Morgunblaðið - 23.02.1979, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1979
Börnum okkar, frændum
og vinum sem heimsóttu
mig og glöddu með gjöf-
um og skeytum á 70 ára
afmælinu 21. janúar.
Innilegt þakklæti til ykkar
allra. Guð blessi ykkur.
Jónína Filippusdóttir,
Grettisgötu 52.
i ------------------------y
ULRIKA PEDERSEN, sænska
stúlku 13 ára gamla langar til aö
eignast íslenzkan pennavin. Hún
er skáti og eru áhugamál hennar
plöntur og tónlist. Uppáhalds
söngvarar hennar eru Björn
Skifs, Bonnie Tyler, John
Travolta og Bee Gees-bræður.
Hún skrifar á ensku og sænsku.
Heimilsfangið er: Ulrika
Pedersen — Hástagatan 12a —
82400 Hudiksvall — Sverige.
ELISABET RING, þrettán ára
gömul sænsk stúlka, óskar eftir
pennavinkonu á sama aldri með
svipuð áhugamál og Elisabet, en
húr. safnar frímerkjum, hefur
gaman af að teikna og gera
handavinnu. Hún hefur einnig
mikinn áhuga á dýrum. Elisabet
vill gjarnan, að henni sé skrifað
á ensku, en heimilisfangið er:
Elisabet Ring — Sveagatan 42,
— S-73300 Sala — Sverige. Syst-
ir Elisabetar, Anna-Karin Ring,
15 ára óskar einnig eftir penna-
vinum, en hennar áhugamál er
auk frímerkjasöfnunar, póst-
kortasöfnun, sígild tónlist og
lestur. Hún skrifar einnig á
ensku.
MARIA 0. KARELVAN, 26 ára
kona frá Belgíu óskar eftir bréfa-
samskiptum. Hefur mikinn
áhuga á tungumálum, ferðalög-
um með ísland sérstaklega í
huga. Skrifar á ensku og langar
til að læra íslenzku. Heimilis-
fang hennar er: Maria 0.
Karelvan — Lotharingenstrasse
26 — 3000 Leuuen Bus 14 —
Belgium.
VICTORIA CHIENG, nítján ára
ung kona, óskar eftir íslenzkum
pennavinum. Áhugamál hennar
eru tónlist, ferðalög og bækur.
Victoria býr í Malaysíu, en
heimilisfangið er: Victoria
Chieng — P.O. Box 72 —
Limband, Sarawak — East
Malaysia.
BERTIL GUSTAFSSON, 24 ára
gamall maður frá Svíþjóð langar
að skrifast á við stúlku á aldrin-
um 17—25 ára. Meðal annars
hefur hann áhuga á tónlist,
ókunnum löndum og lestri bóka.
Vinsamlega skrifið á dönsku,
sænsku, skandinavísku eða ensku
til: Bertil Gustafsson —
Kámnársvágen 8:184, S-222 45
Lund — Sverige.
EROC GRIMES, 17 ára gamall
Norðurlandabúi búsettur í
Bandaríkjunum vill gjarnan
skrifast á við íslenzka pilta á
aldrinum 17—28 ára. Hann talar
þýzku, ensku, sænsku og norsku.
Heimilisfang hans er: Eric
Grimes — 1648 Old Route 13 —
Morrisville 19067 —
Pennsylvania — USA.
FRANCIS M.K. OSEI, 19 ára
gamall Afríkubúi frá Ghana,
langar að skrifast á við pilta og
slúlkur á svipuðum aldri. Auk
tónlistar, og íþrótta er hann
myndasafnari. Vinsamlega skrif-
ið til: Francis Michael Kojo Osei
— D7/1 Intin Street — Cape
Coast — Ghana — West Africa.
Sjónvarp kl. 21.00:
Sjónvarp kl. 22.00:
Olíukreppa
— Orku-
sparnaður
innanlands
í Kastljósi, sem hefst í sjón-
varpi í kvöld kl. 21.00, verða
orkumál á dagskrá. Umsjónar-
menn þáttarins að þessu sinni eru
Guðjón Einarsson og Vilhelm G.
Kristinsson.
Leitað verður svara við því,
hvernig unnt er fyrir okkur að
draga úr áhrifum væntanlegra
olíuverðhækkana, sem hafa verið
tilkynntar, með olíu- og orku-
sparnaði hér innanlands. Einkum
hvað varðar fiskiskipaflotann,
einkabílinn, húshitun, orkunotkun
í verksmiðjum o.s.frv. Sjónvarpið
brá sér í heimsókn í ýmsa staði,
þar á meðal togara, og ræddi við
fólk um þessi mál almennt.
í sjónvarpssal verður síðan í
þessu sambandi rætt við Hjörleif
Guttormsson orkuráðherra,
Kristján Ragnarsson, formann
LÍÚ og fulltrúa frá orkuspár-
nefnd. En orkuspárnefnd skilaði
skýrslu nú í vikunni, spá um
orkunotkunina, sem framundan er
og er þá átt við olíu, ekki rafmagn.
Þá verður rætt um það, hvernig
við getum sparað innflutt elds-
neyti þ.e. olíu og benzín, þannig,
að olíukreppan verði ekki eins
erfið viðfangs og annars yrði.
Útvarp kl. 11.00:
Það er
svo margt
Það er svo margt, þátt-
ur í umsjón Einars
Sturlusonar, hefst í út-
varpi í dag kl. 11.00.
Prúðuleikararnir koma aftur á skjáinn í kvöld kl. 20.35 eftir fjögurra mánaða hlé. Gestir f þessum
fyrsta þætti eru leikarinn Kris Kristofferson og Rita Coolidge.
