Morgunblaðið - 07.11.1987, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 07.11.1987, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1987 61 Guðmundur Sigurðsson bóndi, Sviðugörðum Fæddur 4. desember 1908 Dáinn 28. október 1987 í dag fer fram frá Gaulverja- bæjarkirkju útför Guðmundar Sigurðssonar bónda í Sviðugörðum. Hann lést í Sjúkrahúsi Suðurlands 28. október sl. eftir harða baráttu við endalokin. í lífsbók hans voru svo fallegir kaflar að þeim, sem gegnum vináttu og samvinnu voru þeim kunnastir, er lítill vandi á höndum að minnast þeirra svo að til sæmdar og virðingar sé hinum látna. I skjóli langrar vináttu okkar Guðmundar gegnum lífið ber ég fram fáein kveðju- og þakkarorð. Guðmundur var fæddur að Sölv- holti í Hraungerðishreppi 4. desember 1908. Foreldrar hans voru sæmdarhjónin Anna Einars- dóttir frá Sölvholti og Sigurður Sigurðsson frá Hólum í Stokks- eyrarhreppi. Guðmundur var yngstur í fimm systkina hópi. Eldri voru Einar, Júníus, Steindór og Kristín. Eru bræðumir látnir fyrir nokkrum árum en systirin, Kristín, bjó lengi í Sviðholti á Álftanesi og dvelur nú þar hjá bömum sínum. Foreldrar Guðmundar ólu og upp Ástu Guðjónsdóttur frá Hrygg. Hún er búsett í Reykjavík. Alla tíð bar Guðmundur mikla tryggð til bemsku- og æskustöðva sinna í Sölvholti og minntist þaðan jafnan margra góðra stunda, jafnt úr for- eldrahúsum, sem leikfélaga og æskuvina úr nágrenninu. Bemsku- og unglingsár hans voru með svip- uðum hætti og þá var almennt hér á landi, skólaganga og bókleg upp- fræðsla í hefðbundnum stfl og svo með aldri og þroska þátttaka í til- fallandi vinnu á heimilinu. Árið 1928 flytja foreldrar Guð- mundar með fjölskyldu sína að Sviðugörðum í Gaulveijabæjar- hreppi og varð sá staður upp frá því heimili hans. Næstu árin vann Guðmundur heimili foreldra sinna ásamt því að stunda sjóróðra og vertíðarstörf, aðallega í Grindavík og Vestmannaeyjum. Hann hafði að húsbændum hina mestu sæmd- armenn og hallaðist þar ekki á, trúmennska hans í starfi og skiln- ingur útgerðarmannsins á verk- hæfni hans. Hefi ég, sem þetta ritar, orð hins merka útgerðar- manns í Vestmannaeyjum, Ársæls Sveinssonar, að svo hafi jafnan verið þær vertíðir er Guðmundur vann hjá honum. Guðmundur giftist 8. júní 1940 Sigríði Sigurðardóttur frá Selja- tungu og tóku þau þá við búsforráð- um í Sviðugörðum og hafði hann búsforráð þar til dauðadags. Guð- mundur og Sigríður eignuðust einn son, Sigurð, og ólu upp frá bemsku tvær dætur, Selmu Álbertsdóttur, og síðar dóttur hennar, Bryndísi Björgvinsdóttur, en máttu verða að mæta þeirri þungu sorg að missa hana aðeins nítján ára gamla er hún féll fyrir ólæknandi sjúkdómi. Bryndís var þá heitbundin Oddi Oddssyni rafvirkja frá Stokkseyri. Sonurinn Sigurður hefír árum sam- an unnið hjá Ræktunarsambandi Flóa og Skeiða en jafnan átt heim- ili sitt í foreldrahúsum. Selma er búsett á Selfossi, gift Davíð Axels- syni byggingameistara. Þau eiga þijú böm, Svövu, Axel og Guð- mundu Sigríði. Hér hefír verið tæpt á ytri um- gjörð lífsramma Guðmundar í Sviðugörðum en sérstakt svipmót þótti mér jafnan yfír búskap hans og heimili. Húsfreyja kærleiksrík um velferð fólks og fénaðar, og Guðmundur verklaginn, sívinnandi heimilisfaðir. Hann var vel gerður maður á alla grein, skapið létt, gestrisinn en ákafamaður við hvert það verk sem hann vann hveiju sinni. Guðmundur var smekkmaður og bar í sér listfengi á marga vegu. Hann var gæddur fallegri söngrödd og bar þar á gott skynbragð. í verk- legum skilningi var hann útsjónar- samur og hafði góð tök á smíði, hvort heldur var úr tré eða járni. Þá var hann sérstakur