Morgunblaðið - 20.11.1988, Qupperneq 8
8
MORGUNBLAÐŒ) DAGBOK SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1988
Iil /\ m' er sunnudagur 20. nóvember. Þetta er
VJ 25. sd. eftir Trínitatis, 325. dagur árs-
ins 1988. Árdegisflóð í Reykjavík kl. 3.19 og síðdegisflóð
íd. 15.42. Sólarupprás í Rvík kl. 10.13 og sólarlag kl. 16.13.
Myrkur kl. 17.16. Sólin er í hádegisstað í Rvík kl. 13.14
og tunglið er í suðri kl. 22.46. (Almanak Háskóla íslands.)
Því svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf son sinn ein-
getinn, til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki,
heldur hafi eilíft líf (Jóh. 3,16-17.)
ÞETTA GERÐIST
ERLENDIS gerðist þetta á
þessum degi, 20. nóvember:
1616: Richelieu kardináli
skipaður ráðherra utanríkis-
og hermála í Frakklandi.
1656: Svíar láta Austur-
Prússland af hendi við
Brandenborgara.
1720: Tordenslq'öld aðmíráll
feílur í einvígi við Staeál von
Holstein.
1759: Bretar sigra Frakka
í sjóorrustu á Quiberonflóa.
1780: Bretar segja Hollend-
ingum stríð á hendur.
1818: Simon Bolivar lýsir
formlega jrfir sjálfstæði
Venezúela frá Spáni.
1870: Þjóðveijar umkringja
París.
1901: Sáttmáli kveður á um
að Bandaríkjamenn leggi
Panamaskurðinn.
1917: Orrustan við
Cambrai.
1924: Uppreisn Kúrda í
Tyrklandi bæld niður.
1945: Foringjar nasista
leiddir fyrir stríðsglæparétt-
inn í Niimberg. Bandamenn
samþykkja flutning 6 millj-
óna Þjóðvetja frá Austurríki,
Ungveijalandi og Póllandi.
1947: Giftingardagur Elísa-
betar Bretadrottningar.
1970: Á þingi SÞ fékk Kína
ekki tilskilinn stuðning til
inngöngu.
1977: Sadat Egyptalands-
forseti ávarpar þing ísrael
og býður frið.
Afinæli: Rithöfundurinn
Selma Lagerlöf 1858—1940.
Robert Kennedy ráðherra
1925-1968.
Andlát: Leo Tolstoj greifí
og rithöfundur 1910. Maud
Noregsdrottning 1938.
HÉRLENDIS gerðist
þetta á þessum degi, 20.
nóvember:
1393: Hólabardagi. Þar
sigraði Þórður Sigmundsson
Björn Jórsalafara.
1449: Karl Knútsson bóndi
krýndur konungur Noregs í
Þrándheimi.
1752: Sigurður Vigfússon
íslandströll lést.
1763: Vígsludagur Hóla-
dómkirkju.
1920: Líkneski Þorfínns
Karlsefnis afhjúpað vestur í
Fíladelfíu. Haldinn fyrsti
fundur útvarpsráðs.
1959: Viðreisnarstjórn Ól-
afs Thors, fímmta ráðuneyti
hans, skipuð.
1975: Samkomulag við V-
Þjóðveija.
QA ára afmæli. Á morg-
Oi/ un, mánudaginn 21.
nóvember, er áttræð frú
Þuríður Filippusdóttir í
Lönguhlíð 3 hér í Reylq'avík.
Þar ætlar hún að taka á móti
gestum í dag, sunnudaginn
20. nóvember, milli kl. 15 og
18 á 1. hæð í húsinu.
FRÉTTIR__________________
Launasjóður rithöf-
unda hefur augl. eftir um-
sóknum í Lögbirtingablaðinu.
Rennur umsóknarfrestur út
um næstu áramót. Heimilt er
að greiða úr þessum sjóði
fyrir þýðingar á íslensku.
