Morgunblaðið - 22.06.1977, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JUNI 1977
31
Stykkishólmur:
Fagurt veður setti
svip sinn
Stykkishólmi 21. júnf.
17.JÚNÍ var að venju hátíðlegur
haldinn f Stykkishólmi. Veður
var hið fegursta svo sem var um
allt land og setti það sinn svip á
hátfðarhöldin.
Þau hófust uppi í skrúðgarði
kvenfélagsins kl. 14 um daginn
með leik Lúðrasveitar Stykkis-
hólms. Þá var stutt helgistund en
hátíðarræóuna flutti Pálmi
Frímannsson læknir. Fjallkonan
las lofgerðarljóð til fósturjarðar-
innar, danssýning var og einnig
söng Karlakór Stykkishólms
nokkur lög. Lúðrasveitin skemmti
siðan með léttum lögum og ætt-
jarðarlögum. Stjórnandi hennar
er Vikingur Jóhannsson en hann
hefir stjórnað henni frá upphafi
en hún var stofnuð 1944. Kven-
félagið hafði svo kaffisölu í
Félagsheimilinu og var þar margt
um manninn. Loks voru svo
íþróttir til skemmtunar á leikvejli
staðarins, keppt var í hlaupum,
Leiðrétting
í MYNDATEXTA á baksíðu Mbl.
í gær misritaðist föðurnafn unga
mannsins, sem drukknaði í Elliða-
vatni aðfararnótt 17. júní. Hans
rétta nafn var Jón Sævar
Gunnarsson, eins og rétt var
greint frá í sjálfri fréttinni. Eru
aðstandendur beðnir velvirðingar
á þessum mistökum.
á 17. júní
handbolta og fótbolta. Um kvöldið
var dans stiginn til kl. 2 að nóttu.
Fréttaritari
Fjölmenni
á aðalfundi
veiðibænda
DAGANA 14. og 15. júní
s.l. var aðalfundur Land-
sambands Veiðifélaga hald-
inn að Laugalækjarskóla í
Miðfirði. Fundinn sóttu um
50 fulltrúar víðs vegar af
landinu og var fundurinn
einhver sá fjölmennasti
sem haldinn hefur verið.
Á fundinum fluttu ávörp: land-
búnaðarráðherra, veiðimálastjóri
og formaður veiðimálanefndar.
Mörg mál voru tekin fyrir og
gerðar um þau ályktanir. Ríkti
einhugur á fundinum og almenn-
ur áhugi fyrir eflingu samtak-
anna. Kosinn var formaður i stað
Hermóðs sáluga Guðmundssonar
og hlaut kosningu Þorsteinn
Þorsteinsson Skálpastöðum, en
aðrir í stjórn eru Hinrik Þórðar-
son Útverkum, Sveinn Jónsson
Egilsstöðum, Haildór Jónsson
Leysingastöðum og Jóhann
Sæmundsson Asi í Laxárdal.
Bókun um Lífeyris-
sjóð verzlunarmanna
t FRAMIIALDI af frétt Morgun-
blaðsins f gær um samkomulag
milli verzlunarmanna og vinnu-
veitenda um lífeyrissjóðsmál fer
hér á eftir bókun, sem aðilar
gerðu með sér um þetta atriði:
„Aðilar eru sammála um að
setja á fót sex manna nefnd, þrjá
frá hvorum aðila, sem taki til
endurskoðunar reglugerð um líf-
eyrissjóð verzlunarmanna. Nefnd-
in skili áliti fyrir 1. október nk. og
gangi út frá því að í stjórn líf-
eyrissjóðsins sitji þrir menn frá
hvorum aðila frá og með sama
tíma. Þetta samkomulag er skilyrt
af hálfu fulltrúa vinnuveitenda
að einróma samkomulag verði um
meginatriði við endurskoðum
reglugeróarinnar."
Undir þetta rituðu af hálfu
verzlunarmanna þeir Guðmundur
H. Garðarsson, Magnús L. Sveins-
son og Björn Þórhallsson en fyrir
hönd vinnuveitenda undirrituðu
hana Albert Guðmundsson, Jón
Magnússon, Gunnar Snorrason,
Jón H. Bergs og Davið Sch. Thor-
steinsson.
VarSarferSir hafa jafnan verið fjölsóttar en þessi mynd var tekin i VarðarferB sumariB 1970 viB nýrunniB
Hekluhraun.
