Morgunblaðið - 25.04.1984, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 25.04.1984, Blaðsíða 41
t.oot rtaq« TTTxrr ATTTTVf*TnT>T nrn * ttttxtt ttctott MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 25. APRÍL 1984 ftK 41 fólk í fréttum Julie Walters vill ekki verða stórstjarna Hún lætur þó ekki glepjast og segir þeim umbúðalaust hvað henni fellur ekki í fari þeirra. Hún vísaði meira að segja Burt Reynolds á bug en hann gekk á eftir henni með grasið í skónum til að fá hana til að vera með í næstu mynd hans. Julie er ekki síður hrein- skilin við sjálfa sig en aðra og gerir sér engar grillur um eigið útlit: „Ég er ekkert kyntákn, síður en svo. Bara horuð rengla með fílapensla." Julie sem ólst upp í Birm- ingham þar sem faðir henn- ar, sem nú er látinn, var byggingaverkamaður. Móðir hennar hafði ekki komið í kvikmyndahús í 30 ár þegar hún féllst á að sjá „Educating Rita“. „Það var allt í lagi með þessa mynd,“ sagði hún við dóttur sína á eftir og Julie segir það vera mesta hrós, sem hún hafi fengið um ævina. + Ollum ber saman um að ensku leikkonunnar Julie Walters bíði mikill frami innan kvikmyndanna en Julie segist hins vegar ekki vera viss um, að hún vilji greiða það verð, sem frægðin setur upp. Raunar segist hún vera alvarlega að hugsa um að hætta í leiklistinni. „Ég hef séð hvað þessi svokallaða frægð getur gert fólki. Það verður heltekið metnaðargirnd og græðgi og ég vil ekki láta það koma fyrir mig. Það kæmi mér ekki á óvart þótt ég hætti fljót- lega. Líklega tæki ég mér þá eitthvað hversdagslegt fyrir hendur, eitthvað sem gerði mér kleift að vera áfram heiðarleg gagnvart sjálfri mér og öðrum," segir Julie Walters. Bandaríkjamenn eru yfir sig hrifnir af Julie og hafa lagt fyrir hana ótal snörur. + Bandaríski leikarinn, söngvarinn og dansarinn Fred Astaire er enn alveg stálsleginn þótt hann sé að verða hálfníræður og ber sig jafn tiginmannlega og fyrr. Bandaríska kvikmyndastofnunin hélt nú nýlega mikla veislu á Beverly Hilton-hótelinu og þar mætti Fred ásamt konu sinni, Robyn, en hún er aðeins 39 ára gömul. Jerry Lee Lewis reynir í sjötta sinn + Rokksöngvarinn Jerry Lee Lewis ætlar að kvænast nú i vikunni í sjötta sinn en eins og kunnugt er missti hann fimmtu konu sína í ágúst í fyrra. Fannst hún iátin í rúmi sínu og kom síðar í ljós, að hún hafði dáið af stórum skammti af lyfinu methadone. Það er lyf, sem gefið er heróínsjúkl- ingum þegar þeir eru að reyna að losa sig frá eitrinu. Sjötta konan hans Jerrys heitir Kerrie McCarver, 22 ára gömul, en sjálfur er Jerry 48 ára gamall. Kerrie, sem hefur nokkuð reynt fyrir sér sem söngvari, hefur að undanförnu oft verið í fylgd með Jerry. Hún var með honum í mars sl. þegar Jerry var lagður inn á sjúkrahús vegna fíkniefna- notkunar og hún mætti líka með honum hjá dómaranum þegar Jerry þurfti að svara til saka fyrir skattsvik. Þremur fyrstu hjónabönd- um Jerry Lee Lewis lauk með skilnaði en fjórða eiginkona hans drukknaði árið 1982 í einkasundlaug vinafólks þeirra hjónanna. Hjartanlega þakka ég öllum þeim sem sýndu mér vin- semd á 75 ára afmæli. Gísli Gíslason frá Mosfelli. Vörubifreiða- eigendur Verktakar Eigum á lager margar stærðir af hjólbörðum, svo sem: 900x20 12 pl F Kr.9.757,- 900x20 14 pl A Kr. 12.202,- 1000x20 14 pl F Kr. 11.856,- 1000x20 14 pl A Kr. 11.856,- 1100x20 14 pl A Kr. 14.203,- Eigum einnig fleiri stæröir af hjólböröum á hagstæöu veröi. Athugiö: Hagstæö greiöslukjör. BIFREIDADEILD SAMBANDSINS HJOLBAROASALA HOFOABAKKA 9 - SlMl 83490 ^□0 GÆÐAEFTIRLIT MEÐ GÆÐAVORUM fflVARTA _ OFURKRAFTUR - ~ ÓTRÚLEG ENDING BERÐU SAMAN VERÐ OG Eyðirðu stórfé í rafhlöður? Þá skiptir máli að velja þær sem endast best. Hafir þú reynt VARTA rafhlöður, veistu að þær endast ótrúlega lengi. rafhlaðna og mest seldu, er verðið á VARTA rafhlöðum með því lægsta sem þekkist. Vertu viss um að velja VARTA rafhlöður - þú færð ofurkraft, fyrir lágt verð. Við erum óhræddir við samanburð - VARTA vestur þýsk háþróuð framleiðsla VARTA GÆÐI Á GÓÐU VERÐI ávallt í leiðinni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.