Morgunblaðið - 28.07.1982, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. JÚLÍ1982
að allir laxarnir voru auðvitað full
kynþroska á leið heim til móðuráa
sinna á Fróni, yfirleitt vænir, þetta
10—15 pnnda. Svo gátu liðið fleiri
dagar að við urðum ekki varið við
lax og mjög sjaldan var um 1, 2 eða
3 laxa að ræða. Allt benti jafnan til
að við hefðum lent í torfu.
Háseti á öðrum íslenskum tog-
ara er hafði verið 5 ár á Græn-
landsveiðum, var staddur heima
hjá mér góða kvöldstund og sagði
mér þá mjög áþekkar sögur um
laxveiðar í flotvörpu við Græn-
land. En hann bætti einu við frá-
sögn sína, sem vakti mikla furðu
mína. Mér var kunnugt um, sagði
hann, að samkvæmt ísl. lögum var
hverskonar laxveiði bönnuð í sjó.
Þegar heim kom sló ég því á þráðinn
til að segja veiðimálastjóra frá þessu
Kvintýri. En svarið var stutt og lag-
gotL Þið eigið að vita að bannað er
að veiða lax í sjó og þetta kemur mér
ekkert við og heldur ekki á óvart.
Það er viða pottur brotinn í þessum
efnum.
Þannig fór nú um sjóferð þá, varð
þessum togarsjómanni að orði.
Fróðlegt væri nú að vita hvort á
þessi mál hefur nokkuð verið
minnst á nýgerðum efnahags-
málasamningum við Rússa.
Þá er og þess að geta, að mér er
kunnugt um að laxar hafa fengist
í síldarnótaköst allt frá miðunum
út af Snæfellsjökli og austur af
Kolbeinsey, svo og einnig í þorska-
net og ýsunet allt umhverfis land-
ið. Gífurlegur fróðleikur saman-
kominn í þessum efnum mundi án
efa segja merkilega sögu um ferð-
ir og lifnaðarháttu laxanna um út-
höfin.
Þessvegna vil ég nota þetta
tækifæri til að skora á alla sjó-
sóknar- og aflamenn að segja frá
reynslu sinni og þekkingu í þess-
um efnum og senda frásagnir sín-
ar til eftirtaldra manna:
Dr. Phil Björns Jóhannessonar,
Víðimel 34, Rvík. 107, Lögfr.
Jakobs V. Hafstein, Grenimel 1,
Rvík. 107, Þorsteins Þorsteinsson-
ar bónda, Skáldastöðum, Borgar-
firði v/ Borgarnes.
Með fyrirfram þakklæti.
Jakob V. Hafstein.
Árni Johnsen
Guðmundur Rúnar Lúðvíks-
son hljómlistarmaður er enn á
ferðinni með nýja plötu þótt
varla sé liðin vorvertíð síðan
hann kom með síðustu plötuna á
markaðinn. Hér er um að ræða
stóra plötu, fjögurra laga sem
ber nafnið, Ég lifi og þér munuð
lifa. A plötunni eru tvö ný lög
tengd þjóðhátíð Vestmannaeyja
og einnig tvö vinsæl lög af plötu
Guðmundar Rúnars, Vinna og
ráðningar, en það eru lögin
Súrmjólk í hádeginu og Cherios
á kvöldin, við texta Bjartmars
Guðlaugssonar og lagið íslenzkir
sjómenn, við ljóð Einars Mark-
an. Öll lögin á plötunni eru eftir
Guðmund Rúnar, en lög hans eru
einkar hugljúf, létt og leikandi
og sérlega söngvin. Be'ra þau
merki höfundar sem er lífsglað-
ur, ungur og áræðinn maður,
hispurslaus og jákvæður. Á tím-
um pönkara og alls kyns vanda-
málasafnara er Guðs þakkarvert
að eiga hauk í horni þar sem
Guðmundur Rúnar og slíkt
æskufólk er á ferð. Þar fer fólk
sem gerir sér grein fyrir því að
mannsævin er stutt og það er
skylt að nýta hana vel.
Guðmundur Rúnar, sem sjálf-
ur gefur út plötur sínar undir
heitinu Hljómteiti GRL, hefur
fengið til liðs við sig kunna og
fjöruga hljóðfæraleikara og má
þar nefna Óla Bachmann
trommara, Smára Kristjánsson
bassa, Helga Kristjánsson gít-
arleikara og Björn Þórarinsson
píanóleikara, en platan var tekin
upp í Nema sf. Glóru í
Gaulverjabæ.
Ég lifi og þér munuð lifa fjall-
ar um litla eyju norður í Atl-
antshafi þar sem Herjólfsdaiur
og Heimaklettur skipa virð-
ingarsess í hugum fólks, en ljóð-
ið er náttúrustemmning í bland
við mannlífshjal þar sem menn
verða órjúfanlegur hluti a nátt-
úrunni. Þetta er gullfallegt lag
með viðlagi sem slær á allra
strengi, en lagið er betra en text-
inn.
í Herjólfsdalnum heitir hitt
lagið og er tileinkað þjóðhátíð
Vestmannaeyja. Það er í
slagarastíl með uppnefnum og
tilheyrandi og segir sögu af ein-
um þjóðhátíðargesti sem er
langt frá því að vera óraunveru-
legur en telzt þó varla til fyrir-
myndar á þeirri rómuðu hátíð.
Textinn er skemmtilegt brall um
reisu á þjóðhátíð eða eins og seg-
ir í viðlaginu:
Hér verdur droll og dallerí
í Herjólfsdalnum
hopp og hí og fallerí
svo syngur í salnum.
Guðmundur Rúnar hefur ljúfa
og skemmtilega söngrödd og fer
vel með í samræmi við góðan
tónlistarflutning á plötunni.
TIL AFGREIÐSLUV
i-----n SlU»
nnft eigum til afgreiðslu strax schaeff skb 600
JLnaen OG skb soo með öllum faanlegum aukabún-
AÐI. ÓTRÚLEGA HAGSTÆTT VERÐ OG GÓÐ
GREIÐSLUKJÖR:
Vökvaflæði er 142 I pr. minutu
á SKB-600 og 200 I pr. mínútu á
SKB-800.
Aka má velinni ur aftursæti
SCHAEFF fæst i tveimur
stæröum:
SKB-600 (6 tonn),
SKB-800 (8 tonn).
Stiglaust vökvadrif i stað gir
kassa.
Öryggishús með sérstaklega
góðu útsýni.
A s . I*?-*
Liðstyring — kostir hennar eru
augljósir.
Hægt er að fa opnanlega fram
skóflu og lyftaragaffla, hvor
tveggja með hraðtengiútbúnaði
Fjórhjóladrif og öll hjól eru
jafn stór er mikið atriði.
Þegar SCHAEFF-inn er hjola
skófla án gröfuarms er þyngd
arjöfnunarlóðum rennt auð
veldlega úr frambrettum í aft
urbretti.
SKB-600 hefur 3.6 tonna ha
markslyftikraft,
SKB-800 hefur 4ra tonna há
markslyftikraft.
SKB-600 hefur 9.5 tonna brot
kraft,
SKB-800 hefur 13.0 tonna brot
kraft.
t
SCHAEFF-inn sýnir vestur þýskt hugvit og hönnun
Þeir fylgjast með sem þekkja SCHAEFF.
x Sp;
; vn -
13
Snjóruðningstönn. Ömetanleg
fyrir marga. ’
Höfðabakka 9 Simi 8-52-60
Hljóm
otur
Hljómteiti Guðmundar
Rúnars í Þjóðhátíðarstuði