Morgunblaðið - 22.06.1977, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 1977
Er Idi Amin
blevet mjrdet?
Berlingur og B.T.
koma nú út á ný
Kaupmannahöfn 21. júní
—Frá Erik Larsen,
fréttaritara Morgunblaðsins.
KLUKKAN 00,37 byrjuðu
pressurnar f byggingu
Berlingske hus aftur að snúast
eftir 141 dags hvíld, sem þð
hafði fjórum sinnum verið rof-
in með útgáfu neyðarblaða.
Einnar og hálfrar klukkustund-
ar seinkun hafði orðið þegar
prentsmiðjan fór í gang, en
svipuð seinkun varð einnig þeg-
ar hefja átti prentun sfðdegis-
blaðsins B.T. Hafa því tvö blaða
Berlingske hus, Berlingske
tidende og B.T., aftur hafið
göngu sfna.
I grein í fyrsta tölublaði
Berlings eftir verkfallið, segir
Anker Jörgensen, forsætisráð-
herra, að hann líti ekki á vinnu-
deilu eins og Berlingskedeiluna
sem tilræði við málfrelsið.
Blaðadauðinn er hættulegri
segir hann.
Louis Schandorff, varafor-
maður starfsmannafélags B.T.,
segir að ástæðan fyrir seinkun-
inni sé fækkun starfsmanna,
samkvæmt innanhússsamning-
um, en vildi ekki útiloka að
tæknilegir erfiðleikar hefðu
ráðið þar nokkru um. Hins veg-
ar hefði ekki verið um neinar
aðgerðir prentara að ræða.
Starfsmenn Berlingske hus
eru almennt ánægðir með að
hafa hafið störf að nýju, en ný
vandamál geta skotið upp koll-
inum, þar sem aðaldeiluefnið
er enn óleyst, sem er ný prent-
tækni.
OPEC hættir við
olíuverðhækkunina
Amman. 21. júní. m Keuter.
ELLEFU aðildarríki samtaka
olíuútflutningslanda OPEC hafa
frestað framkvæmd áætlana um
hækkun á olíuverði hinn 1. júlí,
samkvæmt því sem útvarpið í
Riyadh hermir. Hafði útvarpið
það eftir Ahmed Zaki Yamani,
olfuráðherra Saudi Arabiu, að
hann hefði fengið bréf frá orku-
ráðherra Venezuela, Valentin
Hernadez Acosta, þar sem segir
að engar hækkanir verði fyrr en
að loknum ráðherrafundi OPEC.
Á fundi í desember í fyrra sam-
þykktu öll aðildarlönd OPEC að
Saudi Arabiu og Sameinuðu ara-
bisku furstadæmunum undan-
skildum að hækka verð á olíu um
10% 1. janúar og aftur um 5% 1.
júlí. Saudi Arabia og SAF ákváðu
að hækka olíuverð um 5% í
janúar.
Saudi Arabiu og SAF sýndu lit
á að brúa bilið fyrir þrem dögum
síðan, þegar Yamani tilkynnti að
löndin tvö væru reiðubúin að
hækka olíuverð sitt um 5% í júlí
ef önnur OPEC lönd féllu frá
sínum áformum um 5% hækkun.
Þessi málamiðlun bindur endi á
tveggja verðflokka kerfið, sem
verið hefur við lýði síðan eftir
fundinn í Doha í desember. Ráð-
herrafundur OPEC verður hald-
inn í Stokkhólmi 12. júlí.
Sjónvarpsmynd-
in í fyrrakvöld:
London21 júnf— AP
BREZKA „fréttamyndin"
þriðji kosturinn, sem ís-
lenzka sjónvarpið sýndi á
mánudagskvöldið, um leið
og hún var frumsýnd í Bret-
landi og öðrum löndum,
reitti marga brezka sjón-
varpsáhorfendur til reiði.
í myndinni, sem gaf f
skyn að endalok Iffs á jörð-
inni væru í nánd, var sýnt
„Þriðji kosturinn”
vakti gremju Breta
að Bandaríkjamenn og Sov-
étmenn ynnu saman að
áætlun um flótta frá jörð-
inni. Áætlunin fól f sér
stofnun nýlendu banda-
rfskra og sovézkra vfsinda-
manna á Marz.
Myndin er síðbúið aprílgabb, sem
virðist hafa misst marks ef dæma
má af þeirri gremju, sem hún vakti
meðal fjölda brezkra áhorfenda Það
var ekki fyrr en í lok myndarinnar,
sem Anglia Television stóð að, að
vísbending var gefin um að efni
myndarinnar væri skáldskapur, en
þá var sagt f texta, að hún hefði
verið gerð 1. apríl 1977
Skelkaðir áhorfendur ollu öng-
þveiti f símaborðum dagblaða,
frettastofa og sjónvarpsstöðva, þeg-
ar þeir komust að raun um að ..vís-
mdalegar staðreyndir' , sem þeir
höfðu verið að horfa á, væru ekki
annað en gabb
„Ég var virkilega hrædd. það var
aldrei gefið til kynna að myndin
væri gabb,' sagði frú Jane Jones.
ung móðir í Hampshire, sem var ein
margra áhorfenda, sem létu í sér
heyra
Annar áhorfandi, George Forde í
Peterborough, sagði á þeir sem
hefðu gert myndina hlytu að „vera
sjúkir á sinninu. Til hvers að sýna
aprflgabb f júnf? Ég hef aldrei á ævi
minni vitað annað eins ábyrgðar-
leysi.”
