Morgunblaðið - 10.06.1989, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 10.06.1989, Blaðsíða 20
20 Afhjúpað- ur eftir 18 ár Daily Telegraph. Fyrir átján árum myrti John List, efnaður gjaldkeri í New Jersey-ríki í Bandaríkjunum móður sína og alla fjölskyldu og fór þar næst í felur eftir að hafa skilið eftir sig bréf þar sem hann játaði á sig glæpinn. Nýlega var sýnd í sjónvarps- þætti mynd sem listamaður hafði búið til með aðstoð tölvu og gamalla ljósmynda. Skyldi hún sýna hvernig Lást liti að líkindum út núna. Eiginkonu gjaldkera frá Richmond í Virg- iníu-ríki, er nefndi sig Robert Clark, fannst maður sinn ótrú- lega líkur myndinni og skýrði lögreglu frá þessu. Fingraför hafa nú sannað að Clark og List eru einn og sami maðurinn og List verður dreginn fyrir rétt. Að ofan sjást gömul Ijós- mynd af List (t.v.) og mynd listamannsins. Breski Verka- mannaflokkurinn: Spáð sigri í EB-kosningum London. Reuter. Verkamannaflokkurinn breski fær, samkvæmt nýrri Gallup- skoðanakönnun, mun meira fylgi en íhaldsflokkurinn í kosningum til Evrópuþingsins sem verða 15. júní. Fylgi við flokkinn hefur ekki mælst meira í könnunum síðan 1981 og reyndist að þessu sinni 43,6 % en íhaldsmenn fengu 36,5% og Fijálslyndir demó- kratar um átta af hundraði. Græningjar skutust í fyrsta sinn upp fyrir Jafnaðarmanna- flokk Davids Owens og fengu 5,5%. Ein með öllu í Moskvu New York. Reuter. Sovétmenn hafa gert samning við fyritækið Nathans Famous í New York sem hyggst bjóða Moskvubúum pylsu með öllu, þ. á m. súrkáli, næstkomandi haust. Fyrirtækið hóf að selja New York-búum pylsur á Co- ney-eyju árið 1916 en eyjan var þá orðin vinsælt athvarf borgarbúa í sumarhitunum. Pylsubúð Nathans Famous verður til húsa í Gúm, risa- stóru verslunarhúsi við Rauða torgið. Á síðasta ári byijaði bandarískur kaupsýslumaður að selja Moskvubúum flat- bökur, öðru nafni pizzur. Nicaragua: Senda Noriega vopn Washington. Reuter. Bandaríska stórblaðið Was- hington Post hefur eftir stjórn- arerindrekum Nicaragua- stjómar í Panama og bánda- rískum sendimönnum að Nic- aragua hafa sent marga flug- vélafarma af vopnum til Pa- nama. Er talið að þau séu ætluð sérstakri hersveit sem Noriega hershöfðingi, helsti valdamaður Panama, kom á fót síðastliðið ár til að veijast mögulegri hemaðaríhlutun Bandaríkjamanna. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 19'89 Forsætisráð- herra E1 Salva- dor myrtur San Salvador. Reuter. JOSE Antonio Rodriguez Porth, forsætisráðherra E1 Salvadors, var skotinn til bana ásamt bílstjóra sínum og lífverði utan við heimili sitt í gær. Talið er að skæruliðar vinstrimanna hafi verið að verki. Rodriguez Porth sór embætti- seið sem forsætisráðherra fyrir nokkrum dögum í hægristjórn Alf- redos Cristianis forseta. í útvarpsfréttum frá höfuð- borginni, San Salvador, var sagt að ráðherrann hefði látist á sjúkra- húsi. Keuter Lech Walesa, leiðtogi Samstöðu (t.v.) og Bronislaw Garamak, hugmyndafræðingur samtakanna, við upphaf fundar með Czeslaw Kiszczazk, innanríkisráðherra, í