Morgunblaðið - 28.07.1982, Blaðsíða 23
VERZLUNIN
ALLTAF Á FIMMTUDÖGUM
03? SIG6A V/öGA fi iiLVtmi
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. JÚLÍ 1982
Komnir aftur
Þessir vinsælu
dönsku, fótlagaskór
aftur fáanlegir. Margir
litir. Allar stærðir.
Eg þekki einn sem
aldrei gleymir mér
Guðrún Guðmundsdóttir frá Melgerði, sem var vistmaður á Elli-
og hjúkrunarheimilinu Grund, en er látin fyrir nokkru, sendi okkur
eftirfarandi kvæði til birtingar skömmu fyrir andlát sitt:
Kveðja til þeirra
allra aumustu á Grund
Ég þekki einn sem aldrei gleymir mér
og allar mínar syndir með mér ber.
Hann er það ljós, er ljósa fegurst skín
og lætur dofna synda sporin mín.
Hann kallar enn, hann kallaði í gær
og kall hans enn til margra sálna nær.
Hann breiðir friðarfaðm sinn móti þér,
þar finnur þú að besta skjólið er.
Og þú sem grætur gengin ævispor,
þú gleðst af því, að til er andlegt vor.
Þú flýtir þér í faðminn lausnarans
og finnur þar er besta skjól hvers manns.
Guð blessi hvern sem biður fyrir mér
og blessun Hans minn lífsins styrkur er.
Guð blessi hverja bænarinnar stund.
Guð blessi þá sem eru og verða á Grund.
Ganga beygðir
til undirskriftar
- í utanríkisnefnd
„Þór“ skrifar:
„Sovétríkin hafa verið í hinni
pólitísku umræðu hér á landi að
undanförnu. Morgunblaðið birti
sl. laugardag skeleggt viðtal við
Albert Guðmundsson alþing-
ismann, en sama dag segir Þórar-
inn ritstjóri í Tímanum að afstaða
þingflokks Sjálfstæðisflokksins sé
„áras Geirsliðins á Gunnar Thor-
oddsen" ... Allir sem til þekkja
vita um það traust sem Albert
hefur borið til Ólafs sem utanrík-
isráðherra a.m.k. fram til þessa.
Eins mun öllum í fersku minni að
Albert var einn þeirra þingmanna
sem stuðlaði að því að núv. ríkis-
stjórn yrði starfhæf með þvi að
heita því að verja hana vantrausti.
Heldur Tímaritstjórinn að ástæð-
unnar fyrir þessari afstöðu Al-
berts sé að leita hjá Geir Hall-
grímssyni og þingmönnum Sjálf-
stæðisflokksins í stjórnarand-
stöðu?
Afstaða kratans til þessa máls í
utanríkisnefnd var mannleg en
ekki stórmannleg. Engur er líkara
en Bendikt Gröndal og aðrir krat-
ar, séu að þakka utanríkisráð-
herra fyrir embætti Benedikts,
sem nú verður ambassador í Sví-
þjóð; þar getur hann orðið þýð-
ingarmikill tengiliður milli krata
hér heima og ríkra skoðana-
bræðra í Svíþjóð.
í afstöðu Benedikts kemur fram
þakklæti og hollusta við núver-
andi (og fyrrverandi) húsbónda.
Saman ganga þeir kratar og
framsóknarmenn í utanríkisnefnd
beygðir til undirskriftar því sið-
ferðis og manngæskuvottorði sem
þeir hafa nú gefið ráðamönnum
Sovétríkjanna.
I herbúðum Vilmundar ríkir
mikill fögnuður yfir hinum nýja
samvinnusamningi við Sovétríkin.
Eða er þessi fögnuður meðfram af
því að Vilmundur losnar við Bene-
dikt úr prófkjörsslagnum?"
Glöð eins og börn
Kratar og framsóknarmenn:
BROSTU!
MYNDASÖGURNAR
MORGUN
Vikuskammtur af skellihlátri
- þrátt fyrir mörgu árin og gráu hárin
S.E. skrifar:
„Velvakandi
Ég get ekki látið hjá líða leng-
ur, svo oft sem það hefur komið í
huga minn, að færa séra Frank
M. Halldórssyni hjartans bestu
þakkir fyrir allt sem hann hefur
gert fyrir okkur aldraða fólkið í
Nessókn. A hverjum laugardegi
vetrarlangt hefur hann samveru-
stundir með okkur og hef ég oft
undrast hugkvæmni hans við að
finna alltaf eitthvað nýtt okkur
til ánægju. Oft hefur hann farið
með okkur í lengri eða skemmri
ferðalög og sýnt okkur ýmsa
staði sem við hefðum annars að
líkindum aldrei séð.
Nú síðast fórum við ásamt séra
Frank í fjögurra daga ferð norð-
ur í land, þar sem hann sýndi
okkur merka staði og fjölda
kirkna. Við vorum rúmlega 30
sem tókum þátt í þessari ferð, og
Séra Frank M. Halldóreson.
hygg ég að hún verði okkur
ógleymanleg. Andinn á meðal
okkar var eins og í góðri fjöl-
skyldu, og við vorum glöð eins og
börn þrátt fyrir mörgu árin og
gráu hárin. Við gistum á fyrsta
flokks hótelum og allur viður-
gjörningur var þar eftir. Jóna
Hansen sá, af miklum skörungs-
skap, um vistir milli aðalmáltíða
og passaði að okkur vantaði ekki
neitt. Hún sagði okkur margt
sem ég mundi ekki treysta mér
til að endursegja enda ekki mein-
ingin. Henni færi ég bestu þakk-
ir. Bílstjórinn okkar í ferðinni,
Axel, er frá Akureyri og vildi
hann allt fyrir okkur gera. Hon-
um sendi ég innilegar kveðjur.
Mestar þakkir fær séra Frank
fyrir Guðsorðið sem hann flytur
okkur í kirkju sinni, hreint og
ómengað, eins og það er í Biblí-
unni. Ég veit að ég tala fyrir
munn okkar allra þegar ég segi:
Hafðu hjartans þökk. Guð blessi
þig og starf þitt, séra Frank.“
AUGtYSINGASIOFA KHíSTÍNAR HF