Morgunblaðið - 07.11.1987, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 07.11.1987, Blaðsíða 56
56 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1987 Frá söngför karlakórsins Fóstbræðra til Mið-Evrópu: Yfir Austurríki til Ungveijalands 2. grein Og enn lá leiðin til suðausturs. Að þessu sinni var förinni heitið til þeirrar fomfrægu borgar Salz- borgar, þar sem gamli Salzborgar- kastalinn, Hohen Salzburg, gnæfði yfir borgina. Og þar sem Mozart fæddist og sleit bamsskónum og erkibiskupar vom jafnt veraldlegir höfðingjar sem kirkjulegir öldum saman og vitna þar um miklar og fagrar hallir og kirkjur þeirra Salz- borgara, byggðar í endurreisnarstfl á ríkisdögum erkibiskupanna. Þeir úr hópi ferðalanganna sem nú stefndu til austurrísku landa- mæranna og voru kunnugir á þessum slóðum höfðu hlakkað til að sýna samferðafólki sínu suður- hluta Bæjaralands þar sem aust- urrísku Alpamir teygja sig norður yfir landamæri Þýskalands. Þar sem fallegir smábæir á bökkum Qallavatna fagurbiárra brosa lit- fagrir og guðræknir með líkneski heilagrar guðsmóður á hveiju götu- homi og freskumyndir af þeirri sömu mey í faðmi fjölskyldu sinnar eru málaðar utan á aðra hveija krá. 0g þar sem tumspíran teygir sig til himins upp úr miðju þorpinu, rétt eins og á öllum fallegu jólakort- unum. Þar var nú strunsað fram hjá eftir hraðbrautum suður-þýsku hásléttunnar stystu leið til Salz- borgar. Menn skyldu ekki halda að það hafí verið af áhugaleysi fyrir ævintýralegu umhverfí Suður- Bæjaralands. Því — þó það kæti hjartað í vöskum hal að kljúfa ijúk- andi kalda í gegn norður á Kaldadal — þá er það ekki þar með sagt að léttklæddir túrhestar — sem trúðu ekki að í útlöndum væri ekkert skjól, heldur eilífur stormur — legðu á sig að staldra við fram yfir það nauðsynlegasta í svoleiðis veðri. Þegar ekki svo mikið sem grillti í þessa margfrægu Alpa, sem allir voru alltaf að tala um, hvað þá heldur að það sæist út á fjallavötn- in fyrmefndu í því dómadags úrhelli og hávaðaroki er dundi þama á mörlandanum. Reyndar hafði him- inninn litið líklega út þegar lagt var - upp frá Heilbronn og fullyrtu Sva- bar og kinkuðu kolli, eins og þeir sem hafa reynsluna og þekkinguna í pokahominu, að nú væri sólin og góða veðrið komið til Mið-Evrópu. Því mætti treysta! Upp á þessar upplýsingar höfðu íslendingamir lagt í hann létt- klæddir, eins og fyrr var vikið að. Og ekki nóg með það. Þar sem til stóð að gista aðeins eina nótt í Salzburg, að þessu sinni, en Fóst- bræður og þeirra fólk, þetta rúmlega áttatíu manna lið, sem aftur hafði a.m.k. hundrað og tutt- ugu ferðatöskur í eftirdragi, höfðu bílstjóramir vinsamlegast farið þess ,á leit við hópinn að hann skildi stóru töskumar eftir í bflunum og tæki aðeins með sér það nauðsynlegasta í handtöskum inn á hótelin þegar til Salzborgar kæmi. Nú, vegna fyrmefndrar veður- spár og tilmæla bflstjóranna höfðu fæstir sett í handskjóður sínar ann- að en eitthvert sólarhíalín, sem ekkert dugði í rosanum þeim arna, þegar lagt var af stað frá Heil- bronn. Nokkrir höfðu þó haft vit á að verða sér úti um regnhlífar