Morgunblaðið - 23.02.1979, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1979
Páll Pétursson alþingismaður:
„Megum ekki missa
Alþýðubandalagsmenn
fram af bakkanum”
Á FUNDI framsóknarmanna á
Hótel Sögu s.l. þriðjudagskvöld
fjallaði Páll Pétursson alþingis-
maður m.a. um efnahagsfrum-
varp það sem Ólafur Jóhannesson
forsætisráðherra hefur haft orð
um s.I. datía.
„Alþýðuflokksmenn sáu að þetta
frumvarp var harla gott,“ sagði
Páll, „og þeir höfðu vit á því að
viðurkenna það, en Alþýðubanda-
lagsmenn fitluðu hins vegar við
vindgapann og því er nú brekka á
leið frumvarpsins og hana verðum
við að klífa, því ég held að það sé
nauðsynlegt að þessi ríkisstjórn
sitji.“
Páll skaut því þarna inn í
umræðurnar að hann væri tilbú-
inn til þess að semja um orðalags-
breytingar á frumvarpinu án þess
að um meiningarbreytingar væri
að ræða, en síðan hélt þingmaður-
inn áfram: „Við framsóknarmenn
verðum að leiðbeina Alþýðubanda-
laginu við áralagið, leiða þá frá
villu síns vegar og formanns há-
karlalegunnar sem er Ólafur
Jóhannesson. En um þetta mál má
segja eins og bóndinn orti forðum:
„Illa gerði andskotinn
er hann hljóp í svínstötrin,
öllu saman stakk hann
ofan fyrir bakkann,
helvítis hundurinn."
Og við megum ekki missa Al-
þýðubandalagsmennina fram af
bakkanum,“ sagði framsóknar-
þingmaðurinn um leið og hann
lauk máli sínu og fundargestir
hlógu ógurlega.
Lausn á launaflokk-
um í VR-samningum?
Vinnuveitendur hafa nú tii
athugunar gagntilhoð samninga-
nefndar Verzlunarmannafélags
Reykjavfkur um flokkaskipan í
kjarasamningum þessara aðila.
Vinnuveitendur lögðu upphaf-
lega fram tilboð er fól í sér nýja
útfærslu á launaflokkum
V.R.-samningana sem samninga-
nefnd verzlunarmanna gat í
nokkrum aðalatriðum fallizt á og
gerði hún síðan gagntilboð á sama
grundvelli, sem felur í sér fjölgun
flokka um einn frá tillögum
vinnuveitenda og fyrirkomulag
semverzlunarmenn geta sætt sig
við. Eru flokkarnir nú 15—16 og er
í hinni nýju útfærslu gengið út frá
að starfsaldurshækkanir eigi sér
nú stað itinan sömu flokka en ekki
milli flokka, eins og áður tíðkað-
ist.
Magnús L. Sveinsson, skrif-
stofustjóri VR, sagði að hann væri
nú bjartsýnni á farsæla lausn
samningamála VR, en áður en
kvað hins vegar lítið vera farið að
ræða um aðra þætti, svo sem
launin en krafan er í meginatrið-
um að verzlunar- og skrifstofufólk
fái samsvarandi hækkanir og fól-
ust í BSRB-samningunum . fyrir
sambærileg störf. Sú krafa stend-
ur óhögguð.
IIÖRÐ kosning varð á aðalfundi
Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur
um formann félagsins fyrir næsta
starfsár. Fundurinn var mjög
fjölmennur en úrslit í formanns-
kjörinu urðu þau að Bragi Jósefs-
son var kosinn formaður með 98
atkvæðum en Jóhannes
Guðmundsson hlaut 56 atkvæði.
Emelía Samúelsdóttir gaf ekki
kost á sér til endurkjörs.
Bragi Jósefsson hefur verið í
hópi þeirra manna innan Alþýðu-
flokksins sem hvað gagnrýnastir
hafa verið á ríkisstjórnina, og á
aðalfundinum í gær var samþykkt
ályktun þess efnis að hafi Ólafur
Jóhannesson ekki lagt fram efna-
hagsfrumvarp sitt næstu daga,
skyldu þingmenn flokksins leggja
það fram fyrir 1. marz n.k.
