Morgunblaðið - 10.06.1989, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 10.06.1989, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 1989 19 10km HRINGUR Skcgsrhlið, Hringbraut, Kaplaskjólsvegur, Frostaskjól, Kellu- grandi, Eiðisgrandi, Ánanaust, Mýrargata, Tryggvagata, Skúlagata, Rauðarárstigur, Miklabraut, Langahlið, Litlahlið og Skógarhlíð. 10 igK HRINGUR 4 km HRINGUR Skógarhlíð, Hringbraut, inn i Hljómskálagarð, J Sóleyjargata, Njarðargata, Vatnsmýranregur, ‘ Flugvallarbraut, Flugvallarvegurog Skógarhlíð, HEILSUHLAUP KRA BBA MEINSFÉLA GSINS RASMARK v/hús Krabba- meinsfélagsins v/Skógarhlíð Heilsuhlaup Krabbameinsfélagsins haldið íannað sinn KRABBAMEINSFELAG Islands efhir til Heilsuhlaups í Reykjavík í dag, laugardaginn 10. júní. Hlaupið hefst kl. 12.00 á hádegi við hús félagsins að Skógarhlíð I Reykjavík og geta þátttakendur valið milli þess að hlaupa 4 eða 10 kílómetra. Þetta er í annað sinn sem Krabbameinsfélagið efnir til hlaups af þessu tagi. Heilsuhlaupið er að þessu sinni haldið í tengslum við „íþróttadag fjöl- skyldunnar". Það er styrkt af Mjólkurdagsnefnd og verður þátttakendum boðið upp á mjólkur- drykki á hlaupaleiðinni. Þátttökugjald í Heilsu- hlaupinu er 400 krónur og fer skráning fram á skrifstofu Krabbameinsfélagsins. Stefán Valgeirsson, formaður bankaráðs Búnaðarbankans: Eg mun aldrei samþykkja raunvaxtahækkun Hjúkrunar- konur sam- þykktu FÉLAGAR í Hjúkrunarfélagi Islands hafa samþykkt í al- mennri atkvæðagreiðslu kjara- samning þann sem gerður var við ríkisvaldið, Reykjavíkur- borg og St. Jósefsspítala, Landakoti og gildir til janúar- loka á næsta ári. Á landinu öllu voru samtals 1.490 hjúkrunarfræðingar og samtals 1.148 greiddu atkvæði eða 77,05%. Já sögðu 690 eða 60,10%, nei sögðu 490 eða 35,59% og auð- ir seðlar og ógildir voru 38 eða 3,31%. Virgin- ía í Iðnó LEIKHÓPURINN Virginía frumsýnir leikritið „Hver er hræddur við Virginiu Woolf, í Iðnó, 20. júní næstkomandi. Leikritið, sem er eftir banda- ríska höfúndinn Edward Albee, var sýnt á Akureyri í vetur. Leikhópurinn Virginía er nýr leikhópur sem varð til í framhaldi af sýningu Leikfélags Akureyrar á þessu verki, og er hann skipaður þeim Helgu Bachmann, Helga Skúlasyni, Ragnheiði Tryggva- dóttur, Ellert A. Ingimundarsyni og Arnóri Benónýssyni. Til liðs við sig hafa þau fengið Karl Aspe- lund, sem gerir nýja leikmynd, Rósberg G. Snædal, sem hannar nýja búninga, Lárus Björnsson, sem sér um lýsingu og Guðrúnu Þorvarðardóttur sem annast förð- un. I fréttatilkynningu frá hópnum segir: Þessi hópur fer nýjar leiðir í uppsetningu og túlkun verksins. Hver er hræddur við Virginíu Woolf hefur verið umdeilt verk allt frá frumsýningunni á Broad- way árið 1962. Þá voru gagnrýn- endur ekki á einu máli um ágæti verksins og því síður höfundarins. Sumir vildu þó skipa honum á baekk með fremstu leikskáldum samtímans og þann sess hefur ein- mitt þetta vertk unnið honum í tímans rás. STEFÁN Valgeirsson, formaður bankaráðs