Morgunblaðið - 07.10.1979, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 07.10.1979, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 1979 7 Umsjónarmaóur Gísli Jónsson 19. Þáttur Einhvern veginn brenglaðist setning í síðasta þætti. Hún átti að vera svo: og bregður þá fyrir sama staglstílnum og þegar rætt var um landvarnir landsins (ekki: smá staglstílnum). Svo segir í Eyrbyggju af Fróðáundrum: „Það var tíðenda að Fróðá það sama kveld, er Þóroddur hafði heiman farið, að máleldar voru görvir, og er menn kómu fram, sá þeir, að selshöfuð kom upp úr eldgrófinni. Heima- kona ein kom fyrst fram og sá þessi tíðendi. Hún tók lurk einn, er lá í durunum, og laust í höfuð selnum. Hann gekk þegar upp við höggið og gægðist upp á ársalinn Þórgunnu. Þá gekk til húskarl og barði selinn. Gekk hann upp við hvert högg, þar til að hann kom upp fyrir hreifana. Þá féll húskarl í óvit.“ Mér kom þessi frásögn af selnum á Fróðá í hug, því að varla hafði ég sett lokapunktinn eftir síðasta þátt, þegar ég heyrði enn fleiri dæmi en áður af staglstilnum. Mun ég nú berja á honum enn um sinn, þangað til ég fell í óvit, ef hann gengur enn upp við hvert högg. I fréttum útvarpsins laugar- daginn 29. september var skýrf frá því að einhver blóðhundur í Afríku hefði verið dæmdur til dauða fyrir þjóðarmorð á þjóð sinni, og sama daginn tilkynnir umsjónarmaður íþróttaþáttar í sjónvarpinu liðskipun liðanna, sem keppa skyldu. Á ég að trúa því að ekki dugi að segja að maðurinn hafi verið dæmdur fyrir morð á þjóð sinni og rétt þyki, áður en kappieikur hefst, að skýra frá skipan liðanna? eigum við að sætta okkur við tal sem slíkt að hljómburður hljómburðartækjanna hafi verið góður eða loðnuveiði loðnuveiði- bátanna hafi verið mikil? Getum við ekki sæst á að hljómburður tækjanna hafi verið góður og veiði loðnuskipanna mikil? Og nú sem ég er að hamra þetta á ritvelina, er lesið úr forystugrein einhvers blaðs: A þetta mun flokkurinn leggja aherslu á. En nú skal ég vera sanngjarn og létta barsmíð af selnum. Staglstíllinn situr um okkur og hefur laumast inn í málið og náð fótfestu. Við segjumst t.d. hafa áhuga á einhverju, við hefjum umræður um eitthvað, hermenn gera áhlaup á borgir og einn maður hefur aðför að öðrum. Þannig mætti lengi telja. Og staglstílsmönnum til hugg- unar má frá því greina að fár er óskeikull, og skýst þótt skýrir séu. Til Sveinbjarnar Egilssonar er oft vitnað sem höfuðsnillings um meðferð íslensks máls og mætti allt þykja til fyrirmyndar sem hann segði. Margfrægar eru þýðingar hans á kviðum Hóm- ers, en þar stendur þó: „Inni í hallargarðinum vóx langlaufgað viðsmjðrsviðartré (auk. hér), það tré var fullvaxið og stóð í blóma, og digurt sem máttsúla". „Og aftur: „Nú veit ég eigi, kona, hvort rúmið stendur enn kyrrt, þar sem ég lét það, eða hefir nokkurr maður af nýjungu höggvið undan stofn viðsmjörs- viðartrésins, og fært rúmið á annan stað.“ Viður, viður og tré, hvorki meira né minna, allt í ama orði. Skylt er að getra þess, að Sveinbjörn notar einnig orð- myndunina viðsmjörstré, en af einhvérjum ástæðum hefur smjörviður ekki þótt duga. Þá er að biðja lesendur lið- sinnis eins og fyrri daginn, þegar mér verður orðs vant. Fyrst er að geta þess að stofnað hefur verið félag aðstoðarfólks tann- lækna, skammstafað FAT. Ég hef verið beðinn að smiða sam- heiti fyrir þetta fólk, sem mér skilst að vinni eitthvað mismun- andi störf. Það hefur ekki tekist, svo að líki, og auglýsi ég nú eftir tillögum um það. Þá hringdi til mín Kristín Aðalsteinsdóttir í Reykjavík og tjáði vandkvæði fólks sem vinn- ur á ferðaskrifstofum