Morgunblaðið - 22.06.1977, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JUNt 1977
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 1977
17
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Fréttastjóri
Auglýsingasjóri
Ritstjórn og afgreiðsla
Auglýsingar
hf. Árvakur. Reykjavik.
Haraldur Sveinsson.
Matthias Johannessen.
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Bjórn Jóhannsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6, simi 10100.
Aðalstræti 6. simi 22480
Áskriftargjald 1300.00 kr. á mánuði innanlands.
í lausasölu 70.00 kr. eintakið.
Kapp með forsjá
Geir Hallgrímsson forsætis-
ráðherra flutti íslendingum
ávarp á nýliðnum þjóðhátiðar-
degi. sem átti erindi við hvern
einasta þjóðfélagsegn. Þarvari
stuttu en skýru og skorinyrtu
máli varpað Ijósi á þau kenni-
leiti, sem varða veg þjóðarinnar
til farsællar framtíðar og miklu
skiptir að þjóðin glöggvi sig á
Forsætisráðherra sagði m a :
,,Það er tiska, bæði hérlendis
og erlendis, að magnið og
hraðinn, öfgarnar og hið af-
brigðilega sé fyrst og fremst
eftirsóknarvert og skipti máli.
Fjölmiðlum hættir til að ala á
þessum hugsunarhætti, og þeir
gera oft á tíðum sitt til að ýkja
skoðanaágremmg og deilur og
torvelda þann veg lausn þeira,
þegar við og raunar heimurinn
i heild þarf framar öðru á gagn-
kvæmum skilningi að halda,
sáttfýsi og málamiðlun, ef
vernda skal friðinn og koma á
samkomulagi milli manna."
,,Eftir að við íslendingar kom-
umst úr fátækt til bjargálna,
hefur stórhugur og bjartsýni
aukist og styrkt okkur í sókn-
inni til betri lifskjara. Hitt orkar
tvimælis, hvort við höfum jafn-
framt ræktað með okkur sem
skyldi eðlislæga eiginleika for-
feðra okkar, sparnað og nýtni,
varfærni og forsjálni — í
heimi þar sem fólki fjölgar of
ört, gæði eru takmörkuð og
skortur og hungur ríkja víða,
ber okkur ekki sizt að hyggja að
þessum fornu dyggðum Ekki
er fyrir að synja, að okkur hefur
siður skort kapp en forsjá ."
Hér vikur forsætisráðherra að
því, sem skiptir meginmáli i
dag fyrir ört vaxandi þjóð i
harðbýlu landi, með takmark-
aðar auðlindir láðs og lagar,
sem nýta þarf af hyggindum og
forsjálni að varðveita fnðinn i
þjóðfélaginu, að efla og uka
verðmætasköpun i þjóðarbú-
skapnum og sækja fram til
bættra lifskjara af forsjá ekki
siður en kappi — ,,Nú riður
á," sagði forsætisráðherra, ,,að
framleiðslan verði aukin mnan
þeirra marka, sem auðlmdir
lands og sjávar leyfa, með þvi
að kosta sem minnstu til — og
tilemka sér hinar fornu dyggð^
ir, sparsemi og forsjálni." Já,
oft var þörf en nú er nauðsyn
að mæta nýjum viðhorfum í
atvinnu- og efnahagslifi þjóðar-
mnar með framsýni og var-
kárni, ef takast á að sigla fram
hjá skerjum verðbólguvand-
ans, sem fyrir stafni eru
,,Nú skiptir máli," sagði for-
sætisráðherra ennfremur, ,,að
við gerum okkur grein fyrir, að
sömu fjárhæð verður ekki varið
til margs i senn Þvi sem við
ætlum til eigin nota á líðandi
stund, verður ekki varið til
framkvæmda eða opinberrar
þjónustu, ef við viljum komast
út úr vitahring verðbólgunnar
og draga úr erlendum lántök-
um, sem geta stofnað fjárhags-
legu sjálfstæði okkar í hættu.
Þvi miður hefur hlotizt margvis-
legur vandi. Á næstunni hljót-
um við að keppa að því á öllum
sviðum þjóðlifsins að ná þessu
búskaparlagi."
En samhliða réttmætum
varnaðarorðum minnir for-
sætisráðherra á, að þjóðm hef-
ur betri vopn i höndum i dag
en nokkru sinni áður í baráttu
sinni fyrir afkomu og öryggi.