fyrradag. Úrslit pólsku kosninganna ættu að festa umbætur í sessi - segir málgagn sovéska kommúnistaflokksins Moskvu, Brussel, Varsjá. Reuter. PRAVDA, málgagn sovézka kommúnistaflokksins, sagði i gær Jóhannes Páll páfi II. Páfi í Uppsölum: að kommúnistaflokkurinn í Póll- andi ætti ugglaust erfítt með að kyngja úrslitum þingkosninganna þar í landi. Þau staðfestu þó og festu í sessi þá umbótaþróun sem flokkurinn hefði átt frumkvæði að og beitt sér fyrir í Póliandi. Aust- ir-þýzkir fjölmiðlar fjölluðu fyrst í gær um kosningarnar og sögðu aðeins að ýmsir frambjóðendur stjórnarinnar hefðu ekki náð kjöri. Pravda sagði að pólski kommúni- staflokkurinn ætti hrós skilið fyrir þær pólitísku og félagslegu umbætur sem hann hefði staðið fyrir. Engin ein pólitísk samtök gætu unnið landið út úr aðsteðjandi erfiðleikum ein og sér. „Það sem upp úr stendur er vöxtur og áhrif stjórnarandstöðunn- ar, einkum og sér í lagi verkalýðs- samtakanna Samstöðu," sagði í um- fjöllun Prövdu um pólsku kosning- arnar, sem fram fóru sl. sunnudag. „Hversu bitur sem úrslitin kunna að vera fyrir flokkinn og stjórnina þá ættu þau að flýta og festa í sessi félagslega endurreisn og róttækar umbætur sem eiga sér stað í Póll- andi,“ sagði Pravda. Leiðtogar Samstöðu féllust í fyrra- kvöld á tillögur pólsku stjómarinnar um að hún skipaði í 33 þingsæti, sem ætluð voru frambjóðendum komm- únistaflokksins, en gengu ekki út sl. sunnudag, þar eð enginn þeirra hlaut 50% atkvæða. Fulltrúar Samstöðu sögðu eftir átta stunda fund með Czeslaw Kiszczak, innanríkisráð- herra, sem var einn frambjóðenda til sætanna umræddu, að fallist hefði verið á tillögur stjómarinnar til þess að frekari umbótum yrði ekki stefnt í hættu. Lech Walesa, leiðtogi Samstöðu, kvaðst í gær ekki geta útilokað það að einhveijir fulltrúar samtakanna tækju þátt í myndun samsteypu- stjórnar. Komu þessi ummæli hans nokkuð á óvart því fram til þessa höfðu talsmenn Samstöðu sagt að fulltrúar samtakanna á þingi vildu ekki ganga í stjórn með kommúnist- Þjóðfélagið verji lífsréttinn Uppsölum. Frá Önnu Bjamadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins. maður með skjalið að páfa og var aðeins um 10 metra frá honum er DÓMKIRKJAN í Uppsölum var þéttsetin í gærmorgun þegar Jóhannes Páll II páfi tók þátt í síðustu samkirkjulegu bæna- stundinni í Norðurlandaferð sinni. Bertil Werkström, erkibis- kup, talaði skýrt en kurteislega um atriði sem standa í vegi fyrir sameiningu kirknanna. Jóhannes Páll páfi II tók undir ósk hans um að deilumálin yrðu leyst en sagði að ekki mætti sameinast um lágmarks samnefhara heldur ætti að setja markið hátt. Það fór vel á með biskupunum; gullfalleg tónlist fyllti kirkjuna og hátíðar- blær var yfir bænastundinni. Páfi talaði um menntun og helgi mannlífsins á fundi með háskóla- samkundunni í Uppsölum en Sixtus páfí IV gaf Jakobi Úlfssyni erki- biskupi heimild til að stofna há- skóla þar árið 1477. Rómarbiskup sagði það helstu skyldu þjóðfélags- ins að veija réttinn til að lifa. Hann sagði líf verða