Morgunblaðið - 23.02.1979, Síða 32
Tillitssemi
kostar
ekkert
i0r0nwil>Iliííjií5i>
Verzlið
í sérverzlun með
litasjónvörp og hljómtæki.
HLC' Skipholti 19,
BUOIN sími
' 29800
FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1979
Skýrsla nýsjálenzka sérfræðingsins R.S. Bolton:
Vandamálin allt eins
stjórnunarlegs eðlis
og tæknileg í Kröflu
„MEÐAN tæknileg vandamál hafa vafalaust átt
sinn þátt í erfiðleikunum í Kröflu, þá stafar
grundvallarvandinn af skiptingu ábyrgðar varð-
andi stjórn fjármála og verklegar framkvæmdir,“
segir í skýrslu R.S. Bolton, nýsjálenzka verkfræð-
ingsins eftir að hann hafði kynnt sér aðstæður hér
við Kröflu sl. sumar. Skýrsla þessi fékkst þá ekki
birt en Mbl. hefur nú skýrslu þessa undir höndum.
Baknefnd var falið
efnahagsfrumvarpið
Miðstjórn Alþýðusamhands
íslands kom saman til fundar f
gær ok var efnahagsmálafrum-
varp Olafs Jóhannessonar meðal
mála sem þar voru á dagskrá.
Litlar umræður urðu á fundin-
um um frumvarpið en niðurstaðan
varð sú að vísa frumvarpinu til
baknefndar, sem í eiga sæti þeir
Snorri Jónsson, framkvæmda-
stjóri ASÍ, Eðvarð Sigurðsson, Jón
Agnar Eggertsson, Karl Steinar
Guðnason, Björn Þóhallsson,
Óskar Vigfússon, Guðmundur J.
Guðmundsson og Jón Helgason.
Nefndin á að vinna að áliti um
frumvarpið en síðan er gert ráð
fyir að miðstjórnin komi saman að
nýju í næstu viku til að taka
formlega afstöðu til frumvarpsins.
TRÚNAÐARMANNARÁÐ Félags ísl. atvinnuflugmanna samþykkti á
fundi í gærkvöldi að verða við tilmælum félagsmálaráðherra og fresta
boðuðum verkfallsaðgerðum sem áttu að hef jast í dag, allt fram til 7. marz
nk. en ráðherra gaf FÍA-mönnum fyrirheit um að vel og rösklega yrði
unnið að þvf að finna lausn á deilumálinu í millitfðinni, að þvf er Björn
Guðmundsson, formaður FÍA tjáði Mbl. f gær.
Tilmæli félagsmálaráðherra,
Magnúsar H. Magnússonar, bárust
forsvarsmönnum FÍA síðdegis í gær
eftir að báðir aðilar, félagar innan
FÍA og stjórn Flugleiða, höfðu fellt
sáttatillögu sáttnefndar í flug-
mannadeilunni. Örn Ó. Johnsson,
forstjóri Flugleiða sagði í samtali
við Mbl. að stjórn Flugleiða hefði
fellt tillöguna vegna þess að hún
hefði ekki talið hana leiða til lausnar
á þeim heildarvanda, sem þarna
væri um að ræða, því að sáttatillaga
í þessu máli, að svo miklu leyti sem
hún snerti starfsaldurslistamálið
yrði að ná til beggja flugmanna-
félaganna og að öðrum kosti þjónaði
hún engum tilgangi. „Við teljum að
reyna verði að leysa allt málið í heild
við bæði flugmannafélögin, svoleiðis
að breytingar á samningum hjá öðru
leiði ekki til frekari krafna frá hinu.“
Björn Guðmundsson, formaður
FIA, kvað félagsmenn hafa fellt
sáttatillöguna í atkvæðagreiðslu
með 52 atkvæðum og 2 heföu verið
auðir. Um sáttatillöguna sagði Björn
að varðandi launajöfnunarstefnuna
hafði í henni þokast verulega í rétta
átt en þó ekki nóg til að unnt hefði
verið að samþykkja þann lið, þó svo
að annað hefði verið í lagi. Varðandi
leiðaskiptingarkröfu FÍA þá hefði í
sáttatillögunni ekki falist nein ný
úrlausn heldur tillaga þess eðlis að
gengið yrði til þess að sameina
starfsaldurslistana og kveðið á um
hvernig staðið skyldi að því. Þetta
væru algjörlega ófullnægjandi
tillögur fyrir FÍA.
Ákvörðun um kaup á
DC-8 þotu í næstu viku
STJÓRN Flugleiða mun í
næstu viku taka ákvörðun um
það hvort félagið kaupir DC-8
þotu sem stendur til boða að
kaupa af bandaríska fyrirtæk-
inu Seabord en það hefur haft
milligöngu um öll kaup Loft-
leiða á flugvélum.
Samkvæmt upplýsingum sem
Örn 0. Johnson forstjóri Flug-
leiða gaf Morgunblaðinu í gær
kostar DC-8 vélin hátt í 13 millj.
dollara, en hann kvað vélina í
góðu standi.
Eins og sagt hefur verið frá í
Mbl. hefur stjórn Flugleiða hætt
við staðfestingu á pöntun nýrrar
DC-10 breiðþotu til afhendingar
1980, en taka varð ákvörðun um
það fyrir skömmu.
Sigling á sundunum.
Ljósm. óskar Sæmundsson.