í votviðrinu að undanfömu og enn aðrir höfðu keypt sér þarfagripi 'þessa á áningarstöðum við hrað- brautimar suðureftir. En svo var veðurofsinn mikill að ekki stóðust allar regnhlífar áreynsluna. Þegar neyðst var til að stansa augnablik að sinna brýnustu nauðsynjum — eins og þegar söngstjórinn þurfti að fá sér reyk — þá bara lagðist . regnhlífin hans saman. En til Salz- borgar komst þó mannskapurinn fremur svona slæptur og kaldur. Þó ekkert á við þá hröktu vesalinga er hættu sér út á krár og aðra matsölustaði að fá sér í svanginn þetta kvöld. Það gat varla heitið að þurr þráður væri á þeim sumum við heimkomuna. Þá var ekki til nema eitt ráð að koma einhveijum hita í kroppinn: Sjóðandi heitt bað! Ekki var upphituninni fyrir að fara á austurrfskum hótelum frem- ur en í öðmm húsum þessa heims- hluta á þessum árstíma. Það er einfaldlega ekki hitað upp frá því í apríl-maí þar til í nóvember eða í besta falli í október — jafnvel þó ísöld væri að skella á! En á öllum hótelum var hægt að fara í vel heitt bað. Sem er þó lúxus út af fyrir sig. Og stundum hrein lífs- björg! Eins og þama í Salzburg, þar sem íslenskt ferðafólk var á sumarfötunum sínum. Næsti dagur rann upp ekki út af eins rennblautur og sá á undan. Fóru þá sumir í skoðunarferð um þessa dásamlegu borg (a.m.k. í sæmilegu veðri), en aðrir ruku til og reyndu að kaupa sér einhveijar skjólflíkur — endanlega búnir að tapa trúnni á að bráðum kæmi betri tíð. En ekki dugði að dvelja lengi við slíka iðju. Ferðaáætlunin var ströng. Um kvöldið skyldi náð hátt- um í Vínarborg. Lagt var af stað frá Salzborg um hádegisbilið og þar sem ekki rigndi nú beint lengur og skýjabólstramir tóku ekki af nema hæstu íjallatoppana, var þess freist- að að aka ekki eftir hraðbrautum fyrsta spölinn, heldur um djúpa dali Alpahéraðanna og koma við í þorpunum við vötnin. Sjá það sem ekki var séð í Bayern og horfa á fijöllin steypa sér á hausinn niður í spegilsléttan flöt vatnanna. Þar var komið við í þorpi einu sem átti svo fallega kirkju að þorps- búar stungu augun úr málaranum sem hafði málað freskumar er prýddu kirkjuna innanverða svo hann málaði ekki kirkjur nágranna- þorpanna eins fallega. Leiðin til Vínar, sem lá nú aftur örlítið til norðurs en aðallega í aust- ur, breyttist úrgáskafullri og litríkri rómantík Alpahéraðanna í mjúka rómantík skógi vaxinna heiða og búsældarlegra akra. Og brátt var það Dóná svo blá sem vísaði veginn. Til Vínarborgar var komið að kvöldi föstudagsins 5. júní. Veðrið hafði farið batnandi eftir því sem á daginn leið, og þegar til Vínar kom, var komið blíðskaparveður. Hluti hópsins gisti á Hótel Etap, en hinum hlutanum var komið fyrir á Hótel Royal, en bæði voru þetta prýðishótel í hjarta borgarinnar. Og loks virtist þetta draumaveður — sem íslendingar á ferðalögum í útlöndum ætlast til að sé alls staðar — vera komið í alvöru. Daginn eftir komuna til Vínar- borgar, laugardaginn fyrir hvíta- sunnu, sá ekki skýhnoðra á himni og hitinn steig upp í 25 stig. Menn notuðu morguninn í örvæntingar- fulla og tilgangslitla leit að opnum bönkum, bæði til