Morgunblaðið - 07.10.1979, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 07.10.1979, Blaðsíða 24
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 1979 24 Rætt við Kristin Sveinsson, byggingameistara og svínabónda „Ég rek þetta svínabú af hugsjón — þaö er minnisvarói um grís, löngu dauöan grís,“ sagöi Kristinn Sveinsson, byggingameistari og eigandi eins stœrsta svínabús á landinu þegar blaöa- maöur Mbl. rœddi viö hann á búi hans, Hamri undir Úlfarsfelli. Kristinn er starfsamur maöur, um þaö veröur ekki deilt. Hann hefur ekki einungis látiö sér nœgja aö vera mikilsvirkur bygginga- meistari í Reykjavík heldur hefur hann í tómstundum sínum byggt upp stórbú á íslenzkan mælikvaröa. En af hverju í minningu gríss? „Jú, þaö er saga aö segja frá því,“ svaraöi Kristinn. „Ég er Dalamaöur, frá Sveinsstööum í Klofningsstaöa- hreppi. Faöir minn, Sveinn Hallgrímsson, var nýlátinn þegar grísinn kom inn í líf mitt. Ég var þá tólf ára, þaö var áriö 1937. Móöir mín, Salome Kristjánsdóttir, þurfti aö ala önn fyrir tíu börnum. Þetta voru ár mikilla erfiöleika, fátæktar og peningaleysis. Svo var þaö voriö 1937, aö móöurbróöir minn, Óskar Kristjánsson á Hóli í Hvammssveit, kom aö Sveinsstööum. Hann sá aö ekkert útvarp var á heimilinu og þaö þótti honum ótækt. Hann sagöi því sisona viö mömmu, aö hann skyldi gefa henni grís, sem hún gæti aliö fram á vetur og selt svo. Fyrir peningana skyldí hún kaupa útvarp. „Sendu einhvern strákinn eftir grísnum,“ sagöi hann aö skilnaöi. Þaö kom í minn hlut aö sækja grísinn. Ég fór á hesti og til baka sneri ég meö grísinn í kassa. Meö okkur tókst míkil vinátta, gagnkvæm vinátta held óg megi fullyröa. Ég hirti grísinn af kostgæfni en tíminn leiö og þar kom aö grísinn skyldi deyja. Ég man þaö gjörla, aö óg hjálpaöi viö aö koma grísnum upp á hestvagn en hljóp síöan undir hlööuvegg og grót. Útvarpiö kom aö Sveinsstööum en þaö varö mór aldrei kært. Því skemmtilegri sem þættirnir voru, því leiöari varö óg og ráfaöi ætíö út. Kötturinn Skuggi meðal nokkurra klukkustunda gamalla grísa. Hann er mjög hændur aö svínunum og iðulega fær hann sér að drekka meö grísunum af spena móðurinnar. Kristinn Sveinsson í „uppeldishúsinu". Þar eru 600 svín og sjólfvirkni er mikil. Sjálfvirkt fóðurkerfi og flórinn er vélmokaður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.