Morgunblaðið - 28.07.1982, Side 4
36
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. JÚLÍ 1982
Yasser Arafat, leiilagi PLO.
starfs síns við Bræðralag mú-
hameðstrúarmanna, en það var
fyrst á námsráðstefnu í Prag
1957, sem hann heyrði um áhuga
egypsku leyniþjónustunnar á
sér. Hann kom sér af þeirri
ástæðu til Kuwait þar sem hann
starfaði hjá stjórnvöldum við
verkfræðistörf.
Það var í Kuwait, þar sem var
stórt samfélag palestinskra út-
laga, sem lagður var grunnur að
AI Fatah, stærstu hreyfingu pal-
estínskra skæruliða. Ásamt
tveimur vinum frá Kaíró, Salah
Khaiaf og Khaled al-Wazir
stofnaði hann samtökin form-
lega í október 1959. A1 Fatah var
einungis ein hreyfing margra
sem upp komu vegna stefnu
Nassers í sameiginlegum málum
araba.
Að því kom að nýir valdhafar í
þriðja heiminum fóru að sýna
samtökunum áhuga. í desember
1962 fór Arafat í heimsókn til
Alsir og hlaut þar blessun for-
setans, Ben Bella, sem fór með
hann í heimsókn til Peking ári
síðar.
Það var á þessum tíma sem
Arafat tók upp algjörlega nýjan
lífsmáta. Þrátt fyrir að hann
gæti aldrei talist mikill lífs-
nautnamaður, þá hafði hann lif-
að í samræmi við sitt uppeldi.
Nú, þegar hann þarfnaðist
styrks frá t.d. Alsír og Kína, tók
hann upp lífsmáta sem var
meira í samræmi við lífsmáta
þess fólks sem hann barðist
fyrir. Hann bragðar ekki áfengi,
snertir ekki sígarettur og drekk-
ur nú einungis jurtate með ör-
litlu af hunangi og það er það
Arafat sést nú oftar á ferli opinberlega. Hér er hann með liðsmönnum sínum
í rústum V-Beirút.
^fasser
rafat
Vingjarnleg!
skæruliðinn
Víða ber framtíðina á góma þar
sem tveir eða fleiri hittast, en
trúlega er hún samt fáum jafn
óviss og palestínumönnum í Líban-
on. Þeir reða sín mál af miklum
eldmóði og allir sem einn virðast
þeir einarðir í að berjast eins lengi
og með þarf.
Varðandi hugleiðingar um upp-
gjöf eru mörg svör á takteinum hjá
liðsmönnum PLO, en eitt þeirra
er: „Hefðirðu búist við að Chur-
rhill gæfist upp og yfirgæfi Bret-
land?“ og ekki virðist fráleitt að
nota þessa líkingu í aðstöðu þeirra.
Yasser Arafat er jú ('hurchill, Tító,
('astro eða Ho Chi Minh hinnar
palenstínsku byltingar.
Yasser Arafat er sá maður,
sem heldur saman ólgandi öflum
innan PLO og víst er, að sam-
staða innan samtakanna væri
rofin, ef hans nyti ekki við.
Það hafa verið gerðar að
minnsta kosti tvær tilraunir til
að svipta hann Iífi á síðastliðn-
um tíu árum, en að öllu jöfnu er
hann maður myrkursins í þeirri
merkingu, að hann er jafnan
ekki á ferli fyrr en birtu er farið
að bregða. Hann hefur hins veg-
ar sést oft á ferli nú á síðustu
dögum umsátursins, en það hef-
ur hann meðal annars gert til að
eyða orðrómi þess eðlis, að hann
hafi hlaupið í skjól sovéska
sendiráðsins og skilið menn sína
eftir með örlög sín.
Þrátt fyrir að Arafat reki ætt-
ir sínar til höfðingja, má segja
að hann njóti mikillar og ein-
arðrar alþýðuhylli. Höfuðbúnað-
ur palenstinska bóndans, sem
hylur mestan hluta skallans, er
orðið merki byltingar hans og
sömu sögu er að segja um gráu
skeggbroddana á vöngum hans.
Hann útskýrði þá einhvern tíma
þannig, að með því að sleppa
rakstrinum sparaði hann einn
vinnutíma á viku. Kunnugir
telja þó að ástæðan sé fremur sú,
að ef hann raki sig, endi það
jafnan með skrámum og rispum,
sem þykja ekki traustvekjandi.
Leiðtogi PLO hefur alltaf
sveipað sig og gerðir sínar hulu
leyndardóma. Staðreynd er, að
hann er fæddur í desember 1929
og hlaut þá nafnið Rahman Abd-
el Raouf Arafat al Qudwa al
Husseini. Móðir hans var með-
limur al Husseini fjölskyldunnar
sem mikið bar á í Jerúsalem, en
faðir hans var auðugur kaup-
maður, sem hafði viðskiptasam-
bönd við Kaíró og Gaza.
Arafat heldur því alltaf fram,
að hann sé fæddur í Jerúsalem,
sem er góður staður fyrir upp-
rennandi leiðtoga að fæðast á, en
andstæðingar hans segja þetta
ósatt og hann hafi fyrst litið
dagsins Ijós í Kaíró eða Gaza.
Vitað er, að hann dvaldist mest-
an hluta yngri ára sinna í Gaza,
sem þá var hluti Egyptalands
sem var undir breskum yfirráð-
um, og gekk þar í gagnfræða-
skóla. Það var þar sem einn
kennara hans tók upp á því að
uppnefna hann Yasser.
Snemma varð hann viðriðinn
stjórnmál og varð fljótt foringi
hreyfingar ungra manna sem
barðist gegn hreyfingu Zíonista
og kallaði sig al Faoutouwa.
