Morgunblaðið - 10.06.1989, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 10.06.1989, Blaðsíða 10
10 .MÓRdéNBLAÍÐIÐ LAUGARDÁGÚk' T0.: JÚNÍ 'ÍÖ89 Ljóða-„gæðingnr “ fer á kostum eftír Gunnar Bjarnason Ljóð margra skálda hafa hrifíð mig allt frá bemsku, en langt í frá allra. Síðustu árin les ég öll ljóð nýgræðinga, sem birtast reglulega í lesbók Morgunblaðsins. Eg var lengi að sætta mig við órímuðu ljóð- in, en Steinn Steinarr og Matthías Johannessen kenndu mér að sætta mig við þetta Ijóðform, af því að þeir eiga skáldgáfuna tæra úr Mímisbrunni. Nokkuð mörg ár eru liðin síðan ég fór að veita eftirtekt ljóðum ungrar stúlku, oftar órímuðum. Mér fannst hún strax í ætt við Steinar og Matthías, vin minn. Nú hef ég fengið ljóðakver hennar í hendur, og þar finnst mér fara á kostum ómengað skáld, sem hefur fuilt vaid á leik orðanna, skáldlegum myndum innan og utan sálar sinnar og annarra og tilfinningu svo mikla, að oft er sem blæði. Ég er hestadómari og dæmi þá bæði eftir kostum og ættum. Eg hneigist til að dæma menn með sams konar hætti, ef mér finnst þeir vera dóms verðir. Þegar ég nú skoða ættstofnana, sem að þessari 77/ hvers adyrkja lilnd sjó amiað anólit. li/að slöðva timann. tilað fanga orð. lilað bjarga ekki heiiniiium. tilað týna inerkingu, tilað bjarga hugsim, lilað ,Jarga niinningu tilað vera á eyðieyju, lilað leika leik, lilað g/ala hjartanu, tilað varðveila tilfinningu, tilað tyna Ijóði. li/aðJinna henditr. ti/að vita ekki hversvegna. tilaðyrkja ungu skáidkonu standa, skáld og gáfnafólk í allar áttir, og legg það saman við árangurinn í ljóðakveri hennar, þá segi ég fyrir mig og mitt vit: Hér er gæðingur á ferð! Höfundur er útílutningsráðunaut- urFélags hrossabænda. Timburhús í Hafnarfirði Nýkomið í einkasölu fallegt hús við Vesturbraut, hæð, kjallari og ris, alls 136 fm. Húsið er í góðu ástandi og alltaf vel um það hirt. Aðalhæð 3 herb., eldhús, for- stofa og bað, í risi 2 herb. Kjallari undir öllu húsinu. Tvöfalt verksmiðjugler. Laust strax. Opiðídag Árni Gunnlaugsson hrl., frákl. 12-16 Austurgötu 10, sími 50764. 2ja herb. íbúð til sölu 75 fm ósamþykkt íb. með sérinngangi, þvottaherb. ásamt garði á góðum stað í Seljahverfi. Laus í ágúst. Allar nánari upplýsingar á skrifstofunni. EIGIMASAUN REYKJAVIK Ingólfsstræti 8 Sími 19540 og 19191 Magnús Einarsson 911^0 01Q7n LÁRUSÞ.VALDIIVIARSSONframkvæmdastjori L I I UU ” L I Ú / U KRISTINN SIGURJÓNSSON, HRL. lögg. fasteignas. Til sölu er að koma meðal annarra eigna Úrvalsíbúð í lyftuhúsi Suðuríbúð 3ja herb. á 4. hæð við Þangbakka. Vel skipulögð af meðal- stærð. Stórar sólsvalir. Ágæt sameign. Útsýni. íbúðin er öll eins og ný. 2ja herb. ný íbúð vestast í gamla Vesturbænum. Á 2. hæð 52,7 fm. íbhæð ekki fullg. Góð lán fylgja. Á vinsælum stað í Vesturborginni Mikið endurn. járnkl, timburhús á steyptum kj Hæðin: Forstofa, nýtt bað, eldhús, borðstofa, stofa. í risi: 3 herb. í kj.: 1-2 herb., þvottah. og geymslur. Gólffl. samtals 151,4 fm nettó. Góð lóð m. bílskrétti. Verð aðeins kr. 7,4-7,6 millj. Teikn. á skrifst. Góðar 3ja og 4ra herb. íbúðir m.a. við Rofabæ, Hraunbæ, Sporhamra, Maríubakka, Langholtsveg, Sólvalla- götu, Barónsstíg, Vesturberg, Álftahóla og Ljósheima. Vinsamlegast kynn- ið ykkur nánari uppl. Fyrir hina vandlátu 3ja og 4ra herb. óvenju stórar íbúðir í smíðum við Sporhamra í 6-íb.fjölb- húsi. Öll sameign fullg. ib. frág. u. trév. Sérþvottah. og bílsk. Byggj- andi: Húni sf. Vinsamlegast kynnið ykkur teikn. og hagkvæm greiðslukj. í borginni og vinabænum Kópavogi Þurfum að útvega m.a. góðar einstaklings- eða 2ja herb. íbúðir fyrir trausta kaupendur. Hagkvæm skipti Til kaups óskast 3ja herb. góð