Morgunblaðið - 10.06.1989, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 10.06.1989, Blaðsíða 26
'MORÖUNBlkÐÍÐ' LAÚGARD'A'GUtl ÍO'. .rÚNÍ lð89 26 Morgun- ganga austan Elliðavatns Náttúruverndarfélag Suðvest- urlands stendur fyrir gönguferð á sunnudagsmorgun klukkan 10 frá Elliðavatnsbænum síðan með Elliðavatni út í Þingnes. Þaðan verður haldið með Myllu- lækjartjörn upp í Strípshraun í Heiðmörk og til baka um Sauðás og Heimás. Göngunni lýkur við Elliðavatnsbæinn um klukkan 12. Markaður við Álftanesskóla HINN árlegi „Græni markaður" Kvenfélags Bessastaðahrepps verður haldinn við Álftanesskóla í dag, frá klukkan 10-17. Tré, runnar, sumarblóm, græn- meti og krydd verða til sölu, einnig blómaker úr leir og plasti og vermi- reita-kynning verður allan daginn. Sýning í grunn- skólanum 1 Sand- g’erði SÝNING í grunnskólanum í Sandgerði, sem nefnist Miðnes- hreppur, umhverfi og íbú- ar,verður haldin á morgun, sunnudaginn 11 júní. Sýningin er unnin af nemendum grunnskólans, henni er ætlað að kynna lífríki fjöru, sögu, sagnir, örnefni og mannlíf í Miðneshreppi. Ætlunin er að sýningin verði opin á sunnudögum frá klukkan 13.30 til 16 fram til 9. júlí. Kortanámskeið fyrir almenning Landfræðifélagið, Félag land- fræðinga, Landmælingar Islands og Námsgagnastofnun halda kortanámskeið dagana 13.-14. júní nk. Námskeiðið verður haldið í kennslumiðstöð Námsgagnastofn- unar Laugavegi 166. Dagskrá kortanámskeiðsins verður eftirfar- andi: 13. júní klukkan 20.30-23. Al- menn kynning á kortum af ís- landi. Helstu kortatitlar, mæli- kvarðar og . útgáfu. Fyrirlesari: Magnús B. Baldursson, landfræð- ingur hjá Landmælingum íslands. Hvernig verða kort til? Fyrirles- ari: Ágúst Gunnar Gylfason, land- fræðingur hjá Landmælingum Is- lands. Kortalestur og túlkun korta. Fyrirlesari: Guðmundur Ó. Ing- varsson, landfræðingur. Notkun korta við störf og leik. Fyrirlesari: Tryggvi Jakobsson, landfræðingur hjá Námsgagna- stofnun. 14. júní klukkan 19.30-23. Kort og áttaviti. Fyririesari frá lands- sambandi hjálparsveita skáta. Heimsókn á Landmælingar ís- lands. Kortadeild skoðuð og korta- búðin. Hjálpartæki við kortalestur kynnt. Vettvangsferð upp fyrir Reykjavík. Gengið frá nokkrum stöðum eftir korti að Selvatni. Lágafellskirkj a. Lágafellskirkj a 100 ára LÁGAFELLSKIRKJA er 100 ára á þessu ári og verður þess minnst nk. sunnudag 11. júní með hátí- ðarguðsþjónustu í Lágafells- kirkju klukkan 14. Klukkan 13.30, leikur skóla- hljómsveit Mosfellsbæjar fyrir utan Lágafellskirkju undir stjórn Sveins Birgissonar. Klukkan 14 hefst hátíðarguðs- þjónusta. Séra Heimir Steinsson, prestur á Þingvöllum, prédikar. Björn Ástmundsson, form. sóknar- nefndar, flytur ávarp. Séra Birgir Ásgeirsson, þjónar fyrir altari. Klukkan 15.15 verður kaffisam- sæti í safnaðarheimili Lágafells- sóknar, Þverholti 3. Þar mun tón- listarfólk úr Mosfeilsbæ skemmta gestum með söng og hljóðfæraleik. Borg'arafundur um „ekknaskatt- inn“ ALMENNUR borgarafúndur er fyrirhugaður að Hótel Borg, þriðjudaginn 