Morgunblaðið - 20.11.1988, Page 37
MORGUNBLAÐE) AFIWIÆLI SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1988
37
Afinæliskveðja:
Gísli Ólafsson
bakarameistari
Á morgun, mánudaginn 21. þm.,
verður 90 ára Gísli Olafsson bak-
arameistari.
Hann er fæddur á Gamla-Hrauni
við Eyrarbakka 21. nóvember 1898.
Foreldrar hans voru: Ólafur Áma-
son, sjómaður og verkamaður, og
Guðrún Gísladóttir, húsmóðir.
Systkini Gisla em: Magnea, húsfrú,
gift Ferdinant Eiríkssyni, skósmið,
Ami, loftskeytamaður, Guðni apó-
tekari, Sigríður kaupkona og Sigur-
jón myndhöggvari, Ólafsson.
Gísli hóf vinnu við trésmíðar eft-
ir ferminguna, en fór síðan í bakarí-
ið á Eyrarbakka. Þaðan fór hann
til Reykjavíkur og nam þar bakara-
iðn hjá Valdimar Petersen. Sveins-
prófi lauk hann 1920. Hann vann
næstu 3 ár í Bjömsbakaríi. Bakara-
meistari í Reykjavík var hann á
ámnum 1923 til 1963, eða í 40 ár.
Hann rak bakarí sitt fyrst að Þing-
holtsstræti 23, en síðustu árin að
Bergstaðastræti 48. Eftir það gerð-
ist hann starfsmaður Landsbanka
íslands og kennari við Verknáms-
deild bakaranema við Iðnskólann í
Reykjavík, allt til ársins 1976. Við
verknámsdeild bakara vann hann
brautryðjendastarf og tók saman
þætti um efnisfræði fyrir bakara.
Það er á þessum ámm sem undir-
ritaður kynnist Gísla persónulega.
í Landsbankanum var hann hægri
hönd Jóns Leós. Það var einstaklega
gott að njóta þjónustu þessara
manna, hinn mannlegi þáttur og
trúnaðartraust í hávegum haft.
Hans góða rithönd kom sér vel í
þvýstarfi.
Á uppvaxtarámm Gísla var á
Eyrarbakka mikið menningarlíf.
Þama var eina verslunarplássið
austan fjalls á þeim ámm. Danskir
kaupmenn ráku þar verslun mann
fram af manni og bar sú síðasta
nafnið Lefolisverslun. Bændur
komu úr nærsveitum og lögðu inn
ull og tóku síðan út vömr. Biðröð
myndaðist oft á tíðum, það tók jafn-
vel 2—3 daga að fá afgreiðslu. Vín
var selt í versluninni, það var því
lítið annað að gera en að drekka
brennivín meðan beðið var eftir
afgreiðslu. Upp úr aldamótunum
var stofnuð Góðtemplararegla á
Eyrarbakka og kom hún því til leið-
ar að hætt var að selja vín þar.
Gísli gekk í barnastúku og „þóttist
maður að meiri“ eins og hann segir
í endurminningum sínum er út
komu á vegum Iðnskólaútgáfunnar
1987.
Auk þeirra starfa, sem hér að
framan er getið, gaf hann sér tfma
til að sinna félagsmálum stéttar
sinnar og iðnaðarmanna. Hann
gekk í Iðnaðarmannafélagið í
Keykjavík 1925, var í stjórn félags-
ins á ámnum 1952—62, fyrst sem
vararitari, síðan sem ritari. Gísli
hafði styrka og góða rithönd, sem
áður er getið, góðan smekk fyrir
uppsetningu og kom öllu vel til
skila, sem sagt var á fundunum.
Hann var heilsteyptur í skoðunum
og einarður um allt er varðaði
menntunarmál iðnaðarmanna.