Hann segir: ,,Við íslendingar
höfum nú bæði óskoruð yfirráð
fyrir landi okkar og auðæfum
hafsins allt í kring um landið að
200 milum eða miðlinum milli
landa, og ráðum yfir atvinnu-
tækjum til að nýta auðæfi lands
og sjávar — Ætli forverar okk-
ar hefðu ekki talið hvern vanda
auðleystan með slíkan bak-
hjarl? Ætli þeir teldu ekki niðja
sína ættlera, ef þeir kynnu ekki
fótum sinum forráð með slikan
bakhjarl?"
..Auðvitað verðum við ávalt
að sýna árverkni og standa
vörð um yfirráð okkar fyir landi
og landhelgi. í viðsjárverðum
heimi er fremsta skylda þjóðar-
innar að tryggja öryggi sitt og
sjálfstæði — En meðan örygg-
ið er tryggt, er það staðreynd,
að við íslendingar eigum það
emgöngu við sjálfa okkur að
búa svo í landinu, að hér verði
haldið uppi menningarlífi, er
færi landsmönnum efnalega og
andlega lifsfyllingu."
Undir þessi orð forsætisráð-
herra skal dyggilega tekið.
Þrátt fyrir margvíslegan að-
steðjandi vanda, innfluttan og
heimatilbúinn, sem skapað hef-
ur okkur sérstöðu meðal
Evrópuþjóða á sviði efnahags-
mála, erum við betur í stakk
búin en nokkru sinni fyrr að
ganga á vit komandi daga. En
árangur okkar, bæði varðandi
efnisleg lifskjör og menningar-
lega lifsfyllingu, er undir þvi
kominn, að við kunnum fótum
okkar forráð, blöndum kapp
okkar forsjá. Við þurfum allt í
senn að tryggja þjóð okkar
öryggi i viðsjálum heimi, innan
varnarsamstarfs vestrænna
rikja; nýta auðlindir láðs og
lagar með ræktunarsjónarmið
en ekki rányrkju að leiðarljósi
og byggja hin bættu lífskjör,
sem að er stefnt, á raunhæfri
verðmætaaukningu í þjóðar-
búskapnum Þetta eru þau
kennileiti, sem varða veg okkar
tl farsællar framtiðar, og þjóðm
verður að taka mið af, ef
þjóðarskútan á ekki að steyta á
skerjum
HVAD SEQJA ÞEIR UM SAMNINGANA?
um í gær, hafði Mbl. tal af nokkrum samningamanna og spurði þá, hvað þeim fyndist um þessa samningagerð og hvaða
kjaraáhrif og efnahagsáhrif þeir teldu að samkomulagið myndi hafa:
Þegar samningamálin
virtust vera á síðasta
snúningi á Hótel Loftleið-
Magnús L. Sveinsson
(iiinnar J. Friðriksson
IVIagnús (ieirsson
J6n Kjartansson
J6n Helgason
Þ6runn Valdimarsdóttir
Sigfinnur Karlsson
(iunnar Björnsson
Karl Steinar (iuðnason
Björn Þðrhallsson
itk
Hjörtur II jartarson
Alvarlegt ástand
ef ekki er hægt
að hækka kaupið
0 „ÉG TEL að með gerð þessa samn-
ings hafi náðst verulegur árangur. Sér-
staklega vil ég benda á, að kaupgjalds-
vlsitalan er nú föst inni í samningnum,
sem að mínu mati er mjög þýðingar-
mikið ákvæði til að tryggja þann kaup-
mátt, sem stefnt var að með gerð
samningsins,' sagði Magnús L.
Sveinsson framkvæmdastjóri
Verzlunarmannafélags Reykjaiíkur.