til við getnað og endast til náttúrulegs dauðadags. Orð páfa gegn fóstureyðingum voru afdráttarlausari í Uppsölum en í öðrum ávörpum hans í Norður- landaferðinni. Veðrið í Uppsölum í gær var svalt en bjart og fallegt. Páfi söng messu undir berum himni á Gamla Uppsala-svæðinu og sóttu hana færri en búist hafði verið við; um 5.000 manns. Nokkrir félagar í sér- trúarsöfnuði hafa reynt að afhenda páfa mótmælaskjal hvarvetna þar sem hann hefur látið sjá sig í Svíþjóð. Við útimessuna hljóp ungur Páfi syngur messu með ungum kaþólikkum frá öllum Norðurlönd- lögreglumönnum tókst að hand- unum í Vadstena í dag, laugardag, sama hann. áður en hann flýgur heim á leið. Bandaríkja- dalur styrkist Lundúnum, Reuter. Bandaríkjadalur steig mjög í verði _ á gjaldeyrismörkuðum í gær. Ástæðan er talin hagskýrsla, sem birt var vestanhafs, en hún gaf til kynna að verðbólga væri enn fyrir hendi í bandarísku hag- kerfi. I gær fengust rúm 2 vestur- þýsk mörk fyrir dalinn. Samkvæmt tölum Atvinnuráðu- neytis Bandaríkjanna reis fram- leiðsluverðsvístala um 0,4% í maí- mánuði, en sú vísitala er mælikvarði þess verðs, sem heildsalar greiða fyrir vaming sinn. Þetta kann að verða Þrándur í Götu fyrir Seðlabanka Banda- ríkjanna, sem reynt hefur að lækka vexti innanlands. Tiltölulega háir vextir, sem af er þessu ári, hafa gert Bandaríkjadal eftirsóknarverð- ari gjaldmiðil og að undanfömu hef- ur ólgan í Kína orðið til hins sama. Talið er að staða dalsins verði sterk enn um sinn, þar sem áðurnefndar forsendur munu að líkindum ekki breytast að ráði. AF ERLENDUM VET7VANGI eftir PAL ÞÓRHALLSSON Verður glasnost í askana látið? Samkvæmt skoðanakönnun sem vestur-þýska vikuritið Der Spieg- el gerði nýlega í Sovétríkjunum telja 76% Moskvubúa að almenning- ur muni hætta að styðja perestrojku, umbótastefnu Míkhaíls Gor- batsjovs Sovétleiðtoga, ef framboð í verslunum eykst ekki. Könnunin var gerð af því tilefni að Gorbatsjov er væntanlegur til Vestur- Þýskalands í næstu viku. Búist er við að hann muni í ferð sinni leita eftir hjálp hjá Þjóðveijum við að rétta efhahagslíf Sovétríkjanna við. Ólíklegt er að gesturinn fari bónleiður til búðar því samkvæmt umræddri skoðanakönnun er Gorbatsjov vinsælli í Vestur-Þýska- landi en heima fyrir! Sovétmenn virðast þeirrar skoð- i 'unar að glasnost verði ekki i askana Iátið. Hagfræðiprófessorinn Pavel Búnitsj orðaði ástandið svo: „Við eigum heimsmet í ýmsu eins- og til dæmis fjölda tilskipana, lengd biðraða, fjölda einstaklinga sem hlaupa um með tómar töskur í leit „Glasnost“-spilið er ein af þeim sovésku vörum sem eru í tísku vestanhafs. að einhveiju sem vert er að kaupa, en rúmmál loftsins sem kemst fyrir í töskunum slær þó allt annað út.“ Smám saman gera menn sér grein fyrir því að framleiðsluaukning er ekki sjálfgefið markmið sovésks efnahagslífs. Miklu fremur er þörf aukinna gæða og meira úrvals. Þetta sjá menn þegar þeir hugleiða t.d. að einungis fjórðungur kartöflu- uppskerunnar í Sovétríkjunum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.