Morgunblaðið - 20.10.1977, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 1977
23
Fyrsti íslenzki
kírópraktorinn
tekur til starfa
Sýnishorn af meðhöndlun Tryggva Jónassonar á bakveikum sjúkl-
ingi. Bekkurinn, sem unga stúlkan liggur á, er sérstaklega hannaó-
ur fyrir kírópraktíska meðhöndlun. I mörgum tilfellum eru sjúkl-
ingar það illa haldnir I baki að þeir geta ekki lagzt á bekkinn sjálfir
og er því bekkurinn fyrst hafður í uppréttri stellingu og er síðan
lagður með sjúklingnum. — Ljósm. Friðþjófur.
Fyrsti islenzki kírópraktor-
inn hefur tekið til starfa og
opnaó stofu fyrir þá starfsemi á
Klapparstíg 25 í Reykjavík.
Hann heitir Tryggvi Jónasson
og nam við Anglo-European
College of Chiropraetic i
Bournemouth, Bretlandi, sem
er eini háskólinn i Evrópu fyrir
þessa sérgrein. Tryggvi lauk
stúdentsprófi frá Menntaskól-
anum í Reykjavik árið 1971 og
hélt eftir það út í nám. Hann
tók lokapróf frá fyrrnefndum
háskóla sumarið 1976 og hlaut
þá gráðuna „Doctor of Chiro-
practic". Að náminu loknu
starfaði hann á sjúkrastofu
kírópraktors í Bournemouth í
tvo mánuði og siðan í eitt ár á
sams konar sjúkrastofum bæði
i Árósum og í Kaupmannahöfn.
Astæðan fyrir því að hann kom
ekki strax heim að námi loknu
var sú að hér eru engir starf-
andi kirópraktorar, en eins og
fyrr segir er hann sá fyrsti hér-
lendis, en einn annar íslending-
ur er við nám í þessum fræðum
í Bandaríkjunum.
Tryggvi Jónasson opnaði
læknastofu sína formlega s.l.
mánudag og boðaði af því til-
efni til blaðamannafundar.
Skýrði hann þessa sérgrein sína
fyrir blaðamönnum og sagði að
enn hefði ekki fundizt íslenzkt
orð yfir þetta starfsheiti en
skilgreiningin gæti flokkazt
undir handlækningar, því þótt
hann væri ekki læknir væri
nám hans að flestu leyti svipað
almennu læknanámi, að frá-
töldu því að hann tók ekki fyrir
lyfjafræði og skurðlækningar.
Tryggvi sagði m.a.: „Kíró-
praktor er sá, sem án hnífs eða
lyfja læknar bakveiki og kemur
bakinu aftur i eðlilegt horf.
Notar hann hendurnar ásamt
bekk eða stól til að hnykkja í
hryggjaliði. Sú hnykking kem-
ur hreyfingu á liðamót, sem
voru föst fyrir eða hreyfðust
ekki nóg. Við hreyfisbreyting-
una linast þjáningar og til að
færa sönnun á mál sitt, með-
höndlaði Tryggvi bæði blaða-
mann og ljósmyndara, en sá síð-
irnefndi kvartaði undan
slæmsku í hnéskel.
„Auk þess nota kirópraktorar
aðrar aðferðir til lækninga, t.d.
þrýstingsaðferðir, ráðleggingar
um vinnuhagræðingu og vinnu-
beitingu likamans.
Evrópskir kírópraktorar nota
helzt hnykkinguna til að lækna
bakveiki og þá vanlíðan, sem
hægt er að rekja til hryggjar-
ins, svo sem magaverk, höfuð-
verk o.fl.
Greinin kírópraktí er það
svið innan ramma vísindanna,
sem fjallar um uppruna meina,
sjúkdómsgreiningu, meðhöndl-
un og hvernig koma skuli i veg
fyrir hreyfingartruflanir, verki
og önnur taugalífeðlisfræðileg
áhrif í sambandi við hreyf-
ingarleysi og eða breytingar á
hreyfikerfi mannsins, sérstak-
lega hrygg og mjaðmargrind.
Verður kírópraktorinn að
nota alía nauðsynlega sjúk-
dómsgreiningu, hafa í huga
þarfir og vilja sjúlkingsins til
þess að meðhöndlun takist."
Að því er Tryggvi segir er
aðferðin eða meðhöndlunin sér-
stök tækni. Upphaflega aðferð-
in og aðal aðferðin er réttingin
eða hnykkingin. Réttingunni
eða hnykknum er ætlað að
hreyfa liðamótin á annan hátt
en þeim er eðlilegt án þess þó
að ofbjóða þeim.
