Morgunblaðið - 25.04.1984, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 25.04.1984, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 25. APRÍL 1984 29 sem einnig var eyfirskrar ættar, fæddur að Möðruvöllum í Hörg- árdal 7. apríl 1896. Var Steinarr lengi verslunarstjóri í útibúi Kaupfélags Borgfirðinga í Reykja- vík en starfaði síðan um margra ára skeið í Útflutningsdeild Sam- bands ísl. samvinnufélaga, uns hann lét af störfum þar fyrir ald- urs sakir. Steinarr og Ása eignuð- ust fimm börn. Tvær stúlkur misstu þau fárra daga gamlar, en upp komust þrír synir. Elstur er Leifur, vélfræðingur hjá Raf- magnsveitu Reykjavíkur; hann var kvæntur Jónínu Steingríms- dóttur, sem lést árið 1966. Af sex dætrum þeirra hjóna eru tvær látnar. Seinni kona Leifs er Ingi- björg Brynjólfsdóttir frá Hlöðu- túni í Borgarfirði. Næstelstur er Atli, lengi blaðamaður og nú fréttamaður hjá Ríkisútvarpinu; kona hans er Anna Bjarnason, læknafulltrúi, dóttir Gunnars Bjarnasonar, fyrrum skólastjóra Vélskólans; eiga þau 2 dætur og 2 syni. Yngsti sonurinn er Bragi, vararíkissaksóknari; kona hans er Ríkey, hjúkrunarfræðingur, dóttir Ríkarðs Kristmundssonar, kaup- manns í Reykjavík; þau eiga tvo syni og eina dóttur. Þegar Ása lést voru barna- barnabörn hennar orðin tuttugu og fjögur. Á þessari kveðjustund vakna upp í huga mér margar góð- ar minningar frá vetrinum 1949—1950, en þann vetur má segja að ég hafi verið gestur í húsi þessarar góðu konu og manns hennar. Á þessum löngu liðnu dögum var öldin önnur í húsnæð- ismálum Reykvíkinga. Möguleikar utanbæjarpilta til skólavistar í borginni réðust þá stundum af því, hversu til tókst með útvegun á samastað. Fyrir vináttutengsl við Atla Steinarsson, skólabróður minn, réðust málin svo þetta haust, að ég gerðist leigjandi að Hofteigi 14, en í því húsi stóð heimili þeirra Ásu og Steinars um áratuga skeið. Það var hressilegur myndar- bragur yfir þessu heimili. Sveita- dreng að vestan fannst eins og þar lægi í loftinu andblær af norð- lenskri menningu og liklega hefur meginástæðan verð skýrt og fag- urt tungutak húsráðenda, sem bar uppruna þeirra fagurt vitni. Þarna var mér strax tekið eins og væri ég einn af fjölskyldunni, og þó að ég væri til fæðis annars staðar í borginni, leið víst aidrei svo dagur, að ekki þægi ég ein- hvern beina af sameiginlegu borði þessarar gestrisnu fjölskyldu. Ása Sigurðardóttir var kona hispurslaus í fasi og glaðleg í við- móti og þessir eiginleikar í skap- höfn húsfreyju settu svip sinn á heimilisbraginn á Hofteigi 14. Heimilisfaðirinn var víðlesinn og manna fróðastur um menn og málefni og minnist ég enn margr- ar skemmtilegrar umræðu, sem þarna var háð. Þegar þessi góðu hjón hafa nú bæði safnast til feðra sinna, er mér efst í huga þakklæti til þeirra beggja fyrir vináttu þeirra og gestrisni. Sambandi mínu við þau var sem betur fer ekki lokið vorið 1950. Atvikin hög- uðu því svo til, að fundum okkar bar nógu oft saman gegnum árin til þess að vináttutengslum þeim, sem til var stofnað á skólaárum mínum, var við haldið. Þegar við hjónin hittum Ásu í síðasta sinni, voru liðin rétt 30 ár frá því ég hafði verið vetrargestur í húsi hennar. Hún hafði þá fimm ár um áttrætt og ég undraðist hversu vel hún bar háan aldur. Þessi marg- reynda kona, sem skilað hafði margföldu dagsverki. Heimilisfólkið á Hofteigi 14 kunni vel að meta góðan skáld- skap. Eitt kvöld um vorið varð ein- hver til þess að lesa upphátt ís- lenzkt vögguljóð eftir Halldór Laxness, stundum nefnt vögguljóð á Hörpu. Húsfreyja hafði við orð, að hér væri vel kveðið, en síðasta erindið í þessu fagra kvæði hljóð- ar svo: Lokað veröur frá kl. 13.00 í dag, miövikudaginn 25. apríl, vegna útfarar