Morgunblaðið - 22.06.1977, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JUNÍ 1977
25
félk í
fréttum
Mynd þessi var tekin sl. fimmtudag, 16. júní, á flugveilinum í Tokýó og sýnir
nokkra keppendur f alheims fegurðarsamkeppninni 1977 koma til keppninnar
sem hefst 1. júlí n.k. Þær eru talið frá vinstri: Dogmar Winkler, Þýzkaiandi,
Guðrún Helgadóttir, tslandi, Emine Koldas, Tyrklandi, Arja Liisa Lehtinen,
Finnlandi og Wiliy Muis, Hollandi.
Nú getur
Michelle
sungið
+ Fyrir einu ári gat þessi 1 2 ára
gamla stúlka Michelle Winter,
ekki talaS og fram aS þeim tlma
hafSi hún aldrei getað myndaS
orS. En fyrir einu ári gekkst hún
undir uppskurð á Middlesex
sjúkrahúsinu I London. Læknirinn,
Noel Thomson, tók vöSvabita úr
fæti Michelle og græddi hann I
hálsinn. AðgerSin tókst i alla staði
vel en þaS er fyrst nú, ári slðar, að
fullvist er aS Michelle mun ekki
missa röddina aftur, þvl nú er
álitiS aS hættan á aS líkaminn
hafni þessari vöSvatilfærslu, sé
liSin hjá. Nú.talar Michelle eðli-
lega og syngur þegar hún spilar á
gitarinn sinn. Þetta er fyrsti
uppskurSur sinnar tegundar sem
heppnast fullkomlega og læknir-
inn, Noel Thomson, fær bréf
hvaSanæva aS úr heiminum frá
fólki sem óskar eftir sams konar
aðgerS. Mestur hluti bréfanna er
frá foreldrum sem eiga börn sem
hafa fæSst eins og Michelle. „Ég
veit hvaSa þýðingu það hefur fyrir
þessa foreldra að fá þarna von um
lækningu fyrir börn sin," segir
móSir Michelle. „Mér finnst aS
þaS hafi gerst kraftaverk."
Jakobssott, lormaUur l8ju *
Reykjavtk. 053 Haíígrímur Pétors
s«n, formeöur i Hafnarfirðí.
m«8 veiþóknuo A. —
iówn.
Frá sýningu Leikfélags Húsavlkur á sjónleiknum „1 deiglunni" eftir
Arthur Miller, sem sýndur verður f Iðnó f vikunni.
Leikvika landsbyggdarinnar:
Húsvíkingar sýna í Iðnó
LEIKFÉLAG Reykjavfkur hefur
undanfarin ár boðið ieikfélögum
utan af landi að koma og sýna
sjónieiki sfna f lok leikárs og
helgað þeim viku af starfsári
sfnu: Leikviku landsbyggðarinn-
ar. Með þessu hefur Leikfélag
Reykjavfkur viljað styrkja tengsl
milli blómlegs áhugamannaleik-
húss úti um land og atvinnuleik-
hússins f Reykjavfk.
Að þessu sinni er það Leikfélag
Húsavíkur, sem verður gest-
komandi í Iðnó á Leikviku lands-
byggðarinnar og sýnir þar
fimmtudaginn 23. og föstudaginn
24. júni sjónleikinn ,,í deiglunni"
eftir Arthur Miller. Leikfélag
Húsavíkur er meðal dugmestu
áhugamannaleikhúsa úti á landi
og það hefur margsinnis ráðist í
að sýna viðamikil verk. Er þar
skemmst að minnast að það hélt
upp á 75 ára afmæli sitt á síðasta
ári með sýningu á Pétri Gaut eftir
Ibsen.
í sýningu Leikfélags Húsavikur
á sjónleiknum „í deiglunni",
kemur fram 21 leikari. Er það
annað tveggja leikrita, sem leik-
félagið setti á svið í vetur og var
sýnt 10 sinnum á Húsavík við
góðan orðstír. Leikurinn fjallar
um galdraofsóknir í Massa-
chusetts i Bandaríkjunum í lok
17. aldar og hefur fyrir löngu
skipað sér sess meðal sígildra
bandarískra leikbókmennta.
