Morgunblaðið - 07.11.1987, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 07.11.1987, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐH), LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1987 Rauði kross íslands afhenti slökkviliðinu í Reykjavík tvo sjúkraflutningabíla i gær, föstu- dag. Þá var Dalvíkingum afhentur bíllinn sem fjærst er á myndinni. Á innfelldu myndinni eru sjúkraflutningamenn að sýna notkun búnaðar bílanna. Hér eru tveir þeirra að taka hjartarit af þeim þriðja. Rauði kross íslands: Þrír sjúkrabílar bætast í flotann SLÖKKVILIÐINU í Reykjavík var í gær, föstudag, afhentir tveir nýjir sjúkraflutninga- bilar. Slökkviliðið hefur nú sex sjúkrabíla tii umráða og sagði Hrólfur Jónsson, aðstoðar- siökkviliðsstjóri, að bílar og búnaður til sjúkraflutninga hér væri með þvi besta sem gerðist i nágrannalöndum okkar. Þá eignuðust Djúpvíkingar einnig sjúkrabU á föstudag og er hann sérstaklega ætlaður tíl aksturs við erfið skUyrði. Sjúkrabflamir tveir, sem slökkviliðið í Reykjavík hefur nú eignast, voru keyptir til landsins af Reykjavíkurdeild Rauða krcss íslands. Þeir eru af gerðunum Ford Econoline og Chevrolet Sub- urban og voru innréttaðir hérlend- is af Óskari Halldórssyni og Gunnlaugi Einarssyni, bflasmið- um. Verð bflanna tveggja er samtals rúmar fjórar milljónir króna. Arinbjöm Kolbeinsson, formað- ur Reykjavíkurdeildar RKI, afhenti slökkviliðsstjóranum í Reykjavík, Rúnari Bjamasyni, lykla að bflunum við hátíðlega athöfn í slökkvistöðinni og sagði að bflamir yrðu hér eftir í góðum höndum ágætra sjúkraflutninga- manna. Rúnar þakkaði fyrir og sagði að svo væri Reykjavíkur- deild RKÍ fyrir að þakka að sjúkrabflar væm nú sex og allir yngri en fimm ára. Þessu næst afhenti Hannes Hauksson, framkvæmdastjóri RKÍ, sjúkraflutningabflinn sem Dalvíkingar hafa nú til umráða. Hann er af gerðinni Ford Econol- ine og er sérstaklega útbúinn til aksturs um illfæra vegi, enda þurfa Dalvíkingar að aka um 220 kflómetra leið til sjúkrahúss. Steingrímur Ingimundarson, gjaldkeri Dalvíkurdeildar RKÍ, veitti bflnum viðtöku og sagði að hann myndi auðvelda mjög alla sjúkraflutninga Dalvíkinga. Bfllinn er fullkomnasti sjúkra- flutningabfll landsbyggðarinnar. Sjúkraflutningabflamir þrír em allir mjög vel útbúnir og þá sér- staklega Dalvíkurbfllinn, sem er hugsaður sem neyðarbfll. í öllum bflunum em fullkomnar bömr, spelkur úr áli, hálskragar, hrygg- og mjaðmaspelkur, neyðartaska til öndunaraðstoðar, lyfjataska, súr- og sogtæki og fleira, auk talstöðvar og bílasíma. í öðmm bfl slökkviliðsins er sérstakur demparabúnaður undir sjúkrabör- um til aukinna þæginda fyrir sjúklinga. Nýja ullariðnaðarfyrirtækið: Neitað um einka- rétt á sölu til So vétríkj anna Niðurgreiðslur á ull óbreyttar ULLARVERÐ verður áfram nið- urgreitt í þeim mæli að það haldist í samræmi við heims- markaðsverð, segir í svari ríkis- stjórnarinnar við beiðnum sem hið nýja fyrirtæki í ullariðnaðin- um sendi ríkisstjórninni. Beiðni fyrirtækisins um einkarétt á sölu ullarvara til Sovétríkjanna var hins vegar hafnað. í bréfi hins nýja ullarfyrirtækis - sem stofnað var við sameiningu Álafoss og iðnaðardeildar Sam- bandsins - til ríkisstjómarinnar, vár að finna fjórar beiðnir. Sérstakur starfshópur fimm ráðuneyta fjallaði um beiðnimar, og var álit hópsins samþykkt á ríkisstjómarfundi á miðvikudaginn sl. Fyrirtækið bað ríkisstjómina að tryggja að það fengi ull á heims- markaðsverði, og í svari ríkisstjóm- arinnar er samþykkt að halda niðurgreiðslum á ull óbreyttum í samræmi við samkomulag um verð- lagningu á ull frá 1980. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hjá iðn- aðarráðuneytinu mun sameining Álafoss og Iðnaðardeildar Sam- bandsins ekki hafa kostnaðarauka fyrir ríkissjóð í för með sér því nið- urgreiðslur á ull myndu haldast óbreyttar frá því sem verið hefur. Beiðni hins nýja ullarfyrirtækis um að það fengi einkarétt á sölu ullarvara til Sovétríkjanna var hafn- að, og er í svari ríkisstjómarinnar bent á að stofnaðilar fyrirtækisins hafi verið einir um hituna í þessum viðskiptum hingaðtil. í þriðja lagi bað fyrirtækið um 30 milljón króna styrk til starfs- þjálfunar, og í fjórða lagi var óskað eftir skuldbreytingum og styrk til markaðs- og þróunarmála. Ríkis- stjómin hafnaði beinum styrkjum úr ríkissjóði til þessarra mála, þar