EIRÍKS ÁGUSTSSONAR, kaupmanns. Leikbær, Reykjavíkurvegi 50. Lokað veröur í dag, miðvikudaginn 25. apríl, vegna útfarar EIRÍKS ÁGUSTSSONAR, kaupmanns. R.A. Eiríksson, heiidverzlun, Laugavegi 18a. Einsog hún gaf þér íslenskt blóð, ungi draumsnillingur, megi loks hin litla þjóð leggja á hvarm þér fingur, — á meðan Harpa hörpuljóð á hörpulaufið syngur. Á öndverðri Hörpu hafa börn þessarar góðu konu lagt fingur í hinsta sinn á hvarm móður sinni. Hörpulaufið er tákn vorkomunnar og innan tíðar mun það teygja fyrstu sprota sína í átt til birtu og sólar. Til þessarar sömu áttar er heitið þeirri ferð Ásu Sigurðar- dóttur, sem nú er hafin. Við hjón- in biðjum henni fararheilla og vottum börnum hennar og öðrum ástvinum dýpstu samúð. Sigurður Markússon Meira en aldarfjórðungur er nú liðinn síðan við fyrst kynntumst Ásu Sigurðardóttur, sem við kveðjum nú hinstu kveðju. Er kynnin hófust var Ása komin talsvert yfir miðjan aldur. Þau efldust brátt jafnframt nánu sam- starfi í vissum verkefnum við síð- ari eiginmann Ásu, Steinarr St. Stefánsson, og þróuðust brátt til góðrar vináttu. Þá þegar sann- færðumst við um, að hér var á ferð sönn kvenhetja, gædd orku- þrungnum athöfnum í hverju hlutverki. Með vaxandi kynnum óx að sama skapi virðing okkar og að- dáun fyrir fágætri orku og afköst- um mikilhæfrar konu. Þá hafði hún í forsjá heimilishalds eigin- mann og þrjá syni á menntaleið- um, en tvö börn af fyrra hjóna- bandi höfðu þá þegar forsjá eigin heimila. Fljótlega færðust í hendur hús- móðurinnar aukastörf, sem í okkar sjónmáli auglýstu dáðir og hetjulund þegar hún flokkaði und- ir skyldustörf sín annir við upp- eldi sonardætra sinna, er misstu móður sína eftir langa og þunga þjáningatíð á sjúkrahúsum. Þá bættust störf ömmunnar við hlut- verk móðurinnar á efri hæð húss- ins nr. 14 við Hofteig í Reykjavík. Jafnframt og fjölgandi aldursár hlutu að takmarka lífsþrótt í orði og á borði, virtist svo sem hlut- verk ömmunnar mótaði aukið afl til afhafna í önn dagsins, nokkuð sem hlaut að vekja aðdáun okkar og margra annarra og meta verkin til afreka. Andlegt og líkamlegt atgjörvi hlaut við nefnd skilyrði í önn dagsins, að verða strengt til hins ítrasta, en skylduræknin og ætt- ræknin voru í fyrirrúmi og hjá því gat ekki farið, að sérhver áhorf- andi hlaut að líta afrek móðurinn- ar og ömmunnar með sérlegri lotningu. Aðeins kvenhetjur með óvenju- legt þrek og þor, bera gæfu til að standast slíkar þrekraunir og eril á efri árum. Að þarna var allt unnið með ráðdeild og rausn, það gátum við staðfest með vaxandi kynnum og traustri vináttu. Vit- andi það, að ævi Ásu hafði ekki alltaf verið „dans á rósum“, hlaut sérhver að bera virðingu fyrir at- gjörvi hennar, þegar svo virtist sem hún efldist við herja and- spyrnu í stormum lífsins uns sigri var náð. Svo hlaut þó að fara að lokum, eins og gerist á öllum lífsins leið- um, að þrek og þol minnkaði og þvarr að genginni langri leið um vegu elliskeiðsins. Rás viðburð- anna og þungar öldur á lífsins ólgusjó slævðu þrekið og heilsu- farið stóðst ekki lengur aflraun- irnar á skeiðvelli lifsins. Háöldruð konan hlaut að lúta veldi örlag- anna og bugast að lokum. Nú er hún öll, þessi drengskapar- og dáðakona. Með kæru þakklæti fyrir alúð, ágæt kynni og mikla vinsemd í öll- um samskiptum okkar, flytjum við nú hinstu kveðju kvenhetjunni Ásu Sigurðardóttur: „Farðu í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt.“ Thora og Gísli estmannaeyjum Dreifingu annast HEILDVERSLUN Sundaborg 1. sími 687366 CK O RUNTAL OFNARNIR FRÁ ONA VEITA YLINN. OFNASMÐJA NORÐURLANDS FUNAHÖFÐA 17 - v/ÁRTÚNSHÖFÐA SÍMI 82477 - 82980 -110 REYKJAVÍK

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.