Morgunblaðið - 07.11.1987, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 07.11.1987, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1987 25 — dé ■ 1 Í| # - ■ - | w&l JL ■ v Sigurður Jónathansson Óskar Sigurðsson vitavörður 1935-65. vitavörður 1965- hrifízt af náttúrunni í Mýrdalnum og þar í kring. Nú blasti annað og meira útsýni við honum, og kunni hann vel að meta það. En tvær hlið- ar eru á hveiju máli, og einnig hér. Veðrahamurinn gat orðið ofsalegur uppi á Höfðanum, svo að jafnvel gat orðið hætt ungum bömum, hvað þá lauslegum hlutum, sem stóðu úti. En vitavörðurinn nýi var enginn viðvaningur í lífsbaráttunni. Hann hafði góða reynslu frá fyrri störfum sem bóndi og smiður, hagleiksmað- ur með iðnaðarmennt að baki. Til marks um hagleik hans má þess geta, að hann fékkst nokkuð við klukkuviðgerðir. Komu margir með klukkur sínar til hans þegar þær biluðu og kom hinn þeim aftur af stað. Sjálfur átti hann vasaúr, sem voru þá ekki ýkja algeng. Svo hend- ir það að spindilfjöðrin í því slitnaði, og fór hann með það til Reykjavík- ur, en úrsmiður þar kvað upp þann úrskurð, að ekki væri hægt að gera við úrið. Bað hann þá úrsmiðinn að ljá sér aðstöðu þar á verkstæð- inu og smíðaði spindilíjöðrina með eigin hendi, svo að úrip gekk upp frá því árum saman. Úrsmiðurinn hreifst af þessu handbragði og vildi fá Jónathan til sín á verkstæðið og læra þar úrsmíði. En Jónathan hafnaði því boði, því þetta var á þeim tíma sem hann var aðalfyrir- vinna móður sinnar austur á Fossi eftir að faðir hans lézt, og því taldi hann sér skylt að hjálpa henni eftir mætti. Um það leyti fékkst hann við barnakennslu í þrjá vetur þar eystra í Dyrhóla- og Hvammshrepp- um, og sýnir það enn, hvað honum var margt lagið. Það var á árunum 1890-93. A milli tektar og tvítugs átti ég þess kost að dvelja um tíma úti á Störhöfða hjá Jónathan og fjöl- skyldu hans. Ég fór þangað í mesta skammdeginu skömmu fyrir jólin. Veðrið var eins og bezt verður á kosið á þeim tíma, hæg norðanátt, bjart yfir og útsýni hrífandi um sólstöðumar. En svo breyttist áttin og gekk til suðausturs. Varð þá mjög dimmt sjálfa jóladagana, en á milli jóla og nýárs snerist áttin aftur til norðurs, og ljómaði þá allt upp á ný meðan dagur var á lofti. Strax og komið var fram um þrett- ándann fannst mér fara að bera á birtumun, og þegar ég fór úr Höfð- anum í janúarlok þótti mér ég hafa lifað stórkostleg tímamót í náttúr- unni. Fór ég því þaðan ríkur af þakklæti til almættisins fyrir minnisstæðan dvalartíma hjá góðu fólki. Vitavarðarstarfið er býsna margþætt, ónæðissamt og í mörgu nákvæmnisverk. Gæta þarf allra glugga vel, því að á þá vill hlaðast snjór þegar þannig viðrar. Allt starf vitavarðarins miðar að því að vísa sæfarendum rétta leið. Og í því efni lét Jónathan ekki sinn hlut eftir liggja. í lokin þykir mér rétt að geta nokkuð um Stórhöfðavitann sjálfan. Hann var tekinn í notkun 1. okt. 1906 og átti því 80 ára afmæli í fyrra. Ekki var hann mjög fullkom- inn í fyrstu. Sjónarlengd hans var aðeins 12 sjómílur, en ljósmagnið hefur verið aukið oftar en einu sinni síðan og mun nú vera um 60 sjómíl- ur. Fyrsti vitavörður var ráðinn Guðmundur Ogmundsson járnsmið- ur í Eyjum og gegndi hann því fram undir það að Jónathan Jónsson tók við í okt. 1910. Jónathan gegndi vitavörzlunni í aldarfjórðung, til