Morgunblaðið - 10.06.1989, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 10.06.1989, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 1989 SUMARS TÆLL A SVOLUM mei óðýrari vönim (og mrn) Ettirtalðar mslanir ttata apnai á 2. hæi (srölnm) Kiötmiistnrarinnar íBariabæ. VMMRMQTI Brantryiieniur á llestum sriium. íþrnttararnr, spnrtrnrnr, pallar, sknr, boltarn.il. KRAlÁTKAR Barnalatnaiur aí bestu peri S Barna- ug úumulatnaiur M Fleiri verslm om ínæstu vitoi. HJÁ OKKUR SÉRÐU VERÐ SEM PYNGJAN ÞOLIR. Opió alla helgina: Laugardag frá kl, 9-18 Sunnudag frá kl. 11-18 Útigrill ef sólin skín KJÖTMIÐSTÖÐIN GARÐABÆS. 656400 Morgunblaðið/Einar Falur Frá stofnun safhaðarfélags Grafarvogssóknar í félagsmiðstöðinni Fjörgyn í Foldaskóla á mánudagskvöld. Talið frá vinstri: Kolbrún Ingólfsdóttir, sem kosin var ritari safnaðarstjórnar, séra Olafur Skúlason og séra Guðmundur Þorsteinsson. Safiiaðarfélag stofti- að í Grafarvogssókn SAFNAÐARFELAG var stofhað í nýrri Grafarvogssókn á mánu- dagskvöld. Fjögur til 5 þúsund manns eru í söfhuðinum í Grafar- vogi, að sögn Agústs Isfelds Sig- urðssonar, formanns safhaðar- stjórnar. Agúst Isfeld sagði í samtali við Morgunblaðið að íbú- ar í Grafarvogi hefðu tilheyrt Arbæjarsókn og íbúar í sókninni hefðu verið orðnir 12 þúsund talsins. Hann sagði að séra Guð- mundur Þorsteinsson, sóknar- prestur í Arbæjarprestakalli, yrði prestur Grafarvogsbúa fyrst um sinn. Ágúst ísfeld sagði að óvíst væri hvenær prestskosningar færu fram í Grafarvogi. Hann sagði að ekki væri búið að ákveða hver teiknaði kirkju Grafarvogsbúa, eða hvar hún yrði byggð. „Hins vegar er mikill áhugi fyrir því að kirkjan verði náiægt kirkjugörðunum og að út- fararkapella tilheyri henni,“ sagði Ágúst ísfeld. Hann sagði að prestur Grafarvogsbúa hefði væntanlega bráðabirgðaaðstöðu í félagsmið- stöðinni Fjörgyn í Foldaskóla. Ritari safnaðarstjórnar Grafar- vogssóknar er Kolbrún Ingólfsdóttir en gjaldkeri stjórnarinnar er ívar Björnsson. Safnaðarfulltrúi er Val- gerður písladóttir og í stjórn kirkju- garða er Hanna Baldvinsdóttir. Skógræktarfélög halda skógardag HINN árlegi skógardagur sem skógræktarfélögin hafa haldið undanfarin ár verður haldinn í dag, laugardaginn 10. júní. Til- Iaga um að halda slíka skógar- daga var samþykkt á aðalfundi Skógræktarfélags íslands fyrir nokkrum árum og hafa mörg aðildarfélögin markað þann dag hvert með sínu sniði. Vegna hins óvenjulega veður- fars í vor má reikna með að mörg félög um norðanvert landið ákveði að halda þennan dag siðar. Víða hafa félögin gróðursett tijáplöntur og bryddað uppá ein- hvetju skemmtilegu eftir að plönt- ur eru komnar í jörð. Önnur félög hafa kynnt starfsemi sína á einn eða annan hátt. Viðleitni skóg- ræktarfélaganna með þessum degi er að kynna störf félaganna, auka áhuga og miðla fróðleik til áhugafólks og almennings um hin ýmsu þætti er tengjast skóginum. Víða hafa skógræktarfélögin bryddað upp á einhveiju skemmti- legu eftir að plöntur hafa verið Skagaströnd: settar niður og hafa þær uppá- komur fallið vel í geð hjá ungu kynslóðinni. Sjúkrahúss- læknar semja LAUSRÁÐNIR sjúkrahúss- læknar samþykktu einróma nýgerðan kjarasamning við ríki og borg á mánudags- kvöld, að sögn Sverris Berg- manns formanns samninga- nefiidar Læknafélags ís- lands. Samningurinn kveður meðal annars á um 3,1% hækkun 1. júní 1989, 2% hækkun 1. júlí ’89 og 1,5% hækkun 1. septem- ber ’89, 1. nóvember ’89, 1. janúar 1990 og 1. maí ’90 en samningurinn gildir út þann mánuð. Orlofsuppbót í júní 1989 er 6.500 krónur og des- emberuppbót ’89 er 30% af ákveðnum launaflokki BHMR, að sögn Sverris Bergmanns. Adolf J. Berndsen seg- ir af sér oddvitastörfum Skagaströnd. ADOLF J. Berndsen, oddviti Höfðahrepps undanfarin ár, sagði af sér embættinu á fúndi hreppsneíhdar 5. júní síðastlið- inn. Á fundinum gerði Adolf grein fyrir ákvörðun sinni og samdægurs sendi hann greinar- gerð sína til allra íbúa Skaga- strandar. í greinargerðinni kemur fram að undanfarin kjörtímabil hafa Al- þýðuflokkur og Sjálfstæðisflokkur gert með sér samkomulag við upp- haf hvers kjörtímabils um oddvita- kjör og fleira. Á síðasta ári sleit fulltrúi Alþýðuflokksins samstarf- inu og myndaði nýjan meirihluta með fulltrúum Framsóknarflokks og Alþýðubandalags. Lagði nýi meirihlutinn áherslu á að Adolf segði af sér oddvitastarfinu, en hann neitaði og fékk úrskurð fé- lagsmálaráðuneytis um að hann gæti gegnt embættinu til loka kjörtímabilsins. í greinargerð Adolfs kemur einn- ig fram að núverandi meirihluti hafi gert eðlileg starfsskilyrði odd- vita að engu með ýmsum sam- þykktum og bókunum. Því segi hann af sér oddvitastörfum. Nýr oddviti var kjörinn Magnús B. Jónsson, fulltrúi Framsóknar- flokks í hreppsnefnd. OB

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.