Morgunblaðið - 28.05.1988, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 28.05.1988, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. MAÍ 1988 -49 FYRIRMYNDARFAÐIR Bill Cosby er hamingjusamur maður Sjónvarpsþættimir um fyrirmyndarfoðurinn Cliff Huxtable njóta sem kunnugt er gífurlegra vinsælda um allan heim, og hafa þeir gert Bill Cosby að auðugasta skemmtikrafti í heimi, en samkvæmt bestu heimildum þénar hann um það bil tvo og hálfan milljarð króna á ári hveiju á þáttunum. Vegna leiks síns í sjónvarpsþáttunum hefur Bill Cosby verið útnefndur vinsælasti faðir í heimi, og hefur hann sannarlega ekkert á móti þeirri útnefningu, því sjálfur vill hann mjög gjaman vera álitinn fyrirmyndarfaðir. „Mitt eigið fjölskyldulíf er jafn rólegt og innihaldsríkt og fjölskyldulífið í sjónvarpsþáttunum, og er það mest að þakka Camillu konunni minni,“ segir hann sjálfur. Bill Cosby hitti konu sína árið 1963 og þau giftu sig einu ári seinna. Hann segir að það sé fyrst og fremst henni að þakka að sjónvarpsþættimir urðu að veruleika. Böm þeirra em fimm talsins. Fyrsta bamið, dóttirin Erika, fæddist árið 1965, og næst í röðinni em Erinne, Ennis, Esa og Evin, sem fædd er 1977. Fjórar dætur og einn sonur (Ennis), alveg eins og í sjónvarpsþáttunum. Það er engin tilviljun að þættimir byggjast á hans eigin fjölskyldulífí, því líkt og í þáttunum, þá er fjölskylda hans eins og ein stór heild. „Ég álít mig vera ágætis faðir í einkalífínu. Bömin mín vita að mér þykir vænt um þau. Þau vita að ég er þess konar faðir sem veitir þeim hjálparhönd, hvað sem fyrir kemur. Og það held ég einmitt að sé það mikilvægasta sem felst í því að vera faðir," segir hann. En hvers vegna byija nöfn allra bama hans á bókstafnum E? Hann hefur margoft verið spurður að þessu, og svarið er álltaf það sama:„Nöfnin byija á E eingöngu vegna þess að það stendur að sjálfsögðu fyrir„excellence“ (afburðagæði)." Bill Cosby er annars mjög upptekinn af eigin fjölskyldulífi, og hann vill helst af öllu tala um hjónaband sitt, og það hve mikils virði Camilla konan hans er honum. Sérstaklega þegar um er að ræða fyrstu árin í sambúð þeirra, en þá var hann hvorki ríkur né frægur. „Það er hún sem hefur stutt mig í öllu mótlæti. Ég hefði aldrei getað orðið það sem ég er í dag án hennar stuðnings. Hún trúði alltaf á mig og var þess valdandi að ég missti aldrei móðinn," segir hann með tilfínningu í röddinni. „Ég mun aldrei geta gleymt því hvað hún hefur verið mér mikils virði sem lífsförunautur." Fjölskyldan býr í dag á stómm búgarði í Massachussets, og Bill Cosby lýsir lífi sínu sem sérlega hamingjuríku ogfriðsælu. „Það er hamingja sem felst í því að tilheyra einhveijum, og að vita að það er einhver sem ég get fullkomlega treyst. Og sá sem ég treysti er sá sem ég elska. Þetta er undursamleg tilfinning, og ég vona og tel mig vita að Camilla upplifir hana líka.“ Og ástarjátningamar til eiginkonunnar halda áfram: „Vitið þið hvað það er sem gerir Camillu svo stórkostlega? Hún er ótrúlega falleg í útliti, en hún er ennþá fegurri hið innra. 0g það er það sem skiptir öllu máli. Égóska hveijum manni konu sem Camillu!" Bill Cosby sést hér dansa við hina ellefu ára gömlu dóttur sína, Evin, sem finnst mikið til þess koma að fara út að skemmta sér með pabba sinum. Kr. 695,— fermetrinn Njóttu sumarsins sem best og fáðu x þér grasteppi sem endist ár eftir ár. Tilvalið á svalirnar, veröndina, leikvöllinn, gufubaðið, sundlaugar- bakkann, og hvar sem þér dettur í hug. Teppaland • Dúkaland i Grensásvegi 13, sími 83577, 105 Rvk. Í NÁMSKEIÐ f NUDDI Danska nuddkonan Lone Svargo Riget heldur nám- skeið í nuddi í Reykjavík helgina 4.-5. iúní. Þetta er síðasta námskeiðið sem hún heldur á Islandi áður en hún yfirgefur landið. Hún býður einnig upp á einkatíma fyrir einstaklinga. Tímapantanir og upplýsingar eru í síma 17923 alla daga frá kl. 17-20. Vinum mínum og vandamönnum, sem glöddu mig með heimsóknum, gjöfum og á annan hátt á 70 ára afmæli mínu 11. þ.m., flyt ég einlægar þakkir fyrir ánægjulegan dag. Gunnar Þorsteinsson, Kársnesbraut 67, Kópavogi. JL Hafnarfjörður Kjörskrá vegna forsetakosninga, sem fram eiga að fara þann 25. júní °1 1988, var lögð fram til sýnis á bæjar- skrifstofum Hafnarfjarðar, Strand- götu 6, þann 25. maí sl. Skrifstofan er opin frá kl. 9.30-15.30 alla virka daga. Kærufrestur vegna kjörskrár er til 10. júní 1988. Bæjarstjórinn í Hafnarfirði. Sýning á MlClC heimilistækjum í dag, laugardag, kl. 10-16 IVfipip jáM; SUNDABORG 13. S. 68 85 88-68 85 89
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.