Morgunblaðið - 07.10.1979, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 07.10.1979, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 1979 Sjúkrasjóður VR tók til starfa um mánaðamótin: Tryggir launþegum frekari bótagreidslur þegar um lang- varandi sjúkdóma er að ræða SJÚKRASJÓÐUR Verzlunar- mannafélags Reykjavikur tók til starfa 1. þessa mánaðar. Miðað er við að Sjúkrasjóðurinn taki við þegar samningsbundnum sjúkra- greiðslum vinnuveitenda lýkur. en það er frá einum til sex mánaða. Sjóðurinn greiðir félags- mönnum VR sjúkradagpeninga i 90 daga á sex mánaða timabili, en að öðru leyti svipað og Sjúkra- samlagið. Dagpeningar nema nú 4.400 krónum og fyrir 90 daga bótatimabil nema greiðslurnar þvi mest 396 þúsund krónum. Magnús L. Sveinsson varafor- maður VR er formaður stjórnar Sjúkrasjóðsins og sagði hann í gær, að í kjölfar setningarlaga, sem tóku gildi 1. maí síðastliðinn hefði verið óskað eftir viðræðum við viðsemjendur félagsins og samningar um Sjúkrasjóð VR náðust um miðjan júlí. Aðilar urðu sammála um að greiðslur í sjóðinn skyldu hefjast 1. júlí og innheimtan færi fram á vegum Lífeyrissjóðs verzlunarmanna og þýddi þetta að starfræksla sjóðs- ins gat hafist nú strax í haust, Magnús Sveinsson. sagði Magnús L. Sveinsson. Sjukrasjóðir annarra stéttarfél- aga innheimta hins vegar sam- kvæmt skattframtölum fyrir- tækja. Það þýðir að sjúkrasjóðir fá sínar tekjur 12—18 mánuðum síðar en Sjúkrasjóður VR. Ef við hefðum haft sama háttinn á hefði sjóðurinn ekki hafið starfsemi fyrr en 1981 og við gátum því hafið starfsemi sjóðsins fyrr en ella. Það er rétt að taka það fram að greiðslur sjúkrasjóðsins koma til viðbótar þeim réttindum, sem verzlunar- og skrifstofufólk nýtur samkvæmt ákvæðum í kjarasamn- ingum VR. Samkvæmt þeim halda launþegar óskertum launum allt frá einum degi upp í sex mánuði í veikindaforföllum. Sjúkrasjóður- inn tryggir launþegum því frekari greiðslur en áður og alveg sérstak- lega þegar um langvarandi sjúk- dóma er að ræða þar sem okkar bótatímabil tekur við þegar sam- ningsbundnum launagreiðslum lýkur. Magnús sagði að lokum, að framkvæmdastjórn sjóðsins væri heimilt að meta þörf og aðstæður félagsmanna í sjúkra-, elli- og örorkutilvikum og gæti í slíkum tilvikum samþykkt styrkveitingar. I dánartilvikum er heimilt að greiða sjukradagpeninga, sem fé- lagsmaður á rétt á fyrir eitt bótatímabil 90 daga, til þeirra, sem voru á framfæri hins látna. Copacabana hótelið í Rio de Janeiro, þar sem millisvæðamótið fer fram. Híibner er doktor í papýrusfræðum í Jerúsalem árið 1967 var haldið heimsmeistaramót ungl- inga í skák. Mótið fór fram mánuði eftir lok Sex daga stríðsins í mikilli sigurvímu lsraelsmanna. Þar hitti ég í fyrsta sinn V-Þjóðverjann Robert Húbner. Síðan hafa leiðir okkar oft legið saman. Hann er nú í hópi sterkustu skákmanna heimsins , um þessar mundir. Á skákborð- ■% Robert Húbner er nú efstur á miilisvæðamótinu. inu og utan þess hefur hann oft farið ótroðnar slóðir. Hann er doktor í papýrusfræðum frá háskólanum í Köln. Hann hefur tekið þátt í mörgum sterkum skákmótum, sem haldin hafa verið á undanförnum árum, en þess á milli hefur hann lesið á gamlan papýrus um daglegt líf Egypta fyrir meir en 2000 árum. Sér til hugarhægðar lærði hann finnsku og talar hana betur en flestir Finnar að sögn þeirra sjálfra. Nú er ég staddur í Río, Hubner til halds og trausts, en hér er hann þátttakandi í millisvæða- móti í skák. Mótið er haldið í einu virðulegasta hótelinu hér í Copacabana-baðströndinni og í eina tíð var hér frægt spilavíti. Keppendur eru alls 19, þar af 14 stórmeistarar. Töfluröð kepp- enda er þessi: 1. Quiliarmo Garcia(Kúbu) stórm. 2. Jalma Sunya Nato (Braailíu) 3. Kh. Havarandi (iran) alþj. meiatari 4. Yuri Baiaahov (Sovét) atórm. 5. Tigran Petroajan (Sovét) atórm. 6. Henrique Mecking (Brasilfu) atórm. 7. Jean Hebert (Kanada) alþj. m. 8. Lajos Portisch (Ungverjal.) stórm. 8. Dragoljub Velemirovic (Júgósl.) atórm. 10. Lula Bronstein (Argent.) alþj. m. 11. S(mon Kagan (iarael) alþj. m. 12. Leonid Shamkovich (Bandar.) stórm. 13. Eugenio Totte (Filipseyjum) atórm. 14. Róbert Híibner (V-Þýzkalandi) stórm. Guömundur Sigurjónsson stórmeistari skrifar frá Rio dc Janeiro 15. Borislav Ivkov (Júgóal.) stórm. 