13. júní klukkan 20.30 um „ekknaskattinn" svo- kallaða og um það misrétti sem bitnar á ekkjum, ekklum og ein- staklingum samkvæmt nýsam- þykktum breytingum á lögum um eignaskatt, eins og segir í fréttatilky nningu. Á fundinum mun Þuríður Páls- dóttir, söngkona flytja ávarp og erindi flytja, Sigurður Líndal, laga- prófessor, Sigurður Tómasson, löggiltur endurskoðandi og Kristj- ana Milla Thorsteinsson, viðskipta- fræðingur. Syngur í Seljakirkju I guðsþjónustu sunnudags- kvöld klukkan 20 syngur Steinar Magnússon í Seljakirkju. Steinar stundar söngnám í Bloomington, Indiana. Hann lauk námi við Söngskólann í Reykjavík 1988 og hefur víða komið fram opinberlega. Steinar fer aftur út til náms inn- an skamms. í Seljakirkju syngur Steinar Lofsöng eftir Bjarna Böðv- arsson og Friðarins Guð eftir Árna Thorsteinsson við undirleik Kjart- ans Siguijónssonar organista kirkj- unnar. Saftiaðarferð Grensássóknar Sunnudaginn 11. júní klukkan 10 verður farið frá Grensás- kirkju í safnaðarferð. Ekið verð- ur um Hveragerði, Selfoss og Eyrarbakka. Leiðsögumenn fræða um það sem fyrir augun ber. Hádegisverð- ur snæddur í Þorlákshöfn og stað- urinn skoðaður. Guðsþjónusta í Strandarkirkju klukkan 14. Sr. Tómas Guðmundsson prófastur þjónar fyrir altari og sr. Halldór S. Gröndal prédikar. Ekið heim um Krísuvík. Kostn- aður er krónur 1.000 matur innifal- inn. Ferðalok við Grensáskirkju áætlaður klukkan 18. Verið vel- komin. - Sóknarneftidin Bókmenntaupp- lestur á Eyrar- bakka Sunnudaginn 11. júní klukkan 16 verður bókmenntaupplestur i samkomuhúsinu Stað á Eyrar- bakka, þar sem Elfar Guðni Þórðarson sýnir um þessar mundir málverk og krítarmynd- ir. Þeir sem lesa úr verkum sínum eru Einar Már Guðmundsson, Gyrðir Elíasson, Geirlaugur Magn- ússon, Birgir Svan Símonarson, Kristján Kristjánsson, Eyvindur Eiríksson, ísak Harðarson og að öllu forfallalausu Guðmundur Dan- íelsson. Blómamarkaður systrafélagsins í Y-Njarðvík HINN árlegi blómamarkaður Systrafélags Ytri-Njarðvíkur- kirkju verður haldinn að þessu sinni sunnudaginn 11. júní klukkan 13 við kirkjuna í Ytri- Njarðvík. Þetta er 7. árið sem systumar standa fyrir blómamarkaði og hef- ur jafnan verið mikið aðsókn. Dúx Stýri- mannaskólans í Eyjum Með frétt í blaðinu á fimmtudag um skólaslit Stýrimannaskólans í Vestmannaeyjum var dúx skólans rangt nafngreindur, einnig féll nið- ur mynd sem vera átti með frétt- inni. Morgunblaðið biðst velvirðing- ar á þessum mistökum. Sigurður Ingi Ólafsson var dúx Stýrimannaskólans með hæstu meðaleinkunn sem nokkur nem- andi skólans hefúr fengið fyrr og síðar. Hann fékk fjölda verð- launa fyrir árangurinn. Nemendur Stýrimannaskólans sem útskrifuðust af 2. stigi með prófskírteini sín að skólaslitum loknum. Fiskverð á uppboðsmörkuðum 9. júní. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 61,50 50,00 57,53 18,072 1.039.781 Þorskur(smár) 40,00 40,00 40,00 0,584 23.340 Ýsa 55,00 45,00 49,88 1,750 87.283 Karfi 37,00 37,00 37,00 2,558 94.660 Ufsi 32,00 18,00 21,65 1,416 30.016 Steinbítur 43,00 20,00 29,21 1,217 35.534 Langa 39,00 33,00 36,80 2,075 76.332 Koli 53,00 48,00 49,35 3,897 192.312 Skötuselur 119,00 84,00 111,30 1,869 208.016 Samtals 59,47 34,568 2.055.836 Á mánudag verða meðal annars seld 30 tonn af þorski, 7 tonn af ýsu, 70 tonn af ufsa, 1 tonn af lúðu og óákveðið magn af karfa, kola og löngu úr Gjafari VE. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur 64,00 46,00 60,15 27,459 1.651.577 Þorskur(smár) 39,00 39,00 39,00 0,584 22.776 Ýsa 83,00 17,00 73,32 14,785 1.084.041 Karfi 39,00 15,00 34,65 6,643 230.164 Ufsi 36,00 26,00 33,35 5,224 174.209 Hlýri+steinb. 41,00 37,00 37,52 0,999 37.483 Lúða 240,00 175,00 192,27 1,316 253.030 Skarkoli 54,00 26,00 40,07 2,536 101.626 Samtals 59,65 59,983 3.577.728 Selt var úr Farsæli SH, Freyju RE og handfærabátum. Á mánu- dag verða meðal annars seld 20 tonn af þorski, 4 tonn af ýsu, 90 tonn af karfa, 20 tonn af ufsa og 2 tonn af löngu úr Viðey RE og handfærabátum. SKIPASÖLUR í Bretlandi 5. til 9. júní. Þorskur 75,17 307,785 Ýsa 98,55 75,915 Ufsi 39,50 7,085 Karfi 47,33 3,615 Koli 77,87 1,420 Samtals 78,49 415,671 Selt var úr Páli ÁR í Hull 5. júní, Albert Ólafssyni KE 6. júní og Júlíusi Geirmundssyni ÍS í Hull 7. júní. GÁMASÖLUR í Bretlandi 5. til 9. júní. Þorskur 73,10 381,648 Ýsa 93,63 272,615 Ufsi 34,79 17,850 Karfi 53,93 11,320 Koli 53,93 11,320 Samtals 80,90 892,742 SKIPASÖLUR í Vestur-Þýskalandi 5. til 9. júní. Þorskur 99,86 0,981 97.960 Karfi 108,35 112,256 420.102 Samtals 97,49 152,799 14.896.474 Selt var úr Skagfirðingi SK í Bremerhaven 6. júni. 23.134.881 7.481.325 279.876 171.112 110.575 32.627.311 Grimsby 27.899.983 25.525.048 620.945 610.439 610.439 799.328 Félagsheimili tónlistarmanna: Lokaátakið hefet í dag Uppákomur í Kringlunni í dag og næstu viku Félagar í Tónlistarsambandi íslands standa fyrir tónlistaruppákomu í Kringlunni í dag og í næstu viku til þess að reka megi smiðshöggið á frágang Félagsheimilis tónlistarmanna að Vitastíg 3. Tónlistarmenn haía í þessum tilgangi eftit til happdrættis sem fjáröílunarleið og við hvern hundraðasta seldan miða verða dregnir út aukavinningar á staðn- um auk aðalvinnings sem dreginn verður út þann 18. júní. Þeir Jóhann G. Jóhannsson og Pétur Jónasson formaður Tónlistar- bandalags Islands eru talsmenn þessa átaks og í samtali við Morgun- blaðið kom fram að fyrir tíu árum þegar Tónlistarbandalagið fékk að- gang að Félagsheimilasjóði hafi verið fest kaup á þriðju hæð hússins að Vitastíg 3. „Það hefur tekið þessi tíu ár að koma félagsheimilinu í þetta horf. Það sem hefur gert okkur erf- GENGISSKRÁNING Nr. 107 9. júní 1989 Kr. Kr. ToH- Ekv Kt. 09.16 K»up tata Dollan 57.63000 57.790000 57.34000 Sterlp. 