Ljósmynd Baldur Sveinsson.
Ný og fullkomin gerð Orion-
flugvéla á Keflavíkurflugvelli
KL. 10.30 í dag eiga fyrstu tvær Orion-vélarnar af
nýrri og fullkominni gerð að lenda á Keflavíkur-
flugvelli og leysa þar af hólmi þá gerð Orion-véla
sem þar hefur verið staðsett síðan 1970. Flugsveit-
in sem nú kemur er nefnd VP-44 og er fyrsta
flugsveitin innan bandaríska flotans sem búin er
þessari gerð Orion-véla. Tegundin er nefnd P-30,
„Update II“. Hún er búin mun fullkomnara
staðsetningarkerfi fyrir hljóðmerkjabaujur en
eldri gerðir og auk þess sérstakri myndavél sem
notar inn-rauða geisla eða (hitageisla) hitaútgeisl-
un þess sem mynda á, og getur því tekið myndir
jafnt í myrkri og þoku, sem um þjartan dag væri.
Þessi flugsveit mun væntanlega verða hér um
fimm mánaða skeið og síðan mun hún leyst af
hólmi af annarri flugsveit sem verður búin sömu
gerð Orion-véla. Myndin er af einni af flugvélum
VP-44 sveitarinnar, sem hafði stutta viðdvöl á
Keflavíkurflugvelli 4. til 5. des. s.l.
Kísil-
iðjan:
10% minni afköst
vegna skorts á gufu
Alþýðuflokksfélag Reykjavikur:
Þingmenn flokksins leggi
fram efnahagsfrum-
varpið fyrir fyrsta marz nk.
Gufuþrýstingur hefur fallið svo
í þeim tveimur borholum, sem
Kísiliðjan hefur yfir að ráða í
Bjarnarflagi, að verksmiðjan get-
ur ekki starfað með fullum
afköstum. Sagði Vésteinn
Guðmundsson framkvæmdastjóri
f samtali við Mhl. að afköst
verksmiðjunnar væru 10% minni
en venjulega af þessum orsökum.
í umbrotunum, sem urðu í
september 1977, eyðilögðust þrjár
af fimm borholum verksmiðjunnar
en kraftur jókst mjög í þeim
tveimur holum, sem voru í lagi.
Var þrýstingurinn í þeim 7—9 kg á
forsentimetra. í kuldakastinu í
janúar dró mjög úr þrýstingnum
og er hann núna 5,5—8 kg og fæst
ekki næg gufa til þurrkunar á
gúrnum. Áformað e r að bora fleiri
holur við Bjarnarflag til þess að
auka gufuna.
Kísilgúr er nú af skornum
skammti í þróm verksmiðjunnar
og er áfomað að hefja dælingu í
næstu viku og er það óvenju
snemmt.
Hagur Kísiliðjunnar var góður á
síðasta ári, að sögn Vésteins. Hún
framleiddi 20.405 tonn að verð-
mæti 1565 milljónir króna (cif).
Megnið af kísilgúrnum var fluttur
út. Afkoma Kísiliðjunnar var svip-
uð og árið 1977 en þá var nokkur
hagnaður af fyrirtækinu.
Verður Stúdenta-
görðunum lokað?
SVO kann að fara að stúd-
entaigöröunum tveimur,
Gamla Garði og Nýja Garði,
verði lokað einhvern næstu
daga, þar sem framkvæmda-
fé er þrotið og fé hefur ekki
fengizt til úrbóta í öryggis-
málum á Görðunum, en yfir-
55
Stjórn Nemendasambands Félagsmálaskóla alþýðu:
Harmar „flokkspólitíska
ráðningu fræðslufulltrúaMFA
STJÓRN Nemendasambands
Félagsmálaskóla alþýðu hefur
gert ályktun, þar sem hörmuð
eru vinnubrögð, sem meirihluti
stjórnar Menningar- og
fræðslusambands beitti við
ráðningu starfsmanna til
fra-ðslustarfa hjá MFA. Segir í
ályktuninni að skólinn hafi
verið vanvirtur með þessari
ráðningu.
