Morgunblaðið - 10.06.1989, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 10.06.1989, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 1989 Morgunblaðið/Ami Helgason Flotbryggja í Stykkishólmi Hafnaraðstaðan er ailtaf að batna hér og nú er komin flot- bryggja sem leysir vanda ferðafólks og annarra við að komast í bátana hvort sem er á flóði eða fjöru, en hér er mismunur flóðs og fjöru gífurlega mikfll og líklega mestur á Iandinu. - Arni EFTA-EB: Fyrstu merki um sam- starf í menntamálum „Ástæða til að fylgjast grannt með samræm- ingu náms í EB,“ segir Sólrún Jensdóttir FJÖRKIPPUR er nú kominn í samstarf Fríverslunarbandalags Evrópu (EFTA) og Evrópubandalagsins (EB). Samskiptin fara vaxandi dag frá degi og nú er í uppsiglingu fyrsta samkomulag bandalaganna tveggja um samstarf á sviði menntamála. Mikill áhugi er á sem mestu sam- starfi innan EFTA og því að búa sig sem best undir fyrirsjáanlega samræmingu í skólamálum innan EB. Enn sem komið er eru þó engar reglur í gildi hjá EB sem torvelda námsmönnum frá EFTA-ríkjum aðgang að háskólum í EB. Liður í auknu samstarfi bandalaganna á þessu sviði er sú ákvörðun menntamálaráðherra EB frá 22. maí s.l. að veita EFTA-ríkjum aðgang að áætlun sem nefiiist Comett og lýtur að nýjungum á sviði rannsókna og tækni. Nokkuð hefur verið rætt um það hérlendis að æ erfiðara sé fyrir íslenska námsmenn að fá inngöngu í háskóla í Evrópubandalaginu. Sól- rún Jensdóttir, skrifstofustjóri í menntamálaráðuneytinu, segist hafa heyrt dæmi þess að íslenskum náms- mönnum hafi reynst erfitt að fá inn- göngu í skóla í Evrópubandalaginu. Sólrún hefur athugað hvaða reglur gilda um þessi efni hjá EB og í höfuð- stöðvum bandalagsins í Brussel fást þau svör að engar slíkar reglur séu fyrir hendi sem torvelda íslenskum námsmönnum að komast inn í há- skóla þar. Hins vegar segir Sólrún aukna samræmingu náms liggja í loftinu innan EB og full ástæða sé til að vera á varðbergi og fylgjast grannt með því að háskólar lokist ekki fyrir íslenskum námsmönnum. Sólrún á sæti í menntamálanefnd EFTA, sem undanfarið hefur átt við- ræður við embættismenn EB. „Hing- að til hefur lítið gerst annað en það að EFTA-löndin hafa lýst áhuga á þátttöku í tveimur verkefnum á veg- um EB, Comett-áætluninni, um nýj- ungar á sviði rannsókna og tækni, og Erasmus, sem fyrst fremst er ætlað að auðvelda stúdentaskipti. Undirtektir hafa verið jákvæðar í orði hjá EB en ekkert hefur verið formlega samþykkt fyrr en núna 22. maí að menntamálaráðherrar EB samþykktu að EFTA-ríki gætu feng- ið aðild að Comett-áætluninni." Að sögn Sólrúnar er það nú undir hveiju EFTA-ríki komið hvort af þátttöku í áætluninni verður. „Miðað við skilmálana varðandi þátttöku ís- lands í rammasamningi um samstarf við EB á sviði rannsókna og þróun- ar, þar sem gildir að við borgum til sjóðsins í hlutfalli við þjóðarfram- leiðslu, þá ætti kostnaður við aðild að Comett að vera óverulegur," seg- ir Sólrún. Hún tekur þó fram að enn sé mikii vinna eftir við að útfæra samkomulag EB og EFTA um þetta mál. VEÐURHORFUR í DAG, 10. JÚNÍ YFIRLIT í GÆR: Fyrir sunnan land er víðáttumikið lægðasvæði en yfir Norðaustur-Grænlandi er 1018 mb hæð. Áfram verður svalt við norður- og austurströndina, en annars staðar sæmilega hlýtt. SPÁ: Fremur hæg austlæg eða breytileg átt á landinu. Nokkuð bjart veður og sæmilega hlýtt víða vestanlands og norðan, þó þokuloft sums staðar við ströndina. Skýjað og öllu svalara um suðaustanvert landið, og líklega dálítil súld þegar iíður á daginn. I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á SUNNUDAG OG MÁNUDAG: Austlægir vindar. Rigning eða súld á Suðaustur- og Austurlandi og viða þoka við ströndina. Víða verður léttskýjað á vestanverðu landinu og í innsveitum norð- anlands. Svalt verður við austurströndina en fremur milt annars staðar. TAKN: Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Jliil Alskýiað x Norðan, 4 vindstig: * Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * * ■J 0 Hitastig: 10 gráður á Celsíus ý Skúrir * V El — Þoka = Þokumóða ’, ’ Súld OO Mistur —Skafrenningur ("7 Þrumuveður xn VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri 10 léttskýjað Reykjavík 10 skýjað Bergen 9 úrkoma Helslnki vantar Kaupmannah. 