Bolton segir í skýrslunni að megin-
vandinn við Kröflu stafi af dreifingu
ábyrgðar við framkvæmd verksins
ásamt skorti á samhæfðri áætlun
fyrir verkefnið í heild sinni. Telur
Bolton hagkvæmustu lausnina vera
þá að koma á fót stofnun eða
fyrirtæki til að fara með stjórn
Kröflu, en hins vegar sé ólíklegt að
slíkt takist í tíma til að koma
verkefninu þegar að notum.
Nýsjálenzki verkfræðingurinn
segir ennfremur, að hin tæknilegu
vandamál, sérstaklega í sambandi
við veggi borholanna, hafi valdið
efasemdum um gildi framkvæmdar-
innar, en telur að þessi vandkvæði
megi yfirstíga og að hann telji þessi
vandkvæði alls ekki réttlæta skoðan-
ir um að Krafla sé tæknilega mis-
heppnuð framkvæmd.
Bolton rekur síðan ýmsa þætti er
átt hafi þátt í því ástandi sem upp er
Breiðholt hf.:
Kröfur í þrotabúið eru
orðnar 460 milliónir
KRÖFUR í þrotabú byggingaríyrirtækisins Breiðholts
hf. nema nú rúmum 460 milljónum króna. Innköllunar-
frestur er ekki liðinn og má búast við því að fleiri kröfur
herist í búið. Samkvæmt bráðabirgðayfirliti forstjóra
fyrirtækisins telur hann eignir þess á móti skuldum vera
rúmar 250 milljónir króna.
Stærstu kröfuhafar eru Gjald-
heimtan í Reykjavík með samtals
tæpar 168 milljónir, Sementsverk-
smiðja ríkisins með rúmar 75
milljónir, Tollstjórinn í Reykjavík
með tæpar 42 milljónir, Rafha hf. í
Hafnarfirði með 40 milljónir, Líf-
eyrissjóður byggingarmanna rúm-
ar 24 milljónir og ríkisféhirðir f.h.
ríkissjóðs með tæpa 21 milljón
króna.
Á skiptafundi í þessari viku var
samþykkt tillaga þess efnis að
rannsókn fari fram á eigenda-
skiptum í Breiðholti hf. á árinu
1977. Vegna þessarar tillögu hafa
þrír fyrrverandi eigendur og
stjórnarmenn í fyrirtækinu, Björn
Emilsson, Hafsteinn Baldvinsson
og Páll Friðriksson sent frá sér
yfirlýsingu þar sem segir að hagur
fyrirtækisins hafi verið mjög góð-
ur þegar þeir seldu hluti sína í því
og eignir þess hafi þá verið miklu
meiri en skuldir.
Sjá „Efnahagur Breiðholts
hf...“ á bls. 14.
Vilja íslenzka
verkfræðinga
til Saudi-Arabíu
Almenna verkfræðistofan
auglýsti í Morgunblaðinu í gær
eftir verkfræðingum til starfa í
Saudi Arabíu og hafði blaðið
samband við forsvarsmann
stofunnar, Svavar Jónatansson
til að spyrja hann hvers eðlis
verkefni þetta væri. Svavar
kvað verkfræðistofuna vera í
sambandi við þýzkt fyrirtæki,
sem stæði fyrir miklum fram-
kvæmdum á vegum hersins í
Saudi Arabíu en þarna væri um
að ræða að reisa heilar herbúðir
með tilheyrandi þjónustu-
byggingum. Svavar tók fram að
ekkert væri afráðið hvað snerti
hlutdeild verkfræðiskrifstof-
unnar í þessu verkefni en hún
hefði engu að síður verið beðin
að kanna möguleika á því hér að
fá verkfræðinga til eftirlits-
starfa með framkvæmdinni.
Alls þyrfti 38 eftirlitsmenn með
verkinu og gæfi það nokkra
vísbendingu um umfang þess.
komið í Kröflu og nefnir í fyrsta lagi
áæflunargerðina, fjármálahliðina og
sambandsleysi milli aðila en hann
segist bæði í viðræðum við aðila og
eftir eigin athuganir orðið þess
greinilega var að samskipti milli
aðila voru erfið og þetta hafi lagt sitt
af mörkum til að auka á vandræðin.
Þá víkur hann að Orkustofnun og
segir að gífurlegur vöxtur í fyrirtæk-
inu ásamt megináherzlu á að auka
tæknimenntað starfslið stofnunar-
innar hafi leitt til ójafnvægis í
stjórnun hennar, og að honum virð-
ist þetta ójafnvægi einnig hafa haft
sitt að segja um ríkjandi ástand í
Kröflu. Þá víkur Bolton að samræm-
ingu aðgerða, sem hann telur mjög
hafa skort á við Kröflu. Að vísu hafi
iðnaðarráðuneytið séð þörfina á
slíku með því að setja á laggirnar
nefnd til að annast samræmingu
aðgerða, en valdsvið hennar virðist
ekki nægilegt og þar af leiðandi
vanti enn á samræmdar aðgerðir við
framkvæmdina. Með því að veita
nefndinni nauðsynlegt vald megi
bæta ástandið en því aðeins að aðilar
viðurkenni það vald.
Bolton segir í skýrslu sinni að sú
lausn sem einna helzt virðist blasa
við sé sú að Kröflunefnd taki að öllu
leyti við stjórn framkvæmdarinnar
og semji um þjónustu Orkustofnunar
ef nauðsyn krefur. Hefði ábyrgðinni
verið komið fyrir á þennan hátt
þegar Kröflunefnd var skipuð, telur
Bolton að ríkjandi ástand hefði verið
mun auðveldara viðfangs.
Sjá „Róttæk tillaga, bls. 14.
FÍA frestaði aftur verkfalls-
aðgerðum — nú til 7. marz nk.