Morgunblaðið - 02.10.1983, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 02.10.1983, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER 1983 5 Útvarp unga fólksins Á dagskrá útvarpsins í dag, sunnudag, kl. 20.00 er þátturinn „Útvarp unga fólksins" sem þau Eðvarð Ingólfsson og Guðrún Birgisdóttir hafa umsjón með. „Þátturinn verður með styttra móti að þessu sinni, þar sem annar dagskrárliður þarf að komast að,“ sagði Eðvarð, þegar hann var spurður um þáttinn. „Ýmislegt verður þó í boði og ber þar fyrst að nefna gest þátt- arins sem verður Unnur Steins- son, fegurðardrottning íslands. Við ræðum við hana um al- heimskeppni sem hún tók ný- lega þátt í. Var keppnin haldin í St. Louis í Bandaríkjum og segir Unnur okkur frá því sem þar gerðist. Nú, ekki ætlum við ein- ungis að ræða fegurðarmálin, Unnur er nemandi í Fjölbrauta- skólanum í Breiðholti og hefur starfað sem flugfreyja í sumar, svo hún hefur frá mörgu að segja. Spurningakeppninni verður framhaldið og mætast nú þau Ólafur Kristjánsson, 14 ára, sem sigraði í síðustu keppni og Drífa Magnúsdóttir, 12 ára, frá Hafn- arfirði. Síðan kemur 14 ára gamall rithöfundur, Bergþóra Guðmundsdóttir, í heimsókn og les fyrir okkur kafla úr sögu sem hún hefur verið að skrifa. Kaflinn fjallar um unglinga og þjóðfélagið eins og það kemur þeim fyrir sjónir. ■ #*| 0' 0*) Fyrstu flugmenn fslands. F.v. Sigurður Jónsson, Björn Eirfksson og Agnar Kofoed-Hansen. Flugskírteini l,2og 3 „Flugskírteini 1,2 og 3“ nefnist þáttur sem er á dagskrá sjónvarps- ins í kvöld, sunnudagskvöld kl. 20.55. Eins og nafnið gefur til kynna fjallar þátturinn um þrjá fyrstu flugmennina á íslandi, þá Sigurð Jónsson, Björn Eiriksson og Agnar Kofoed-Hansen, en aðeins einn þeirra, Sigurður Jónsson, er nú á lífi. Einnig er brugðið upp myndum frá sögu flugsins hér á landi og fylgst með listflugi eins þeirra þremenninga. Upptöku stjórnaði Tage Ammendrup, en umsjónarmaður er Árni John- sen. í myndinni er greint frá sögu flugs á íslandi. Einn merkisviðburða á þeirri sögu sést á mvndinni hér, en hún var tekin uppúr 1950, þegar Agnar Kofoed-Hansen tók fyrstu skóflustunguna að flugturninum á Keykjavíkurflugvelli. Lengst til vinstri má sjá Sigurð Jónsson, eða Sigga flug, eins og hann er flestum kunnur. TALSKOLINN Öllum er okkur kappsmál að vera vel máli farin, að geta komið fram af öryggi og flutt mál okkar skýrt og skil- merkilega. Nú gefst jafnt ungum sem öldnum tækifæri til að rækt'a málfar sitt og bæta tungutakið. TALSKÓLINN er nýr skóli, sem býður upp á fjölþætta kennslu og þjálfun í: framsögn, taltækni, sjónvarpsframkomu, út- varpstækni og ræðumennsku. NAMSKEIÐ I Framsögn og taltækni 5 vikur, 20 kennslustundir. Tími: Mánudaga — föstudaga kl. 16.15—19.30. Kennsla hefst 10. okt. Innritun daglega í síma 74032 frá kl. 16.00-19.30. KENNARAR Árni Gunnarsson, Baldvin Halldórsson, Flosi Ólafsson, Guðrún Þ. Stephensen og Gunnar Eyjólfsson. MANN MÁ AF MÁLI ÞEKKJA! TALSKÓLINN Skúlagötu 61, R. Skólastjóri: Gunnar H. Eyjólfsson leikari. G()dan dciginn! Geaim skammdegið Fjölbreyttar vetrarferðir V á vetrarverði um allan heim Glæsilegar sólarlandaferðir á lúxusstaði: Kanaríeyjar frá kr. 20.478.- ■ _ 1 ’ * "V Daytona Beach í Florida frá kr. 26.851,- I I Mexíkó frá kr. 29.817,- » 1 I I É \ Puerto Rico og St. Thomas frá kr. 31.698,- Helgar- og vikuferðir til Evrópuborganna vinsælu: Luxemborg frá kr. 8.190.- London frá kr. 8.201.- Glasgow frá kr. 8.202. Kaupmannahöfn frá kr. 8.915.- Amsterdam frá kr. 10.800.- Gerum veturinn ógleymanlegan með góðri ferð Samvinnuferdir-Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899 SEfiFOOO O »VlCl J- | !

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.