Morgunblaðið - 08.01.1984, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 08.01.1984, Blaðsíða 16
48 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 1984 Hvað ertu að lesa? Þorbjörg Daníelsdóttir, rekstr- arstjóri Kirkjuhússins á Klappar- stíg, segist hafa veriö aö lesa bók- ina „The Black Narcissus“ eftir Rumer Godden. Nokkrar bækur Rumer Godden hafa verið hér í bókabúöum nýlega. Hvaö segir Þorbjörg um „The Black Narcissus“? Mér finnst boðskapur bókar- innar vera sá að enginn er svo fullkominn í sjálfum sér að hann þurfi ekki á stuðningi annarra að halda, að til þess að missa ekki fótfestuna í tilverunni, þurf maður að rækta sjálfan sig, sam- band sitt við annað fólk og sam- band sitt við Guð. Bókin segir frá nunnum, sem stofna klaustur uppi á hæð, í fjarlægu landi. Gullfallegur ung- ur piitur, sem þær kalla „The Black Narcissus", kemur til þeirra í klaustrið til þess að menntast hjá þeim. Hann verður þeim ímynd freistingarinnar, án þess að þær geri sér grein fyrir því að hann er ekki sjálfur að freista þeirra, heldur þeirra eig- in hugsanir og viðbrögð gagn- vart honum. Veraldleg efni gagntaka þær og þær losna úr tengslum við æðri leiðbeiningu. Þess vegna verður einveran þeim um megn. Þær hætta að styðja hver aðra og standast ekki það, sem verður á vegi þeirra af því að þær vant- ar stuðning, enginn heldur í hendina á þeim. Garðyrkjununnan er dæmi um veraldarhyggju þeirra. Hún gengur svo upp í matjurtar- ræktuninni að hún sinnir ekki bænatímunum. Hún er afar stolt af því að geta ræktað það, sem ekki hafði verið ræktað þar áður. Henni tekst að rækta hinar margvíslegustu jurtir í lélegum jarðvegi en gleymir um leið sín- um eigin jarðvegi, jarðvegi síns eigin hjarta. Hún fer að sjóða niður og sulta og safna birgðum, svo miklum, að það eru engin not Þorbjörg Daníelsdóttir fyrir þær. Hennar mesta gleði verður að virða fyrir sér fallegar raðir af vel merktum sultu- krukkum í hillunum. Ein af annarri brotna nunn- urnar niður. Sumar deyja, ein sturlast af afbrýðisemi. Hver á sinn hátt fjarlægjast þær Guð og móðurklaustrið. Loks ákveða þær að reyna að komast aftur til móðurklaustursins. Þær sjá að bænirnar, sem þær þuldu utan- bókar, hafa misst marks. Bjarg- arvonin er sú að ná aftur því, sem þær höfðu glatað, lifandi samfélagi við Drottin. Skammdegisráð ENGUM segi ég víst tíðindi þótt ég minnist á aö nú sé bara kominn janúar. Hins vegar segi ég sumum tfðindi ef ég bæti viö aö dæmalaust líöi tíminn hratt. Sumum finnst nefnilega tíminn líöa hægt, lötur- hægt. Minnumst þess jafnan aö þaö er lán aö finnast tíminn geys- ast áfram. Þaö er merki um að viö njótum hans vel. Eða þaö held ég. Ég ætlaði að fimbulfamba dá- lítið um hollráð í ársbyrjun, koma til skila fáeinu af því fjöl- marga, sem ég hef heyrt gott og skemmtilegt fólk segja. Ég byrja á því að vitna í einn af dönsku kvenprestunum, sem sagði að janúar væri erfiðasti mánuður ársins. Þá væri hátíð jólanna um garð gengin, búið að slökkva á jólaljósunum, jólaskrautið sett niður í kassa. Og þá kæmu fram- talseyðublöðin. Ýms önnur upp- gjör stæðu líka fyrir dyrum og margir ættu að fara í próf. Hún sagði að þetta hefði svo dapurleg áhrif á fjölda fólks að það yrði að gera eitthvað í málinu. Ég er sannast að segja búin að gleyma hvað það var — ég er viss um að þú, sem lest þetta, átt góð ráð sjálf eða sjálfur. Og ég á reyndar ráð frá öðrum til að miðla um þetta. Ég heyrði sálfræðing tala um það í útvarp- inu fyrir mörgum árum að í skammdeginu ættum við að um- gangast sjálf okkur af mikilli nærgætni. Þá koma mér í hug konur, sem bjuggu í vetrar- myrkri Vestfjarða, þar sem ekki sést til sólar í marga mánuði. Þær birgðu sig upp af bókum af bókasafninu og nutu lestrarins við hugguleg lampaljósin. Þær, sem fóru ekki í vinnu eldsnemma á morgnana, lásu dálitla stund áður en þær fóru