk eftir innlend og erlend
tónskáld undir stjórn Björns
Guðjónssonar, en hljómsveitina
skipa 50 hljóðfæraleikarar.
Gefur Skólahljómsveitin sjálf
út plötuna en dreifinguna ann-
ast SG-hljómplötur. Ágóðanum
af þessari plötu verður fyrst og
fremst varið til að standa undir
áðurgrendu móti lúðrasveita í
Hamri, en þaðan hélt hljóm-
sveitin til Þrándheims, sem er
vinabær Kópavogs.
Skólahljómsveit Kópavogs:
Karl Hjelm með
ljósmyndasýningu
í Neskaupstað
Neskaupstað 20. júnf
Myndin sýnir 50. stúdentaárganginn sem er útskrifaður frá M.A., alls 114 manns.
50. stúdentahópurinn frá M. A.
DAGANA 18.—21. júni heldur
Karl Hjelm ljósmyndasýningu í
félagsheimilinu Egilsbúð. Allar
myndirnar eru litmyndir, og eru
stækkaðar af litskyggnum.
Myndirnar eru stækkaðar i
Noregi og hefur Ólafur H. Jóns-
son í Neskaupstað rammað þær
inn. Karl, sem er áhugaljósmynd-
ari, sýnir 35 myndir á sýningunni,
en þær eru teknar á siðustu árum.
Þetta er fyrsta einkasýning Karls.
Fréttaritari
Akureyri, 17. júní.
Menntaskólanum á
Akureyri var slitið í morg-
un, og fðr athöfnin fram að
vanda í Akureyrarkirkju. í
upphafi athafnarinnar iék
blásarakvartett, en síðan
flutti Tryggvi Gíslason
skðlameistari yfiriit um
skólastarfið á liðnum vetri
og úrslit prófa. Síðan
brautskráði hann 114
stúdenta, og er það 50.
stúdentaárgangurinn, sem
Séra Skírnir
í Hjarðarholts-
prestakalli
TALIN voru atkvæði á skrjfstofu
biskups í gær frá prestskosningu í
Hjarðarholtsprestakalli í
Snæfellsness- og Dalaprófasts-
dæmi, sem fram fór 12. júní s.l.
Einn umsækjandi gaf sig fram,
séra Skírnir Garðarson, settur
sóknarprestur. Á kjörskrá voru
405, þar af kusu 216. Umsækjandi
hlaut 215 atkvæði og einn seðill
var auður. Kosningin er lögmæt.
kemur frá Ménntaskólan-
um á Akureyri (hin fyrsti
tók stúdentspróf árið
1928). 35 stúdentar komu
úr máladeild, 15 úr eðlis-
fræðideild, 15 úr félags-
fræðideild, 49 úr náttúru-
fræðideild og 6 úr öldunga-
deild, hinir fyrstu, sem
hafa stundað nám sitt ein-
göngu þar. Þeir hafa stund-
að máladeildarnám.
Hæstu einkunn á stúdentsprófi
hlaut Áskell Harðarson (E) I. ág.
9,31. Aðrir hæstu menn í hverri
deild voru Aðalheiður E. Jóns-
dóttir (F’) 7,18, Bragi Skúlason
(M) og Geirþrúður Pálsdóttir
(M) 8.00, Hólmfríður Þorgeirs-
dóttir (N) 8,31 og Guðlaug Her-
mannsdóttir (Ö) I. ág. 9,12.
Af hálfu þeirra 6 stúdenta frá
1927, sem hlutu kennslu í M.Á.
(sem þá hét Gagnfræðaskólinn á
Akureyri, en hlaut rétt til að
brautskrá stúdenta haustið 1927
og breytti þá um nafn), en luku
prófinu frá Menntaskólanum í
Reykjavik, talaði Jón Guðmunds-
son. Af hálfu 40 ára stúdenta tal-
aði Birgir Finnsson og afhenti að
gjöf frá þeim málverk af Her-
manni Stefánssyni kennara, mál-
að af Sigurði Sigurðssyni, sem er
einn í hópi 40 ára stúdenta. 25 ára
stúdentar gáfu fjárhæð f sögusjóð
M.A, en ætlunin er að gefa út
sögu skólans í þremur bindum á
aldarafmæli hans haustið 1980.