sem ekki var talið rétt að veita einu fyrirtæki styrk fram yfir önnur. I bréfí iðnaðarráðherra til forráða- manna ullarfyrirtækisins segir að iðnaðarráðuneytið muni beita sér fyrir að meira fé fáist til starfs- þjálfunar í iðnaði en nú er gert ráð fyrir í fjárlögum, og að ráðuneytið muni óska eftir fyrirgreiðslu til hins nýja fyrirtækis við sjóði iðnaðarins, sem verði innan þeirra reglna sem sjóðimir starfa eftir. í dag lesbúk B1 @ ® @ (Oj 0 ®__[g S gj ® Fundur um særafstrenginn í London í gær: Kostnaður áætlaður sjö mílljarðar punda BLAO B Árekstur við Fnjóskárbrú ÁREKSTUR tveggja bifreiða varð 300 metrum fyrir austan nýju Fnjóskárbrúna í gær. Tvennt úr öðrum bílnum var flutt á Fjórðungssjúkrahúsið á Akur- eyri með minni háttar meiðsli, að sögn lögreglunnar á Akur- eyri-. _ -_________ ÓLAFUR Egilsson, sendiherra íslands i Bretlandi, átti i gær fund með Alexander G. Copson, forstjóra North Venture Shipp- ing Agencies Ldt., fyrirtækisins sem gert hefur áætlanir um að flytja allt að 10 gigavattstundir af rafmagni frá fslandi til Bret- lands með sæstreng. í áætlunum fyrirtækisins er gert ráð fyrir kostnaði, sem nemi allt að 7 milljörðum punda, að sæstreng- urinn verði 1600 kilómetrar að lengd og lagningu hans verði lokið áður en næsta áratug iýk- ur. Þetta yrði lengsti særaf- strengur sem lagður hefur verið. Áð sögn Ólafs Egilssonar sagði Copson, að góðar aðstæður væru til að koma slíku máli fram í Bret- landi. Copson taldi að tæknifram- farir gerðu þessa áætlun framkvæmanlega og að ekki yrðu annmarkar á að ná saman því fjár- magni sem þyrfti til að hrinda þessu í framkvæmd ef um semdist við íslensk stjórnvöld. Ólafur sagðist hafa notað tækifærið til að lýsa fyrir Copson þeirri afstöðu, sem ríkt hefði á íslandi til samstarfs við er- lenda aðila, og því hvað kynni að vera raunhæft f málinu. Pritchard, ráðgjafa fyrirtækisins, Copson ráðgerir að koma til ís- til að ræða við iðnðaðarráðherra og lands innan skamms, ásamt George forsvarsmenn Landsvirkjunar. Landsfundur Alþýðu- bandalagsins: Formaður kosinn fyrir hádegið NÝR formaður Alþýðubanda- lagsins verður kjörinn á lands- fundi flokksins klukkan 10 í dag. Þegar fundi lauk í gær var stað- an i formannsslagnum óljós og útlit fyrir að kosningin yrði mjög tvísýn. Á fundinum í gær voru umræður mestan part dagsins en einnig var fjallað um tillögur um lagabreyting- ar sem fram komu á fundinum. Tillaga kom frá laganefnd að fresta öllum lagabreyti gum til næsta landsfundar nema lagabreytingu um varaformannskjör, en þar var lagt til að varaformönnum yrði fjölgað. Var sú tillaga samþykkt. Þá var borin fram tillaga um að fresta einnig öllum tillögum um varaformanrí og var það samþykkt með 120 atkvæðum gegn 96. Fundur hefst í dag klukkan 9 og verður formannskosning klukkan 10. Að henni lokinni verða umræður og nefndaálit og upp úr klukkan 14 er gert ráð fyrir að kosning varaformanns og annara trúnaðar- manna he§ist. Umferðin í Reykjavík: Óhöppum í umf erðinni fækkar en slysum ekki UMFERÐIN í Reykjavík gekk ekki áfallalaust í október. Þá slösuðust 23 í umferðinni, þar af 12 mikið. I lok október hafði tilkynningum til lögreglu um umferðaróhöpp fækkað veru- lega, eða úr 681 I október 1986 í 595 á þessu ári. Þó voru slys í október í fyrra einu færra en i ár, eða 22. Jafnvel þótt slysum hafi ekki fækkað þrátt fyrir fækkandi óhöpp í umferðinni þá segir það ekki alla söguna. Alvarleg slys voru mun færri nú en þá og af þeim 12 sem töldust hafa slasast mikið i október sl. slösuðust 2 alvarlega. Þá virðist sem átak lögreglu gegn hraðakstri hafi borið verulegan árangur, þvi í september siðastliðnum var of hrað- ur akstur miðað við aðstæður orsök 51 umferðaróhapps, en aðeins 22 í október. í þessum mánuði, nóvember, ætlar lögreglan að halda áfram átaki sínu. Okuhraðaeftirliti verður haldið áfram, eftirliti með óskoðuð- um ökutækjum, ölvunarakstri, ólöglegum bifreiðastöðum, eftirliti með að umferðarljós séu virt, stöðv- unarskylda og aðrar umferðar- merkingar, eftirlit með fram- kvæmdum og vörubifreiðum j íbúðarhverfum og fleira. Þá má minna á að lögreglan stundar nú hraðamælingar á ómerktum bifreið- um og nýlega var hafist handa við að kanna öryggisþætti óskráning- arskyldra vinnuvéla, sem eru í umferð á götum borgarinnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.