Morgunblaðið - 08.01.1984, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 08.01.1984, Blaðsíða 12
44 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 1984 Samdráttur í þjóðartekjum, þriðja árið í röð, og þung greiðslubyrði erlendra skulda, hafa skekkt kjarastöðu þjóðarinnar. l»anþol erlends lánstrausts hefur þegar verið nýtt meira en góðu hófi gegnir, bæði til að halda taprekstri gangandi og til að bera uppi þjóðareyðslu umfram þjóðartekjur. Ekki er hægt að róa áfram á erlend skuldamiö hér eftir sem hingað til. Mergurinn málsins, þegar horft er til framtíöar í íslenzk- ura þjóðarbúskap, er máske sá, að skapa raunhæf skilyrði til innlends sparnaðar og finna hvetjandi farvegi fyrir þann sparnað inn í íslenzkt atvinnulíf. Sjávarútvegur, undirstöðugrein í atvinnulífi og útflutningsfram- leiðslu, sætir nú aflasamdrætti, sem rýrir bæði þjóðartekjur og lífskjör í landinu. Við þarf að bregða, ekki aðeins innan veiða og vinnslu, heldur með alhliða upp- byggingu í þjóðarbúskapnum. í því efni þarf fyrst og síðast að huga að því að atvinnuvegirnir hafi rekstrargrundvöll og aðstöðu til að byggja sig upp og færa út kvíar. Með hliðsjón af skuldastöðu þjóðarinnar út á við og kreppu- einkennum í atvinnulífi hljóta áherzluatriðin að verða: • að stuðla með öllum tiltækum ráðum að innlendum sparnaði, • að sparnaður, sem í atvinnu- rekstur gengur, njóti skattalegs jafnréttis við annan sparnað, s.s. sparifé í lánastofnunum og spariskírteini ríkissjóðs, • að viðra þarf á ný stefnumið Eyjólfs Konráðs Jónssonar, al- þingismanns, um almennings- hlutafélög. Stjórnarfrumvörp um skattamál: Innlendur sparnaður - efling atvinnulífs Ýmis smærri byggðarlög, ekki sízt sjávarpláss, hafa lagt mikil framleiðsluverð- mæti í þjóðarbúið á liðnum áratugum. Nú syrtir í álinn hjá þessum framleiðslu- byggðarlögum vegna afla- samdráttar. Þessi mynd er frá Vopnafirði (Tanga hf.). Ef við eigum að tryggja at- vinnuöryggi til frambúðar verður að tryggja rekstraröryggi fyrir- tækjanna. Ef við eigum að stefna að hlið- stæðum almennum lífskjörum og bezt þekkjast í V-Evrópu og N-Ameríku verður að stuðla að grósku í atvinnulífinu, auka verð- mætasköpun og þjóðartekjur, sem til skiptanna eru hverju sinni milli þjóðfélagsþegnanna, fyrir- tækja, ríkis og sveitarfélaga. Öll lífskjör, einnig þau sem telj- ast samfélagsleg, sækja kostnað- arþátt sinn til þeirrar verðmæta- sköpunar, sem sótt er til atvinnu- lífsins. Fjármagn er eitt helzta vinnu- tæki atvinnulífsins. Það er mjög mikilvægt að þetta vinnutæki sé tiltækt í hlaðvarpa. Þess vegna er innlendur sparnaður mikilvægara en flest annað. Að honum ber að stuðla með öllum tiltækum ráðum, m.a. stjórntækjum (hvötum) í skattastefnu stjórnvalda. Stefnuyfirlýsing ríkisstjórnar „Til þess að auka hagvöxt og at- vinnuöryggi, verður áherzla lögð á að efla atvinnustarfsemi og at- vinnuuppbyggingu. í því skyni verða m.a. starfsskilyrði atvinnu- veganna jöfnuð og samkeppnis- aðstaða íslenzkra atvinnugreina styrkt. Skattalögum verði breytt þannig, að þau örvi fjárfestingu og eiginfjármyndun í atvinnulífinu.