Hins vegar geri ég mér grein fyrir
því, að þessir samningar muni hafa
áhrif á verðbólguna og auka hana að
einhverju leyti, en menn mega ekki
gleyma því, að þótt engar kauphækk-
anir hafi orðið, þá hefur verið veruleg
verðhækkun á flestu eins og margkom
í Ijós á s I ári
Það hlýtur að vera alvarlegt ástand í
þjóðfélaginu, þegar það er erfiðleikum
bundið að hækka kaup frá 70—90
þús kr , sem flestir hafa fengið, f það
sem krafizt er. ef það stefnir efnahag
þjóðarinnar í voða Það er löngu viður-
kennt að 70—90 þús kr. á mánuði
eru langt fyrir neðan það sem hægt er
að lifa af
Hættulegir
samningar
^ „Ég held að þessir samningar eigi
eftir að reynast mjög hættulegir og
hljóti að hleypa nýjum krafti í verðbólg-
una. — Stökkið nú er alltof mikið í
einu,'' sagði Gunnar J Friðriksson iðn-
rekandi „Það hefði þurft að dreifa
kauphækkununum yfir miklu lengra
tímabil
Ef til lengri tíma er litið, hljóta þessir
samningar að leiða til atvinnuleysis og
stöðnunar atvinnulífsins, nema eitt-
hvað sérstakt óvænt happ komi til
Kauphækkunin nú verður yfir 30% í
einu stökki og man ég ekki eftir svona
háum samnmgum og hvað þá með
þrælbundinni vfsitölu. sem mælir allar
hækkanir "
Viðunandi
eftir atvikum
^ „Það er verið að vinna að lausn
deilu okkar við Reykjavíkurborg og ég
á frekar von á að það mál komist í höfn
á næsta sólarhring. en að þessu máli
hefur verið unnið stanzlaust síðustu
tvo sólarhringa," sagði Magnús
Geirsson. formaður Rafiðnaðarsam-
bands íslands.
„Um sjálfa niðurstöðu samninganna
vil ég segja það, að ég tel þá viðunandi
eftir atvikum. Hins vegar er mér það
Ijóst. að bað er fvrst oa fremst launa-
jöfnunarstefna innan A.S.I. sem verið
er að koma á. og ég óttast að aðrir
hópar í þjóðfélaginu taki ekki mið af
þessum samnmgum
Gangur samningaviðræðnanna hef-
ur verið alltof hægur, og það er útilok-
að fyrir verkalýðshreyfinguna að sætta
sig við svipuð vinnubrögð í næstu
samningum Þssu hefur verið þrýst
áfram án mikilla átaka og því miður
hefur sú aðferð ekki gefið nægilega
góða raun. Það er athugandi hvort ekki
verði að taka upp ákveðnari og harðari
stefnu f sambandi við vinnustöðvanir."
Höfum reynt að
tryggja kaupmáttinn
O „MIÐAÐ við þá kjaraskerðingu,
sem verið hefur að undanförnu, eru
þetta mjög góðir samningar Stærsta
atriðið í þeim er hvað við höfum reynt
að tryggja vel kaupmáttinn." sagði Jón
Kjartansson. formaður Verkalýðsfélags
Vestmannaeyja, og bætti við: „síðan
verður reynslan að leiða hitt í Ijós, þ.e.
hvernig stjórnvöld fara með málið og á
ég þar við kaupmáttinn
Reynsla undanfarinna ára er sú, að
stjornvöld hafa alltaf fiktað við samn-
ingana um leið og þeir hafa verið
gerðir, og þar undanskil ég enga ríkis-
stjórn.
Aftur á móti mótmæli ég þeirri skoð-
un, sem talin hefur verið náttúrulögmál
við hverja samningsgerð. að þjóðar-
skútan fari á hliðina þótt verkafólki séu
borgað mannsæmandi laun."
Við getum öll
átt samleið
0 „ÞAÐ fer nu að verða kækur hjá
okkur að kvarta yfir því, að samninga-
málin gangi of hægt/ sagði Benedikt
Davísson, formaður sambands
byggingarmanna „En (>að má alveg
segja að ennþá höfum við ekki fundið
eða haft lag á að notfæra okkur aðferð-
ir, sem koma meiri hraða á gang mála
Ég er hins vegar ekki á þvi, að til
betrí samningavínnu þurfí að kljúfa
|>etta upp og ég get ekki séð neitt í
þessari samningagerð, sem rennir
stoðum undir það, að við getum ekki
öll átt samleið T kjarabaráttunni. Við
höfum tvlmælalaust styrk hvert af
öðru, bæði I kaupgjaldsmálum og
félagslegum atriðum
Verði skynsamlega á málum haldið
af hálfu stjórnvalda ættu þessir samn-
ingar að færa launafólki verulega kjara-
bót Það er auðvitað gefið mál að I
kjölfar þessara samninga koma ein-
hverjar verðhækkanir, en þær hefur
verið hægt að sjá fyrir og verði haldið á
málum, eins og við höfum gert ráð
fyrir, þá ættu efnahagsáhrifin að verða
þau að þetta samkomulag verði til
raunhæfrar kjarabótar
Nokkuð ánægður
með samningana
^ „Ég er nokkuð ánægður með samn
ingana, ef ekki verður vikið frá þeirri
stefnu sem var mörkuð í upphafi. Þá
tel ég að láglaunastefnunni hafi verið
fylgt að mestu, og tel það til far-
sældar," sagði Jón Helgason, for-
maður Verkalýðsfélagsins Einingar á
Akureyri. „En ég er ekki sáttur við það
sem verið hefur að gerast síðustu
daga, þegar ákveðnir hópar hafa viljað
fá meira en aðrir. Þetta er fráhvarf frá
þeirri stefnu, sem mörkuð var og flestir
höfðu undirgengizt.
