Morgunblaðið - 23.02.1979, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1979
15
Skæruliðar Pots
í stöðugri sókn
Bangkok, 22. febrúar. AP.
HARÐIR bardagar geisa nú
milli stuðningsmanna Pol Pots
fyrrverandi leiðtoga Kambódíu-
manna og víetnamskra her-
manna við borgina Kratie sem
stendur við Mekong ána um 160
kílómetra norður af höfuðborg-
inni Phnom Penh. Ekki er þó
talið líklegt að Potsmönnum
takist að ná borginni á næstunni
segir í fréttum frá Bangkok í
dag.
Þá sagði „rödd Kambódíu" í
dag að skæruliðar hefðu ráðist á
borgina Champokpa rétt vestan
við Kratie fyrir skömmu og fellt
þar 15 hermenn og sært marga.
Ennfremur sagði útvarpið að í
vikunni hefðu sovézkar MIG-þot-
ur skotið á skæruliða Pol Pots
sem hefðu verið við svokallaða
leið 5 sem er aðalaðflutningsæð
Víetnama í vesturhluta
Kambódíu en ekki hefði orðið
neitt manntjón í þeim árásum.
Talsmaður Pol Potsmanna
sagði í Bangkok í dag að skæru-
liðar hefðu fellt fjölda Víetnama
í austurhluta landsins í gær og
sprengt upp tvo skriðdreka og
þrjá herflutningabíla.
Um 2,4% söluaukning
hjá norsku blöðunum
Ósló, - AP
IIIN eitthundrað fimmtíu og
þrjú dagblöð Noregs juku
útbreiðslu sína á síðasta ári
um alls 50 þúsund eintök sem
er um 2,4% aukning milli ára
og varð því heildarsalan
2.112.190 eintök á dag að
meðaltali á árinu að því er
fréttir frá Ósló í dag herma.
Af 50 þúsund eintaka aukn-
ingu eru 28 þúsund í áskrift og
22 þúsund í lausasölu.
Stærsta dagblað Noregs,
Aftenposten, sem hefur rúm-
lega 215 þúsund eintaka sölu,
jók söluna um liðlega 700
eintök á mánuði, en aðalkeppi-
nauturinn í öðru sæti, Verdens
Gang, jók sölu sína um liðlega
15 þúsund eintök, úr liðlega
171 þúsund eintökum á dag.
Lögreglumenn eru í verkfalli í New Orleans og verkfallið hefur leitt til átaka. Þegar þeir héldu fund við
aðalstöðvar lögreglunnar í borginni var þar lögreglubfll og verkfallsmenn gerðu aðsúg að honum.
Lögreglumaðurinn í bflnum henti lyklinum og kallaði á hjálp. Iláttsettur maður í lögreglunni kom á
vettvang og reyndi að stilla til friðar.
Þing Noróurlandaráðs:
Norræn félög leita eft-
ir fjárstuðningi mennta-
málarádherranefndar
Biðja Svisslendinga
að hafna kelsaranum
Teheran, 22. febrúar. AP. Reuter
ÍRANSKUR ráðherra sagði í
útvarpi í dag að hann hefði beðið
svissnesku stjórnina að neita
keisaranum um landvistarleyfi
þar ef hann sækti um það að því
er haft er eftir áreiðanlegum
heimildum í Teheran í dag.
Dómsmálaráðherrann Assa-
dollah Mobasheri sem nýkominn
er úr útlegð til að taka við
ráðherraembætti í stjórn
Bazargans sagðist hafa skrifað
svissnesku stjórninni og þinginu
þar sem hann bar fram þessa ósk
írana. Til þessa hefur Sviss verið
talið eitt líklegasta landið sem
keisarinn sækti um landvistar-
leyfi í eftir að hann yfirgaf íveru-
stað sinn í Marocco fyrir skömmu.
Hinir nýju valdhafar í íran hafa
þráfaldlega lýst því yfir að þeir
vilji fá keisarann framseldan til
írans þar sem hann yrði dreginn
fyrir rétt ákærður fyrir landráð
þau 37 ár sem hann var við völd og
endurnýjaði dómsmálaráðherrann
enn einu sinni þessa kröfu írana í
dag.
EBE kærir Breta til
Evrópudómstólsins
Brtlssel, 22, febrúar. AP.
Ráðherranefnd Efnahagsbanda-
lags Evrópu EBE hefur ákveðið að
ákæra Breta fyrir Evrópudómstóln-
um vegna afstöðu þeirra í fiskvciði-
deilu þeirri sem stendur yfir milli
Breta og bandalagsríkjanna að því
er segir í fréttum frá Brtissel í dag.