16. Jan Smejkal (Tékkósl.) stórm. 17. Gyula Sax (Ungverjal.) atórm. 18. Rafael Vaganjan (Sovét) stórm. 18. Jan Timman (Hollandi) atórm. Baráttan stendur um þrjú efstu sætin. Þeir sem þau skipa í lok þessa móts munu fá rétt til að taka þátt í kandidataein- vígunum, en sigurvegarinn í þeim fær rétt til þess að skora á heimsmeistarann Anatoly Karpov. Hér er því til mikils að vinna. Meira seinna. 31 Frá blaðamannafundinum, talið frá vinstri: Ingólfur Guðbrandsson, Friðrik Eiriksson formaður stjórnar, Kolfinna Sigurvinsdóttir og Bjarni Bragi Jónsson. Ljósm. Mbi. Emúia. Pólýfónkórmn hefur vetrarstarf PÓLÝFÓNKÓRINN er að hefja sitt 23. starfsár, „fyrir atbeina velunnara og hugsjónafólks, fremur en að opinberir aðilar veiti honum brautargengi nú fremur en áður,“ eins og segir í fréttatilkynn- ingu sem forráðamenn kórsins lögðu fram á blaðamannafundi á föstudaginn. Æfingaaðstaða kórsins í Voga- skóla var ófullnægjandi orðin og samrýmdust þarfir kórsins ekki félagsstarfsemi í skólanum, þar sem hann hefur átt athvarf mörg undanfarin ár og notið góðrar fyrirgreiðslu skólastjórnar. Ráð- gerðir fræðsluyfirvalda um fram- tíðarhúsnæði fyrir kórinn í Lauga- lækjarskóla, sem stóðu allt sum- arið, fóru út um þúfur í síðasta mánuði, en fyrir einstaka velvild hefur kórinn nú fengið inni fyrir starfsemi sína í Vörðuskóla, sem áður hét Gagnfræðaskóli Austur- bæjar. Pólýfónkórinn mun í vetur reka kórskóla og eru síðustu forvöð að innrita sig um helgina í síma 43740 og 38955. Um kórskólann segir svo í fréttatilkynningunni: „Undanfarinn áratug hefur Pólý- fónkórinn rekið kórskóla, og hefur starf hans gefið mjög góða raun. Næstum allir geta lært að syngja, fái þeir rétta tilsögn, og margir búa yfir hæfileikum, sem þeir hafa enga hugmynd um. Margir nem- endur Kórskólans hafa síðar orðir virkir félagar Pólýfónkórsins, en þeir eru ófáir orðnir ungir söngvar- ar og tónlistarmenn, sem hófu feril sinn í Pólýfónkórnum. Næsta naámsskeið Kórskólans hefst mánudagskvöldið 8. okt. kl. 20.00 í Vörðuskóla. Kennarar verða Guðrún Friðbjarnardóttir, ung vel menntuð söngkona sem nýlega er komin heim frá framhaldsnámi í London, og heldur hljómleika hér á næstunni, Einar Sturluson, söng- vari, Herdís Oddsdóttir, tónlistar- kennari og Ingólfur Guðbrandsson, söngstjóri Pólýfónkórsins. Kennt verður 2 stundir í senn og áherzla lögð á rétta raddbeitingu, þjálfun tónheyrnar og taktskyns og nótna- lestur. Námsskeiðinu lýkur fyrir jól. I Pólýfónkórnum hefur jafnan verið lögð áherzla á skólun raddar- innar jafnframt músíkalskri þjálf- un með flutningi valinna viðfangs- efna. Auk söngstjórans munu söng- konurnar Elísabet Erlingsdóttir, Sigrún Gestsdóttir og Guðrún Friðbjarnardóttir annast radd- þjálfun kórsins í vetur." Auk söngæfinganna, sem eru tvö kvöld í viku, er öflugt félagslíf innan kórsins og skemmtikvöld haldin nokkrum sinnum á vetri. Kórinn hefur farið 5 söngferðir til útlanda við mikinn orðstír og gefið út nokkrar hljómplötur, m.a. heildarútgáfu af óratóríunni Messías eftir Hándel. Kórnum hafa borizt mörg boð um hljómleikahald erlendis og eru sum þeirra nú í athugun. Næstu viðfangsefni kórs- ins verða jólatónlist í desember, sem mun verða boðin sjónvarpinu til flutnings og „Helgimessa" Rossinis, stórt verk og fagurt fyrir kór, 4 einsöngvara og hljómsveit, sem í ráði er að flytja snemma á næsta ári. Söngsveitin Filharmonía Vetrarstarf söngsveitarinnar hefst með æfingu mánudaginn 8. október n.k. Æfingar verða í Melaskólanum á mánudögum og miðvikudögum kl. 20.30. Verkefnin í vetur verða „Requiem“ eftir Brahms og „La Traviata“ eftir Verdi. Nýir félagar óskast. Uppl. í símum: 27787, 40785 og 44548. Stjórnin Háaleitishverfi m/ bílskúr 3ja herb. íbúð á 3ju hæð. íbúöin er í mjög góðu ástandi með nýju verksm.gleri og nýlegum teppum. Góö sameign. Bílskúr. ATH. OPIÐ í DAG KL. 1—3 EIGNASALAN REYKJAVÍK SÍMI 19549—19191 Einbýlishús viö Hátröð Einbýlishús á tveimur hæöum. 1. hæð: 2 saml. stofur, eldhús, bað, herb. geymslur o.fl. Rishæð: 3 herb. snyrting o.fl. Bílskúr. Verölaunagarður. Æskileg útb. 30 millj. Eignamiðlunin, Vonarstræti 12. Sími: 27711. Sigurður Ólason, hrl.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.