Talsmaður yfirvalda, sem fylgjast
með óháðum sjónvarps- og útvarps-
stöðvum f Bretlandi, sagði að fallizt
hefði verið á sýningu myndarinnar
athugasemdalaust
„Við héldum að brezkir sjónvarps-
áhorfendur væru veraldarvanari en
raun ber vitni,' sagði talsmaðurinn
Klofningur á hval-
veiðaráðstefnunni
Kanberra, 21. júní. Reuter.
FUNDI Alþjóða hvalveiðinefndarinnar, sem 16 þjóðir eiga sæti á, var
lokað I dag fyrir fréttamönnum og eru fregnir um að meiriháttar
ágreiningur sé á milli fulltrúa um hve marga hvali og hvaða tegundir
megi veiða á næsta ári. Við setningu fundarins I gær kom ( ljós
klofningur á milli hvalveiðiþjóða með Sovétmenn og Japani 1 forystu
og þjóða, sem ekki stunda hvalveiðar, sem Bandarfkjamenn hafa
forystu fyrir.
Japanir og Sovétmenn, sem
veiða 75% af þeim 28.000 hvölum,
sem heimilt er að veiða á ári, hafa
lagst gegn tillögu um 19 ára bann
við hvalveiðum og verulega
minnkun kvóta. Ástralskur nátt-
úruverndarfrömuður sagði í
kvöld að sterkar Iíkur væru á þvi
að Japanir og Rússar gengju af
fundinum, ef verulegur niður-
skurður verður samþykktur á
kvótum.
Richard Jones, fulltrúi Jonah
verkefnisins, sem eru samtök
hvalverndarmanna, hefur skýrt
frá þvi að visindamenn hafi mælt
með þvi við nefndina að búrhval-
veiðikvótar i Kyrrahafi verði
minnkaðir um 90%. Er það vegna
mikillar fækkunar búrhvala.
Símamynd AP.
LEONID BREZHNEV, aðalritari sovézka kommún-
istaflokksins og forseti Sovétríkjanna, flytur ávarp
við komu sína til Parísar í gær. Við hlið hans stendur
Valery Giscard d’Estaing, forseti Frakklands.
Talsmenn hvalveiðinefndarinn-
ar hafa ekki viljað staðfesta þessi
ummæli Jones, en segja að nýjum
aðferðum hafi verið beitt i ár við
talningu búrhvalastofnsins.
Samkvæmt upplýsingum emb-
ættismanna nefndarinnar buðust
Ástraliumenn til að aðstoða við að
teknar verði upp mannúðlegri að-
ferðir við aflífun hvala. Búist er
við þvi að tilkynnt verði um nýja
veiðikvóta á föstudag við lok
fundarins. Aðeins sjö af 16 aðild-
arlöndunum stunda enn hvalveið-
ar: Ástralía, Danmörk, Brasilia,
Island, Japan, Noregur og Sovét-
rikin. Önnur aðildarlönd hafa
hætt hvalveiðum.
EBE setur
Amin kosti
Luxemborg 21. júni —
Frá fréttaritara
Morgunblaðsins, Ole WUrtz.
UTANRÍKISRÁÐIIERRAR
Efnahagsbandalagsríkja gáfu Idi
Amin, forseta Uganda, hryssings-
lega aðvörun í dag: ÖIIu samstarfi
EBE og Uganda er lokið, ef
Uganda tekur ekki upp nýja
stefnu í mannréttindamálum.
Náið samband er á milli Efna-
hagsbandalagsins og Uganda
vegna svokallaðrar Lomé-
samþykktar. EBE hefur þannig
góða aðstöðu ti! að beita Amin
efnahagslegum þvingunum. Full-
trúar EBE sögðu í dag, að Amin
yrði að hætta að ofsækja og myrða
fólk ef framhald ætti að verða á
sambandi EBE og Uganda.
Utanrikisráðherrarnir gerðu
samþykkt þar sem harmað er
virðingarleysi Amins fyrir mann-
réttindum.
Frú Trudeau
vill mann sinn
úr embættinu
New York 21. júní — Reuter.
FRU Margaret Trudeau segist
bfða eftir þeim degi, að eiginmað-
ur hennar hætti að vera forsætis-
ráðherra Kanada svo að hún geti
orðið „ástfangin af honum að
nýju.“
í grein i síðasta tölublaði
Ladie’s Home Journal segir frú
Trudeau, að hún hafi aldrei átt
ástarsamband við annan en eigin-
mann sinn, og að hann hefði
aldrei kippt sér upp við orðróm
um framhjáhald hennar.
„Ég hef alla tíð verið trú,“ segir
hún í grein, sem ber fyrirsögnina
„Eigin saga Margaret Trudeau”.
Eftir þrálátan orðróm um að
hjónabandið væri að fara út um
þúfur féllust Trudeauhjónin á
þriggja mánaða samvistarslit til
reynslu. Hvað yrði eftir þann
tíma sagðist frú Trudeau ekki get-
að sagt fyrir um.
16 fórust
við Hawaii
Honolulu 21. júní — Reuter.
C-130 HERCULES flugvél banda-
ríska flughersins með 16 manns
innanborðs sprakk og hrapaði í
sjó 1.6 kílómetra frá flugbrautar-
enda á Wake-eyju á Hawaii rétt
eftir flugtak. Bátar voru strax
sendir til að leita að mönnum,
sem hugsanlega hefðu komizt af,
en enginn fannst.
ERLENT