Ég er heldur ekki sáttur við þá stefnu
sem verið hefur, að sérkröfur sé öllum
skipt í einu og jafnt Það á að vera mat
atvinnurekenda að ganga til móts við
sérkröfur f samningunum og bera sam-
an við það sem aðrir hafa fengið.
Þá vona ég að stjórnvöld geri ekkert
til að skerða það sem um hefur verið
samið, því ég tel að þjóðfélagið geti
fyllilega staðið við þær skuldbindingar,
sem þessu fylgja.
Vá fyrir dyrum ef
samstaðan bregzt
^ „ÞAÐ ER fullyrt af efnahagssér-
fræðingum, að samkomulag sem við
höfum gert sé innan þess ramma, sem
þjóðarbúið á að þola," sagði Karl
Steinar Guðnason, formaður Verka-
lýðs- og sjómannafélags Keflavíkur. „í
upphafi gáfu ráðamenn þjóðarinnar út,
að krafan um 100 þús. kr. lágmarks-
kaup væri sjálfsagður hlutur, og nú fer
það eftir ríkisvaldinu hvort kerfið fer
allt úr böndum Ef tekst að hafa taum-
hald á verðbólgunni, er ég sannfærður
um, að samningurinn verði verkafólki
hagstæður.
Við höfum gengið til þessara samn-
inga í þeirri trú. að um það verði
samstaða í samninganefndunum að
láta mest til þeirra sem verst höfðu
launin. Ef sú samstæða bregzt, þá
viðurkenni ég, að vá er fyrir dyrum "
lÁ tímans f6r
í nytsama hluti
% „ÉG ER nú þeirrar skoðunar að
tæknilega hafi verið hægt að semja í
byrjun maí og að allt bardúsið eftir
þann tíma sé óþarfi," sagði Guðmund-
ur J. Guðmundsson. formaður Verka-
mannasambandsins. „Þannig get ég
sagt, að einn þriðji tlmans hafi farið í
nytsama hluti ogtveir þriðju í óþarfa.
Auðvitað má kenna báðum aðilum
um þessi ósköp, en f held ég að mestu
hafi nú valdið sú króníska nei-afstaða,
sem atvinnurekendur eru fastir í. þar til
allt er komið í hnút Að þeirri afstöðu
breyttri hjá þeim, held ég að við í
verkalýðshreyfingunni verðum að taka
okkur tak og vera fyrr á ferðinni með
kröfugerðina alla. Þegar við yrðum
þannig báðir búnir að bæta okkar ráð,
þá held ég að efst á blaði yrði virk
fastanefnd beggja aðila, sem starfaði
að samningamálum allt árið
Um samkomulagið segi ég það, að
ég er að mörgu leyti glaður yfir þvl, þó
alltaf megi nú gera betur við verkafólk-
ið í landinu. En kjaraáhrifin ættu að
verða góð Um efnahagsleg áhrif hef
ég það að segja, að ég held að það sé
fyllilega hægt að reka okkar þjóðfélag
án þess að verðbólga keyri efnahagslíf-
ið úr skorðum, þótt lægstu launin
hækki um 18 þúsund krónur."
Ekki verðbólgu-
samningar
ef velverður
á málunum haldið
9 "í ÞESSARI lotu höfm við notað allt
aðrar aðferðir en áður, þar sem eru
yfirvinnubannið og keðjuvirk dagsverk-
föll og svo yfirvofandi vinnustöðvun á
flug og hafnir," sagði Bjarni Jakobs-
son, formaður Iðju „Með þessu hefur
öll samningavinna af hendi ASÍ gengið
frekar fljótt og vel fyrir sig, en viðbrögð
vinnuveitenda hafa oft dregizt á lang-
inn og tafið þessa samningagerð meira
en góðu hófi gegnir.
