Morgunblaðið - 07.10.1979, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 07.10.1979, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 1979 23 Svanlaug Una Jóharuia Jónsdóttir — Minning Þú stóðBt sem bjarg i brotsjó, en barst ei mikið A, að gera öllum gott var þin gleði og hjartans þri. Þó móðurlauaa móðir varat nueddra þerraðir brár. — Ég get eldd annað gefið þér en gleym-mér-ey og tir. (Guðm. Guðmundaaon). Þessar ljóðlínur segja mikið um hana mömmu, sem við kveðjum nú á þessum döpru haustdögum. Það er tómlegt við fráfall hennar hjá okkur, en minningin er björt og skýr og geymist í hjörtum okkar um aldur og ævi. Ef við áttum í einhverjum erfiðleikum, þá var það alltaf það fyrsta, að fara til mömmu og leita ráða hjá henni, og alltaf gat hún gefið okkur ráð sem hjálpuðu á einhvern hátt í einu og öllu. Hún barst ekki á, en vann sín verk hljóðlega og með rósemd og ætíð skilaði hún sínum verkefnum af æðruleysi. Hjartaþel hennar verður einna best lýst í því að ef hún vissi að einhver átti bágt, þá var hún boðin og búin til að rétta hjálparhönd og var kærleikur hennar til manna og dýra einlæg- ur. Hún sagði oft við okkur strák- ana sína að ef þeir væru ekki góðir við dýrin, þá gætu þeir ekki komið vel fram við fólk yfirleitt, og við höfum reynt að móta okkar fram- komu eftir því. Hún mamma var fædd í Veiðileysu í Árneshreppi norður á Ströndum. Hún var alin upp á heimili sínu í Birgisvík og síðar að Kleifum í Kaldbaksvík. Foreldrar hennar voru Jón J. Guðmundsson og Margrét S. Kristjánsdóttir. Hún var elst af þeirra stóra barnahópi og er hún þriðja í röðinni af þeim systkinum sem maðurinn með ljáinn leggur að velli. Á tvítugs aldri kvaddi hún víkina sína, bæinn og fjöllin fyrir norðan og fór suður til Reykjavíkur til að afla sér þekk- ingar og reynslu undir lífsstarfið. Fljótlega eftir að hún kom til Reykjavíkur hitti hún pabba og gengu þau í hjónaband 27. nóvem- ber 1954. Og sjaldan hafa hjón átt eins margt sameiginlegt og þau og lýsir þetta litla ljóð kannski mörgu í þeirra samskiptum. Þú sefur sœtum blundi við sjafnana góða hlið: Þlð liðið tvð aem Ijós gegnum lim i myrkum við. Þú varst hans æsku istarrós og aftan stjarnan hans: Þlð siglduð tvö i bllðum byr um blfstraum kærleikans. Svo vertu blessuð, bliða og bjarta, göfuga sil. Nú hljóðnar harpan min og mér harmur stillir mil. I nafnl allra er unna þér, af alhug kveð ég nú — og IJóðsveig þennan legg ég i þitt leiði i von og trú. G.G. Við bræðurnir þrír sem eftir lifum af börnum pabba og mömmu, sjáum nú á eftir góðri, ástúðlegri og kærleiksríkri móður. Betri móður er varla hægt að hugsa sér eins og hún var okkur. í öllum okkar uppvexti var hún okkur stoð og stytta sem aldrei verður hægt að meta. Hún var okkur bæði móðir og félagi í senn og studdi við bakið á okkur í blíðu og stríðu. Hún kenndi okkur að virða og elska náungann, hún leiddi okkur fyrir sjónir að hreint hjarta er það göfugmannlegasta sem nokkur maður getur átt. Æðruleysi hennar kom vel fram í því sjúkdómsstríði sem hún hefur staðið í á þessu ári, hún kveinkaði sér aldrei né barmaði. Hún stóð alltaf jafn sterk hvað sem á bjátaði. Mikið á sú manneskja gott sem ber svo hreina sál yfir móðuna miklu. Við hefðum viljað og kosið að mamma hefði dvalið hjá okkur lengur og verið okkar leiðarljós í lífsbaráttu okkar þar sem við erum og munum stofna okkar eigin fjölskyldu og hún hefði getað gefið okkur góð ráð í okkar eigin uppbyggingu. í sumar eignaðist einn okkar bræðra og kona hans litla stúlku sem ber nafn ömmu og afa og áttu þau fyrir einn dreng, kærkomnari gjöf höldum við að ekki hafi verið hægt að gefa henni en þessa litlu stúlku, sem hún fékk svo allt of lítið að umgangast og kynnast, því sjúk- dómurinn tók sig upp nokkrum dögum áður en hún fæddist. Við biðjum guð um að veita henni styrk og allt sem hún þarf til að fara yfir móðuna miklu, og geta verið okkur bræðrunum, pabba og eiginkonum okkar stoð. Þó að hún sé ekki hér í jarðn- esku lífi þá mun hún vaka yfir okkur og fylgja okkur eftir á okkar lífsleið. Eitt var það sem mamma átti og var henni mikill styrkur á erfiðum tímum og var það trúin, og var það henni mikil hjálp á þessum síðustu mánuðum í hennar sjúkdómsstríði. Við bræðurnir viljum koma kveðju til frænku okkar Sóleyjar Sveinsdóttur fyrir þá hlýju sem hún sýndi mömmu þennan tíma og vitum við að það var henni mikill styrkur. Eins viljum við koma fram þakklæti til alls starfsfólks á Landakotsspítala fyrir ómetanlegt starf sem það hefur lagt á sig. Sérstakar þakkir viljum við senda Sigurði Björnssyni lækni fyrir að hjálpa henni mömmu okkar. Við viljum kveðja hana mömmu með þessum ljóðlínum. Ég hef þekkt marga hia sil hef lcrt bækur, tungumil, og setið tIA liata llndir. En enginn kenndl mér elns og þú hlð ellifa og stóra, kraft og trú, né gaf mér svo guðlegar myndir Matth. Joehumsson Guð varðveiti hana. Synir og tengdadætur Við gætum sungið, gengið um gleymt okkur með blómunum. Er rökkvar riðlð stjörnumil. gengið saman hönd i hönd, hæglit farið niðri strönd. Fundið stað samelnað beggja sil. Vllhj. Vilhjilmsson. Við viljum þakka ömmu fyrir allt sem hún gaf okkur og biðja guð að styrkja afa og aðra ástvini á þessum erfiðu dögum. Minning ömmu er ljós í lífi okkar Hvíli hún í friði. Hörður og Oddný Svana. Á BÍLASÝNINGU BÍLABORGAR veröur aöal- vinnmgur í nappdrætti Lionsklúbbs Kjal- arnessþings, MAZDA 626 árgerð 1980, til sýnis. Annar vinningur í happdrættinu er Finlux litsjónvarpstæki 26“ meö fjarstýr- ingu. Miöar seldir á sýningunni. Lionsklúbbur Kjalarnessþings Mosfellssveit. 1 R gSTif EF ÞAÐ ER FRÉTT- SJ NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í MORGUNBLAÐINU Komiö og skoöiö nýjustu geröirnar af MAZDA 1980 og pantiö tímanlega fyrir næsta ár. Opiö 1 — 6 BÍLABORG HF. SMIDSHOFDA 23

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.