Leikstjóri er Haukur J. Gunnars-
son, en með aðalhlutverkið fer
Ingimundur Jónsson.
Þetta er í annað sinn, sem Leik-
félag Húsavíkur heimsækir Leik-
félag Reykjavíkur á Leikviku
landsbyggðarinnar. Fyrir þrem
árum sýndi félagið „Góða dátann
Svæk“ í Iðnó.
— Minning
Rósa
Framhald af bls. 22
var fullkomið jólaboð, heimilið
var komið i jólabúning, góðgerðir
allar með glæsibrag, sem frú Rósa
ein gat töfrað fram. Minningin
um þessi sérstöku jólaboð frú
Rósu lifir ávallt í hugum okkar
hinna mörgu kórfélaga frá þess-
um árum, góðvildin, kærleikur
hennar og heimilisins umvafði
okkur og gerði þessar stundir að
sífelldu tilhlökkunarefni.
Fjölmörg svona atvik væri hægt
að tilfæra. sem hin mikilhæfa
kona, sem hér er minnst, varðaði
veginn hér í Ólafsvík, sem höfðu
mannbætandi áhrif á samferða-
fólkið og juku jafnframt áhrifin
af starfi okkar ástsæla sóknar-
prests. Hús þeirra stóð öllum op-
ið, gestakoma var mikil, en allt
virtist þetta svo sjálfsagt og auð-
velt undir stjórn frú Rósu, sem
alltaf átti næg úrræði.
Ég átti þvi láni að fagna, ásamt
systkinum minum að alast upp i
nálægð prestfjölskyldunnar,
Prestseturshúsið „Skálholt“ og
hús foreldra minna „Uppsalir“
stóðu hlið við hlið, traust og ein-
læg vinátta var ávallt milli þess-
ara heimila, öll börnin á líkum
aldri, þessi vinátta hefur aldrei
dvínað, við urðum fyrir miklum,
dýrmætum áhrifum frá þessu
góða fólki. Mér verður oft hugsað
til þess, hversu fágæt ástúð og
samhugur rikti miili presthjón-
anna og barna þeirra, nákvæmni
frú Rósu við að hafa ávallt i full-
komnu lagi útbúnað eiginmanns-
ins, sem oft þurfti að fara skyndi-
lega í erfið ferðalög, ýmist fót-
gangandi eða ríðandi, áður en bíl-
ar komu til, en sr. Magnús var
orðlagður ferðagarpur, ég hefi
sjaldan orðið vitni að svo fágætri
umhyggju, ef hægt er að tala um
fullkomna eiginkonu, átti það
vissulega við frú Rósu.
Þegar hjónin fluttust frá Ólafs-
vik árið 1963, fylgdu þeim hlýjar
og einlægar kyeðjur og þakkir
allra ibúa Ólafsvíkur, sem sáu á
bak góðra vina, sem betur fer
hafa þessi vinabönd aldrei brost-
ið, hugur þeirra hefur leitað vest-
ur, og við mörg tækifæri hefur sr.
Magnús heimsótt fyrrverandi
söfnuð sinn og á vonandi eftir að
gera það oftar.
Frú Rósa hefur átt við erfið
veikindi að striða hin siðari ár,
sem hún hefur borið eins og hetja
á sinn hljóðláta hátt.
Nú þegar hún er öll, sendum
við vinir hennar hér fyrir vestan,
Ólafsvíkurbúar, okkar einlægar
kveðjur og hjartans þakkir fyrir
hennar mikla starf og góðu áhrif
fyrr og síðar, við blessum minn-
ingu hennar. Ég leyfi mér i nafni
Ólafsvikursafnaðar að flytja
eiginmanni hennar, okkar gamla.
góða sóknarpresti og vini, börn-
um þeirra og fjölskyldum, inni-
legar samúðarkveðjur, við biðjum
góðan Guð að gefa þeim styrk i
sorg þeirra — megi minningin um
hina góðu konu verða ljós á vegi
þeirra um ókomin ár.
Alexander Stefánsson
EF ÞAÐ ER
FRÉTTNÆMT
ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU
AlGIASINíi.V
SIMINN KK:
22480