Morgunblaðið - 23.02.1979, Side 8
8
MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1979
BAZARGAN SANJABI BAKHTIAR
Vinirnir, sem öng-
þveitíð ílran sundraði
ÞRÍR stjórnmálamenn sem
eru í meginatriðum sammála
um vandamálin í íran hafa
beðið ólík örlög af völdum
umrótsins þar.
Þeir voru allir vinir áður
fyrr og hafa f aðaltriðum
aðhyllzt skoðanir sem hafa
mótazt af sósíalisma en um
leið trúarlegum viðhorfum í
afstöðu sinni til framtfðar
landsins. Þeir eiga það einnig
sameiginiegt að hafa tekið
virkan þátt í baráttunni gegn
íranskeisara um árahil. þeir
hafa allir setið í fangelsi og
börðust allir staðfastlega
gegn mannréttiiidabrotum á
valdatíma keisarans.
Nú hafa leiðir þeirra skilið
þar sem þeir hafa tekið óaftur-
kræfar ákvarðanir. Tveir
þeirra, Mehdi Bazargan og
Karim Sanjabi, bundu trúss
sitt við trúarleiðtogann
Khomeini og eru nú forsætis-
ráðherra og utanríkisráðherra
í nýju bráðabirgðastjórninni.
Sá þriðji, Shapur Bakhtiar, fór
eigin götur og lagðist bæði
gegn keisaranum og æðsta
prestinum. Honum var steypt
af stóli þegar hann hafði verið
forsætisráðherra skamma hríð.
Fulltrúar kynslóðar
Þessir þrír menn er eru í
sameiningu fulltrúar heillar
kynslóðar íranskra stjórn-
málamanna sem nú eru á
sjötugs- og áttræðisaldri og
lifðu í óvissu 37 valdaár keisar-
ans, sem aðeins vikuhlé varð á
1953 og tóku enda með bylting-
unni á dögunum.
Þeir voru allir menntaðir í
Frakklandi og stjórnmála-
skoðanir þeirra hafa að mis-
jafnlega miklu leyti mótazt af
hugmyndum hófsamra og lýð-
ræðislegrar jafnaðarstefnu.
Bazargan er verkfræðingur, dr.
Bakhtiar og dr. Sanjabi lög-
fræðingar.
Þeir voru allir fylgismenn og
samstarfsmenn þjóðernisleið-
togans Mohammed Mossadegh
sem steypti keisaranum af stóli
í ágúst 1953 en var síðan
sjálfur settur af. Þeir störfuðu
saman á/ tíma mestu kúgunar
keisarastjórnarinnar undir
merki Þjóðfylkingarflokksins,
sem var leynisamtök þar til
fyrir sex mánuðum.
Dr. Bakhtiar og dr. Sanjabi
eru báðir
múhameðstrúarmenn, en hafa
aldrei byggt starf sitt í stjórn-
málum á trúarskoðunum og
þeir eru báðir veraldlegir lýð-
ræðissinnar á evrópska vísu.
Þó hafa stjórnmálahugsjónir
dr. Bakhtiars grundvallazt á
djúpri trú og það átti sinn þátt
í því að hann gekk í lið með
hinum útlæga trúarleiðtoga.
Framsýnin bjargaði
Þegar svo illa var komið
fyrir keisaranum að hann greip
í hvert hálmstrá til að halda
völdunum var talið líklegt að
dr. Sanjabi, leiðtogi Þjóð-
fylkingarinnar, yrði forsætis-
ráðherra í ríkisstjórn sem
hefði í raun orðið „stjórnar-
andstöðustjórn". En hann var
svo framsýnn að ganga í lið
með æðsta prestinum, fyrst og
fremst eftir fund sem þeir áttu
í París í nóvember.
Dr. Bakhtiar tók þveröfuga
ákvörðun og hún varð honum
að falli. Hann taldi að sem
forsætisráðherra gæti hann
lækkað rostann í keisaranum
og hrint í framkvæmd lýð-
ræðislegri jafnaðarstefnu, en
það reyndist ógerningur.
„Maður keisarans“
Þess í stað varð dr. Bakhtiar
„maður keisarans" í augum
almennings þótt hann segði
þegar mótstaðan gegn honum
óx að hann væri reiðubúinn að
fallast á íran yrði lýðveldi ef
breytingin færi lýðræðislega
fram. Dr. Bakhtiar ákvað að
samþykkja skipanir keisarans
en berjast gegn honum
stjórnarfarslega og þessi
ákvörðun varð til þess að vinir
hans og samstarfsmenn
lögðust gegn honum.
Dr. Sanjabi og Dariush
Forouhar, núverandi verka-
lýðsráðherra, ráku hann úr
Þjóðfylkingunni. Dr. Bakhtiar
fór í felur og enn er ekki vitað
hvar hann er niðurkominn.
Öngþveiti, ofbeldi og stjórn-
leysi ráða ríkjum í íran og dr.
Bazargan og dr. Sanjabi virð-
ast enn vera fulltrúar hófsemi í
landinu. Almennt er litið á dr.
Sanjabi sem fulltrúa ótta-
slegins millistéttafólks. Vest-
rænum fulltrúum létti þegar
hann var skipaður utanríkis-
ráðherra því að þeir þekkja
hann vel.
Margvíslegar
ástæður fyrir
sprungum í
útveggjum
— Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins
sendir frá sér skýrslu um steypuskemmdir
Rannsóknastofnun bygg-
ingariðnaðarins hefur nú
sent frá sér skýrslu um
steypuskemmdir á húsum,
en skýrslan greinir frá
niðurstöðum rannsókna á
ástandi steyptra útveggja
húsa á höfuðborgarsvæðinu
og á Akureyri.