Eric
Eric nefnist bandarísk sjón-
varpskvikmynd frá árinu 1975,
sem hefst í sjónvarpi í kvöld kl.
22.00.
I myndinni segir frá sautján
ára gömlum pilti, Eric, og
fjölskyldu hans, sem búa nálægt
Seattle í Bandaríkjunum. Eric
er ósköp venjulegur piltur,
gengur í skóla og stundar íþrótt-
ir eins og aðrir á hans aldri.
Fyrir tilviljun kemur þá í ljós,
að Eric þjáist af hvítblæði.
Myndin lýsir því, hvernig
hann og fjölskylda hans
bregðast við þessari uppgötvun.
Eric ákveður að reyna að njóta
lífsins meðan þess er nokkur
kostur. Sjúkdómurinn getur
stundum blundað um tíma í
Patricia Neal, John Savage og Mark Hamill í hlutverkum sínum í
myndinni um Eric, sem hefst í sjónvarpi f kvöld kl. 22.00
fólki, og skotið upp kollunum honum eru reynd ýmis lyf og
aftur þegar minnst varir. Eric fjölskyldan heldur í þann vonar-
þarf að fara í sjúkrahús og á neista, að allt verði í lagi.
Útvarp Reykjavík
FÖSTUDbGUR
23. febrúar
MORGUNNINN_________________
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Tónleikar.
7.10 Leikfimi. 7.20 Bæn.
7.25 Morgunpósturinn. Um-
sjónarmenn: Páll Heiðar
Jónsson og Sigmar B.
Hauksson. (8.00 Fréttir).
8.15 Veðurfegnir. Forustu-
greinar dagbl. (útdr.)
Dagskrá.
8.35 Morgunþulur kynnir
ýmis lög að eigin vali. 9.00
Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
Arnhildur Jónsdóttir lýkur
lestri sögunnar „Pétur og
Sóley“ eftir Kerstin
Thorvall í þýðingu önnu
Valdimarsdóttur (5).
9.20 Leikfimi.
9.30 Tilkynningar. Tónleikar.
9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir.
10.25 Morgunþulur kynnis
ýmis lög; — frh.
11.00 bað er svo margt: Einar
Sturluson sér um þáttinn.
11.35 Morguntónleikar: Rena
Kyriakou og Sinfónfuhljóm-
sveitin í Westphalen leika
Píanókonsert nr. 1 í g-moll
op. 25 eftir Mendelssohn;
Hubert Reichert stj.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir. Fréttir.
Tilkynningar.
Við vinnuna: Tónleikar.
SIODEGIÐ___________________
14.30 Miðdegissagan: „Húsið
og hafið“ eftir John Bojer
Jóhannes Guðmundsson
þýddi. Gfsli Ágúst Gunn-
laugsson les (18).
15.00 Miðdegistónleikar: Fíl-
harmóníusveit Berlfnar
leikur „Don Quixote", sinfó-
nfskt Ijóð eftir Richard
Strauss; Rudolf Kempe
stjórnar.
15.40 Lesin dagskrá næstu
viku.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.30 Popphorn: Dóra Jóns-
dóttir kynnir.
17.20 Útvarpssaga barnanna:
„Bernska í byrjun aldar“
eftir Erlu Þórdísi Jónsdótt-
ur.
Auður Jónsdóttir leikkona
les (6).
17.40 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
KVÖLDIO__________________
19.40 Frá tónleikum Útvarps-
hljómsveitarinnar f Stutt-
gart 10. nóv. s.l. — Einleik-
ari: Mischa Dichter. Stjórn-
andi: Kazimierz Kord.
Píanókonsert nr. 1 í Es-dúr
eftir Franz Liszt.
20.00 Heimsmeistarakeppni í
handknattleik á Spáni,
B-riðill Hermann Gunnars-
son lýsir síðari hálfleik ís-
lendinga og ísraelsmanna í
Sevilla.
20.50 Umboðsmaður hús-
mennskufólks og hjáleigu-
bænda Hjörtur Pálsson
tekur saman dagskrá um
sænska rithöfundinn Ivar
Lo-Johansson. Lesari með
honum: Gunnar Stefánsson.
FÖSTUDAGUR
23. febrúar
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Prúðuleikararnir
Leikbrúðurnar koma nú
galvaskar úr fjögurra ifian-
aða vctrarfríi. GestiFi fyrsta
þætti eru Kris Kristofferson
og Rita Coolidge.
Þýðandi Þrándur Thorodd-
sen.
21.00 Kastljós
Þáttur um innlend málefni.
Umsjónarmaður Guðjón
Einarsson.
I ...-
22.00 Eric
Bandarfsk sjónvarpskvik-
mynd frá árinu 1975.
Aðalhlutverk John Savage,
Patricia Neal og Claude
Akins.
Eric er sautján ára. Hann
fær að vita, að hann er með
hvítblæði og á skammt eítir
ólifað, en hann einsetur sér
að njóta Iffsins meðan
kostur er.
Þýðandi Kristrún Þórðar-
dóttir.
23.30 Dagskrárlok
________ ^
21.40 Kórsöngur.
Kór Menntaskólans við
Hamrahlíð syngur þjóðlög
frá ýmsum löndum.
Þorgerður Ingólfsdóttir
stjórnar.
22.05 Kvöldsagan: „Klukkan
var eitt“, samtöl við Ólaf
Friðriksson. Haraldur
Jóhannsson skráði og les
ásamt Þorsteini Ö. Stephen-
sen (4).
22.30 Verðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Lestur Passíusálma (11).
22.55 Úr menningarlífinu. Um-
sjón: Hulda Valtýsdóttir.
Fjallað um félagið Kistiðn
og rætt við formann þess,
Stefán Snæbjörnsson.
23.10 Kvöldstund með Sveini
Einarssyni.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.