Vegna andstöðu Breta gegn því að
bandalagsríkin fái veiðiheimildir
1959 — Mannréttindadómstóll
Evrópu settur í fyrsta sinn í
Strassborg.
1945 — Bandaríski fáninn dreg-
inn að húni á Suribachi-fjalli í
orrustunni um Iwo Jima.
1942 — Japanskur kafbátur
ræðst á olíuhreinsúnarstöð ná-
lægt Santa Barbara, Kaiiforníu.
1933 — Hernám Japana norðan
Kínamúrsins hefst.
1866 — Alexander Cuza fursta
steypt og Karl prins af Hohen-
zollern verður Carol I fursti í
Rúmeníu.
1861 —' Lincoin kemur á laun til
Washington að taka við embætti
forseta eftir samsæri um að
myrða hann í Baltimore, Mary-
land.
1854 — Bretar samþykkja að
skiia Búum Óraníu-fríríkinu.
1847 — Sigur Zachary Taylors
yfir Santa Ana í orrustunni um
Buena Vista, Mexíkó.
1836 — Umsátrið um Alamo
innan landhelgi þeirra hefur ekki
tekist að sameina stefnu bandalags-
ins í fiskveiðimálum í tvö ár sem
hefur jafnframt komið í veg fyrir að
einstök bandalagsríki hafi getað
samið við ríki utan bandalagsins um
gagnkvæmar veiðiheimildir. í því
sambandi má nefna að Vestur—
Þjóðverjar hafa beðið mánuðum
saman eftir því að géta hafið
samninga við Kanadamenn.
hefst í Texas.
1820 — Samsærið í Cato-stræti
um morð á brezkum ráðherrum
afhjúpað.
1766 — Hertogadæmið
Lothringen innlimað í Frakk-
land.
1660 — Karl IV Svíakonungur
tekur leiðtoga stuðningsmanna
Pólverja af lífi fyrir landráð.
1574 — Fimmta trúarstríðið
brýzt út í Frakklandi.
Afmæli: George Frederick
Hándel, þýzkt tónskáld
(1685-1759) - Sir George
Watts, brezkur listmálari
(1817—1904) — Samuel Pepys,
enskur dagbókahöfundur
(1633—1703) — Erich Kástner,
þýzkur höfundur (1899—1974).
Andlát: Jóhannes Gutenberg,
prentari, 1468 — Ferdinand V.,
konungur Kastiiíu og Leon, 1516
— Sir Joshua Reynolds, listmál-
ari, 1792 — John Keats, skáld,
1821 — Nellie Melba, söngkona,
Stokkhúlmi, 22. febrúar.
Frá J.T. blm. Mbl.
SAMBAND norrænu félaganna á
Norðurlöndum hefur verið starf-
andi frá því árið 1965 og er
skrifstofa félagsins hér í Stokk-
hólmi. í tengslum við þing
Norðurlandaráðs heldur sam-
bandið fundi, auk eins til tveggja
annarra funda á ári og ársfundar
sambandsins.
Hjálmar Ólafsson formaður
Norræna félagsins og Jónas Ey-
steinsson framkvæmdastjóri sátu
fundinn í Stokkhólmi að þessu
sinni en honum lauk í dag. Hjálm-
ar sagði að leitað hefði verið eftir
stuðningi menntamálaráðherra
Norðurlandanna við beiðni
sambandsins um fjárstuðning, en
þar sem norrænu félögin ynnu svo
margvísleg störf væri áríðandi að
fjárhagur þeirra yrði tryggður.
Var lagt til við ráðherranefndina
að veittur yrði árlegur fjár-
stuðningur við sambandið, sem
það síðan deildi til aðildarfélaga
sinna. Sem dæmi um starfsemi
norrænu félaganna nefndi Hjálm-
ar að í maímánuði væri ráðgerð
íslandsvika í Lapplandsléni í
Finnlandi og myndi hann verða
þar með fyrirlestra, fengnar yrðu
kvikmyndir, tónlistarfólk og
sýndur íslenzkur heimilisiðnaður
og listsýning. Sagði Hjálmar að
norrænu félögin ynnu oft saman
1931 — Sir Edward Elgar, tón-
skáld, 1934 — Paul Claudel,
skáld, 1955 — Saud konungur
1969.
Innlent: Veginn Holti Þor-
grímsson hirðstjóri 1348 — Veg-
inn Eiríkur Guðmundsson hirð-
stjóri 1388 — Enskt farbann á
íslandsfara 1426 — Uppskipun
úr „Clarence" 1809 — d. Svein-
björn Sveinbjörnsson tónskáld
1927 — f. Frú Dóra Þórhalls-
dóttir 1893 — d. Theodora Thor-
oddsen 1934 — Allsherjarverk-
fall 1974 — d. sr. Sigurður
Einarsson 1967 — f. dr. Jón
Gíslason 1909.