ársins 1935, er Sigurður sonur hans tók við. Hann andaðist svo fáum árum síðar, 10. apríl 1939 á 82. aldursári. Sigurður gegndi stöðunni í þrjá áratugi. Hann lézt skömmu eftir að sonur hans, Óskar, hafði tekið við vita- vörzlunni. Óskar hefur nú gegnt henni í meira en tvo áratugi. í grein eftir Árna Ámason frá Grund í blaðinu Dagskrá 1985 rek- ur hann sögu vitans á Stórhöfða og kemst þar m.a. svo að orði: „Jónathan var vel látinn í starf- inu og ávann sér traust allra, enda var eftirlit hans með vitanum alla tíð í mjög góðu lagi. Naut hann fljótt aðstoðar sona sinna við starf- ið, sem gerðu sér far um að halda öllu í sem beztu og fullkomnustu lagi. I tíð Jónathans Jónssonar urðu miklar breytingar á húsakynnum í Stórhöfðavita, enda voru húsakynni þar mjög lítil fyrstu árin. Fyrst var byggt þar vestan við gamla vitahús- ið, timburhús, sem stendur enn, en síðar var svo gerð stór og vönduð viðbótarbygging úr steinsteypu. Má nú segja að íbúð vitavarðar sé með ágætum, stór og allvel vönduð. Breytingar hafa og verið gerðar á vitanum sjálfum. Er þar og raf- lýst frá eigin vél til heimilisnotkunar og ljósmagn vitans aukið að mun. Þar er nú veðurathugunarstöð og hefir svo verið frá 1921. Eitt er það sem engum breyting- um hefir enn tekið í Stórhöfða. Það er veðurhæðin. Hún er oft mikil og töluverður mismunur þar á veðri og niðri í bænum. En veðurathug- anir eru gerðar þar af trúmennsku og réttsýni, svo að þau eru teljandi dæmin á fingrum sér, sem athugan- ir vantar frá Stórhöfða. Stórhöfðavitinn er eitt af þörf- ustu fyrirtækjum, sem Eyjamenn börðust fyrir, og hefur ljós hans ábyggilega borgið lífi óteljandi far- manna, bæði inn- og útlendum, miklu fleiri en sögur fara af. Hann er sannkallað leiðarljós sjómanna við landtöku í Eyjum og á siglingum til og frá íslandi. Hefðu Eyjamenn ekki notið forystu framkvæmda- mannsins Gísla Johnsens í þessu velferðarmáli er hætt við að róður- inn til sigurs málefnisins hefði orðið erfiður. Þakkir þeim, sem þakka ber.“ Gaman er að glugga aðeins í veðurathugunartölur frá Stórhöfða. Þaðan eru veðurskeyti send til Veð- urstofu íslands á þriggja tíma fresti allt árið um kring, jafnt á hátíðum sem aðra daga, enda er stöðin svo- kölluð alþjóðleg stöð og mikil áherzla lögð á stundvísi. Meðalveð- urhæð um árið mun vera um 5 vindstig. Sumarið 1968 var settur þar upp vindmælir af fullkomnustu gerð með sírita, sem skráir hveija vindhviðu. Síðan þá hefur mesta hviða mælst 119 hnútar. Það var 14. des. 1977. Mesta sólarhrings úrkoma hefur mælst 193 mm. Það gerðist 28. nóv. 1978. Mesta mán- aðarúrkoma var hinsvegar í nóv. 1979, 444 mm. Mesta ársúrkoma var 2034 mm árið 1984. Mesta frost á síðari árum varð 16,1° á selsíus 1. apríl 1968. Mesti hiti hinsvegar 13, ág. 1985, 19,1°. Öllu þessu er til skila haldið af vitaverðinum í Stórhöfða. Höfundur er tæknifræðingur. Marmaraflísar Farymann Smádíselvélar 5.4 hö við 3000 SN. 8.5 hö við 3000 SN. Dísel-rafstöðvar 3.5 KVA Jfc-LLr SfiynHMtuigjyir d)^in)©©®iríi <§t Vesturgötu 16, sími 14680. OIÆSmi SKINNAVARA FRÁ HEIMSÞEKKTUM HÖNNUÐUM: JILSANDER YVES SAINT LAURENT JEAN PÉCAREL BARTOLI CASAVENETTA PENTIK TURKIS TUKKU OTDK HUÓMAR BETUR HAFARoyd HVÍTAR BAÐINNRÉTTINGAR OPIÐ LAUGARDAGA t*4>UÍS€*n SUÐURLANDSBRAUT10 - SÍMI686499.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.