90,22000 90,47000 89.96600 Kan. dollari 48.21200 48,34600 47.63600 Dönsk kr. 7,48680 7,50760 7,32550 Norsk kr. 8.02,980 8.05210 7,92650 Sænsk kr. — 8.63370 8,65770 8.49990 Fi. mark 13.03850 13.Q7470 12,827/0 Fr. franki 8,56470 8.58850 8.43050 Belg. franki 1,38820 1,39200 1,36250 Sv. franki 33,48630 33.57930 32.66310 Hbll. gyllim 25,80830 25,88000 25,31180 V-þ. mark 29,07230 29.15300 28,52740 it. líra 0,03989 0,04000 0,03949 Austurr. sch. 4,12970 4.14Í20 4.05270 Port. escudo 0,34960 0,35060 0,345/0 Sp. peseti 0.44870 0.44990 0,45250 Jap.yen 0.39881 0,39992 0,40203 irskt pund 77,78600 78,00200 76,25600 SDR (Sérst.) 71,48250 71,68100 71,01270 ECU.evr.m. 60.35300 60,52060 59,35550 Tollgengi fyrir júní er sölugengi 29. mai. Sjálfvirkur simsvari gengisskrárungar er 62 32 70. itt fyrir er að framlag úr Félags- heimilasjóði hefur ekki skilað sér til okkar sem skyldi," sagði Jóhann. „Nú er félagsheimilið okkar orðið að hlutafélagi þar sem öll helstu samtök tónlistarmanna eiga aðild að heimil- inu, ýmst beint eða í gegnum hluta- fjáreign Tónlistarbandalagsins." Þeir Jóhann og Pétur sögðu að húsnæðið væri nú tilbúið til notkunar og uppákomurnar núna væru loka- átakið til að koma heimilinu í höfn svo skipulegur rekstur geti hafist. í Kringlunni í dag koma fram Skóla- kór Garðabæjar undir stjórn Guð- finnu Dóru Olafsdóttur. Þá leika þeir Símon ívarsson og Einar K. Einarsson klassíska gítartónlist. Einnig koma fram félagar í Félagi harmonikuunnenda og Bjartmar Guðlaugsson tónlistarmaður. Þessi dagskrá hefst klukkan 12 á hádegi í dag og stendur til klukkan 14. „Markmiðið er að selja 1000 happ- drættismiða í þessu átaki í Kringl- unni og náist það markmið verður dreginn út aukavinningur úr öllum seldum númerum sem er sælkeraferð til Portúgal á vegum Evrópuferða að verðmæti kr. 75.000,“ sagði Jó- hann. Aðalvinningurinn í happdrætt- inu er Skoda Favorit bifreið sem dregin verður út 18.júní. Frekari uppákomur verða í Kringlunni í næstu viku og munu þar margir þekktir tónlistarmenn koma fram frá þriðjudegi til föstudags milli klukkan 16 og 19. Jóhann sagði að í félagsheimilinu væri búið að koma upp vandaðri aðstöðu fyrir æfingar og félagsstarf tónlistarmanna og einnig væri í und- irbúningi að aðrir aðilar myndu hefja rekstur á neðri hæðum hússins sem gæti tengst starfsemi félagsheimilis- ins mjög skemmtilega. „Hugmyndin er að á fyrstu hæðinni verði nokkurs konar músíkpöbb þar sem lifandi tónlist verður þungamiðjan. Á mið- hæðinni er svo fyrirhugað að koma upp skemmtilegum veitingastað. Allt yrði þetta til þess að gera mætti upp húsið að utan en útlit þess hefur drabbast niður á undanfömum árum vegna þess reksturs sem verið hefur á neðri hæðunum." Pétur Jónasson sagði að þarna yrði aðstaða Tónlist- arbandalagsins og í framtíðinni yrði þetta miðstöð samskipta tónlistar- manna af öllu landinu. Pétur tók þó skýrt fram að félags- heimilinu mætti ekki rugla saman við Tónlistarhúsið. „Þarna verða ekki beinlinis tónleikasalir, heldur er þetta fyrst og fremst æfingaaðstaða þó á neðri hæðunum bjóðist möguleiki á minni háttar uppákomum. Það dreg- ur ekki úr mikilvægi þessa húss því tónlistarmenn hafa ekki haft neinn samastað til þessa“, sagði Pétur Jón- asson formaður Tónlistarbandalags íslands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.