Morgunblaðið - 08.01.1984, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 08.01.1984, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 1984 VEGI Tveir afhundrað og tíu 5íl, gp Morgunblaðið/Friðþjófur Jón Gunnlaugsson stekkur fimlega yfir brak- ið, þar sem áður voru skreiðarhjallar. „I>að fer fátt markvert framhjá fréttaritur- unum 110,“ segir m.a. í auglýsingu Morgun- blaðsins hvar greint er frá fréttaritarakerfi blaðsins. Margir þeirra voru á þönum fyrir blaðið í óveðrinu í vikunni. í Sandgerði aðstoð- aði Jón Júlíusson, vigtarmaður, m.m. frétta- menn Morgunblaðsins, sem mættir voru árla til að fylgjast með tjóni og björgunarstörfum eftir óveðrið. Á Akranesi var Jón Gunnlaugs- son, knattsnyrnukappi og íþróttahússforstjóri, í aðalhlutverki og lóðsaði blaðamenn um bæinn er heimsóttir voru þeir staðir þar sem mest tjón varð í flóðunum á fimmtudagsmorgun. Morgunblaðið/RAX. Jón Júlíusson ræðir við fréttamann á vigtinni í Sandgerði. Hermann tekur við af Þorgeiri Á fyrsta Útsýnarkvöldi vetrarins, sem haldið var í Broadway nýverið, bar það m.a. til tíðinda að þekktur útvarpsmaður tók við hlutverki kynnis af öðrum þekktum útvarpsmanni. Það var Hermann Gunnarsson, hinn stórskemmtilegi íþróttafrétta- maður, sem þar tók við hlutverki Þorgeirs Ást- valdssonar, en hann hefur sem kunnugt er tekið við starfi forstöðumanns rásar tvö. Ingólfur Guð- brandsson, forstjóri Útsýnar, þakkaði Þorgeiri ánægjulegt samstarf á liðnum árum og vel unnin störf og bauð jafnframt velkominn hinn nýja kynni á Útsýnarkvöldum, Hermann Gunnarsson, sem strax fyrsta kvöldið sýndi góð tilþrif í hinu nýja hlutverki, eins og hans var von og vísa. Meðfylgjandi mynd tók ljósmyndari Morgun- blaðsins, Ragnar Axelsson, á umræddu Útsýnar- kvöldi, þegar Hermann tók við af Þorgeiri, en á milli þeirra er Ingólfur Guðbrandsson forstjóri. Þ úsundþjalasmiður ÞÓ SVO að síldarvertíð sé fyrir nokkru lokið eru menn enn að velta tunnum víða um land og verða sjálfsagt fram eftir vetri. lltskipun á saltsdd er revndar fyrir nokkru byrjuð, en mikið verk og mörg handtök eru enn óunnin þar til síldin verður öll komin til erlendra kaupenda. í hverri stöð er nauðsynlegt að hafa góða menn til að brýna „busana“ og hjá Söltunarstöðinni Eljunni á Eskifirði var Óli Fossberg í því hlutverki í haust. Óli er landsþekktu knattspyrndómari og harmonikkuleikari með meiru. Ekki ber á öðru en brýningin eigi jafn vel við han og tónlistin hvort hann blæs í flautu dómarans eða þenur nikkuna. Nútíminn og íslensk fegurö

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.