Um kjaraáhrifin vilég segja það, að
ef verðbæturnar virka, eins og við
vonumst til, þá hafa engir samningar
fært okkur aðra eins kjarabót og þetta
samkomulag með þeim aðgerðum,
sem ríkisstjórnin hefur ákveðið að
gera. Um efnahagsleg áhrif er víst bezt
að segja sem minnst, en þó tel ég. að
ef vel verður á haldið, þá þurfi þetta
samkomulag ekki að teljast verðbólgu-
samningar "
Veróbólgu-
samningar
9 „Þetta eru miklir verðbólgusamn-
ingar og gefa ekki þá kjarabót sem ég
hefði viljað að þeir hefðu gefið Kaup-
máttaraukningin verður lltil, en verð-
bólguáhrifin mikil og læt ég þetta
nægja að sinni,' sagði Hjörtur Hjartar-
son kaupmaður
8.6 milljarða
kostnaðarauki
í fiskverkun
9 „SJÁLFSAGT veldur margt því.
hvað þessi samningsgerð hefur dregist
á langinn", sagði Jón Ingvarsson,
framkvæmdastjóri ísbjarnarins hf
„Vinnuveitendur hafa þurft að semja
við milli 250 og 260 starfshópa með
geysimargar tegundir sérkrafna.
Því miður voru þær kröfur sem sett-
ar voru fram í upphafi mjög óraunhæf-
ar og í engu samræmi við getu at-
vinnuveganna auk þess sem kröfur
langflestra félaganna gengu þvert á
jafnlaunastefnu ASÍ
Um útkomuna er það að segja, að ég
held að flestir séu sammála um, að
kjarabæturnar nú eru þær mestu, sem
samið hefur verið um hér á landi. En
afleiðingin er sú að verðbólgan fer
strax á fulla ferð og gengi krónunnar
hlýtur að lækka mikið á samningstím-
anum Sé gengið út frá núverandi
útflutngsverðlagi á fiskafurðum; freð-
fiski, saltfiski og skreið, þá nemur sá
kostnaðarauki, sem þessar greinar fisk-
vinnslu taka á sig vegna kjarasamning-
anna, um 8,6 milljörðum króna á árs-
grundvelli, því auk kauphækkunarinn-
ar sjálfrar hækka aðrir kostnaðarliðir að
sjálfsögðu.
Það hlýtur því að liggja í augum
uppi að nú þegar verður að gera ýmiss
konar ráðstafanir til þess að tryggja
útflutningsatvinnuvegunum við-
undandi rekstrarskilyrði."
Miklum vanda
varpað í
kjöltu rfk-
isstjórnarinnar
0 „Ég tel að þessi samningur valdi
gífurlegri hækkun launa í þjóðfélaginu
og verðbólgan verði miklu meiri en
svo, að það réttlæti þá hækkun kaup-
máttar sem með samningsgerðinni
næst Æskilegt hefði verið að ná þess-
ari kaupmáttaraukningu án þess að
verðfella krónuna svo stórlega sem nú
hlýtur að gerast," sagði Björn Frið-
finnsson fjármálastjóri Rafmagnsveitu
Reykjavíkurborgar.
Með samningsgerðinni varpa samn-
inganefndarmenn miklum vanda í
kjöltu ríkisstjórnarinnar og því hlýtur
að reyna á þolrif þeirra aðila næstu
misserin og að sjálfsögðu einnig á
stjórnum á fjárhag fyrirtækja "
Óðaverðbólga
framundan
# „Miðað við allt sem maður hefur
kynnzt áður, er Ijóst, að það er einfald-
lega óðaverðbólga framundan, það
getur hver maður sagt sér strax," sagði
Gunnar Björnsson, formaður Meistara-
sambands byggingamanna
Mér líst ekki sízt illa á þessa samn-
inga, þegar hæstlaunuðu hóparnir
krefjast meira en aðrir eins og t.d
byggingarmenn Það sjá svo allir
hvernig efnahagsáhrifin verða í
40—50% verðbólgu "
Vísitölubinding-
in merkilegust
^ „Maður verður víst að teljast sæmi-
lega ánægður með samningsgerðina.
