Morgunblaðið - 08.01.1984, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 08.01.1984, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 1984 39 málið er í, fyrir utan almenna og alkunna fátækt þessarar þjóðar? „Það er nokkuð flókin rauna- saga. Þegar Háskólinn fékk fram- lengingu á einkaleyfi til happ- drættisreksturs árið 1943, var það samþykkt á alþingi m.a. til þess að unnt væri að fjármagna byggingu náttúrugripasafns. Um 1950 var svo langt komið að teikningar að slíku safni lágu fyrir og ráðgerð staðsetning þess á háskólalóðinni milli íþróttahússins og aðalbygg- ingar. Þá fór málið í hnút af ýms- um ástæðum, sem ekki verða rakt- ar hér. Málalok urðu þau að 1957 var keypt fyrir happdrættisfé hæðin á Laugavegi 105 og Hverf- isgötu 116 til bráðabirgða og Há- skólinn stóð líka straum af lag- færingu af happdrættisfé, og er húsnæðið leigufrítt. En þarmeð féll niður skilyrðið um að byggja ætti náttúrugripasafnið af happ- drættisfénu. Ástæðan fyrir ei- lífum töfum málsins sýnist vera sú að það hefur verið skoðun menntamálaráðuneytisins að þetta sé verkefni Háskólans. Þeg- ar svo á reynir kemur í ljós að Háskólinn hefur ekki nægilegan áhuga á að byggja yfir sýningar- safnið. Er varla hægt annað að segja, þegar ekki er einu sinni svarað bréfum varðandi það. Á ágætum fundi sem efnt var til í febrúar 1982 í ráðuneytinu með fulltrúum menntamálaráðuneytis, Háskólans og okkar á Náttúru- fræðistofnun var niðurstaðan sú að Háskólinn var beðinn um að athuga hvernig tengja mætti hús- næðismál Náttúrufræðistofnunar öðrum byggingum hans. Síðan hefur ekkert heyrst þrátt fyrir ítrekun. Út af fyrir sig er skiljan- legt að HÍ, sem alltaf er í fjár- þröng, hafi fyrst og fremst áhuga á að byggja yfir sínar eigin stofn- anir. Niðurstaðan er semsagt sú að ekki er hægt að gera ráð fyrir því að Hákólinn muni hafa getu eða vilja til að byggja yfir Nátt- úrufræðistofnun í náinni framtíð. Við fórum með forsendurnar fyrir safnbyggingu til Húsameist- ara ríkisins og báðum hann um að gera tillögur að hugsanlegu sýn- ingasafni fyrir Náttúrufræðist- ofnun íslands. í septembermánuði 1981 voru þar gerð frumdrög, sem við erum ánægðir með. En við telj- um að ekki sé hægt að halda frek- ar áfram fyrr en staðsetning húss- ins er ljós.“ — Hvað er þá til ráða að ykkar dómi? „Það sem okkur finnst að nú þurfi að gera er að ráðuneytið hafi forgöngu um að útvega lóð á há- skólasvæðinu í samráði við rétta aðila. Þegar litið er til baka teljum við að við eigum siðferðilegan rétt á lóð undir stofnunina við Háskól- ann. Sú lóð þarf að rúma það safn sem gert er ráð fyrir í frumdrög- unum að sýningarsafni, sem búið er að vinna. Háskólamenn hafa nefnt tvo staði þar í nánd, hjá gömlu Loftskeytastöðinni annars vegar og hins vegar í Vatnsmýr- inni sunnan Norræna hússins. Okkur líst mjög vel á staðinn í Vatnsmýrinni, því þar er hægt að búa safninu skemmtilegt um- hverfi, m.a. að flytja þangað grasagarðinn og mikið fuglalíf er í næsta nágrenni. Flestar háskóla- byggingarnar eru þarna í nánd og sýningarsafnið yrði aðgengilegt almenningi. Þá teljum við nauðsynlegt að þegar verði komið á fót nefnd með forgöngu menntamálaráðuneytis- ins og með fulltrúum þaðan, frá Náttúrufræðistofnun og Háskóla íslands. Hlutverk hennar yrði að undirbúa hönnun og byggingu sýningarsafns fyrir náttúrugripi. Við gerum okkur ljóst að ýmislegt er að gerast í uppbyggingu á menningarsviðinu, þar sem eru í byggingu listasafn, þjóðarbók- hlaða, útvarpshús o.fl. En við telj- um að röðin sé komin að sóma- samlegu náttúrugripasafni. Nú- verandi ástand er með öllu óviðun- andi. Og fyrst verður að ganga í að velja og tryggja safnbyggingunni lóð á framtíðarstað á háskólalóð- inni.“ - E.Fá. Færeyja- kynning í Norræna húsinu NÁMSFLOKKAR Reykjavíkur, Norræna félagið, Norræna húsið og Færeyingafélagið munu gangast fyrir námskeiði um Færeyjar og byrjar það í janúar og stendur til 4. maí í vor. Leiðbeinandi verður Jón- finn Joensen kennari. Námskeiðið verður í Norræna húsinu á þriðju- dagskvöldum kl. 20:30. 15 manns komast að á námskeiðið. Fjallað verður um sögu og tungu, staðhætti og náttúru, fær- eyska atvinnusögu og samband við ísland, en höfuðáherslan verður lögð á færeyska menningu og fær- eyskt þjóðfélag í dag. Færeyjakynningin verður opnuð laugardaginn 21. jan. kl. 15 í fund- arsal Norræna hússins. Erlendur Patursson, lögþingsmaður heldur fyrirlestur um samband Færeyja og íslands. í tengslum við námskeiðið verða kynningar fyrir almenning á bókmenntum, kvikmyndum, fær- eyskum dansi og Heri Joensen cand.theol. heldur fyrirlestur um sögu Færeyinga. Þátttöku skal tilkynna skrif- stofu Norræna hússins, sími 170300. Þátttökugjald verður 900 kr. Fróóleikur og skemmtun fyrirháa sem lága! Innritun í almenna flokka fer fram í Miöbæjarskóla, Fríkirkjuvegi 1, þriöju- dag og miðvikudag kl. 17.00—21.00. Kennslugjald greiöist við innritun. Námsflokkar Reykjavíkur. Innritun í prófadeildir grunnskóladeildar forskóla sjúkraliða og fram- haldsskólastigs fer fram mánudag 9. og þriöjudag 10. jan. kl. 17—21. Ath. þriðja önn forskóla sjúkraliöa: Mætið til náms mánudaginn 9. jan. kl. 18.30 Námsflokkar Reykjavíkur. \/ f ) /? r : i AUKIN KÓNUSIA Alþýðubankinn opnar þriðjudaginn 10. janúar gjaldeyrisafgreiðslu, sem annast almenna þjónustu á sviði erlendra viðskipta. Við bjóðum velkomna ferðamenn, námsmenn og aðra þá sem vilja kaupa eða selja erlendan gjaldeyri, eða stofna innlendan gjaldeyris- reikning. VISA greiðslukort til notkunar innanlands og erlendis Við gerum vel vid okkar fólk - Alþýðubankinn hf. Laugavegi31 sími 28700 Útibú Suðurlandsbraut 30 sími 82911

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.