Kunnir staðir á Suðurlandi
skoðaðir í Varðarferðinni
Starf Landgræðslunnar í Gunnarsholti kynnt
LANDSMALAFELAGIÐ Vörður
efnir næstkomandi sunnudag, 25.
júní, til sinnar árlegusumarferðar
og verður að þessu sinni sarið um
Suðurlandsundirlendið. Meðal
áfanga T ferðinni er Gunnarsholt
en þar er aðsetur Landgræðslu
rfkisins og verður starfsemi henn-
ar kynnt. Varðarferðirnar hafa á
hverju sumri verið fjölmennustu
ferðir, sem farnar hafa verið frá
Reykjavfk og jafnan tekizt vel.
Aðalleiðsögumaður f ferðinni að
þessu sinni verður Einar Þ.
Guðjohnsen, sá kunni ferðagarp-
ur, og lýsir hann staðháttum á
viðkomustöðum og þvf. sem fyrir
augu ber á leiðinni. Fararstjóri f
ferðinni verður Óskar Friðriksson,
formaður Ferðanefndar Varðar.
— Frá Reykjavik verður ekið aust-
ur yfir Hellisheiði og allt austur fyrir
Hellu en þar verður beygt upp að
Gunnarsholti. Gunnarsholt er fyrsti
áfangi ferðarinnar, sagði Einar, er
við báðum hann að lýsa nokkuð
þeirri leið, sem að þessu sinni verð-
ur farin í Varðarferðinm — Sveinn
Runólfsson, landgræðslustjóri. segir
þar frá starfi Landgræðslunnar og
þarna gefst fólki einnig tækifæri til
að drekka morgunkaffi Þá verður
ekið framhjá Keldum en ekki stað-
næmzt þar. Áfram er haldið niður
með Eystri-Rangá og niður á brú hjá
Djúpadal. Þaðan er haldið í austur.
yfir Markarfljótsbrú og að Skógum
undir Eyjafjöllum
— í Skógum verður snæddur
hádegisverður og dvalið f nokkra
stund Þarna gefst fólki tækifæri til
að skoða Skógafoss og jafnvel fara
AÖalleiðsögumaður I ferðinni á
sunnudag verður Einar Þ.
Guðjohnsen
upp fyrir hann og skoða þá fossa.
sem þar eru. Ætli menn að fara í
þessa gönguferð er vissara að huga
vel að skóbúnaði Þeir, sem kjósa að
skoða sig um í Skógum, geta m a
skoðað byggðasafnið þar, sem er á
margan hátt merkilegt Frá Skógum
verður haldið aftur í átt til Reykjavík-
ur. farið yfir Markarfljót og upp með
Stóra-Dímon en staðnæmzt verður
við minningarreit Þorsteins Erlings-
sonar I Hlíðarendakoti í Fljótshlíð
Þaðan verður haldið um Hvolsvöll
og síðari viðkomustaðurinn verður
undir Ingólfsfjalli en þar verður boð-
ið upp á kvöldsnarl
— Á þeirri leið. sem farin verður.
er geysimargt. sem hægt er að
skoða og ef útsýni verður gott. er
fjallasýn af Suðurlandi bæði mikil
og fögur Undir Eyjafjöllum er lika
alltaf eitthvað nýtt að sjá Ekki má
heldur gleyma þvi, að við förum um
sögusvið Njálu og renna yfir hana
og glöggva sig á staðháttum. sagði
Einar að lokum
Fararstjóri i ferðinni verður Óskar
Friðriksson, formaður Ferðanefndar
Varðar. og sagði hann að með ferð
þessari væri ekki sizt lögð áherzla á
að kynna- starf Landgræðslunnar
Varðarferðin væri sem fyrr opin öll
um og þá mætti benda félögum i
sjálfstæðisfélögunum i nágranna
sveitaríélögunum á að þessi ferð
stæði þeim einmg opin og m a færi
bíll frá Sjálfstæðishúsinu i Hafnar-
firði kl 7 30 um morguninn Far
gjaldi er mjög i hóf stillt að sögn
Óskars en farmiði fyrir fullorðna
kostar 3 200 krónur og 1 600
krónur kostar fyrir börn en innifalið
er hádegisverður. kvöldsnarl og leið-
sögn Sala miða Í ferðina fer fram i
Valhöll. Bolholti 7. milli kl 9 og 2 1
og eru nú siðustu forvoð að tryggja
sér miða
— Varðarferðirnar hafa jafnan
tekizt i alla staði hið bezta og ég
vona að svo verði ernnig nú í þess
ari ferð gefst fólki tækifæri til að
ferðast laust við allar áhyggjur af
eigm akstri j ferðinni fá menn líka
leiðsögn kunnugra um landsvæði
sem margir aka um án þess að gefa
athyglisverðum stoðum nokkurn
gaum, sagði Óskar að lokum
Tónlistariðja norræns æskufólks í dag:
Kammertónleikar og fyr-
irlestrar um nútímatónlist
Reykjavík Ensemble á
förum ta Þýzkalands
Á HÁTÍÐARDAGSKRÁ
Tónlistariöju norræns
æskufólks í dag, miðviku-
dag, eru kammertónleikar
í Kjarvalsstöðum kl. 20,30.