12 skýjað Narssarssuaq 9 skýjað Nuuk 1 alskýjað Ósló 16 úrkoma Stokkhóimur 17 léttskýjað Þórshöfn vantar Algarve vantar Amsterdam 16 skúr Barcelona vantar Berlín 18 skýjað Chicago 16 alskýjað Feneyjar vantar Frankfurt 19 skýjað Glasgow 13 skúr Hamborg 13 skýjað Las Palmas 23 léttskýjað London 16 skýjað Los Angeles 16 alskýjað Lúxemborg 15 skýjað Madrid 22 skýjað Malaga 22 léttskýjað Mallorca 26 léttskýjað Montreai 16 alskýjað New York 18 þokumóða Orlando 25 skýjað Þarís vantar Róm vantar Vín 20 léttskýjað Washington 21 rigning Winnipeg vantar Sjónvarpsþáttur um byggingu tónleikahús Á sunnudagskvöldið mun sjónvarpið sýna sérstakan tónlistarþátt gerðan til að vekja athygli á fyrirhugaðri byggingu tónlistarhúss hér á landi. Það eru þeir Valgeir Guðjónsson tónlistarmaður og Ágúst Guðmundsson kvikmyndagerðarmaður sem unnið hafa að þéssum þætti. Þátturinn ber heitið „Hljómgeisl- inn titrar“ og í honum koma fram fjölmargir kunnir tónlistarmenn hérlendis. Má þar nefna Kristján Jóhannsson, Sigrúnu Hjálmtýs- dóttur, karlakórinn Stefni, hljóm- sveitina Síðan skein sól og sérstaka sveiflusveit undir forystu Simons Kuran. Auk þessa mun Eggert Þorleifsson koma fram í þættinum sem „tenór“ í leit að tónlistarhúsi. Valgeir Guðjónsson segir að þátturinn hafi verið tekinn upp í Hljómskálanum en það er eina tón- listarhúsið á íslandi sem var byggt sem slíkt. Skoðanakönnun DV: 3 af hverjum 4 and- vígir ríkisstjóminni Sjálfstæðisflokkurmn fengi 47,7% atkvæða ef kosið væri í dag RÍKISSTJÓRN Steíngríms Hermannssonar nýtur fylgis tæplega fjórð- ungs kjósenda, samkvæmt skoðanakönnun sem Dagblaðið Vísir birti í gær. I könnuninni kváðust 23,6% þeirra, sem tóku afstöðu vera fylgj- andi sljórninni en 76,4 % andvígir henni. í skoðanakönnun sem DV gerði í mars naut ríkisstjórnin stuðnings 37,1% þeirra sem tóku af- stöðu en 62,9% lýstu sig andvíga henni. I könnuninni var einnig spurt um afstöðu manna til stjórnmálaflokkanna. 47,7 % þeirra sem afstöðu tóku sögðust mundu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, ef gengið væri til kosn- inga nú. í mars voru þeir 46% en í siðustu alþingiskosningum fékk flokk- urinn 27,2% atkvæða. Skoðanakönnun DV fór fram mið- vikudaginn 7. júní og fimmtudaginn 8. júní. Hringt var í 600 manna úr- tak, sem skiptist jafnt eftir kynjum og milli höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar. í skoðanakönn- uninni var spurt: Ertu fylgjandi eða andvígur ríkisstjórninni? 18,7 sögð- ust vera henni fylgjandi, 60,5% andvígir, 18,7% voru óákveðnir og 2,2% svöruðu ekki. Af þeim sem tóku afstöðu voru því 23,6% fylgjandi stjórninni en 76,4% henni andvígir. í könnun sem DV gerði í mars naut ríkisstjórnin fylgis 37,1% þeirra sem tóku afstöðu, en 62,9% voru henni andvígir. í skoðanakönnuninni var enn fremur spurt, hvaða framboðslista fólk myndi kjósa, ef kosningar færu fram nú. 4,2% sögðust myndu kjósa Alþýðuflokkinn, 9,7% Framsóknar- flokkinn, 24,5% Sjálfstæðisflokkinn, 4,0% Alþýðubandalagið, 0,3% Stefán Valgeirsson, 0,5% Flokk mannsins, 0,5% Borgaraflokkinn, 6,8% Kvenna- listann, 0,7% Þjóðarflokkinn, 0,2% Græningja, 45,2% voru óákveðnir og 3,5% svöruðu ekki. Fylgi Fijálslynda hægriflokksins mældist ekki í könn- uninni. Ef aðeins er litið til þeirra sem afstöðu tóku í könnuninni fær Al- þýðuflokkurinn 8,1% nú, fékk 8,0% í skoðanakönnun í mars en 15,2% í kosningunum 1987. Framsóknar- flokkurinn fær 18,8% nú, 17,8% í mars en í kosningunum 18,9%. Sjálf- stæðisflokkurinn fær 47,7% stuðning nú, fékk 46,0% í síðustu skoðana- könnun en fylgi hans í síðustu al- þingiskosningum var 27,2%. Al- þýðubandalagið fær 7,8% nú, fékk 10,1% í mars en 13,3% í kosningun- um. Stefán Valgeirsson fær 0,6% í þessari skoðanakönnun, fékk 0,3% í þeirri síðustu en 1,2% í kosningunum. Flokkur mannsins fær 1,0% nú, 0,3% í mars en 1,6% í kosningunum. Borg- araflokkurinn fær 1,0% nú, fékk 2,4% en í alþingiskosningunum 1987 10,9%. Kvennalistinn fær 13,3% fylgi nú, fékk 14,2% í mars en 10,1% í kosningunum. Þjóðarflokkurinn fær 1,3% nú, 0,9% í mars en 1,3% í kosn- ingunum. Græningjar fá 0,3% fylgi samkvæmt þessari könnun. Fylgi þeirra mældist ekki í mars og þeir buðu ekki fram í síðustu kosningum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.