að ná sér í aust- urríska peninga til að eyða þama um helgina í Vín og þó ekki síður til að verða sér úti um ungverskan gjaldmiðil, þar sem til stóð að aka til Ungveijalands að morgni mánu- dagsins annars í hvítasunnu, en einhvem veginn höfðu menn lítið gert sér grein fyrir öllum þessum helgidögum sem í hönd fóru ásamt allri þeirri banka- og búðaþurrð er þeim fylgdi. Síðdegið þennan laugardag nýtt- ist aftur á móti vel til skoðunar á borginni. — Loks kom að því að í förina slógust leiðsögumenn, vel- mæltir á enska tungu, sem var í öllu meira uppáhaldi hjá íslenska kórfólkinu en sú germanska. Það er nú ekki einfalt mál að sýna ferða- löngum alla dýrð Vínarborgar á einu síðdegi. Þessarar fyrmrn höf- uðborgar hins heilaga rómverska keisaradæmis og síðar austurríska keisaradæmisins. Háborgar fágun- ar og frægðar, tónlistar og leik- hússlífs. Borgarinnar þar sem Mozart, Beethoven og Schubert skópu ódauðlega tónlist og valsar valsakónganna freyddu með kampavíninu um glaðvær hjörtun. Jú, eitthvað tókst þeim að sýna íslenskum kórmönnum og fylgdar- liði þeirra. Handan við Hótel Royal, Karlskirkjan í Vinarborg. þar sem helmingur Fóstbræðra gisti, gnæfði hinn gotneski Stefáns- dómur. Burgtheater og Staatsoper — eða Vínaróperan — voru heldur ekki langt undan. Þá urðu glæsi- hallir Habsborgara einnig á vegi íslenskra ferðalanga á þessum sól- bjarta júnídegi í Vín. Ekið var í gegnum Prater — skemmtigarðinn fræga — og efnt til veislu fyrir augað og skoðað furðuhús nútíma- listamanns. Þegar halla tók degi var þyrstum og svöngum ferðamönnum boðið upp á ljúfa hvfld í Grinzing-þorpun- um í útjaðri borgarinnar þar sem gestir og gangandi skála í „Heur- ingen", víni ársins ef ekki líka hússins, og fá sér bita af tilheyr- andi svínaspiki og magálum. Þarna tóku Fóstbræður líka lagið undir svignandi lauftijám við óspara hvatningu viðstaddra. Sumir Fóst- bræðrannna þurftu reyndar að flýta sér, því ætlunin var að eyða kvöld- inu í Staatsoper eða einhveijum öðrum leikhúss- eða tónleikasal borgarinnar. Það var nefnilega ekk- ert lítið um að vera þessa dagana í Vín: Wiener Festwochen — lista- hátíðin í Vfn — var nýlega hafin þegar Fóstbræður bar að garði, og stóð allan júnímánuð — enda var erindi Fóstbræðra við Vínarbúa að þessu sinni að taka sjálfir þátt í þessari heimsfrægu listahátíð með tónleikum í Karlskirkju. En gjaman hefðu þeir víst flestir viljað taka þátt í listahátíðinni lfka með því að sjá og heyra eitthvað af því sem listunnendum var boðið uppá. En tíminn var naumur. í rauninni að- eins eitt fríkvöld, því menn voru ekki komnir á hótelin sín f Vín fyrr en upp úr hálf átta á föstudags- kvöldið. Og einmitt á þeirri stundu var allt að fara í gang. Þó tókst þeim Jónasi Ingimundarsyni píanó- leikara og Ragnari Bjömssyni stjómanda kórsins að sleppa út úr rútunum á réttum stað og réttri stundu til að komast á píanótónleika hjá Maurizio Pollini — en þeir em nú líka gamlir Vínarar — lögðu Svona fór slagviðrið á suður-þýska hálendinu með regnhlíf söngstjór- ans (t.v.). ' ,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.