Búnaðarbankans, segir að þótt bankaráð bankans hafi samþykkt 1% hækkun á raunvöxtum í síðustu viku sé ekki þar með sagt að hann hafi samþykkt hana. Stefán segist aldrei munu samþykkja raun- vaxtahækkun. Hann setti það sem eitt af skilyrðunum fyrir stuðningi sínum við ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar að hún kæmi raunvöxtum niður í að minnsta kosti 6% fyrir 1. jan- úar síðastliðinn. „Hver hefur sagt að ég sam- þykki hana?“ sagði Stefán er hann var spurður hvort það væri ekki í ósamræmi við yfirlýsta stefnu hans að samþykkja raunvaxtahækkun. „Þetta er lýðræðislegt bankaráð og það þarf ekki nema meirihluta til að samþykkja hlutina. Það seg- ir ekkert hvort ég eða einhveijir aðrir hafi samþykkt hana. Ef ein- hveijum dettur í hug að ég hafi samþykkt svonalagað, er það vegna þess að þeir fylgjast ekki með málunum.“ „Það liggur ljóst fyrir að raun- vaxtahækkun myndi ég aldrei samþykkja. Hins vegar eigum við að sjá um að bankinn sé ekki rek- inn með tapi þegar til lengri tíma er litið. En það er allt annað mál. Raunvextir voru taldir nægjanlegir fyrir 10 árum þegar svokölluð 01- afslög voru sett. Þá voru umræður um það að raunvextir mættu aldr- ei verða meiri en 2-3%. Nú eru þeir upp undir 10% hjá til dæmis einkabönkunum," sagði Stefán. „Lífsbjörg í Norðurhöf- um“ kemur til Washington Washington. Frá ívari Guðmundssyni fréttaritara Morgunblaðsins. KVIKMYND Magnúsar Guð- mundssonar, „Lífsbjörg í Norð- urhöfum", var sýnd í Blaða- mannaklúbbnum í Washington á fimmtudag. Höfundur myndar- innar var viðstaddur og svaraði fyrirspurnum, sem aðallega var beint að honum frá fulltrúum Grænfriðunga. Þeir reyndu að gera lítið úr sannleiksgildi mynd- arinnar. Magnús svaraði harð- skeyttum fyrirspurnum þeirra vel og einarðlega og gaf sig hvergi. Magnús vonast til að honum tak- ist að koma myndinni á framfæri í Bandaríkjunum, en fyrirsjáanlegt er, að Grænfriðungar munu berjast um á hæl og hnakka til að koma í veg fyrir að myndin komi fyrir al- menningssjónir í Bandaríkjunum. Það er tímaritið 21st Century Science and Technology, sem stend- ur að komu Magnúsar til Banda- ríkjanna og sem gekkst fyrir blaða- mannafundinum. Páfi í stólræðunni: Hvatti til virðing- ar fyrir ófæddum Morgunblaðinu hefúr bo- rist eftirfarandi frá séra Jakob Rolland, kanzlara kaþólsku kirkjunnar: „Morgunblaðið birti á þriðjudaginn stólræðu Jó- hannesar Páls II páfa í úti- messunni á sunnudags- morgun. Þar hefúr á einum stað fallið úr atriði, sem páfi hafði skotið inn í ræð- una og ekki var að finna í þeirri islensku útgáfú, sem dreift var við messuna. Þessi ræðuhluti var helgað- ur mannréttindum og þar sagði páfi m.a. orðin, sem féllu niður, en sett hér með feitu letri: „Á sviði mannlegra samskipta ber oss að byggja upp heim réttlætis, friðar og kærleika, þar sem líf hverrar mannveru, einnig hinna ófæddu, er verndað og verðleiki allra er metinn jafnt, án nokkurrar mismunar. Til þess þurfum vér að sjá ásjónu Guðs í hveiju mannsandliti og þó einkum í tárum og Þjáningum þeirra, sem eru ástarþurfi eða beittir ranglæti.