Málavextir eru þeir að MFA
ákvað að ráða fræðslufulltrúa.
Einn slíkur hefur starfað hjá
sambandinu, Tryggvi Þór Aðal-
steinsson, og átti að bæta öðrum
við. Tveir umsækjendur komu
helst til greina, Snorri Konráðs-
son, sem kennt hefur í nokkra
mánuði við Félagsmálaskóla
alþýðu og stundað hefur nám í
skólanum og Lárus Guðjónsson
blaðamaður hjá Alþýðublaðinu
en hann hefur ekki stundað þar
nám. Lárus hlaut starfið, studd-
ur af Alþýðuflokksarminum
svokallaða, Segir í ályktun
Nemendasambandsins að ráðn-
ing hans lykti af flokkspólitík og
hrossakaupum.
Ályktun Nemendasambands-
ins er svohljóðandi:
Stjórn Nemendasambands
Félagsmálaskóla alþýðu harmar
þau vinnubrögð sem meirihluti
stjórnar Menningar- og
Fræðslusambands alþýðu beitti
við ráðningu starfsmanns til
fræðslustarfa, þar sem gengið
var framhjá umsækjenda sem
hefur gengið í gegnum tvær
annir Félagsmálaskóla alþýöu,
auk þess sem hann hafði tals-
verða þjálfun og reynslu í þeim
störfum er ráðið var til.
Stjórn Nemendasambandsins
lítur svo á að með þessari
ráðningu hafi Félagsmálaskóli
alþýðu verið vanvirtur, og geng-
ið á snið við reglugerð fyrir
Menningar- og Fræðslusamband
alþýðu en þar segir: „Markmið-
um sínum hyggst MFA ná meðal
annars, með' því að efla unga
menn innan Verkalýðshreyfing-
arinnar til þroska og náms
þannig að þeir verði færir um að
taka að sér félagsleg leiðbein-
enda- og kennslustörf í þágu
hreyfingarinnar."
Stjórn Nemendasambandsins
telur að þessi starfsmannsráðn-
ing lykti af flokkspólitík og
hrossakaupum, en hagsmunir
Menningar- og Fræðslusam-
bands alþýðu og verkalýðshreyf-
ingarinnar í landinu fyrir borð
bornir.
Stjórn Nemendasambands
Félagsmálaskóla alþýðu.
Gert á stjórnarfundi 20/2.1979.
Fundinn sátu:
Kári Kristjánsson. form.
Guðmundur Hallvarðsson, ritari.
Dagbjört Sigurðardóttir, meðstj.
Guðfinna H. Friðriksdóttir,—
Davíð Sverrisson, varastj.
völd höíðu gert athugasemd-
ir við ýmislegt þar, til dæmis
um ónógan brunavarnaút-
búnað.
Pétur Orri Þórðarson, sem sæti
á í stjórn Félagsstofnunar stúd-
enta, sagði í samtali við Morgun-
blaðið, að fjárveitingavaldið hefði
ekki staðið við loforð um fjárveit-
ingar til stofnunarinnar. Væri nú
svo komið að framkvæmdafé væri
þrotið í miðjum stórframkvæmd-
um í Gamla Garði, en meðal
annars hefur verið unnið að mikl-
um endurbótum í kjallaranum þar.
Ef ekki fengist meira fé væri verr
af stað farið en heima setið þar
sem kjallarinn væri alveg ónot-
hæfur eins og hann væri núna, en
hefði þó verið brúklegur áður en
framkvæmdirnar hófust.
Sagði Pétur Orri að stjórn
Félagsstofnunarinnar ætti ekki
annars úrkosti en loka Görðunum
þar sem fjárveitingavaldið hefði
ekki staðið við gefið loforð. Þess
má geta að stúdentagarðarnir
hafa nokkrum sinnum verið aug-
lýstir á nauðungaruppboði vegna
fjárskorts Félagsstofnunar, en
málum hefur alltaf verið kippt í
liðinn á síðustu stundu.
o
INNLENT