Morgunblaðið - 02.10.1983, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 02.10.1983, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER 1983 Undir haust- himni Garóyrkja Hafliöi Jónsson Síðastliðinn sunnudag var lít- illega fjallað um nýtingu og geymslu grænmetis og hefur komið mér nokkuð á óvart, hvað margt fólk hefur hringt til mín og óskað eftir nánari leiðbein- ingum en jafnframt gefið mér ýmiskonar upplýsingar um eigin reynslu varðandi geymslu og margvíslega matarrétti, sem gerðir hafa verið úr heimarækt- uðu grænmeti. Ein húsfreyja á Norðurlandi taldi vandalaust að gera betra töfralyf úr ákveðnum íslenskum jurt.um, en það marg- lofaða og vel auglýsta blóma- fræflapilludót sem nú ætti að vera allra meina bót og mikið selt af farandsólum er gengið hefðu fyrir hvers manns dyr um allar byggðir að undanförnu. En með því að þessum haustþáttum mínum var ekki ætlað að verða matreiðslu- né lyfjauppskriftir, þá sleppi ég öllum nánari hug- leiðingum hvað slíkt varðar, en hinsvegar mun ég þyggja með þökkum allan fróðleik sem fólk vill miðla mér og öðrum af reynslu sinni varðandi hagnýt not og geymslumeðferð á hverskonar jarðargróðri. Vel má vera, að þörf sé á að safna slíkri vitneskju saman í aðgengilegt kver eða skrifa sjálfstæða þætti um þetta efni, þar sem sýnt er, að fjöldi fólks hefur verulegan áhuga á öllu því um líku. Þessa dagana fellur laufið af trjánum og við hér sunnan- og vestanlands heyrum lítið til fuglanna að þessu sinni. Því veldur að lítið er um matföng fyrir þá á trjánum á þessu hausti. Sáralítið er um það, að t.d. reyniviður beri nú fullþrosk- uð aldin og svo mun einnig um flestar eða allar tegundir trjáa og runna. Þessu mun þó á ann- anveg farið fyrir norðan og aust- an. Þar hefur sumarið verið vel í meðallagi og þar á fólk að huga að fræsöfnun, ef fuglarnir eru þá ekki þegar búnir að nasla öllu í sig áður en þeir leggja í lang- ferðina suður á bóginn. Það mætti vera meira um að garðeig- endur safni birki- og reyniviðar- fræi og geri sér ferð með fræið á lítt gróið land í næsta nágrenni sínu, þar sem einhver von er til að það geti orðið vísir að trjá- lundum, ef það fengi frið til að vaxa og dafna í næði fyrir ágangi manna og dýra. Sjálfsagt gætum við ræktað á einum eða tveimur áratugum stóra trjá- lundi með þeim hætti einum að bera fræ og frjóanga úr okkar heimagörðum í holt og móa utan við byggð. Jafnvel ættum við að sameinast um að koma upp frið- löndum og rækta þau upp með slíkum aðferðum. Með því gæt- um við eflt átthagatryggð og ættjarðarást og endurvakið hug- sjónir aldamótakynslóðarinnar sem gaf fyrirmyndina sem nægði til að við lifum ennþá frjáls í þessu landi, þó nú sé hinsvegar svo komið að við nýt- um illa þann mat sem á borð okkar er borinn og hugsum um frjálsræði okkar meðal fullvalda þjóða, sem sjálfsögð mannrétt- indi er ekki glatist, hversu gá- ieysislega sem við förum með auðlegð þá, sem landið leggur okkur til. Ef við sýnum það í verki að við viljum græða upp auðnirnar í næsta nágrenni okkar, ættum við að hafa betri samvisku þegar við leyfum okkur þann munað, að kaupa lauka flutta inn frá Hollandi, til að setja þá niður þessa haust- daga í garðinn okkar. Þeir þurfa að komast í mold fyrir vetrar- frostin og hyggilegast væri að koma þeim fyrir þar sem þeir njóta sín best, séðir út um glugga hússins og þá um leið þar sem þeir verða ekki fyrir, t.d. í beðum sem ætluð eru fyrir sumarblóm á næsta vori. Vel getur farið á því, að leyfa börn- um að setja niður krókus-lauka í grasflatir og letra nöfnin sín á Verkakvennafélagið Framtídin: Mótmælir bráðabirgða- lögunum MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi fréttatilkynning frá verkakvcnnafélaginu Framtíðinni, þar sem mótmælt er „harðlega þeirri kjaraskerðingu og afnámi samningsréttar sem felst í bráða- birgðalögum ríkisstjórnarinnar frá því í maí í vor. Frá 1. febrúar til 1. september hækkaði verðlag í landinu yfir 50%. Á sama tíma og verðlag æðir áfram er kjarasamningun- um kippt úr sambandi og allar launahækkanir bannaðar um- fram 8% 1. júní og 4% 1. októ- ber. Afleiðingin er sú að nú vantar þriðjung á umsamin kjör launafólks og þúsundir heimila í landinu ramba á barmi gjald- þrots," segir m.a. í ályktuninni. terkur og kJ hagkvæmur auglýsingamiðill! Skreyting meðan beðið er. Komið með eigin ílát og látið meistarana skreyta þau fögrum blómaskreytingum. Purrblom og þurrskreytingar Þurrblóm eru augnayndi og skreytingar úr þeim sérstök listgrein. Blómaval hefur nú sett upp sérstaka sýningu á þurrblómaskreytingum. Þurrfaiómaverkstædi. Við höfum fengið til landsins mjög færa hollenska skreytinga- meistara, Berty Mur (sem viðskiptavinir Blómavals þekkja frá s.l. ári) og C.De. Gooijer, en þau munu ásamt Uffe Balslev sýna gerð þurrblóma- skreytinga. Sjáið meistarana að störfum á skreytingaverkstæðinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.