““ HIK samþykk- ir samningana KENNARAR í Hinu íslenska kennarafélagi hafa samþykkt nýgerðan kjarasamning við ríkisvaldið með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða þeirra sem atkvæði greiddu. Á kjörskrá í félaginu voru 1.161 oggreiddu 719 atkvæði eða 61,9%. Já sögðu 572 eða 79,5%, nei 117 eða 16,3% og auðir seðlar voru 30 eða 4,2%. Kennaraháskólinn: Fyrstu heiðursdoktorar kjörnir Dr. Broddi Jóhannesson og dr. Matthías Jónasson verða í dag, laugardag, sæmdir doktorsnafnbót við Kennaraháskóla Islands á sviði uppeldis- og kennslufræða í heiðursskyni. Titill þeirra verð- ur Doctor Educationes honoris causa, sem er skammstafað Dr.Ed.h.c.. Heiðursdoktorarnir verða útnefndir við afhendingu prófskírteina kennaraefiia, og eru þeir fyrstu heiðursdoktorarnir við KHÍ. „Með nýjum lögum um Kenn- araháskóla íslands frá 1988 er staða hans sem fullgilds háskóla á sviði kennaramenntunar stað- fest,“ segir í fréttatilkynningu frá skólanum. „Kennaraháskóli Is- lands vill neyta fyrsta tækifæris sem gefst til að heiðra þá dr. Brodda og dr. Matthías fyrir framlag þeirra til uppeldisfræða og menntamála þjóðarinnar og störf í þágu kennaramenntunar sérstaklega. Einnig vill skólinn með kjöri sinni fyrstu heiðurs- doktora fagna hinum nýju lögum og þeirri staðfestingu, sem í þeim felst á stöðu hans, og um leið minnast þess að á yfirstandandi skólaári eru 80 ár liðin frá því að Kennaraskóli íslands hóf störf.“ Dr. Matthías Jónasson er fædd- ur 2. september árið 1902. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskó- lanum á Akureyri 1930. Hann stundaði nám í uppeldisfræði, sál- arfræði, heimspeki, félagsfræði og mannkynssögu og varði dokt- orsritgerð við háskólann í Leipzig árið 1935. Hann sinnti uppeldis- legri ráðgjöf, kennslu, fræðilegum ritstörfum, rannsóknum og fé- lagsmálum eftir komuna til ís- lands 1945. Hann varð fyrsti íslenzki prófessorinn í uppeldis- fræðum árið 1957 við Háskóla íslands. Eftir dr. Matthías liggja fræðileg rit, sem eru mikil að vöxtum og fjalla nánast öll um uppeldisfræðileg viðfangsefni og álitamál. Dr. Broddi Jóhannesson er fæddur 21. apríl árið 1916. Hann lauk stúdentsprófi frá MA árið 1935. Hann lagði stund á nám í uppeldis- og sálarfræðum við há- skólann í Túbingen í Þýzkalandi. Dr. Matthías Jónasson. Þar hlaut hann doktorsnafnbót árið 1940. Hann hóf kennslu við Kennaraskóla íslands ári síðar og varð skólastjóri skólans árið 1962. Hann var fyrsti rektor KHÍ þegar stofnunin varð að háskóla 1971 og gegndi hann því starfi til 1975 er hann dró sig í hlé og hætti Dr. Broddi Broddason. störfum. Dr. Broddi er höfundur þriggja bóka, auk þess sem hann hefur þýtt nokkur rit. Eftir hann liggur fjöldi greina um skóla-, uppeldis- og fræðslumál, sem flestar birtust í tímaritinu Menntamál sem hann ritstýrði í áratug.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.