Starfslaun eru í samræmi við
byijunarlaun menntaskóla-
kennara, og veitt til tveggja
mánaða í senn og lengst til 9
mánaða. Höfundur sem hlýt-
ur námslaun í 3 mánuði eða
lengur skuldbindur sig til að
gegna ekki fastlaunuðu starfí
á meðan hann nýtur starfs-
launanna. Menntamálaráðu-
neytið tekur á móti umsókn-
unum, segir í tilk. sjóðsstjóm-
ar Launasjóðs rithöfunda.
LÆKNAR. í tilk. frá heil-
brigðis- og tryggingamála-
ráðuneytinu, í Lögbirtingi,
segir, að ráðuneytið hafí veitt
þessum læknum starfsleyfi
hér á landi. Cand. med. et
chir. Aðalsteini Guðmunds-
syni, cand. med. et chir.
Vigfúsi Sigurðssyni, cand.
med et chir. Garðari Þór
Gislasyni, cnd. med. et chir.
Baldri Helga Friðrikssyni,
cand. med et chir. Elínu Ól-
afsdóttur og cand. med. et
chir. Ragnheiði Ingibjörgu
Bjarnadóttur.
ÝLIR annar mánuður vetrar
áð okkar tímatali byijar á
morgun, mánudag 21. nóv-
ember. Hann hefst með
mánudegi í 5. viku vetrar
20.—27. nóvember. Nafn-
skýring er umdeild, segir í
Stjömufræði/Rímfræði, og
bætt við að í Snorra-Eddu er
þessi mánuður kallaður frer-
mánuður. Vinnuvikan sem
hefst á morgun er hin 47. á
þessu ári.
SKIPIN________________
Reykjavíkurhöfii: Togar-
inn Ásbjöm kom inn af veið-
um, til löndunar í gær, laug-
ardag og Kyndill kom af
ströndinni. Þá kom fjölveiði-
skipið Jón Finnsson inn af
veiðum og landaði. í gær fór
togarinn Ottó N. Þorláksson
aftur til veiða og þá fór
danska eftirlitsskipið Hvid-
bjömen. Fjallfoss er vænt-
anlegur að utan í dag, sunnu-
dag.
MOLAR
• LANDAKORT. Elsta
landakortið sem þekkist
er frá 1370 f. Kr. Það er
teiknað á papms og sýnir
gullnámur við fjallið Bec-
hem.
• SÓLÚRIÐ: Kínverskar
frásagnir frá ca. 1100 f.
Kr. greina frá fyrstu sól-
úrinu (súla sem tímamæl-
ir). Um 600 f. Kr. fimdu
Assyríumenn upp vatnsúr-
ið.
Suðuraes:
| Sveitarsljórar kreflast stöðv-
unar á sölu skipa af svæðinu
Valbjöra hf. i Sandgerði vUl kaupa báða togara HK fyrir 400 miUjónir króna
Jú, jú lambið mitt. Það var líka einu sinni sjór hjá okkur. En svo var hver dropi seldur norður
í landi...
Þessir ungu sveinar héldu hlutaveltu til ágóða fyrir
Rauða kross íslands. Söfnuðu þeir 675 kr. Þeir heita
Ingi þór Arnarson og Öm Viðarsson og litli bróðir Við-
ars, Hrafn, var með þeim.
LÁRÉTT: 1 drepa, 5 sól,
8 þjálfun, 9 rödd, 11 aldan,
14 for, 15 skessan, 16 nytja-
lönd, 17 afkomanda, 19
beitu, 21 spil, 22 borðaði,
25 hreyfíngu, 26 forfeður,
27 keyri.
LÓÐRÉTT: 2 spíra, 3
fiigl, 4 kvölds, 5 hengingar-
ólin, 6 ótta, 7 askur, 9 slitn-
aði, 10 reyfínu, 12 eitraða,
13 hímdi, 18 heiðursmerki,
20 sjó, 21 hæð, 23 slá, 24
ending.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
LÁRÉTT: — 1 kráka, 5 kutar, 8 álkan, 9 skáld, 11 nasla,
14 inn, 15 lamin, 16 aurar, 17 nær, 19 orða, 21 aumt, 22
ungunum, 25 sær, 26 ára, 27 sár.
