Morgunblaðið - 20.10.1977, Síða 1
40 SIÐUR
232. tbl. 64. árg. FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 1977_Prentsmiðja Morgunbíaðsins.
Lík Schleyers fannst í
farangursrými bifreidar
Bann við andófi og fiölda-
handtökur í Suður-Afnku
Jóhannesarborg 19. oklóbor Keuter
MINNIHLUTASTJÓRNIN í Suð
ur-Afrfku greip í dag til harkaleg-
ustu ráðstafana sem um getur um
árabil gegn þeim öflum, sem
beita sér fyrir jafnrétti kynþátt-
anna í landinu, og má nú heita að
girt hafi verið fyrir allt skipulagt
andóf af hálfu þeirra sem beita
sér fyrir réttindum hlökku-
manna. Utgáfa helzta málgagns
blökkumanna, The World, hefur
verið bönnuð, 18 félagasamtök
hafa verið bannlýst og dómsmála-
ráðherra S-Afríku hefur skýrt frá
því að í dagrenningu í mogun hafi
milli 50 og 70 manns, sem lang-
flestir séu blökkumannaleið-
togar, verið handteknir. Þá skýrði
lögreglan í Jóhannesarborg frá
þvf f kvöld að milli 65 og 70 hvftir
Sakharov
skorar á
geðlækna
iVloskvu — 19. október — Reuter.
Nóbeísverðlaunahafinn og
andófsm aðurinn Andrei
Sakharov hefur skorað á geð-
lækna um víða veröld að að-
stoða tvo sovézka starfsbræður
sfna, sem að undanförnu hafa
deilt á sovézk yfirvöld fyrir að
misbeita geðlækningum í póli-
tfskum tilgangi.
Annar þeirra, Josif Terrelli,
sem er fertugur að aldri, er í
geðsjúkrahúsi, og hefur dval-
izl í fangelsum, geðveikrahæl-
um og þrælkunarbúðum
samanlagt 14 ár ævi sinnar.
Framhald á bls. 22.
namsmenn hefðu verið handtekn-
ir f dag er þeir gengu fylktu liði
að pósthúsi f nágrenni háskóla
sins þeirra erinda að senda
Krúger dómsmálaráðherra mót-
mælaskeyti vegna þessara sfðustu
atburða.
EFTIR dómana, sem í gær voru
felldir yfir fjórum tékkneskum
baráttumönnum fyrir mannrétt-
indum, lét einn þeirra, leikrita-
höfundurinn Vaclav Havel, svo
um mælt f dag, að réttarhöldin í
gær hefðu ekki verið annað en
æfing fyrir þau réttarhöld yfir
andófsmönnum, sem f aðsigi
væru. Havel og félagar hans voru
allir dæmdir fyrir tilraunir til að
smygla úr landi ritverkum, sem
hefðu að geyma nfð um „ríkið“.
Þyngsti dómurinn var kveðinn
upp yfir Ota Ornest, sem er sá
eini sem ekki undirritaði skjalið
„Mannréttindi.77“. Hann á að af-
plána þriggja og hálfs árs fangels-
isdóm, en dómarnir yfir Havel,
blaðamanninum Jiri Lederer og
Frantisek Pavlicek, sem er fyrr-
um leikhússtjóri, eru skilorðs-
bundnir — 14 mánuðir til þrjú ár
í fangelsi.
Réttarhöldin i Prag hafa orðið
tilefni fyrstu alvarlegu orðasvipt-
inganna um mannréttindamál
milli fulltrúa Bandaríkjanna og
Sovétríkjanna á Belgrad-
ráðstefnunni. Arthur Goldberg,
sem hefur orð fyrir bandarísku
Þessar aðgerðir stjórnarinnar
hafa orsakað gífurlega ólgu um
allt landið, og hafa kröftug mót-
mæli borizt víða erlendis frá.
Meðal annars hefur Bandaríkja-
stjórn lýst því yfir að vegna þeirr-
ar framvindu mála, sem nú eigi
sendinefndinni á ráðstefnunni,
sagði i dag að réttarhöldin bæru
vott um mjög alvarlega þróun
mála, en sovézki fulltrúinn, Yuli
Vorontsov, svaraði því til að um-
mæli Goldbergs væru ekki annað
en tilraun til ihlutunar i innan-
ríkismál Tékkóslóvakiu.