“ Þannig hljóðar fyrsta málsgrein þess kafla í stefnuyfirlýsingu rík- isstjórnar Steingríms Her- mannssonar, dagsettrar 26. maí 1983, sem ber yfirskriftina „Atvinnuvegirnir". Eitt er að lofa, annað að efna. Þessu ákvæði í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar hefur nú verið fylgt eftir með framlagningu tveggja stjórnarfrumvarpa um skattamál: 1) Frumvarpi til breyt- inga á lögum um tekju- og eigna- skatt (nr. 75/1981, sbr. lög nr. 21/1983), 2) frumvarpi til laga um frádrátt frá skattskyldum tekjum manna vegna fjárfestingar í at- vinnurekstri. Til þess að nálgast það mark- mið, sem framangreind stefnu- yfirlýsing felur í sér, skipaði fjármálaráðherra nefnd þegar í júnímánuði sl., sem falið var að undirbúa nauðsynlegar breyt- ingar. Skyldu tillögur hennar liggja fyrir á haustmánuðum svo unnt væri að leggja þær fyrir Al- þingi í frumvarpsformi fyrir ára- mót. Nefndina skipuðu: ólafur Nílsson, löggiltur endurskoðandi, formaður, Geir Geirsson, löggiltur endurskoðandi, og þingmennirnir Davíð Aðalsteinsson, Eyjólfur Konráð Jónsson og Þorsteinn Pálsson. Með nefndinni starfaði Árni Kolbeinsson, deildarstjóri í fjármálaráðuneyti, en henni til aðstoðar var Sigurbjörn Þor- björnsson, ríkisskattstjóri. Árangurinn af starfi nefndar- innar liggur nú fyrir í tveimur stjórnarfrumvörpum, sem hér verður gerð lauslega grein fyrir. Helztu breytingar sem hið fyrra frumvarpið felur í sér frá gildandi lögum um tekjuskatt og eigna- skatt eru eftirfarandi (fyrst rakt- ar að því er varðar einstaklinga, síðar að því er varðar atvinnu- rekstur): Breytingar á skatta- reglum um einstakl- inga: ★ Arður og færslur í stofnsjóði: Arður af hlutafjáreign verður frá- dráttarbær hjá einstaklingum, ef frumvarpið verður að lögum, allt að 10% af nafnverði einstakra hlutabréfa, þó að hámarki 25 þús. kr. hjá einstaklingi og 50 þús. kr. hjá hjónum. Frádráttarbær há- marksupphæð, sem færð er félags- manni í samvinnufélagi til tekna í stofnsjóð vegna viðskipta hans við félag, hækkar úr 5% í 7%. ★ Hlutabréfaeign og stofnfjárinni- stæður: Lagt er til að hlutabréfa- eign og innistæður á stofnfjár- reikningum einstaklinga verði heimilt að draga frá eignum við ákvörðun á eingnaskattstofni, allt að 250 þús. kr. hjá einstaklingi og 500 þús. kr. hjá hjónum. Gilda þá, innan þessara marka, sömu reglur um þessar eignir og nú gilda um innistæður einstaklinga í bönkum og sparisjóðum og spariskírteini ríkissjóðs. Breytingar á skatta- reglum um atvinnu- r ekstur: Einstaklingar og félög, sem hafa skattskyldar tekjur af at- vinnurekstri, geta, skv. frumvarp- inu, myndað fjárfestingarsjóð með Bridqe Arnór Ragnarsson Bridgefélag Akureyrar Nú er lokið sveitakeppni Bridgefélags Akureyrar, Akur- eyrarmóti. Alls spiluðu 20 sveitir og voru spilaðir tveir 16 spila leikir hvert spilakvöld. Akureyr- armeistari að þessu sinni varð sveit Stefáns Ragnarssonar sem sigraði með yfirburðum. Sigraði sveitin í öllum sínum leikjum og sýnir það að þeir félagar eru vel að þessum sigri komnir. Auk Stefáns eru í sveitinni Pétur Guðjónsson, Þórarinn B. Jóns- son, Páll Jónsson og Þormóður Einarsson. Röð efstu sveita varð þessi: Sveit Stefáns Ragnarss. 337 Sveit Harðar Steinbergss. 293 Sveit Páls Pálssonar 279 Sveit Jóns Stefánssonar 265 Sveit Júlíusar Thorarensen 260 Sveit Arnar Einarssonar 252 Sveit Antons Haraldssonar 231 Sveit Stefáns Vilhjálmss. 225 Sveit Karls Steingrímss. 218 Sveit Kára Gíslasonar 215 Keppnisstjóri BA er Albert Sigurðsson. Tvímenningur, Ak- ureyrarmót, hefst þriðjudaginn 10. janúar í Félagsborg stund- víslega kl. 19.30. Bridgefélag Kópavogs Spilamennskan hófst á ný- byrjuðu ári með einskvölds tvímenningi 5. jan. Þátttaka var dræm og mættu til leiks 8 pör. Úrslit urðu þessi: Haukur Hannesson — Ármann J. Lárusson 101 Sigurður Vilhjálmsson — Sturla Geirsson 97 Akureyrarmeistarar í bridge. sveitakeppni, 1983. Aftari röð frá vinstri: l’áll Jónsson, Þórarinn P. Jónsson. Fremri röð frá vinstri: Þormóður Kinarsson, Stefán Ragnarsson og Pétur Guðjónsson. Ljósm./No'rðurmynd Akureyri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.