Hann mun hafa barist með þeim
í fyrsta stríðinu milli araba og
ísraela árið 1948.
Ásamt bræðrum sínum stund-
aði hann nám við háskólann í
Kaíró, þar sem hann lagði stund
á verkfræði og hellti sér um leið
út í stjórnmálastarfsemi. Þar
gekk hann í Bræðralag mú-
hameðstrúarmanna, sterkan
andspyrnuhóp, sem svikinn var
af Nasser og hans „Frjálsu for-
ingjum" og Samtökum palest-
ínskra námsmanna. Hann varð
síðan foringi þeirra samtaka frá
1952 til 1956. Hann var skipaður
í egypska herinn og barðist með
honum í Suez-stríðinu 1956.
Eftir að Suez-stríðinu lauk,
sóttu að Arafat efasemdir um að
Nasser tækist að reisa Palestínu
við. Hann óttaðist einnig hand-
töku í Egyptalandi vegna sam-
eina sem hann býður sínum gest-
um upp á. Hann er ekki græn-
metisæta en sleppir alltaf kjöti
þegar þess er kostur.
I upphafi komu trúmál ekki
mikið við sögu hjá Arafat og
hreyfingunni A1 Fatah, en það
hefur mikið breyst. Nú gerir
hann það heyrinkunnugt að
hann biðjist fyrir fimm sinnum
á dag og fasti þegar trúin krefst
þess og hann ætlast til slíks hins
sama af vörðum sínum. Hans
eina skemmtun er að horfa á
teiknimyndir af myndbanda-
spólum og hann kvað horfa á
sumar hverjar aftur og aftur. A1
Fatah hefur síðastliðin 20 ár
verið leiðandi afl innan PLO, en
Arafat var kosinn foringi þeirra
í febrúar 1969. Honum hefur tek-
ist að halda samtökunum saman
í 20 ár og er leikni hans í stjórn-
málum þakkað það. Það nægir
að líta á óreiðuna í arabaheimin-
um til að sjá að hér er ekki um
neina tilviljun að ræða.
Innan PLO eru átta skæru-
liðasamtök, sem sum hver hafa
staðið að sjálfstæðum aðgerðum
og þá gjarnan með aðstoð er-
lendra hryðjuverkamanna. Það
er ástæðan fyrir því að í hugum
margra er palestínumaður sam-
nefnari fyrir hryðjuverkamann.
Arafat hefur alltaf verið orð-
aður við hófsamari hluta PLO,
og allt frá árinu 1967 hefur hann
gefið í skyn að ef Israelsmenn
yfirgæfu einungis þau svæði sem
þeir tóku yfir eftir stríðið 1967
myndi hann sætta sig við „smá-
ríki" sem væri á Vestur-bakkan-
um og Gaza.
En hann hefur einungis gefið
þetta í skyn og hann verður að
gæta orða sinna þegar hann tal-
ar við leiðtoga hinna öfgakennd-
ari afla innan PLO, sem vilja
heyra um byltingu og síðan al-
gjöran sigur. Þess vegna hefur
Arafat ekki enn þorað að sam-
þykkja ályktun SÞ númer 242,
sem er skilyrði þess að Banda-
ríkin viðurkenni samtökin þrátt
fyrir að það sé hans heitasta ósk.
Þessi ályktun felur í sér að
ísraelsmenn flytjist brott frá
herteknu svæðunum, en hún fel-
ur einnig í sér viðurkenningu á
rétti ísraelsmanna til að lifa.
Margir eru gagnrýnendur
Arafats innan raða PLO sem
segja að hann megi taka harðar
á málum, jafnvel séu réttlætan-
leg blóðböð innan samtakanna
til að ryðja úr vegi óhagstæðum
hreyfingum. Þessu er Arafat
ósammála, kannski er hann of
hógvær, en hann hefur þó staðist
margan þrýstinginn og mótbár-
urnar. Spurningin er kannski
frekar: Hvaða spil á hann eftir?
(EJ. þýtt og endursagt úr The
Observer).
Messinn, fyrsta veitinga- og
sjómannastofan í Þorlákshöfti
Veitinga- og sjómannastofan Messinn í Þor-
lákshöfn tók til starfa fyrir skömmu í ný-
byyggðu tréhúsi við höfnina í Þorlákshöfn.
Messinn býður upp á allar almennar veitingar,
brauðmeti og fjölda rétta á matseðli, en þetta
er fyrsta veitingastofan sem opnuð er í Þor-
lákshöfn. Það eru menn frá Vestmannaeyjum,
sem eiga og reka Messann, þeir Gísli og Sævar
Guðjónssynir og Arnþór Sigurðsson ásamt eig-
inkonum þeirra, Þóru Sigurðardóttur, Sif Svav-
arsdóttur, Guðrúnu Alexandersdóttur.
Messinn hefur veitingasal fyrir 60 manns
að staðaldri og hægt er að bæta við. Þá er
þar billjardsalur sem í framtíðinni verður
sérstök sjómannastofa með þægilegri að-
stöðu fyrir sjómenn í landlegum og á kvöld-
in. Böð og gufubað verða tekin í notkun fyrir
árslok, þannig að ferðamenn og aðrir gestir
og gangandi geta notið þeirrar þjónustu.
Messinn býður daglega upp á rétt dagsins,
en eigendur staðarins hafa lagt mikla
áherzlu á að vanda til alls í sambandi við
reksturinn og er staðurinn m.a. búinn mjög
góðum tækjakosti. Þá hefur Messinn tekið
að sér veizlur, bæði í Messanum og ann-
arsstaðar og jafnvel í öðrum landshlutum.
Að jafnaði eru þrír kokkar við störf í Mess-
anum, sem er ein vandaðasta sjómannastofa
landsins jafnhliða því að vera veitingastað-
ur fyrir almenning.