að takast á við dagsverkið. Og konurnpr slepptu ekki saumaklúbbunum sínum þótt vinnan í frystihúsinu væri stundum alveg að kæfa þær og hefði kæft hverja meðalmann- efkju. Þessi ráð eru jafn góð fyrir þau, sem finnst tíminn spretta úr spori, og þau, sem finnst hann lengi að líða. Við ættum auðvitað að reyna að haldast í hendur því hvor hópurinn hefur mikið að gefa hinum. Og þar með er bezt ég hætti þessum skrifum og reyni að fara að nota mér eitt- hvað af þessum ráðum sjálf. Ekki veitir mér af. Líði okkur öllum vel í vikunni. Eigum vonina saman Lúthersk kvennaráðstefna í Genf l*essa dagana er Kvennavett- vangur Lútherska hcimssamb- andsins aö halda alþjóölega kvennaráöstefnu í Genf. Vfirskrift ráðstefnunnar er: Eigum vonina saman. Markmiöiö er þetta: — aö vera saman til aö styrkja konur í starfinu fyrir fagnaöarer- indiö. — aö hugleiöa þann skerf, sem konur geta lagt til Heimsþings Lútherska heimssambandsins 1984. — að gera áætlanir um framtíö- arstarf í kirkju og þjóöfélagi. Fimm starfshópar verða starf- andi á ráðstefnunni. Þeir fjalla allir um líf kvenna — og þá auð- vitað líka líf karla — í kirkjunni og þjóðfélaginu. Mörg mismun- andi sjónarhorn munu koma fram því konurnar eru frá mis- munandi þjóðfélögum og kirkjur þeirra eru sjálfsagt ekki allar eins þótt þær séu lútherskar. Heiti hópanna eru þessi: Kerfi og uppbygging, Réttlæti og frið- ur, Mannleg tengsl, Lífsgildið, Kynþáttamisrétti og annars konar kúgun. Kvennavettvangur Lútherska heimssambandsins hefur nú starfað í meira en áratug. Hann hefur starfað undir stjórn frá- bærra kvenna og efnt til marg- víslegs starfs um alla hina lúth- ersku kirkju. Áhrif hans hafa náð hingað til okkar íslenzku kirkju og við ætlum að hermay ykkur, kæru lesendur, meira af' ofangreindri ráðstefnu þegar hún er um garð gengin og nýjar og ferskar fréttir berast heim. Kenning Krists 1. sunnudagur eftir þrettánda Jóh. 7.14—18 Þá er hafinn nýr tími kirkjuárs- ins, aðventa, jólin, nýáriö og þrettándinn um garö gengin og þrettándasunnudagarnir byrjaðir. Þeir eru ekki alltaf jafn margir, en verða í mesta lagi sex. Á eftir þeim kemur níuviknafasta, svo fasta og síðan páskar. Litur þrett- ándasunnudaganna er grænn, lit- ur vaxtar í trúnni, nema hvaö hinn síðasta þessara sunnudaga, sem er bænadagur aö vetri, er liturinn rauöur. /E fleiri kirkjur eignast nú messuskrúöa í kirkju- litunum öllum og íslenzk kirkju- list blómstrar á ný í landi okkar svo sem m.a. kemur fram í gull- fallegum messuklæðum, sem ís- lenzkt listafólk býr til. í texta þessa sunnudags er Jesús að tala um kenningu sína. Fólkið undraðist að hann ólærður maður skyldi tala af slíkri kunnáttu. Margt var um hann skrafað. Hann er góður, sögðu sumir. Hann leiðir fólkið í villu, sögðu aðrir. Svo er enn. Fólk er enn ekki á eitt sátt um ágæti Jesú, um kenningu hans og sjálfan hann. Jesús sagði: Kenning mín er ekki mín held- ur hans, sem sendi mig. Og hver sem vill getur komizt að því hvort kenningin er mín eða Guðs. Það hefur þráfaldlega verið sagt að við, íslenzkt safnaðar'- fólk, værum furðulega fáfróð um kristna trú, þekktum ekki einu sinni grundvallaratriði kristinnar trúar. Þetta eru full- yrðingar, sem svíður undan. Telur þú, kæri lesandi, að þetta eigi við rök að styðjast? Við eigum fyrirheit um það að fá sjálf, hvert um sig, að komast að raun um sannleikann um Krist og kenningu hans með því að rækja bænina, lesa kenning- una í Biblíunni og sækja sam- félag Krists, kirkjuna. Til þessa erum við hvött í dag. Mér finnst að við ættum að láta eftirvæntinguna og hjáip- scmina sem ríkir á aðventunni rfkja allt árið. — Sveinbjörg Maður á alltaf að hlakka til einhvers. — Gagga Hlakkaðu til hverrar helgi, undirbúðu hana og njóttu henn- ar, og skipulegðu hana svo að þú komist í kirkju. — Kjartan

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.