Orð dagsins: Einungis
miðlungsmaður er alitaf upp á
sitt bezta — W. Somerset
Maugham, brezkur rithöfundur
(1874-1965).
að verkefnum sem þessum. í
sumar er ráðgert æskulýðsmót í
Reykjavík og Norræna félagið í
Reykjavík nyti þó ekki nema
helmings þess styrkjar frá hinu
opinbera miðað við félög annars
Stokkhólmi. 22. febrúar.
Frá J.T. blm. Mbl.
FYRIRSPURNIR og afgreiðsla
mála voru aðallega á dagskrá
þings norðurlandaráðs í dag og
stjórnaði Eiður Guðnason fundi
framan af.
Ýmis mál komu til atkvæða-
greiðsiu og var vísað til frekari
meðferðar hjá hinum ýmsu nefnd-
um. Meðal mála sem fram komu í
dag var fyrirspurn frá Gils Guð-
mundssyni varðandi ferjusam-
göngur milli Færeyja, íslands,
Skotlands og Noregs. Spurðist Gils
fyrir um hvaða aðgerðir ráðherra-
nefndin hefði í hyggju varðandi
þetta mál. Ragnar Arnalds svaraði
fyrirspurninni og kom fram í svari
hans að starfshópur embættis-
mannanefndar samgöngumála
hefði beðið ýmsa aðila í löndunum
um umsögn þeirra og hefðu í því
sambandi borið 11 umsagnir frá
aðilum á Islandi, sem væru já-
kvæðir í heild. Ekki hefði borist
svar frá færeysku landsstjórninni
og meðan svo væri yrði ekki unnið
frekar í þessu máli. Demmus
Hentze fulltrúi færeysku lands-
stjórnarinnar sagði að Færeyingar
hefðu ekki gefið sér tíma til að
taka málið til athugunar, m.a.
vegna stjórnarmyndunarinnar, en
ljóst væri að aukin þörf væri fyrir
samgöngur milli þessara landa,
flutningar farþega og bíla hefðu
St. Lucia hlaut
sjálfstæði
Castries, St. Lucia,
22. febrúar AP.
NÝTT land bættist í tölu sjálf-
stæðra ríkja heimsins i gær þegar
eyjan St. Lucia hlaut sjálfstæði
sitt frá Bretum. — Það var frænka
Elisabetar Bretadrottningar,
Alexandra, sem flutti eyjaskeggj-
um boðskap drottningar, þar sem
hún meðal annars óskaði þeim
gæfu og gengis í náinni framtíð.
staðar á Norðurlöndum, þ.e. fengi
4,55 íslenzkar krónur á hvern íbúa
meðan hin félögin fengju milli 10
og 11 krónur á íbúa. Félagsmenn
Norræna félagsins í Reykjavík eru
nú um 11 þúsund.
stöðugt farið vaxandi. Mætti því
búast við því að auka þyrfti þessar
samgöngur enda þyrfti núverandi
ferja einnig endurnýjunar við.
Þingi norðurlandaráðs lýkur á
morgun, föstudag, og verður þá
m.a. á dagskrá aðild Færeyja að
ráðinu.
Veður
víða um heim
Akureyri 3 léttskýjaö
Amsterdam 0 skýjað
Apena B skýjaó
Barcelona 13 téttskýjaó
Berlín 2 heióskírt
BrUssel 3 skýjaö
Chicago 3 rigning
Frankfurt 5 skýjaö
Genf S skýjaö
Helsinki -2 heiöskírt
Jerúsalem vantar
Jóhannosarb 25 heiðskírt
Kaupmannah. -2 skýjaö
Lissabon 12 rigning
London 4 skýjaö
Los Angeles 1* rigning
Madríd 9 heiöskírt
Malaga 14 alskýjaö
Mallorca 14 léttskýjaö
Miami 24 skýjaö
Moskva -3 heiöskirt
New York 5 heiöskírt
Ósló -3 skýjaö
París 5 skýjaö
Reykjavík 2 skýjað
Rio De Janeiro vantar
Rómaborg 12 skýjaö
Stokkhólmur 0 skýjað
Tel Aviv vantar
Tókýó vantar
Vancouver 6 heióskirt
Vínarborg 3 heiöskírt
Ný bíl- og f arþega-
ferja til umræðu
Þingi Norðurlandaráðs lýkur í dag