Morgunblaðið - 28.07.1982, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. JÚLÍ1982
Arkitektar lyginnar
Eftir Pétur
Sigurðsson, alþm.
Það vakti nokkra athygli þegar
einn þingmanna Alþýðuflokksins
lýsti sjálfum sér sem „arkitekt
kosningasigursins 1978“.
Ekki er vitað hver telst hæst-
ráðandi á áróðursteiknistofu
krata en óneitanlega má þaðan
sem víða annarsstaðar kenna
nokkurs stjórn- og stefnuleysis.
Því ef einn kratahönnuður stefnir
línu sinni í vestur eru þegar aðrir
níu búnir að setja strikið í austur.
Sá er þetta ritar hefur áður haft
á orði að sjálfstæðismenn voru því
miður að mestu leyti eigin arki-
tektar kosningaósigursins 1978.
Og til viðbótar þótti kjósendum
Sjálfstæðisflokksins of mikill
sveigur kominn á okkar fyrri
stefnu þegar gengið var til kosn-
inganna haustið 1979. En þau úr-
slit höfðu djúpstæðar afleiðingar í
för með sér, eins og öllum er kunn-
ugt.
í sjálfu sér skiptir engu máli
fyrir sjálfstæðismenn, þótt
toppkratar rífist um hver ráði á
teiknistofu lyginnar, en úrslit síð-
ustu kosninga benda ekki til þess,
að kjósendur hafi í miklum mæli
trú á þeim arkitektum sem gleyma
grunni og undirstöðum, en byrja
að byggja efstu hæð háhýsis.
Á þennan hátt má lýsa ýmsum
pólitískum úrlausnum toppkrata,
þegar þær eru skoðaðar niður í
kjölinn. Sjálfir nota þeir þá aðferð
að fela innihaldsleysi þeirra með
upphrópunum og blaðri og endur-
teknum ósannindavaðli og árásum
á sjálfstæðismenn nú síðustu árin.
Vissulega hefur Sjálfstæðis-
flokkurinn haft sín vandamál við
að stríða, en ekki er það vænlegt
fyrir samtök sem vilja kalla sig
stjórnmálaflokk að byggja tilveru
sína á þeirri gagnrýni sem ráða-
menn Alþýðuflokksins hafa nú
tamið sér um leið og þeir gleyma
bjálkanum í eigin auga.
Ég sting niður penna nú m.a.
vegna þeirrar nöturlegu stað-
reyndar að enn eru of margir ís-
lendingar sem hafa trú á bygg-
ingaraðferð kratanna.
Stöðugar endurtekningar þeirr-
ar fullyrðingar að Sjálfstæðis-
flokkurinn beri ábyrgð á tilurð nú-
verandi ríkisstjórnar og gerðum
hennar, flokkurinn eigi ráðherra
og stuðningsmenn hennar úr röð-
um flokksins sitji á þingi og fyrir
verknað Sjálfstæðisflokksins hafi
ríkisstjórnin komist á koppinn.
Þeir sem ljá eyra slíkum mál-
flutningi hljóta að meðtaka sem
stóra sannleik aðra sambærilega
fullyrðingu!!
Sigfús Sigurhjartarson, Héðinn
Valdimarsson, Hannibal Valdi-
marsson og fleiri toppkratar þess
tíma voru flokksbundnir en gengu
til samstarfs við kommúnista.
Samkvæmt kenningu krata nú, má
því eigna Alþýðuflokknum öll verk
og skoðanir sem Kommúnista-
flokkurinn stóð að, meðan þessi
stórmenni krata unnu við hlið
annarra „socialista" sem flokks-
bundnir voru í Alþýðubandalag-
inu!
Og hver er sannleikur þessa
máls? Allir þeir aðilar sem sam-
kvæmt lögum og reglum Sjálfstæðis-
flokksins hafa með myndun stjórnar
að gera, hafa lýst andstöðu sinni við
þá ríkisstjórn sem nú situr og allan
aðdraganda að myndun hennar.
Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins,
þingflokkur, flokksráð og lands-
fundur, einn sá fjölmennasti og
samhentasti sem haldinn hefur
verið, allir þessir aðilar eru and-
vígir henni. Þetta vita kratar
mæta vel og einnig að þingflokkur
og þingmenn flokksins hafa haldið
uppi harðri stjórnarandstöðu með
þeim undantekningum sem komu í
ljós við stjórnarmyndunina.
En það eru þingmenn krata sem
oftar en einu sinni hafa hlaupið
undir bagga með vopnabræðrum
sínum frá því í „verkalýðsbarátt-
unni“ 1976—78, kommúnistum, og
bjargað málum þeirra og lífi
stjórnarinnar í atkvæðagreiðslum
á Alþingi. Eitt sem styðja á gagn-
rýni krata á þingmenn Sjálfstæð-
isflokksins í þessu sambandi, er að
þessir umræddu stjórnarliðar séu
í þingflokki hans. Það er rétt. Þótt
tillögur hefðu komið upp um að
reka þá úr þingflokknum, eru eng-
in lög eða reglur sem heimila slíkt,
það er aðeins á valdi hinna ein-
stöku félaga innan flokksraðanna.
Þetta er einfaldlega vegna þess
að Sjálfstæðismenn hafa ekki
reiknað með að slíkir atburðir
gætu gerst í þeirra eigin röðum.
Þeim er þetta ritar hefur hins-
vegar verið tjáð, að ákvæði um
brottrekstur fyrir pólitískt fram-
hjáhald sé meginákvæði í lögum
Alþýðuflokksins. Þetta skilur all-
ur almenningur. Enda söguleg
staðreynd að á fárra ára fresti
klofnar sá flokkur og hluti hans
gengur í ból með kommúnistum.