Höfundar verða Gísli Jónsson,
Steindór Steindórsson og Tryggvi
Gíslason. Stefán Stefánsson
bæjarverkfræðingur afhenti gjöf-
ina með ræðu. Fulltrúi 10 ára
stúdenta, sr. Jakob Hjálmarsson,
tilkynnti um gjöf þeirra, sem er
húsbúnaður í fundarherbergi
Hugíns, nemendafélags M.A. Þá
talaði Þórunn Jónsdóttir, ekkja
Kristjáns heitins Jónssonar, lög-
fræðings, sem lauk stúdentsprófi
frá M.A. fyrir 40 árum, og afhenti
skólanum að gjöf málverk eftir
Gunnlaug Scheving til minningar
um mann sinn.
Skólameistari'þakkaði gjafirn-
ar og hlý orð í garð skólans og gat
þess í ræðu sinni, að ákveðið hefði
veriðað koma upp skála Mennta-
skólans í stað gamla Utgarðs, þar
sem nemendur geta notið útivist-
ar og komist í snertingu við
náttúru landsins. Skálanum hefir
ekki enn verið valinn staður, en
hins vegar ráðið, að skálinn beri
heiti, sem með einhverjum hætti
verður tengt nafni Hermanns
Stefánssonar.
í tilefni skólaslitanna er þessa
dagana opin málverkasýning i
Möðruvöllum, raungreinahúsi
M.A., þar sem sýnd eru verk eftir
Hring Jóhannesson listmálara.
Sv.P.
Norrænir gistíhúsa-
eigendur á afmælis-
þingi hér á landi
SAMBAND Norrænna veitinga-
og gistihúsaeigenda hélt þing sitt
hér á landi á dögunum, en fund-
inum lauk I Revkjavík sl. mið-
vikudag. Sambandið átti 40 ára
afmæli á þessu ári. Að sögn Þor-
valds Guðmundssonar veitinga-
manns, sem verið hefur formaður
sambandsins tvö slðustu starfs-
tfmabil, gerðust íslendingar aðil-
ar að þessum samtökum 1 kring-
um 1950, og var fyrsti fundur
samhandsins hér á landi haldinn
þegar árið 1951.
Tilgangur samtakanna er að
ræða ýmis sameiginleg vandamál
og hagsmunamál, svo sem áfeng-
islöggjöfina, notkun kreditkorta,
samvinnuna við ferðaskrifstofur
og menntunarmál þeirra sem
vinna á þessu sviði þjónustu, en
Þorvaldur sagði að menntunar-
málin væru mjög áberandi þáttur
i starfi samtakanna. íslendingar
hefðu lengst að verið meiri þiggj-
endur en veitendur í þessu nor-
ræna samstarfi og notið mjög góðs
af þvi, þegar þeir hefðu sjálfir
farið að byggja upp sín veitinga-
og gistihússaumsvif.
Hann benti á, að þetta væri í
raun mjög ung starfsgrein hér á
landi, því að á tímabiiinu
1930—60 hefði ekki verið reist
neitt gistihús hér á landi og það
hafi ekki verið fyrr en kringum
1960 að gistihús á alþjóðlegan
mælikvarða hafi aftur verið
byggð, fyrst Hótel Saga, þá Hótel
Holt og Loftleiðir. Hafi íslending-
um þá verið mikilvægt að geta
leitað til Norðurlandanna um
menntun og þjálfun starfsfólks og
það hafi ekki verið hvað sízt aðild-
inni að norræna sambandinu að
þakka hversu vel hefði til tekizt.