Þá hafa réttarhöldin og dóm-
arnir kallað á kröftug mótmæli
sér stað sjái Bandaríkjamenn sig
knúna til að taka afstöðu sína til
S-Afríku til gagngerrar endur-
skoðunar, enda eigi þessir atburð-
ir sér ekkert fordæmi.
Helztu samtökin sem minni-
Framhald á bls. 22.
Amnesty International og fleiri
mannréttindahreyfinga. Franska
kommúnistablaðið L’Humanité
sagði um dómana i dag, að með
þei.n væri „réttlætinu afneitað".
Rude Pravo, hið opinbera mál-
gagn tékknesku stjórnarinnar, er
hins vegar annarrar skoðunar, og
gerir i dag grein fyrir dómunum i
Framhald á bls. 22.
Var myrtur fyrir
1-2 dögum í hefnd-
arskyni fyrir árás
á Lufthansaþotuna
Mulhousé, Austur-Frakklandi,
19. okt. — Reuter
LÍK v-þýzka iðnrekandans
Hanns-Martin Sehleyers
fannst í farangursgeytnslu
bifreiðar f franska þorpinu
Mulhouse rétt við v-þýzku
landamærin í kvöld. Lör-
reglan telur, að Schleyer
hafi verið invrtur í gær eða
jafnvel í fyrradag. Hann
hafði verið skorinn á háls.
Það var síðdegis — 44 dögum
eftir að Schleyer var rænt í árás i
Köln þar sem 4 menn létu lifið —
að franska blaðinu Liberation
barst tilkynning frá morðingjun-
um unt að Schleyer hefði veriö
ráðinn af dögum í hefndarskyni
fyrir áhlaupið á Lufthansa-
þotuna í Mogadishu, og væri l.ík
hans að finna i grænni Audi-
bifreið með v-þýzku númeri —
HG-AN 460 — i Mulhouse. Fjöl-
mennt lögregluliö fór þegar á
vettvang. Þegar að var komið var
billinn læstur og leiddi rannsókn
i ljós að hánn hafði verið á stæð-
inu frá þvi í gærkvöldi: Miklar
varúðarráðstafanir voru gerðar er
bíllinn var fluttur i aðalbæki-
stöðvar lögreglunnar á þessum
slóðum þar eð talið var að um
sprengjugildru gæti verið að
ræða, og tók langan tima aö af-
tengja allar leiðslur áður en
óhætt var talið að opna farangurs-
geymsluna. Fólki, sem býr i ná-
grenni lögreglustöðvarinnar, var
ráðlagt að setja hlera fyrir glugga
húsa sinna vegna yfirvofandi
sprengihættu, en er farangurs-
geymslan var opnuð blasti ekki
annað við en lik Schleyers.
Hryðjuverkamennirnir, sem
telja sig til „Siegfried Hausner-
sveitar Rauðu herdeildarinnar",
sem er innsti kjarni Baader-
Meinhof hryðjuverkasamtak-
anna, höfðu margítrekað hótað að
myrða Hanns-Martin Schleyer,
yrði kröfum þeirra um 15 milljón
dala lausnargjald og frelsun 11
höfuðpaura samtaka þeirra ekki
sinnt. Meðal þeirra fanga, sem
mannræningjarnir vildu fá lausa,
voru Baader, Ensslin og Raspe,
Framhald á bls. 22.
Baader-Meinhof sjálfsmorðin:
Fangelsisstjórinn í
Stammheim rekinn
Bonn, 19. okt.Reuter.
Fangelsisstjóranum
í Stammheim-
fangeisinu f Stuttgarl
var f dag vikið úr
starfi ásamt þcim
starfsmanni sem
ábyrgur hefur verið
fyrir öryggisráðstöf-
unum þeim, sem gerð-
ar voru vegna gæzlu
Andreas Baader,
Gudrun Ensslin og
Jan-Carl Raspe. Bonn-
stjórnin tók þó skýrt
fram í kvöld, að dvlgj-
ur um að fangarnir
hefðu verið myrtir
væru staðlausir stafir,
og að gengið hefði ver-
ið úr skugga uin að
þau hefðu fallið fyrir
eigin hendi.' Brott-
rekstur fangelsisstjór-
ans var tilkvnntur eft-
ir að ríkissaksóknar-
inn í Stuttgart upp-
lýsti í dag, að le.vni-
hólf hefði fundizt í
klefa Raspes. og va'ri
sýnilegt að þar hefði
Framhald á bls. 22.
„ Aðeins æfing fyrir þau réttar-
arhöld sem eru í aðsigi,,
Prag — 19. októher — Keuter.