Þar verður flutt verkið
Tríó fyrir fiðlu, selló og
píanó eftir Rolf Inge Godöy
frá Noregi, Decending
Music fyrir fjórar fiðlur
eftir Thomas Jennefelt frá
Svíþjóð. Þá verður flutt
Tonverkið Movement for
string quartet eftir Hjálm-
ar H. Ragnarsson, en verk-
ið var samið sumarið 1976
og eru ýmis kerfi og tón-
fléttur notaðar til grund-
vallar smíði kvartettsins.
Á efnisskránni er einnig tón-
verkiö Quite Recently eftir Frank
Tveor Nordensten frá Noregi, en
verkiö er fyrir rafmagnspíanó,
rafmagnsorgel, fiölu og kontra-
bassa. Sónata eftir Jónas Tómas-
son er einnig á efnisskránni, en
verkiö er fyrir básúnu og
harpscord. Soliloquio fyrir flautu,
eftir Lars Bisgaard frá Danmörku
er einnig á dagskránni og að siö-
ustu Kammerludium eftir Nils
Henrik Asheim frá Noregi, en
verkiö er fyrir horn, fiðlur, selló
og bassa. Nils er aðeins 17 ára
gamall, en flesl tónskáldin eru
fædri um og eftir 1950.
I sambandi viö tóniistarhátiö-
ina eru einnig fyrirlestrar í dag
opnir öllu áhugafólki, en fyrir-
lestrarnir eru i Norræna húsinu. I
dag kl. 14—16 ræðir George
Crumb um verk ungu Tónskáld-
anna og stýrir umræðum og kl.
17—19 er erindaflokkur sem heit-
ir Á fremstu víglínu tönsmiöanna,
flutt af Hans Abrahamsen, Hans
Gefors og Svend Aaauist
Johansen.
REYKJAVÍK Ensemble fer í tón-
leikaferð til Þýzkalands laugar-
daginn 25. júni n.k. og er það
önnur ferð hópsins til Þýzkalands
á þessu ári. Þau, sem fara í ferö-
ina nú , eru: Guöný Guömunds-
dóttir, Ásdis Stross, Mark Reed-
man, Nína G. Flyder, Sigurður
Snorrason og Halldór Haraldsson.
Mun hópurinn halda til Hamborg-
ar og nágrennis, en um páskana
föru þau til Suður-Þýzkalands. I
þessari tónleikaferö mun Reykja-
vík Ensemble flytja á fimni til scx
tönleikum eftirtalin verk: Klarí-
nett-kvintett eftir Anton Reicha
og pianó-kvintett eftir Anton Dov-
rák, Islenzka Þjóödansa eftir Jón
Ásgeirsson (samda fyrir Reykja-
vík Ensemble áriö 1975) og aö
lokum nýtt verk eftir. Pál P. Páls-
son, sérstaklega samiö fyrir þessa
ferö og heitir þaö CÍudis Mana
Hasi (samsetning á nöfnum hljóö-
færaleikaranna).
Eftir fyrstu tónleikana í Ham-
borg heldur islenzki konsiilhnn
þar boö fyrir tönlistarfólkiö og
íslendingafélagiö.
Reykjavík Ensentble var stofn-
aö áriö 1975 og hefur VVölfang
Stross annast allan undirbúning
og frantkvæmdir.
Meðfylgjandi mynd tók Ijósm.
Mbl. Emilía á æfingu hjá Reykja-
vik Ensemble í vikunni.