Ég held að aðalstefnunni, sem A.S.Í.
markaði í upphafi, hafi verið haldið,"
sagði Björn Þórhallsson, formaður
Landssambands verzlunarmanna „Það
hefur vitaniega verið dálítið erfitt að
fylgja fram svona ákveðinni stefnu til
launajöfnunar, það hefur ekki áður ver-
ið gert. og skapað viss sárindi hjá
sjumum, sem fá hlutfallslega minna, en
margir í þessum hópi hafa á undan-
fömum árum fengið hlutfallslega
meira, bæði í krónutölu og prósent-
um."
„Það sem ég tel langmerkilegast við
samningsgerðina er vísitölubindingin.
hún hefur ekki verið síðan samið var
1974 og gilti þá aðeins örskamma
hríð, vegna þess að hún var tekin úr
sambandi af stjórnvöldum og verka-
lýðsfélögin áttu ekki von á þessu Ef
vísitalan yrði nú tekin úr sambandi.
hafa verkalýðsfélögin heimild til að
segja upp kjarasamningunum Því sýn-
ist mér það blasa við, að samningarnir
nú munu mjög bæta kaupmátt hjá
þeim er þeirra njóta
Aftur á móti er því mjög haldið á
lofti. aðaf samningunum leiði stórkost
leg verðbólga og hún er að sjálfsögðu
óæskileg. en ég vil mótmæla gersam-
lega, að hækkun launa með þeim hætti
sem nú hefur verið samið um sé aðal-
valdur verðbólgunnar Þar eru að verki
önnur öfl, sem mörg hver eru mjög
mikilvirk og má I því sambandi minna
á, að á meðan kaupmáttur launa dróst
saman á undanförnum árum dafnaði
verðbólgan meira en oftast áður "
Óttast bæði
verðbólgu og
atvinnuleysi
• „UM SAMNINGSGERÐINA er ekki
annað að segja að því er varðar hlut
vinnuveitenda að samningsgerðinni.
en að starfið var betur skipulagt af
þeirra hendi en ég minnist að hafi áður
verið, sem meðal annars kom fram í
því, að framkvæmdastjórnarmönnum
Vinnuveitendasambandsins var skipt á
hina ýmsu hópa, þannig að einn var í
hverjum hópi, hvort heldur var rætt við
iðnaðarmenn eða aðra, auk þess að
taka þát í aðalsamninganefndinni,"
sagði Kristján Ragnarsson, formaður
Landssambands ísl. útvegsmanna
„Um áhrifin er það að segja, þótt
leitt sé svo fljótt eftir samningsgerð að
samningarnir munu leiða til vaxandi
verðbólgu og ég óttast að ekki verði
aðeins um verðbólgu að ræða heldur
einnig atvinnuleysi. Samningsgerðin
gerir ríkar kröfur til stjórnvalda og eini
möguleikinn til að draga úr verðbólgu-
áhrifum er að ríkið dragi úr sínum
umsvifum og skattheimtu og þá sér-
staklega með lækkun óbeinna skatta er
dragi úr áhrifum vísitölunnar Verði
þetta ekki gert, þá kann ég ekki að
segja fyrir um afleiðingar samning-
,anna."
Til mikilla bóta
fyrir launþegana
^ „Mér finnst þessi samsteypuaðferð
koma alveg fráleitlega út Hún flytur
valdið um of frá fólkmu á hendur fárra
manna, þó segja megi að ástandið sé
ennþá verra, hvað þetta snertir, hjá
vinnuveitendum Ég er persónulega
hlynntur því að 'em mest af samninga-
málunum veröi reynt að leysa beint
heima í héraði," sagði Hallsteinn Frið-
þjófsson, formaður verkamannafélags-
ins Fram á Seyðisfirði
„Ég tel nú alveg Ijóst, að kjaraáhrif
þessa samkomulags verði til mikilla
bóta fyrir launþega Ég tel þó að at
vinnurekendur hafi komið of skammt
til móts við okkur, en það sé fullreynt
að meira fáist ekki nema eð miklum
átökum. sem öllum er bezt að komast
hjá
Kjarabótum fylgir alltaf einhver verð
bólga En visitöluákvæði samkomu-
lagsins eiga að bæta okkur hana upp
Vísitölubæturnar
betur tryggðar en
nokkru sinni fyrr
^ „Þetta er orðið óhóflega langdregið
og ég tel að það eigi að færa samn-
ingamálin meira i landshlutana," sagði
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir. formaður
starfsstúlknafélagsins Sóknar. „Hér
gæti vel verið skapleg nefnd, sem ynni
að sameiginlegum málum. en eins og
þetta er orðið. eru samningamálin allt-
of þung ívöfum
Með núverandi fyrirkomulag verður
ekki hjá því komizt að ósamstæðir
hópar tefji hver annan og ég tel stór-
lega vafasamt að láglaunafélögin eigi
nú nokkra samleið með ýmsum öðrum
félögum hér
Ég held, að kjaraáhrif þessa sam-
komulags verði verkafólki almennt
hagstæð og mér sýnist afkoma fyir
tækjanna slík, að þau ættu alveg að
þola þessa kauphækkun Ég vildi sjá
þetta samkomulag draga úr yfirborg-
unum Við nálgumst nú mjög það
takmark að geta lifað sómasamlega af
dagvinnukaupinu og það tel ég mikinn
ávinning Þetta samkomulag réttir og
verulega hlut ellilífeyrisþega og leið-
réttingar á skattakerfinu ætti að koma
mörgum til góða En númer eitt vildi
ég þó setja, að nú eru vísitölubæturnar
betur tryggðar en nokkurn tímann áð-
ur."