Fram kemur í skýrslunni
að orsakir skemmdanna eru
fjölþættar og myndir þeirra
margbreytilegar.
Skemmdunum er þó skipt í
þrjá flokka eftir frumorsök:
hönnunarvillur, skemmdir
vegna útfærslu- og frágangs-
galla svo og efnisgallar. Segir
í skýrslunni að oftast sé
erfitt að greina sundur hvort
skemmdirnar séu vegna
slæmrar hönnunar eða hvort
orsakirnar sé að finna í
rangri útfærslu eða slæmum
frágangi á byggingarstað.
Skemmdir þær sem
flokkast undir hönnunar-
villur og útfærslu- og
frágangsgalla eru sprungur
sem myndast vegna rýrnunar
steypu eða vegna hitabreyt-
inga í henni, svo og
skemmdir við plötuskil.
Skemmdir þær sem rekja má
til efniseiginleika steypu eru
Ríkharður Kristjánsson hjá rannsóknastofnun byggingariðnaðarins
kynnir skýrsluna um steinsteypuskemmdir á blm.fundi í gœr
Samband íslenzkra bankamanna um frumvarp forsætisráðherra:
Samdráttarákvæði frumvarpsins
gætu leitt til atvinnuleysis
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
umsögn stjórnar Sambands
íslenzkra bankamanna um frum-
varp Ólafs Jóhannessonar, en
þetta er önnur umsögnin, sem
berst forsætisráðherra — áður
hefur Stéttarsamband bænda
svarað. Umsögn stjórnar SÍB fer
hér á eftir.
„Hinn 13. febr. sl. voru fulltrúar
SIB boðaðir á fund forsætis-
ráðherra þar sem ofangreind
frumvarpsdrög voru afhent og
óskað eftir athugasemdum þar við
Stjórn SÍB fagnar út af fyrir sig
þeirri viðleitni sem fram kemur í
frumvarpinu að mörkuð verði
stefna í efnahagsmálum til lengri
tíma og þeirri stefnu að dregið
verði úr verðbólgu með lángtíma
aðgerðum.
Efnahagsaðgerðir undanfarandi
missera hafa fyrst og fremst
mótast af því að verðbóta-
ákvæðum kjarasamninga hefur
verið breytt með lögum, án þess að
heildarstefna efnahagsmála væri
jafnframt mörkuð.
A það skal hins vegar bent að
áhrif frumvarpsins, ef að lögum
verður, eru um margt óljós. Má t.d.
benda á hugmyndir um lækkun
ríkisútgjalda (sbr. 11. gr.), heildar-
tekjur og útgjöld á fjárlögum (sbr.
17. gr.), fjárfestingarmálin o.fl. að
þar eru ekki heildarfjárhæðirnar
einar afgerandi um áhrifin, heldur
skiptir meginmáli hvernig tekna
er aflað og útgjöldum ráðstafað.
Þá er ljóst, að sá samdráttur,
sem gert er ráð fyrir í frumvarp-
inu gæti leitt til atvinnuleysis, og
fer það ekki síst eftir því hvernig á
fjárfestingarmálum verður haldið.
Stjórn Sambands ísl. banka-
manna gerir aðeins athugasemdir
við tvo kafla þessa frumvarps, þ.e.
2. kafla um samráð og 7. kafla um
verðbætur á laun. I því felst ekki,
að fallist sé á aðra þætti frum-
varpsins, en áskilinn er réttur til
frekari athugasemda.
II. kafli. Um samráð við samtök
launþega o.fl.
Samráð við SÍB hafa til þessa
nánast engin verið þrátt fyrir
gagnstæðar yfirlýsingar stjórn-
valda. í athygasemdum við 4. gr.
frumvarpsins þ.e.a.s. upptalningu
þeirra samtaka sem samráð skuli
haft við er Samband ísl. banka-
manna ekki getið, en hins vegar
eru þar öll önnur heildarsamtök
launþega upptalin. Afstaða stjórn-
valda til samráðs við Samband ísl.
bankamanna virðist því óbreytt.
Verkefni kjaramálaráðs eru
nánar ákveðin í 5. gr. frumvarps-
ins, þar er m.a. gert ráð fyrir að
ráðið fjalli um kjaramál, þjóð-
hags,- fjárfestingar- og lánsfjár-
áætlanir m.a. til viðmiðunar við
gerð kjarasamninga. Samkvæmt
lögum er samningsrétturinn í
höndum aðila sjálfra, en með
þessu virðist gengið í þá átt, að
lögfesta afskipti ríkisins að kjara-
málum.
í reynd virðist þetta þýða, að
launþegasamtökin eigi fyrirfram
að samþykkja það svigrúm sem
fyrir hendi er til kjarabóta af
hálfu atvinnurekstrarins og með
það veganesti sé gengið til
samninga. Slíkt gæti ekki gerst
nema með stórfelldu afsali
samningsréttar.
Lögð er áhersla á, að höfð séu
raunhæf samráð við öll heildar-
samtök launþega í landinu um
hina ýmsu málaflokka sem varða
þá beint eða óbeint og það sé gert
þegar mál eru á mótunarstigi af
hálfu stjórnvalda. Þó virðist alls-
herjarnefnd sem þessi, kjaramála-
ráð, ekki líkleg til þess að komast
að samræmdri niðurstöðu um þá
málaflokka sem henni er ætlað að
fjalla um.
VII. kafli. Um verðbætur á laun.
Samkvæmt 43. grein er gert ráð
fyrir, að verðbótavísitala reiknist
eftir framfærsluvísitölunni sem
hefur grunntölu 100 miðað við
nóvembervísitölu 1978.
í þessu felst í reynd, að
verðbótavísitalan myndi lækka um
0,7% miðað við 1. mars n.k.