við útveg- un farseðla, skipulagningu ferða, pöntun gistirýmis og margs kon- ar fleiri skyld störf sem sérþekk- ingu þarf til að inna sómasam- lega af hendi. Slíkur maður heitir á dönsku rejsekonsulent og á ensku travel agent. Nú bið ég haga orðsmiði (ekki orðhaga orðsmiði) að lá ta sér detta eitthvað snjallt og smellið í hug. Loks er þess getandi að Rafn Kjartansson á Akureyri las í frásögn af Tyrkjaráninu að á úfnum öldum Atlantshafsins hefðu hættur verið á hverju strái. Þvílíkt mál hefði Snorra Sturlusyni og Ólafi frænda hans Þórðarsyni þótt nykrað. Björn botnan kvað: Illur var úthafsvegur, andskoti langt til stranda. Grasvöxtur geigvænlegur grand bjó mönnum og vanda. , □inðaosyngja Kórskóli Pólýfónkórsins 10 vikna namskeiö hefst í byrjun október. Kennt verður 2 stundir í senn eitt kvöld í viku: Raddþjálfun, æfingar í tónheyrn og nótnalestri. Umsjón meö námsskeiöinu hefur söngstjóri PÓLÝFÓNKÓRSINS Ingólfur Guðbrandsson. Upplýsingar og innritun í símum 26611 á skrifstofutíma og 43740/38955 á kvöldin. Nýir umsækjendur, sem óska aö starfa meö Pólý- fónkórnum í vetur gefi sig fram í sömu símum. Pólýfónkórinn. MYNDAMÓTHF. AOALSTNATI • — MYKJAVIK PKINTMYNOAGfKO OFFSET-FILMUK OG PLÖTUK SlMI 17112 AUGLÝ SIN G ATIIKNISTOF A SlMI 1SS10 Til sölu Volkswagen 1975 sendibíll Nýsprautaöur og í góöu standi. Austin Mini 1977 fólksbíll Ekinn 13000 km. Blár. Eins og nýr. Upplýsingar í síma 19086. Renault 20 er bíllinn sem sameinar lipurð bcejarbílsins og stcerð og þcegindi ferðabílsins. Bíll sem hentar íslenskum aðstceðum einkar vel. Renault 20 er framhjóladrifinn btll, með sjálfstceða fjöðrun á hverju hjóli. Vélin er 102 hestöfl og eyðslan aðeins 9 1 á 100 km. Renault mest seldi bíllinn í Evrópu 1976. RENAULT0 KRISTINN GUÐNASON HF. SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 86633 Viö sýnum YAMAHA mótorhjól á laugar- dag og sunnudag, frá kl. 1—6 í sýningar- sal okkar aö Smiöshöföa 23. BÍLABORG HF. SMIDSHÖFDA 23 NAMSTEFNA NAMSTEFNA UM STARFSMANNASTJÓRN Stjórnunarfélag Islands mun efna tll námstefnu um Starfsmannastjórn flmmtudaglnn 11. október kl. 10 árdegis. Nómstefnan veróur haldin aó Hótel Sðgu og er dagskrá hennar sem hér segir: Setnlng námstefnunnar. — Hðröur Sigurgestsson formaöur SFf. Skipulag og verkefni starfsmannadellda. — Mogens Bruun ráögjafi um starfsmannastjórn hjá Danska vinnuveitenda- sambandlnu. (Erlndlö veröur ftutt á ensku). Starfsmannastjórn (framleiöslufyrirtækl. — Jakob Möller vtnnumálafulltrúl ISAL. Starfsmannastjórn hjá Flugfélagl. — Jón Júllusson framkvæmdastjóri stjórnunarsviös Fluglelöa hf. Hádeglsveröur. Starfsmannastjórn í rfklsfyrlrtækl. — Þorgelr K. Þorgeirsson framkvæmdastj. umsýsludeildar Pósts- oo slmamálast. Starfsmannastjórn hjá IMB — Otto A. Michelsen forstjórl IBM á islandi. Samskiptl verkalýösfélaga og starfsmannadeilda. — Guöjón Jónsson formaöur Félags járniönaóarmanna. Hlutverk starfsmannafélaga. — Páll Bergsson formaöur starfsmannafélags OLÍS. Sálfræölleg próf vlö val á starfsfólki. — Gytfl Ásmundsson sálfræölngur Kleppsspftala. Kaffi. Menntun og þjálfun starfsmanna. — Baldvin Einarsson starfsmannastjórl StS. Vlnnumarkaöurlnn — Ólafur öm Haraldsson skrlfstofustjóri Hagvangs hf. Pallborösumræöur Áætlað er aö námstefnunni Ijúki um kl. 17.30. Þátttaka tilkynnist til skrifstofu Stjórnunarfélagsins. Nómstefna þessi er sstluð stsrfsmsnnsstjórum, frsmkvæmdsstjórum, deildsrstjórum, forstööumönnum og öörum þeim sem hsfs meö höndum stjórnun stsrfsmsnns. A STJÓRNUNARFÉLAG ISLANDS Sfðumúla 23 — Sími 82930

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.