LÓÐRÉTT: 2 rok, 3 kál, 4 aldinn, 5 kannar, 6 una, 7 afl,
9 Selfoss, 10 ármaður, 12 straums, 13 afritar, 18 æður, 20
an, 21 au, 23 gá, 24 Na.
MANNAMÓT
Orgeltónleikar verða í
kvöld í Seljakirkju kl. 20.30.
Það var keypt á þessu hausti
norðan úr Hóladómkirkju,
smíðað í Danmörku fyrir
tæplega 30 árum, allt hið
vandaðasta. Verður það tek-
ið í notkun í kirkjunni í dag.
Organisti Seljakirkju er
Kjartan Sigurjónsson
og mun hann leika á tónleik-
unum í kvöld. Eru þetta
tímamótatónleikar fyrir
hann. Um þessar mundir
hefur hann starfað í 30 ár
sem kirkjuorganisti. Efnis-
skráin verður fjölbreytt og
verk leikin eftir nokkra
fremstu höfunda kirkjutón-
listar. Aðgangur er ókeypis.
í anddyri kirkjunnar verður
framlögum til orgelsjóðs
Seljakirkju veitt móttaka.
Félag eldri borgara.
Opið hús í Goðheimum í dag,
sunnudag, kl. 14, þá fijáls
spilamennska og tafl. Dans-
að verður kl. 20. Á morgun,
mánudag, er opið hús í
Tónabæ kl. 13.30 og spiluð
félagsvist kl. 14.
Kvennadeild Styrktarfé-
lags lamaðra og fatlaðra
heldur fund, annað kvöld,
fyrir félagsmenn og gesti
þeirra á Háaleitisbraut 11
kl. 20.30. Á fundinn kemur
Öm Jónsson, nuddfræðing-
ur.
Færeyjaklúbburinn á
Suðumesjum heldur vetrar-
fatnað sinn nk. laugardag
26. þ.m. í safnaðarheimilinu
Innri-Njarðvíkurkirkju og
hefst með borðhaldi kl. 20
og verður færeyskur matur
borinn á borð. Stjómarmenn
klúbbsins í þessum Suður-
nesjasímum gefa nánari upp-
lýsingar: 11562, 37559,
11078.
ORÐABÓKIN
AÖ hafa eitthvað
á boðstólum
Á síðustu árum hef ég
tekið eftir því, að ýmsir
eru fanir að tala um að
hafa eitthvað á boð-
stólnum í stað hins sem
mun vera upprunalegt að
hafá eitthvað á boðstól-
um. Fyrir stuttu bárust
mér í hendur auglýsinga-
blöð frá veitingahúsi einu
hér í borginni. Þar mátti
lesa eftirfarandi: Hér á
eftir em upplýsingar um
þær veitingar sem á boð-
stólnum em í okkar
glæsilegu salarkynn-
um ... Hér er ekki farið
rétt með allgamalt orðtak.
Er sjálfsagt að benda les-
endum á þetta og þá um
ieið, hver sé sennileg skýr-
ing á uppmna þess. Elztu
dæmi um það em frá 18.
öld og þá í sömu merkingu
og við höfum það, þ.e. að
hafa eitthvað til sölu eða
fram að bjóða. Halldór
Halldórsson prófessor
segir í íslenzku orðtaka-
safni, að orðið boðstólar
hljóti „að hafa táknað
bekki eða borð, sem vömr
vom fram boðnar á“.
Þannig hafa og flestir ski-
lið þetta. í OH er samt
hundrað ára gamalt dæmi
um að vera á boðstóln-
um. Orðtakið er samt
vafalaust eitt rétt eins og
stendur í fyrirsögn þessa
dálks: að hafa eitthvað á
boðstólum. Það skyldu
menn festa sér í minni.
- JAJ