öánægð með
seinaganginn
^ „EFTIR ÞVÍ sem þessir samningar
hafa verið byggðir upp og við vonum
að verði, þá verð ég að segja að ég trúi
ekki að efnahagsmálin riðlist við samn-
ingsgerðina," sagði Þórunn Valdimars
dóttir, formaður Verkakvennafélagsins
Framsóknar. „Eins og samningarnir
liggja nú á borðinu tel ég þá ekki nógu
hagstæða
fyrir láglaunafólkið, sem á undanförn
um árum hefur borið miklar byrðar
vegna gífurlegra verðhækkana og það
vantar mikið á. að þessir samningar
bæti það Við skulum vona að fólk
haldi kaupmáttaraukningunni í þetta
sinn
Þá vil ég segja það, að ég vona að
samningar takist í kvöld eða nótt Mér
er ekki fjarri skapi að lýsa yfir óánægju
minni vegna seinagangs við samnings-
gerðina Ef ekki verður skrifað undir
nú. verður mikill óróleiki í mínum
félagsskap. og við viljum að samning
arnir gildi frá 20 júní, þannig að nýja
kaupið komi til útborgunar í næstu
viku."
Aldrei jafnhá pró-
senta né krónutala
„Miðað við fyrri samningagerðir.
þá held ég nú að þessi verði að teljast
nokkuð þolanleg. þótt gangurmn þessa
síðustu daga hafi að vfsu verið fyrir
neðan allar hellur," sagði Hilmar
Jónasson, formaður verkamannadeild
ar verkalýðsfélagsins Rangæings og
varafo maður Alþýðusambands Suður
lands „Það er ekki hægt að segja að
hér hafi verið unnið óskipulega. en ef
til vill má segja að vinnnan hafi ekki
verið taktföst út í gegn
Um kjaraáhrifin er það að segja. að
við höfum aldrei áður séð jafnháa pró-
sentu eða krónutölu koma út úr samn-
ingum. en á það er lika að lita, að
kjararýrnunin hefur verið einstök und-
anfarið Um verðbólguáhrif þori ég
ekki að spá Menn hafa sagt að 10%
kauphækkun þýði 4% verðbólgu þann-
ig að út á þetta samkomulag eitt ætti
verðbólgan ekki að vera meiri en 1 2
— 16%
Svona samningar
taka sinn tíma
0 „Það má ef til vill segja að þessi
samningsgerð hafi tekið of langan
tima," sagði Július Kr Valdimarsson,
framkvæmdastjóri Vinnumálasam-
bands samvinnufélaganna „Það er
hins vegar Ijóst, að svo stórbrotin
samningsgerð sem þessi er verk. sem
hlýtur að taka töluvert langan tima að
komast i gegn um Þetta eru viðtækir
Framhald á bls. 18
Björn Friófinnsson
(iuómundui J. (íuómundsson
Hilmar Jónasson
Júllus Kr. Valdimarsson Aðalhoiður Bjarnfri ðsdúltir
Hallstciiin Frióþjófsson
Ragnar S. Halldórsson
Bvncdikt Davlósson
Jón Ingvarssón
Bjarni J akohsson
Kristján Kagnarsson