Og nú er engu líkara en sagan sé
að endurtaka sig, riddarar orðsins,
arkitektar lyginnar keppast við að
vera til vinstri við kommúnista
sjálfa. Er nokkur furða þótt Ás-
mundur sitji uppi með Svarta-
Pétur.
Sá sem síðast lét frá sér heyra í
þessa veru var Kjartan Jóhanns-
son, formaður Alþýðuflokksins, í
fréttaviðtali í útvarpinu, laugar-
daginn 17. þ.m.
Það kaldhæðnislega er, að
Pétur Sigurðsson.
Enginn stjórnmála-
flokkur á meiri sök á
því að núverandi ríkis-
stjórn situr í stjórnar-
ráðinu, en Alþýðuflokk-
urinn. Aðdragandi þess
er ekki frá vetrardögum
1980, ekki sumardögum
1978 heldur frá því að
kratar versluðu við
kommúnista um stjórn
Alþýðusambandsins á
haustdögum 1976.
Kjartan biður um að þetta viðtal
sé tekið við sig til að mótmæla
siðlausu hlutleysisbroti frétta-
37
manns útvarpsins, og mælti í því
máli satt og rétt frá.
En Kjartan Jóhannsson ómerkti
þungann í eigin mótmælum þegar
hann óð í sama haug og umræddur
fréttamaður og gekk skrefinu
lengra, þegar hann bar á borð
sama uppspuna og ósannindi og
aðrir toppkratar hafa gert og ég
hefi bent á hér að framan.
Enginn stjórnmálaflokkur á
meiri sök á því að núverandi ríkis-
stjórn situr í stjórnarráðinu, en
Alþýðuflokkurinn.
Áðdragandi þess er ekki frá
vetrardögum 1980, ekki sumardög-
um 1978, heldur frá því að kratar
versluðu við kommúnista um stjórn
Alþýðusambandsins á haustdögum
1976.
Með því að þjóna á þann veg
metorðagirnd yngri toppkrata af-
hentu þeir kommúnistum þau lykil-
völd í þjóðfélaginu, sem þeir höfðu
alltaf sóst eftir og eldri kratar alla
tíð barist gegn af fullri hörku, völdin
í verkalýðshreyfingunni.
Á sama tíma gerðu þessir ridd-
arar lýðræðisins samning við
kommúnista um að koma öllum
sjálfstæðismönnum úr trúnað-
arstöðum innan verkalýðshreyf-
ingarinnar. Grundvallarskilyrði
þessa samnings var að atiagan
skyldi fyrst og fremst beinast að
þeim, sem komið hefðu fram sem
talsmenn Sjálfstæðisflokksins og
stefnu hans.
Þegar út í hin einstöku verka-
lýðsfélög kom, var þessum „bisk-
upsboðskap" ekki hlítt af óbreyttu
alþýðuflokksfólki. Þessir aðilar
hafa unnið vel saman sumstaðar
um áratugaskeið. Enda vissu þeir
betur en foringjarnir, að ef af
þessu yrði, mundu þeir eiga allt
sitt undir kommum og lenda fyrr
en síðar „út í kuldanum", eins og
raunin varð á t Alþýðusamband-
inu.
Það er nefnilega mikill munur á
óbreyttum liðsmanni Alþýðu-
flokksins og þeim riddurum
toppkrataliðsins, sem þar hafa
riðlast til valda.
Norðmenn
í klípu út af
hvalveiðum
Ósló, 26. júli. Frá tréttariUra Mbl.
BLAÐIÐ Aftenposten segir frá því í
dag, að ekki sé ólíklegt, aó Banda-
ríkjastjórn muni beita Norðmenn
efnahagslegum refsiaðgerðum vegna
þess, að norskir hvalveiðimenn nota
enn kaldan skutul við veiðarnar.
Aftenposten kveðst hafa þessar
fréttir eftir háttsettum mönnum í
sendinefnd Bandaríkjamanna á
fundi Alþjóðahvalveiðiráðsins, sem
haldinn hefur verið í London. Geir
Grung, talsmaður utanrikisráðu-
neytisins í Ósló, hefur einnig látið í
ljós ótta við að Bandaríkjamenn
neiti að kaupa norskar fiskafurðir
ef þeir fari ekki eftir samþykkt
ráðsins um algert bann við hval-
veiðum frá 1986.
Herflugvél-
ar sprengdar
Ciweru, /imbabwe, 26. júli. AP
Hermdarverkamenn sem komu
sprengjum fyrir í herflugvélum á
Thornhill-flugvellinum I bænum
Gweru, sem er einn aðalflugbækistöð
hersins, eyðilöggðu eða skemmdu 13
flugvélar á sunnudag, samkvæmt upp-
lýsingum þaðan í dag.
Stjórnin hefur ekki skýrt opin-
berlega frá tölum um eyðilegging-
una, en hefur einungis látið frá sér
fara skýrslu þess eðlis að „nokkrar"
herflugvélar úr flota Zimbabwe
hafi verið sprengdar í loft upp á
Thornhill.
Leynilegar heimildir herma að 13
herflugvélar, átta breskar, fjórar
nýbyggðar breskar æfingavélar og
ein könnunarvél, hefðu verið eyði-
lagðar eða mikið skemmdar vegna
þessara gífurlegu sprenginga.
STORSPARNAÐUR
í SÖGUFERÐ ' ^
TIL AMSTERDAM
Flug og gisting
4 dagar verð frá
kr. 4.500.-
5 dagar verð frá
kr. 4.800.-
1 vika verð frá
kr. 5.600.-
Innifalið: flug og gisting
Allar nanari upplysingar og verð á
skrifstofu okkar.
Feröaskrifstofan Laugavegi 66,
101 Reykjavik, Sími: 28633