Morgunblaðið - 02.10.1983, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 02.10.1983, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER 1983 2 Fólk hjálpsamt þegar á bjátar „NEI, ég hef ekki orðiö var við I óvart,“ sagði Bjarki Elíasson yfir- þetta og fréttin kom mér mjög á | lögregluþjónn í samtali við Mbl., er hann var spurður að því hvort farið væri að bera á afskiptaleysi vegfar- enda gagnvart slösuðu fólki, líkt og t.d. í Bandarfkjunum. Tilefni spurningarinnar var frétt í Mbl. í gær, þar sem fram kom að vegfarendur hefðu ekki þorað að taka slasaðan mann upp í bíl sinn í Hvalsnesskriðum, þar sem þeir héldu að hann væri drukkinn og ók því fólkið burt. Bjarki sagðist ekki kannast við viðbrögð af þessu tagi, fólk væri einmitt mjög hjálpsamt við náungann þegar á bjátaði, þá væru allir boðnir og búnir til að veita aðstoð. Varðandi hræðslu fólks við að veita aðstoð, eins og t.d. í Banda- ríkjunum, sagði Bjarki að sú hræðsla væri af öðrum toga, því þeir, sem aðstoð veittu, gætu átt yfir höfði sér málssókn frá hinum slasaða, vegna þess að ekki hafi verið rétt að aðstoðinni staðið. Bjarki sagði að þessi viðbrögð vegfarendanna í Hvalsnesskrið- um væru undantekning að því er hann best vissi og vonandi alger undantekning. Kauptaxtar hafa hækk- að um liðlega 7000% - Kaupmáttur miðaður við verðlag einkaneyzlu hefur lækkað um 9% „Tal um lífskjaraskerðingu vegna efnahagsaðgerða ríkis- stjórnarinnar er blekking að því leyti að ekkert var skert sem var nokkru sinni til. Umframneyzla var skorin niður og komið í veg fyrir tekjuskerðingu af völdum at- vinnubrests, aukinnar skuldabyrði og hruns þjóðartekna," sagði Vilhjálmur. „Meginverkefni í launamálum á næsta ári er að finna hvaða kaup- máttarstig er samfara viðunandi atvinnu og jafnvægi í utanríkis- viðskiptum. Á þeim grundvelli má síðan velja meiri kaupmátt og minni atvinnu ef genginu er ekki breytt, eða verðbólgustigið ef at- vinnan á að haldast," sagði Vil- hjálmur að síðustu. Að halda lífi í kulda AÐ HALDA lífi í kulda er yfir- skrift fjölmennrar ráðstefnu, sem stendur yfir í Slysavarnafélags- húsinu á Granda um helgina, að tilhlutan norrænu samstarfsnefnd- arinnar um heilsufarsrannsóknir á norðurslóð. Nær 100 manns sitja ráðstefnuna og mun fjöldi inn- lendra og erlendra sérfræðinga fiytja fræðsluerindi á ráðstefn- unni. Þeir munu til dæmis fjalla um það, hvernig halda megi lífi í miklum kulda, bæði á hafi úti, til fjalla, um klæðnað í kulda, hvernig koma megi í veg fyrir kuldaskemmdir og hvernig fara skuli með þær. Þá verður rætt um vinnu í kulda, köfun og slys við köfun, slysavarnir, björgun- arþjónustu og almannavarnir. Ólafur ólafsson landlæknir setti ráðstefnuna, en Jóhann Aexelsson, prófessor í lífeðlis- fræði, stjórnar henni. KAUPTAXTAR hafa hækkað um meira en 7000% á árabilinu frá 1970—1983, samkvæmt athugun hagdeildar Vinnuveitendasam- bands íslands, að sögn Vilhjálms Egilssonar, hagfræðings sam- bandsins. Vilhjálmur sagði, að kaupmátt- ur kauptaxtanna miðað við verð- lag einkaneyzlu hefði á sama tíma lækkað um 9% „Af þessu er ljóst, að innistæðulausar launahækkan- ir bæta ekki lífskjör." Vilhjálmur sagði ennfremur, að án efnahagsaðgerða hefði kaup- mátturinn staðið í stað milli 3. og 4. ársfjórðungs í ár þrátt fyrir 50—60% hækkanir í kauptöxtum. „Hærri kaupmáttur kauptaxta án efnahagsaðgerða hefði í sumum tilfellum verið kaupmáttur launa í störfum sem ekki hefðu verið til, en að öðru leyti komið fram í auknum viðskiptahalla og meiri skuldasöfnun erlendis." MorjpinbUAjA/IIBj. Kornuppskera á Þorvaldseyri Þessa dagana eru þeir bændur sem rækta korn að Ijúka uppskerustörf- um sínum. Uppskeran í ár er í rýrara lagi eftir þetta kalda og votviðra- sama sumar. Myndin var tekin á fóstudag er blaðamaður fór að Þor- valdseyri undir Eyjafjöllum og hitti Eggert Ólafsson að máli. Eggert hefur ræktað korn í rúma tvo áratugi og er mikill brautryðjandi í þessari ræktun. Hann býr nú félagsbúi á Þorvaldseyri ásamt sonum sínum, Sigursveini, sem sést við vinnu sína á myndinni, og