íb. með útsýni, helst í lyftuhúsi við Fannborg eða Hamraborg. Skipti mögul. á góðu raðh. rétt við miðb. í Kóp. m. rúmg. bíisk. Nánari uppl. trúnaðarmál. Opiðfdag kl. 10.00-16.00. Viðskiptum hjá okkur fylgir ráðgjöf og traustar uppiýsingar. ALMENNA FASTEIGNASAt AM LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370 ÉömgDsLtííiáD Umsjónarmaður Gísli Jónsson 490. þáttur Stundum er sagt að síðari villan verði argari hinni fyrri, og þykir að vonum ekki gott. Stundum verða menn svo ákafír leiðréttend- ur, að þeir gá sín ekki og „leið- rétta“ þá það sem rétt var fyrir. Þvílíka athöfn nefna útlendingar hypercorrection. Eigum við ekki bara að kalla það ofréttingu? Halldór Laxness sagði frá Vest- fírðingi nokkrum sem vildi leið- rétta framburðinn rd í rð (hardur- >harður) eins og fiestir sögðu. Honum hafði verið uppálagt að segja garður, en ekki „gardur", svo annað dæmi sé tekið. Nú fór svo, að Vestfírðingurinn hitti ekki alltaf á rétta staði í leiðréttingun- um. Einu sinni sagði hann: „það varð hardur barðagi." En það er ofrétting, þegar samsetta orðinu bardagi er breytt í „barðagi“, enda þótt við segjum garður, harður og varð, en ekki „gard- ur“, „hardur“ og „vard.“ Tökum fleiri dæmi ofréttingar. Sunnlendingum, sem reyna að temja sér harðhljóðaframburðinn norðlenska, hættir til að hafa p,t, og k fráblásin víðar en vera ber, t.d. í orðunum: hesturinn heltist. Það væri einnig ofrétting, ef Norðlendingur, sem reyndi að taka upp sunnlenskan hv-fram- burð, bæri eins fram upphafs- hljóðið í fleirtölu af hvalir og kvöl. Ég riija þetta aðeins upp vegna þess, að ég er ekki grunlaus um að fólk sé tekið að forðast þágu- fall of mikið. Það gætu verið áhrif frá baráttu gegn „þágufallssýki", en það orð minnir reyndar leiðin- lega á Iimafallssýki og niður- fallssýki. Eigum við að athuga hvers vegna þágufall heitir svo? Gleym- um við því ekki stundum? En við skiljum það undir eins. Þágufall táknar í hvers þágu (eða óþágu) eitthvað verður. Latínumenn tala um dativum commodi (þæginda- fall) og dativum incommodi (óþægindafall) í þessu sambandi. I Hávamálum segir: Gráðugur halur, nema geðs viti, etur sér aldurtrega. Þama er sér heldur en ekki óþægindafall. Gráðugur maður étur (handa) sér dauða, nema hann hafi stjóm á löngun sinni, m.ö.o. étur sig í hel. í Gylfaginningu Snorra er aftur alfrægt dæmi um þægindafall (dat. comm.). Gangleri spyr fávís- lega að vanda sínum og þess m.a. hvort Einheijar drekki vatn í Val- höll. Hár segir: „Annað kann eg þér þaðan segja. Geit sú, er Heið- rún heitir, stendur uppi á Valhöll og bítur barr af limum trés þess, er mjög er nafnfrægt, er Léraður heitir, en úr spenum hennar renn- ur mjöður sá, er hún fýllir skap- ker [drykkjarámu] hvem dag. Það er svo mikið að allir Einherjar verða fulldrukknir af.“ Þá mæiti Gangleri: „Það er þeim geysihaglig geit.“ Mér fínnst ástæða til að óttast um þetta gamla, góða þágufall. Það var því gaman að sjá hér á baksíðu blaðsins miðvikudaginn 24. maí [Af hveiju má ekki staf- setja mæ?] síðast liðinn fréttabréf frá Ólafsvík, undirritað Helgi. Þar stóð um aflasælan mann: „því að honum vill allt á skip.