Morgunblaðið - 10.06.1989, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 10.06.1989, Blaðsíða 16
16 ' -mkGi:4iÚÁmt) tóiGARDAGöK -m .)írKi ið89 Einnota drykkjarumbúðir: Skilagjald frá 1. júní - móttaka byijar í júlí STOFNAÐ hefur verið hlutafélag, Endurvinnslan hf., til þess að skipuleggja söfnun og endur- vinnslu eða eyðingu skilagjalds- skyldra umbúða. Þá ákvað iðnað- arráðherra, Jón Sigurðsson, með reglugerð sem gefin var út 1. júní síðastliðinn að frá og með þeim degi skyldi lagt skilagjald á öl, Dómkirkjan: Kveðjumessa sr. Lárusar Halldórssonar UNDANFARIÐ ár hefúr sr. Lárus Halldórsson verið sett- ur prestur við Dómkirkjuna í ársleyfí sr. Þóris Stephensen. Starfstíma sr. Lárusar lýkur 15. júní og mun hann á morgun flytja sína síðustu messu á þessu tímabili og kveðja Dómkirkju- söfnuðinn og hefst messan klukkan 11. Á þessum tímamótum eru sr. Lárusi fluttar einlægar þakkir frá Dómkirkjusöfnuðinum fyrir störf hans á liðnu ári og honum og fjölskyldu hans óskað allra heilla í framtíðinni. (Frá Dómkirkjunni.) gosdrykki og aðra slíka drykki í einnota umbúðum úr málmi, gleri, plasti og öðrum sambærilegum efhum. Að því er stefnt, að fyrir- tækið geti hafið móttöku á skila- gjaldskyldum umbúðum í næsta mánuði og starfsemin öll verði komin í eðlilegt framtíðarform fyrir árslok. Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra sagði á blaðamannafundi í vikunni, að stigið hefði verið mikilvægt skref í bættri umhverfisvernd og nýtingu verðmætra efna. „Þetta er leið til að virkja áhuga á því að halda landinu hreinu með þeim hætti að nokkur fjárhagslegur ávinningur er af þessu,“ sagði Jón Sigurðsson. Skilagjaldið er ákveðið 4 krónur á hveija umbúðaeiningu og myndar stofn til söluskatts hjá söluaðilum og nemur skilagjaldið með söluskatti 5 krónum sem greiddar verða út þegar skil fara fram. Áætlað er að skilamiðstöðvum verði komið á fót vítt og breitt um landið og einnig að verslanir taki við umbúðum. Að Endurvinnslunni hf. standa auk ríkissjóðs ÁTVR, SÍS, gos- drykkjaframleiðendur, fyrirtæki í málm- og endurvinnsluiðnaði, sam- tök kaupmanna og skátahreyfingin. í stjórn félagsins hafa verið kjörnir Eiríkur Hannesson formaður, Hös- kuldur Jónsson varaformaður, Birgir Árnason, Magnús E. Finnsson og Einar Guðmundsson. Gunnar Braga- son hefur verið ráðinn verkefnisstjóri næstu þijá mánuði. Hjartasteinbijótur Hjartasteinbrjótur -Berg-enia (Megasea)- Blóm vikunnar Umsjón Ágústa Björnsdóttir 126. þáttur Af Bergeniu eru einkum rækt- uð tvö afbrigði sem hér eru nefnd hjartasteinbijótur (Bergenia cordifolia) og blóðsteinbijótur (Bergenia crassifólia) og mun fyrrnefnda afbrigðið vera algeng- ast hér. Bergenia er ættuð og upprunn- in úr íjöllum Mið- og Austur-Asíu (Mongólíu-Altaifjöllum) og er nokkuð langt siðan hún barst til Evrópu og tekin þar í ræktun. Linné hinn frægi sænski grasa- fræðingur hafði þegar á sínum tíma fengið plöntu af bergeníu frá Rússlandi. Bergenía hefur þykkan grunn- lægan rótarstokk og upp frá hon- um vaxa stór, þykk, slétt leður- kennd blöð, hárlaus og gljáandi í stofnhvirfingu niður við jörð og mynda fallegan vöxtulegan gróð- ur. Hún blómstrar snemma vors ljós- eða dökkrósrauðum blómum sem standa lengi. Eiai þau i þétt- um klasa á 30-40 sm háum stöngli. Bergenía breiðir úr sér á hægt skriðandi jarðstöngli, rétt með