Morgunblaðið - 02.10.1983, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 02.10.1983, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER 1983 AJmstangið Shady: og maöur séð i í San Francisco frammi fyrir 60 þúsund úheyrendum. Það er upphitunarhljómsveitin „Madness' sem er á sviðinu. MÉR FANNST MIG YERA AÐ DREYMA Nú á tímum Bítlaupprifjunar hefur nafn Shady Owens óneit- anlega komið upp í hugann enda markaði hún sín spor í þróun dægurtónlistarinnar hér á landi á þessu tímabili, eins og margir fleiri góðir tónlistarmenn á þeim árum. Shady Owens, sem nú heitir reyndar Shady Calver, kom fyrst fram á sjónarsviðið með Óðmönnum og vakti strax mikla athygli og hrifningu og flestum var Ijóst að þarna var komin fram söngkona í sérflokki. Shady var raunverulega eina söngkon- an sem eitthvað kvað að í poppbransanum á þessum árum og vegur hennar átti enn eftir að aukast eftir að hún gekk til liðs við Hljóma og seinna Trúbrot og Náttúru, — þar til hún flutti af landi brott árið 1974. En Shady hætti ekki að syngja þótt hún yfirgæfi íslenska hljómsveitabransann. Hún hefur sung- ið inn á hljómplötur í Bretlandi, starfað við „session-vinnu“ í hljóðverum í London og nýlega var hún í hljómleikaferð um Bandaríkin meö einni vinsælustu hljómsveit heims, Police, sem hún segir að hafi verið „stórkostleg upplifun“. Og nú er hún komin „heim“ til íslands til að taka þátt í Bítlahátíðinni. Við hittum Shady að máli og báðum hana um að rifja upp sitthvað sem á daga hennar hefur drifið síðan hún hvarf frá íslandi hérna um árið. Shady og Andy Summers, gítarleikari í Police, í búningsherberginu í Shea Stadium í New York. Þar hafa aðeins fjórum sinnum verið haldnir tónleikar, fyrst Bítlarnir, svo The Who, Simon og Garfunkel og nú Police. „Það byrjaði eiginlega þannig að ég kom hingað heim til Islands í sumarfrí, sumarið ’77 og kom þá fram með hljómsveitinni Póker og þá kynntist ég Geoff, sem nú er maðurinn minn. Hann var þá að vinna við upptökur á vísnaplöt- unni með Gunnari Þórðar og fleir- um, og með honum flutti ég svo til London þar sem við höfum búið síðan." Var það kannski Geoff sem kom þér aftur af stað f músíkinni? „Ég ætlaði mér nú alltaf að fara aftur út í músíkina, en það má segja að hann hafi hjálpað til. Hann hafði góð sambönd í London og það hefur mikið að segja. Ég gerði litla plötu í London þá um haustið en hún gekk ekki nógu vel. „Spjallaö við Shady um hljóm- leikaferð með Police og fleira „Ég vildi breyta til og langaði að fara aftur til Ameríku enda búin að reyna flest það sem hægt var í þessum bransa hér,“ — sagði Shady þegar við spurðum hana um ástæðuna fyrir skyndilegu brott- hvarfi hennar úr íslenska popp- bransanum. — „Náttúra var að hætta og það var talsvert los á öllu og mér fannst í rauninni ekk- ert fyrir mig að gera hér lengur. Ég fór til Atlanta í Georgia og stofnaði þar hljómsveit, og skömmu síðar kom Axel Einars- son út og við notuðum „Icecross"- nafnið. Þetta gekk ekki nógu vel og það var erfitt að fá vinnu enda gífurleg samkeppni í þessum bransa í Bandaríkjunum. Þetta datt því um sjálft sig og ég fór heim til fjölskyldunnar í Seattle. Það má segja að ég hafi að mestu dottið úr bransanum næstu tvö ár- in og tímanri nctaði ég til að reyna að átta mig á hvar ég stóð, Jinná sjálfa mig“ eins og það er kallað, — og kannski líka til að kynnast fjölskyldunni á ný.“ Og svo hefur þú byrjað aftur, hveruig atvikaðist það? Hér er hópurinn að búa sig undir að gaiigS á sviðið á fyrstu tónleikunum í Chicago. Stúlkurnar komu fram í austurlenskum búningum með blæju og Shady er freniSÍ S miðri mynd. í dyrunum stendur höfuðpaurinn í Police, sjálfur „Sting“. Aðaiatriðið í þessum bransa úti er að fá plöturnar spilaðar í útvarp- ið, koma þeim á svokallaðan „playlist", en það tókst ekki með þessa plötu." Er eitthvað hæft í því að hægt sé að kaupa sig í náðina hjá plötusnúð- um útvarpsstöðvanna, eins og sagt er að gert hafí verið þegar Elton John byrjaði? „Ég held að það sé næstum því útilokað og svoleiðis gæti aldrei gengið til lengdar ef fólkið sjálft fílar ekki músíkina. Þú getur ekki búið til „hit-lag“ með peningum ef fólkinu sem kaupir plöturnar líkar ekki músíkin. En samt er það svo- lítið happdrætti hvernig plötur komast á „playlist” hjá útvarps- stöðvunum. Þetta fer þannig fram að starfsfólk útvarpsstöðvanna heldur fundi og spilar nýjustu plöturnar og ef því líka ekki fyrstu línurnar í laginu er það tekið af og næsta plata sett á. Þannig getur þetta farið svolítið eftir því hvað þessu fólki finnst um lögin við fyrstu heyrn, hvort að þau ná eyr- um fólksins. Ef þú ert svo heppinn að komast á „playlist" er platan

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.