“ Sem sagt, gott. Þarna er þægindafallið (honum) í fullu gildi og mættu fleiri nota. Mér hlýnar innan í mér við þetta. Fleira var snjallt í þessari fréttagrein, m.a.: „Og nú riðu stórir í skörðunum." Hvað þýðir það annars í ykkar málvitund? Viljið þið láta mig vita? ★ Kjartan Ragnars í Reykjavík skrifar mér svo: „Heill og sæll, Mér þótti þú ekki taka nógu vel tillögu minni um framburð erlendra nafna; þó virtist þú sam- mála í meginatriðum. Það er sjálfsagt rétt að ekki sé kostur einhlítrar, algildrar reglu um þetta efni, enda hljóta menn þá að meta einstakt tilvik, — er það nokkur frágangssök? Engum dettur í hug að breyta t.d. Adolf í Auðólf o.s.frv. En það virðist jafn fráleitt að segja t.d. Tommas í stað Tómas, Sjors í stað Georg o.s.frv. Það hvarflaði aldrei að mönnum hér heima að segja „Sjors“ um Georg heitinn Bretakonung, þeg- ar hann var og hét. Er þá ekki rétt að sami háttur sé á hafður um nafna hans í Hvíta húsinu?" Ég þakka Kjartani bréf hans fyrr og síðar, vísa til 487. þáttar og æski álits ykkar. ★ Jónas Hallgrímsson orti Dal- vísu og þar er þetta erindi: Bunulækur blár og tær! bakkafögur á í hvammi! Sólarylur, blíður blær, bunulækur fagurtær! yndið vekja ykkur nær allra best í dalnum frammi, bunulækur blár og tær! bakkafögur á í hvammi! Og nú spyr ég ykkur: Er nokk- ur vafi á því, hvaða orðflokkur nær muni vera? Þið megið gjam- an senda mér svar við þessu. Hlaðgunnur héðan kvað: Alltaf leita til laupanna hrafnar, og ég læt þér í staup, Anna Rafnar, sagði Lí Pó frá Kína við lagskonu sína, er þau komu til Kaupmannahafnar. I tileftii hreinsunarátaks Ungmennafélags Islands Það er mér sönn ánægja, sem samgöngu- og landbúnaðarráð- herra og þó ekki síður sem ung- mennafélaga, að hvetja landsmenn til góðrar þátttöku í því hreinsun- arátaki sem Ungmennafélag ís- lands stendur fyrir um þessa helgi. Óþarft er að fara mörgum orðum um ágæti þessa verkefnis, en eins og landsmönnum öllum er kunnugt þarf þjóðin að taka sér tak í betri umgengni við landið, þ. á m. að gæta þess að henda ekki msli og öðrum úrgangi með þjóðvegum. Slíkt hæfir hvorki fallegu landi né þjóð sem vill laða til sín ferðamenn. Með átaki ungmennafélaga er skorin upp herör gagnvart sóðaskap og jafnframt skorað á vegfarendur neytisins er hafið átak þar sem hvatt er til hreinsunar á jörðum í öllum sveitarfélögum landsins. Við- brögð við því verkefni eru mjög jákvæð og má vænta að eftir sumar- ið hafi umhverfi þeirra tekið stakka- skiptum til hins betra. Þegar við bætist að ungmennafélagar ætla nú að hreinsa meðfram 3-5 þús. km af vegakerfi landsins en ég sannfærður um að landið okkar muni verða fallegt á að líta. Um leið og ég hvet landsmenn alla til betri umgengni við landið vil ég láta þá ósk í ljós að ung- mennafélagshreyfingunni gangi vel í þessu stóra og verðuga verkefni. Hafí hún þökk fyrir. Steingrímur J. Sigfíisson Arnarflug byrjar áætl- unarflug til Genfar að hugsa áður en þeir henda. Fyrir forgöngu landbúnaðarráðu- ARNARFLUG hefiir fengið samþykki svissneskra stjórn- Samtök ungra ökumanna verða stofnuð í dag KLÚBBUR 17, hagsmunasamtök ungra ökumanna sem ætlað er að vinna gegn umferðarslysum einkum meðal ungs fólks, verður stofnaður í Bíóborginni við Snorrabraut í dag, laugardag klukkan 14. Flutt verða stutt ávörp og hljóm- sveitir, meðal annars Risaeðlan, Síðan skein sól og Fjörkallar, koma fram. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir, einkum 17-20 ára öku- menn. Hópur ungs fólks hefur unn- ið að undirbúningi stofnunar Klúbbs 17, ásamt Umferðarráði og ung- mennahreyfínu Rauða krossins. valda fyrir áætlunarflugi til Genfar og hefst það 24. þessa mánaðar. Auk þess verður flog- ið áætlunarflug til Zíirich í Sviss, eins og undanfarin ár. Til Genfar verður flogið einu sinni í viku, á laugardögum og verður farið um Amsterdam. Til að byija með verður þetta flug aðeins að sumri til og verður til loka ágúst á þessu sumri. Arnarflug hefur gert samninga við ferðaskrifstofur í Sviss um flutninga á hópum, en einnig verða seldir farseðlar til einstaklinga, eins og á öðrum áætlunarleiðum félagsins. (Úr frcttatilkynningu.) Gódandaginn!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.