Kírópraktí er í stuttu máli
skilgreint þannig, að rót meins-
ins sé taugavélræn og meinið
þurfi að meðhöndla á sérstakan
hátt að undangenginni sjúk-
dómsgreiningu.
Upphaf Kírópraktí
Að sögn Tryggva á nútíma-
kírópraktí rætur sínar að rekja
til Bandaríkjanna. Frumvöðull
þessarar starfsgreinar var
læknir af nafni D.D. Palmer
sem læknaði blökkumenn af
heyrnarleysi með hnykkingu.
Helgaði fyrrnefndur sig eftir'
það algerlega þessari sérgrein
og lagði grundvöllinn að kíró-
praktíkfræðum rétt fyrir síð-
ustu aldamót. Stofnaði hann
skóla, sem enn er starfræktur.
Breiddist kírópraktíin fljótt út
um öll Bandaríkin og til
Evrópu og náði fyrst til Dan-
merkur um 1920.
Nú eru starfræktir kíró-
praktískólar í öllum enskumæl-
andi löndum nema Nýja-
Sjálandi.
Námið, sem er lagt til grund-
vallar kírópraktornáminu, er
stúdnetspróf, þá helzt úr
náttúrufræðideild og tekur
nám þetta almennt fjögur ár.
Háskóarnir eru sérskólar og sá
eini í Bandaríkjunum, sem
hefur kírópraktí sem sérfag, er
Columbia University í New
York. Tryggi Jónasson segir að
tilviljun hafi ráðið því að hann
í upphafi lagði út i þetta nám,
en segist jafnframt hafa hugsað
sér að halda smá kynningarfyr-
irlestur um kfrópraktí í
Háskóla íslands.
„Náminu er skipt í tvennt:
grunnfög og klínísk fög. Grunn-
fögin eru: Anatómia, lífeðlis-
fræði, eðlisfræði, efnafræði, lif-
efnafræði, undirstaða kíró-
praktíkfræði, tækni (þreifing á
hrygg), röntgenfræði, matvæla-
fræði, fósturfræði, vefjafræði,
hreyfifræði o.fl.
Klínísku fögin skiptast m.a. i:
sjúkdómsgreiningu á
meltingar- og þvagfærasjúk-
dómum, hjarta- og lungnasjúk-
dómum, tauga- og hormóna-
sjúkdómum, beinasjúkdömum,
barna- og ellisjúkdómum.
fæðingarhjálp og kvensjúk-
dómum, kirópraktorsstarfið og
vinnusvið, sálarfræði og
sálgreiningu, aflestur af
röntgenmyndum og þá sérstak-
Iega af hryggnum."
Að lokum sagði þessi fyrsti
islenzki kírópraktor, sem nú
þegar er kominn með nokkra
sjúklinga i meðhöndlun að stað-
aldri: „Starf mitt hér er tví-
þætt, viðtal og skuðun, Svo og
nieðhöndlun ef þörf er á.
Skoðunin er að hluta kiró-
praktisk, þ.e. könnun á hryggn-
um og að hluta læknisleg. Oft
er nauðsynlegt að fá frekari
skoðun til að útiloka að um aðra
sjúkdóma sé að ræða en ein-
kennin benda til, t.d. blóð-
rannsókn, þvagrannsókn eða
röntgenmyndataka. Meðhöndl-
unin byrjar fyrst eftir skoðun-
ina.
Þeir sem til kírópraktors
leita eru yfirleitt með verk í
baki eða verki, sem stafa út frá
bakinu, t.d. höfuðverki eða
mjóbaksverki. Þaö er iðulega
hægt að hjálpa fóiki með
brjósklos, svo lengi sem slíkt er
ekki komið á lokastig.
Ég lofa engum að hann nái
fullkomnum bata, en þori yfir-
leitt aö segja um áttatíu
prósent," sagði Tryggvi Jónas-
son að lokum.
protín.vítamíii
Pú byrjar daginn vel, ef þú drekkur
mjólkurglas að morgni. Því ísköld
mjólkin er ekki bara svalandi
drykkur, heldur fæða, sem inni-
heldur lífsnauðsynleg næringar-
efni í ríkum mæli, svo sem
kalk, prótín og vítamín.
Mjólkurglas að morgni gefur
þér forskot á góðan dag.
mjólkurafuiúir
orkulind okkar og
heilsugjafi