hagleiks- maður við byggingu margvíslegra verkefna þar sem til kom hleðsla úr eldri tíma byggingarefni. Má víða í sveitinni hans sjá verk hans í þeim efnum. Á löngum búskapar- ferli hafði Guðmundur verið húsbóndi mikils fjölda ungs fólks sem vann hjá honum yfir sumartíð. Án efa minnist nú það góða fólk með hlýju og virðingu margra bjartra samverustunda við sinn ágæta vin, Guðmund í Sviðugörð- um. Hann fékk og notið þeirra tryggða með dæmafárri ræktarsemi þessa trygglynda fólks. Og nú, þegar lífsbók Guðmundar hefír verið lokað, eru mér allar minningamar um hann tærar og óbrotgjarnar. Minningin um ná- grannan góða, heilsteyptan og hégómalausan og gleðigefandi. Efst er þakklætið fyrir þá virðingu sem hann jafnan sýndi foreldrum mínum og öllum okkur systkinunum í löngu nágrenni og margbreytilegum sam- skiptum. Það haustar að í umhverfinu. Sólbjörtu dagar liðins sumars sitja eftir í minningunni. Það haustar að í sálarlífí sérhvers þess sem sér á bak svo bjarts og einlægs vinar sem Guðmundur í Sviðugörðum var mér. Við hjónin og böm okkar kveðjum hann með virðingu og þökkum almættinu fyrir að hafa gefíð okkur hann að vini. Eiginkonu hans, börnum og öðr- um skyldmennum vottum við einlæga samúð. Gunnar Sigurðsson frá Seljatungu í dag kveðjum við kæran vin okkar, Guðmund Sigurðsson í Sviðugörðum. Upp í hugann koma, á slíkri kveðjustund, margar góðar minningar og viljum við systumar minnast hans hér með nokkrum fátæklegum orðum. Guðmundur var einstakur maður sem alla heillaði með glaðværð sinni og kæti. Þegar Guðmundur kom í heimsókn var sem húsið fylltist af lífí og spaugi. Það var eftirtektar- vert hvað börn og unglingar hændust nð Guðmundi. enda kom hann fram við alla sem jafningja sína, hvort sem þeir voru ungir eða gamlir. Við sem nutum nábýlis við hann fengum oft að skreppa í heim- sókn til Siggu frænku okkar og Guðmundar í Sviðugörðum. Alltaf var okkur tekið með þeirri einstöku gestrisni, sem ávallt hefur einkennt það heimili. Það er svo margt sérstakt við það heimili. Náið samband við móð- ur náttúru, menn og málleysingja og hugurinn fyllist af nýjum og fijóum hugsunum við komur þang- að. Þar er alltaf tími fyrir allt og alla. Þau Sigga og Guðmundur höfðu alltaf tíma fyrir okkur krakkana. Hún svo elskulega kærleiksrík og hann var sprellandi fjörugur. Há- mark gleðinnar var að drekka þar kvöldkaffið og njóta gamanyrða og ijörugrar frásagnar húsbóndans. Perlurnar eru margar, en í upp- hafi sögðum við að þetta< yrðu fátækleg orð því að öll orð verða fátækleg, þegar minnast á Guð- mundar í Sviðugörðum. Hann var okkur svo kær. Við biðjum þess að Guð gefí Siggu og Denna styrk í sorg þeirra. Guðný, Sigrún, Magga og Laufey. Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tekin til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfund- ar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minningargreinar birtist undir fullu nafni höfundar. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð og með góðu línubili. iwtakttiupphina PHIUPS Tvær sjónvarpsstóövar eru barnateiku, fvrir Philips HQ-VR 6542 myndbandstækið - tæki sem svarar krötum nútimans. • Þráðlaus fjarstýring • Sjálvirkur stöðva leitari • 16 stöðva forval • Upptökuminni i 14 daga fyrir 4 skráningar • Skyndiupptaka óháð upptökuminni • Myndleitari i báðar áttir • Frysting á ramma • Og ótal fleiri möguleikar sem aðeins Philips kann tökin á • Verðið kemur þér á óvart. Opiðídag: Sætúni 8 kl. 10-13 Kringlunni kl. 10-16 Heimilistækl hf !aFN ArSr*TI 3 - KRINGLUNN. - SŒTUNI 8 - SIMI 69 15 00 l/í
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.