Morgunblaðið - 25.04.1984, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 25.04.1984, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. APRlL 1984 3 Varðskipsmenn sáu kriu á annan dag páska: „Ovenjusnemma á ferð“ — segir Ævar Petersen, fuglafræðingur SKIPVERJAR á varAskipinu Öðni urðu varir viA kríu á leiA til lands um hádegisbiliA á mánudag er þeir voru staddir um 15—20 sjómílur suAur af HornanrAi. Þótti þeim svo mikiA til um sjón þessa, aA þeir létu tafarlaust vita í land. Krían hefur yfirleitt sést hér- lendis í byrjun maí og tekið sér ból- festu við Tjörnina í Reykjavík 12.—14. maí ár hvert. Þótti varð- skipsmönnum að vonum nokkuð tii koma að sjá þennan boðbera vors- ins á flugi a.m.k. 10 dögum fyrr en venja ber til. Að sögn Ævars Petersen, fugla- fræðings hjá Náttúrufræðistofnun íslands, hefur ekki spurst til kríu svo snemma vors svo fullvíst sé. Sagðist Ævar einu sinni hafa feng- ið óyggjandi fréttir af kríu hér á landi síðasta dag aprilmánaðar og vissi hann ekki til þess, að hún hefði sést fyrr. Hitt væri svo aftur á móti afar algengt, að fólk ruglaði saman kríu og hettumávi. Hvort svo hefðu verið í þessu tilviki vissi hann eðlilega ekki, en væri þetta rétt væri krían vissulega óvenju- lega snemma á ferðinni. Fundur í flugmannadeilunni FUNDUR í kjaradeilu flugmanna og flugfélaganna verður haldinn hjá ríkissáttasemjara árdegis { dag. Ákveðið hefur verið að halda sátta- fundi í deilunni f dag og á morgun; einn fundur var haldinn í deilunni fyrir páska. Á fimmtudag kl. 15 verður hald- inn þriðji fundurinn í kjaradeilu leiðsögumanna og ferðaskrifstof- anna og á föstudag er gert ráð fyrir fundi í deilu bifreiðastjóra hjá Landleiðum við stjórn fyrir- tækisins. Þeirri deilu var vísað til ríkissáttasemjara fyrir páskana. Enn er ósamið í deilu Skip- stjórafélags íslands við útgerðar- félög þangflutningaskipsins Karlseyjar og sementsflutn- ingaskipsins Skeiðfaxa. Einnig er ósamið við undirmenn á fiskiskip- um. Guðlaugur Þorvaldsson, ríkis- Rammagerð- in hættir að ramma inn EFTIR 43 ár hefur Rammagerðin hætt að ramma inn myndir. Rammagerðin var stofnsett 1941 af Jóhannesi Bjarnasyni og konu hans, Guðríði Pálsdóttur. Fyrirtæk- ið var í upphafi heimilisfyrirtæki og unnu hjónin mikið við það sjálf. Fyrirtækið breytti um svip er árin liðu og tók að selja í ríkari mæli ullarvörur og alls kyns gjafavörur. Nú er svo komið að allri innrömm- um hcfur verið hætt eins og fyrr sagði. Haukur Gunnarsson verslun- arstjóri í Rammagerðinni sagði að þessi ákvörðun hefði verið tekin þar sem tæki til innrömm- unar hefðu ekki verið endurnýjuð undanfarin ár og nú hafi verið svo komið að annað hvort hefði orðið að kaupa ný tæki til að fylgjast með þróuninni eða þá að hætta. Haukur sagði að fólkið sem unnið hefði við innrömmun- ina, sumt í áratugi, ynni áfram hjá fyrirtækinu. Þó sumt væri orðið aldið að árum skilaði það sínum dagsverkum vel. Haukur sagði að fyrirtækið hefði haft mikil og ánægjuleg samskipti við listmálarana meðan enn var verslað með málverk. Nú væri þeirri verslun lokið. Hann sagði að viðskiptavinir rækju upp stór augu þegar í ljós kæmi að allri innrömmum væri hætt sérstak- lega vegna nafnsins en séð væri um að vísa fólki á góða menn. Haukur sagði að ullarvörurnar yrðu æ fyrirferðameiri í rekstr- inum og þær þyrftu mikið pláss. Einnig yrði haldið áfram að versla með gjafavörur og fleira. Siglufjörður: 136 m skip við mjöllestun Siglufirrti, 24. aprfl. STÆRSTA skip, sem lagst hefur að bryggju á Siglufirði, er þessa dagana að lesta 4.000 tonn af loðnumjöli. Skipið, sem er frá Júgóslavíu, er 6.800 lestir af stærð og 136 metra langt. Búist er við að skipið verði hér alla vikuna við sáttasemjari, sagðist i gær reikna með að þær samningaviðræður færu í gang fljótlega. Góð þátttaka var í hátíðahöldm á sumardaginn fyrsta þrátt fyrir óhagstætt veður. Minna var um skrúðgöngur en á árum áður. tóri suzuki Nú eru allir Suzuki bílar meö 6 ára ryðvarnarábyrgð Það er ótrúlegt en satt, að nýi rúmgóði, kraftmikli Suzuki SA 310 er jafn sparneytinn og Suzuki Alto, margfaldur íslandsmeistari í sparakstri. Það gerir frábær hönnun. - 4.2 lítrar á 100 km. Reynsluaktu Suzuki SA 310 hjá okkur það eru bestu meðmælin Sveinn Egilsson Skeifan 17 —Sími: 85100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.