yfirborðinu, rætandi sig frá stönglinum niður í moldina. Það er mjög auðvelt að fjölga jurtinni með skiptingu og að halda henni innan þess ramma sem henni er ætlaður. Bergenía er harðgerð vel og þjál í ræktun. Það má segja að næstum sé sama í hvernig jarð- vegi henni er ætlað að vaxa og hvar hún er staðsett, hvort heldur er í sól eða hálfskugga, í blóma- beði eða klettarifu, hún vex og þraukar. En fallegust og kröftug- ust verður hún í fijórri, djúpri heidur rakri mold og hún nýtur sín jafnvel best ef hægt er að hafa hana alveg út af fyrir sig, er t.d. ágæt hjá polli, við gangstíg eða ofan á steinvegg. Þolir nokk- urn skugga. Já, bergenía stendur vel fyrir sínu og á það skilið að henni sé gaumur gefinn og hún er langlíf og nægjusöm. Og það má reikna með því þó að eitthvað af blöðun- um fái á sig rauðleitan haustlit og leggist í frosti flöt með jörðu, að þau lyfti sér aftur í lífi og prýði garðinn um leið og frost fer úr jörðu. Ný blöð bætast fljótlega við í stað þeirra sem kann að þurfa að skera burtu þegar plantan er snyrt snemma vors. í garðyrkjubók fyrir Norður- Noreg er bergenía talin í flokki þeirra fjölæru blóma sem gott sé að rækta jafnvel á veðurhörðum stöðum alla leið út undir íshaf, aðeins ef henni er séð fyrir svo- litlu skjóli. Og hér á íslandi unir hún sér prýðilega vel. Á síðari árum hafa komið fram ný afbrigði og kynblendingar, má af þeim t.d. nefna „Bressingham White“, blómin hvít með dökku auga. Sigurlaug Árnadóttir, Hraunkoti. ÍÞROTTADAGUR íREYKJAVÍK10. JÚNÍ1989 - FYRIR ALLA-UM ALLA BORG! NÝTUM FJÖLBREYTTA AÐSTÖÐU OKKAR TIL ÚTIVERU OG LÍKAMSRÆKTAR OG TÖKUM ÖLL ÞÁTT í ÍÞRÓTTADEGINUM S3® CK ■éi Vesturbæjarlaug. Opið 7:30-17:30. Enginn aðgangseyrir. Leiðsögn í sundi, skokki, blaki og við barnaleiktæki frá kl. 13-17. bb 5B Við Hlíðaskóla. Leiðsögn í körfuknattleik frá kl. 13-17. Laugardalslaug. Opið 7:30-17:30. Enginn aðgangseyrir. Leiðsögn í sundi, skokki, og við barnaleiktæki frá kl. 13-17. Tennisvöllur við gervi- grasvöllinn í Laugardal. Leiðsögn í tennis frá kl. 13-17 og í blaki á sama tíma. < J>í Við Grandaskóla. Leiðsögn í körfuknattleik frá kl. 13-17. Við Melaskóla. Leiðsögn í tennis frá kl. 13-17 og í körfuknattleik á sama tíma. 4%A Við Austurbæjarskóla. Leiðsögn í körfuknattleik frá kl. 13-17. 20 Sundhöllin. Opið 7:30-17:30. Enginn aðgangseyrir. Leiðsögn í sundi, skokki, og við barnaleiktæki frá kl. 13-17. IT| Keilusalurinn '' ■ í Öskjuhlíð. Kennsla verður fyrir byrjendur frá kl. 13-16. Ókeypis aðgangur. wr\ , zzd I Nauthólsvík. Almenningi verða boðin afnot af bátum siglingaklúbbsins ásamt leiðsögn frá kl. 13-17. Við Korpúlfsstaði. Félagar í Golfklúbbi Reykjavíkur leiðbeina byrjendum frá kl. 13:30-17. fP0 ri! Við Fylkisvöll. Fjölskylduganga og skokk, Stíflu- hringurinn kl. 11.00. fs) Rauðavatn. Almenningi verða boöin afnot af bátum við Rauðavatn. 4Við Breiðholtsskóla. Leiðsögn í körfuknattleik frá kl. 13-17. SS2 Breiðholtslaug. Opið 7:30-17:30. Enginn aðgangseyrir. Leiðsögn i sundi. skokki, og við barnaleiktæki frá kl. 13-17. EBfi Við Fellaskóla. Leiðsögn í tennis frá kl. 13-17 og i körfuknattleik á sama tíma. SG Leiðsögn kl. 13-17. Við Seljaskóla. körfuknattleik frá Tennisvöllur á svæöi Víkings í Fossvogi. Leiðsögn í grunnatriðum tennis- íþróttarinnar frá kl. 13-17.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.