Hann gengur einmitt til liðs við
Iðnaðarmannafélagið þegar um-
ræður stóðu sem hæst um nýja iðn-
löggjöf og lög um iðnaðarnám. En
þau vom samþykkt 1928. í riti sem
gefíð var út á sl. ári, á 120 ára
afmæli Iðnaðarmannafélagsins, er
viðtal við Gísla, þar sem hann rekur
þessi mál öll skilmerkilega. Hann
var gerður að heiðursfélaga og
sæmdur gullmerki Iðnaðarmanna-
félagsins 1967. Gísli var í stjóm
Bakarameistarafélags Reykjavíkur
í 22 ár þar af formaður í 18 ár, á
ámnum 1943—62. Fulltrúi félags-
ins á Iðnþingum var hann um 30
ára skeið. Hann var gerður að heið-
ursfélaga og sæmdur gullmerki fé-
lagsins 1960. Þá var hann sæmdur
gullmerkjum félagssamtaka bak-
arameistara í Finnlandi og Svíþjóð
1978. Á þessu ári var hann sæmd-
ur riddarakrossi hinnar íslensku
fálkaorðu.
Árið 1923 kvæntist Gísli Kristínu
Einarsdóttur. Foreldrar hennar
vom hjónin Einar Einarsson, versl-
unarmaður í Reykjavík og Anna
M.S. JÓnsdóttir frá Ártúni við Hofs-
ós, Skagafírði. Frá því að ég kynnt-
ist Gísla hafa þau hjón búið á Berg-
staðastræti 48 hér í borg. Mér em
ennþá minnistæðar móttökumar á
75 ára afmæli Gísla, er við félagar
hans úr Iðnaðarmannafélaginu
heimsóttum þau hjón. Þar er útsýni
fagurt til suðurs, líkt og frá
Toyota Carina II er bíll í algerum sérflokki fjölskyldubíla.
Sparneytni og feikigott rými eru aöalsmerki þessa sportlega bíls.
Með nýju 16 ventla vélinni er krafturinn og snerpan meiri en áöur.
Carina II er bíll fyrir athafnasaman lífsstíl nútíma fjölskyldu.
Carina II er fáanlegur í 5 dyra Liftback-útgáfu, XL- og GL-gerö.
Og verðið er mjög gott:
Verðfrá kr. 829.000,-*
eins og íþróttafrömuðir sögðu á
uppvaxtarámm Gísla. Hann lætur
sig ekki vanta þegar boðað er til
funda eða skemmtiferða í Iðnaðar-
mannafélaginu.
Á sl. sumri fór félagið um
bemskustöðvar hans, Eyrarbakka
og opnaði hann þá hús sitt þar fyr-
ir okkur. Við þökkum Gísla fyrir
mikið og farsælt starf fyrir iðnaðar-
menn. Við væntum þess að mega
sjá hann sem oftast á samkomum
okkar iðnaðarmanna.
Á þessum tímamótum vil ég fyr-
ir hönd Iðnaðarmannafélagsins í
Reykjavík færa Gísla og ijölskyldu
hans heilla- og hamingjuóskir.
Gissur Símonarson
Gísli og kona hans, frú Kristín
Einarsdóttir, taka á móti gestum í
fundarsal Iðnaðarmannahússins,
Hallveigarstíg 1, kjallaranum á
morgun, afmælisdaginn kl. 16—19.
' Verö getur breyst án tyrirvara.
TOYOTA
TOYOTA
FjOLVENTLA
VÉLAR
bemskustöðvum Gísla á Eyrar-
bakka. Kristín bjó manni sínum
einkar smekklegt heimili. Kristínu
og Gísla varð þriggja bama auðið,
þau eru: Anna, kennari við Iðnskól-
ann í Reykjavík í bóklegum fögum
fyrir bakara og kjötiðnaðarmenn,
Einar Ólafur, flugstjóri og Erlingur
Gísli leikari við Þjóðleikhúsið.
Á yngri árum lagði Gísli stund á
fímleika, hann var í sýningarflokki
ÍR er fór til Norðurlanda 1927, og
sýndi þar fímleika í mörgum borg-
um. Þá var hann í lúðrasveitunum
Gígjunni og Hörpunni, sem síðar
sameinuðust.
Kynni okkar Gísla hafa verið
góð, hann ber aldurinn vel, er ung-
ur í anda, hógværð og prúðmennska
em honum í blóð borin, það má
segja að þar fer heilbrigð sál í
hraustum líkama þar sem Gísli fer,
NÝJAR LINUR
MEIRA AFL!