Ólafi. Sænska sjónvarpið: Þættir um íslenskan landbúnað í FYRRAKVÖLD var væntanleg- ur hingað til lands hópur sænskra sjónvarpsmanna til að taka upp efni í þrjá sjónvarpsþætti um ís- lenskan landbúnað fyrir sænska sjónvarpið. Stjórnandi þáttanna kom hingað til lands fyrr í haust og notaði þá tímann til að taka upp efni af gögnum og réttum. „Hún fékk góðan söng, marg- raddaðan, í Tungnaréttum," sagði Agnar Guðnason blaða- fulltrúi bændasamtakanna i samtali við Mbl. í gær. í ferð- inni núna verður tekið upp efni í Gunnarsholti af starfsemi Landgræðslunnar en einnig verður að sögn Agnars rætt við nokkra bændur og farið í Rann- sóknastofnun landbúnaðarins í Keldnaholti. 1970—1983: Frönsku skipin við Grandagarö, kafbáturinn liggur utan á birgðaskipinu. Morgunblaðíð/RAX. Franskir sjó- liðar í heimsókn - færa Reykvíkingum styttu að gjöf FRANSKUR kafbátur og birgðaskip eru nú stödd í Reykjavíkurhöfn í kurteisisheimsókn. Á skipum þess- um eru um 200 manns og hafa þeir í farteski sínu styttu, sem borginni verður færð að gjöf. Veröur styttan sett upp á liagatorgi og afhjúpuð sunnudaginn 9. október. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins er þetta aðeins venju- leg kurteisisheimsókn og mun gjöfin vera í tilefni tengsla Frakka og íslendinga síðustu áld- ir. Verða skipin í höfn hér fram yfir næstu helgi, en heimsóknir af þessu tagi eru nokkuð algengar og skemmst að minnast heimsókna ftala og skipa úr fastaflota NATO í sumar. Það mun hluti þjálfunar sjóliða að heimsækja önnur lönd og kynnast þar stað- og lifnaðar- háttum íbúanna, að sögn starfs- manna utanríkisráðuneytisins. Fáskrúðsfjörður: Eitt sterkasta helgarskákmótið HELGARSKÁKMÓTINU á Fáskrúðsfirði, sem hófst á föstudag, lýkur þar í dag, sunnudag. Keppendur á mótinu eru 36, þeirra á meðal margir sterkustu skákmenn landsins, auk heimamanna Jóhann Þórir Jónsson, móts- stjóri og ritstjóri tímaritsins Skákar, sem gengst fyrir mótinu, telur þetta eitt sterkasta helg- arskákmótið. Á föstudag voru tefldar tvær umferðir, svokölluð röðun, en þá gafst heimamönnum tækifæri til að keppa við ýmsa sterkustu skákmenn landsins enda mótin byggð upp með það fyrir augum, að áhugamenn um skák, sem sjaldan tefla, fái tækifæri til að reyna sig við meistarana. Jóhann Þórir vakti athygli og nágranna. fréttaritara Mbl. á ungum pilti frá Stöðvarfirði, Viðari Jónssyni, sem vann sínar tvær fyrstu skákir og stóð vel í Sævari Bjarnasyni í þriðju umferð. Þegar komið var fram í mitt tafl sagði Jóhann að varla hefði mátt á milli sjá hvor væri meistarinn en að lokum fór svo, að Sævar sigraði. Keppendur hafa rómað aðstöð- una á Fáskrúðsfirði og hefur mik- ið verið um áhorfendur, bæði Fá- skrúðsfirðinga og fólk úr ná- grannabyggðunum. Frumsýning á „Nýtt líf“: Mikið hlegið í Eyjum HÚSFYLLIR var í Samkomuhús- inu í Vestmannaeyjum fyrir helg- ina þegar þar var frumsýnd kvik- myndin „Nýtt líf“ eftir Þráin Bert- elsson. Hlátrasköllin heyrðust út á götu og var leikurum og kvik- myndageröarmönnum fagnað vel og lengi í sýningarlok. „Þetta er örugglega ekki mynd um vanda- mál millistéttarinnar," sagði Þrá- inn Bertelsson, leikstjóri, í spjalli við blm. Morgunblaðsins. „Það eru nógu margir í að gera fólki lífið leitt þó ég sé ekki aö blanda mér í það mál.“ Myndin verður áfram sýnd í Vestmannaeyjum, þar sem hún var gerð, en er jafnframt sýnd í Nýja bíói í Reykjavík. Þriðji sýn- ingarstaðurinn verður ákveðinn fljótlega. Myndina tók Sigurgeir í Eyjum þegar Sigurgeir ólafs- son, forseti bæjarstjórnar Vest- mannaeyja, óskaði Þráni til hamingju að frumsýningu lok- inni. Aðrir á myndinni eru (frá vinstri) Ari Kristinsson, kvik- myndatökumaður, Eggert Þor- leifsson, annar aðalleikaranna, Frímann Lúðvíksson, sem leikur Júlla húsvörð, Karl Ágúst Úlfs- son, sem leikur hitt aðalhlut- verkið, Sveinn Tómasson, bæj- arfulltrúi, sem leikur skipstjóra, og lengst til hægri er Runólfur Dagbjartsson, sem leikur Lunda verkstjóra og slær í gegn í þess- ari kvikmynd, að sögn Þráins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.