Morgunblaðið - 20.06.1989, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B/C
136. tbl. 77. árg.___________________________________ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 1989_______________________________Prentsmiðja Morgnnblaðsins
Ókyrrð í sovésku Asíulýðveldunum:
Uppþot og mann-
fall í Kazakhstan
Moskvu. Reuter.
VOPNUÐ ungmenni fóru um ruplandi og rænandi í sovétlýðveldinu
Kazakhstan um síðustu helgi og segir í fréttum TASS-fréttastofunn-
ar, að nokkurt mannfall hafi orðið. Eru fréttir af þessum atburðum
mjög óljósar en sagt er, að mestu átökin hafi orðið í borginni Novíj
Úzen við Kaspíahaf.
í nágrannaríkinu Úzbekístan hef-
ur verið mikil óöld að undanförnu
og 97 manns fallið að minnsta kosti
en frá uppþotunum í Kazakhstan var
fyrst skýrt sl. sunnudag. Þá sagði
dagblaðið Komsomolskaja Pravda,
að nokkrir unglingar hefðu meiðst
en TASS sagði, að óeirðirnar hefðu
blossað upp aftur og mátti skilja,
að þær stæðu enn.
„Ráðist var á lögreglustöðina í
borginni og vatnsveituna og ein-
hvetjir hafa fallið. Gerðar hafa verið
ráðstafanir til að veita særðu fólki
læknishjálp og aðra aðstoð,“ sagði
TASS og bætti því við, að fólkið,
sem beitti einnig bareflum og gtjóti,
hefði ráðist á vegfarendur og inn á
heimili margra og lamað athafnalíf
í borginni. í Novíj Úzen búa 120.000
manns og er olíuvinnsla helsta at-
vinnugreinin.
TASS sagði, að mikið atvinnu-
leysi, hátt verðlag, vöruskortur og
vöruskömmtun væru undirrót óeirð-
anna. Sagt er, að sömu ástæður búi
að baki óöldinni í Úzbekístan þótt
þar hafi óánægjan brotist út í of-
sóknum á hendur Meskhetum, sem
eru tyrkneskur minnihlutahópur. Þá
eru einnig óstaðfestar fréttir um
ókyrrð í sovéska Asíulýðveldinu
Túrkmenístan.
Reuter
Ungir stuðningsmenn Nýja lýðræðisflokksins í Grikklandi fögnuðu ákaflega þegar ljóst var að flokkur-
inn hafði orðið sigurvegari í þingkosningunum á sunnudag. Flokkurinn fékk þó ekki meirihluta á þingi
og svo getur farið að Andreas Papandreou myndi samsteypustjórn með bandalagi tveggja kommúnista-
flokka.
Lítil þátttaka í Evrópukosningunum:
Grískir sósíalistar misstu meirihluta en vilja samstarf við kommúnista
Stjómarflokkar töpuðu
Kína:
Dauðadómar og auk-
in áhersla á marxisma
Peking-, Hong Kong. Reuter.
KÍNVERSK stjórnvöld reka nú áróður fyrir aukinni áherslu á marxísk
fræði og endurreisn „hins hugmyndafræðilega hreinleika". Búist er
við, að Zhao Ziyang, formanni kommúnistaflokksins, verði vikið frá á
næstunni vegna stuðnings hans við aukið lýðræði í landinu og þykir
trúlegt, að Qiao Shi, sem talinn er
verði skipaður í hans stað.
„Gagnbyltingin hefur verið brotin
á bak aftur. Astandið er að verða
eðlilegt á nýjan leik,“ sagði Li Peng
forsætisráðherra og einn helsti odd-
viti kínverskra harðlínumanna þegar
hann og Qiao Shi komu saman á
fund með mæðrum hermanna, sem
létust í átökunum í síðasta mánuði.
í kínverska ríkisútvarpinu er jafn-
framt hafinn mikill áróður fyrir
meiri kennslu í marxískum fræðum
og endurreisn „hugmyndafræðilegs
hreinleika" og er vitnað óspart í
kennara, sem segja, að á síðustu
árum hafi almenningur og jafnvel
vera yfirmaður leyniþjónustunnar,
sumir flokksmenn verið farnir að
láta sér marxismann í léttu rúmi
l'ggja.
Síðastliðinn laugardag voru átta
menn og konur dæmd til dauða í
Peking fyrir að hafa tekið þátt í
„óeirðum" og bíða þá alls 11 manns
aftöku fyrir þær sakir. Þá var einn-
ig skýrt frá því, að fimmti námsmað-
urinn af 21 foringja „uppreisnarinn-
ar“ hefði verið handtekinn. Talið er
að 20 kínverskir sendiráðsmenn hafi
leitað hælis á Vesturlöndum og í
Japan og raunár segja sumir, að
þeir séu miklu fleiri.
Reuter
Kínversk kona í Hong Kong
grætur fyrir framan eftirlíkingu
af Frelsisstyttunni.
Brussel, London, Aþenu, Bonn, París, Róm.
STJÓRNARFLOKKAR í Bret-
landi, Vestur-Þýskalandi og
Frakklandi fengu slæma útreið í
kosningum til þings Evrópu-
bandalagsins á fimmtudag og
sunnudag. í Grikklandi, írlandi
Reuter. Daily Telegraph.
og Lúxemborg var jafiiframt kos-
ið til þjóðþings og Sósíalista-
flokkur Andreas Papandreous
forsætisráðherra Grikklands
missti meirihluta sinn. Nýi lýð-
ræðisflokkurinn, stjórnarand-
stöðuflokkur íhaldsmanna, náði
þó ekki meirihluta og Bandalag
róttækra vinstrimanna er því í
oddaaðstöðu. Papandreou
hyggst reyna að fá þá til að
mynda með sér samsteypustjóm.
Breski íhaldsflokkurinn galt af-
hroð fyrir Verkamannaflokknum
i EB-kosningunum og græningj-
ar unnu þar mjög á eins og víða
annars staðar.
Þátttaka var aðeins um 56% að
jafnaði í EB-kosningunum; í Bret-
landi kusu 36%. Talið er víst að
aukinn styrkur vinstrisinna og um-
hverfissinna a Evrópuþinginu verði
til að þyngri áhersla verði fram-
vegis lögð á breytingar í félagsleg-
um málum, ekki síst réttindamálum
verkamanna, og setningu reglna
gegn mengun.
Breskir íhaldsmenn hafa ekki
beðið ósigur í kosningum á lands-
vísu síðan 1974 en fengu að þessu
sinni aðeins 32 þingsæti, hlutu 45
sæti í Evrópukosningunum 1984.
Stefna Margaret Thatcher, forsæt-
isráðherra Bretlands, sem barist
hefur gegn auknum völdum fram-
kvæmdastjórnar EB og sameigin-
legum gjaldmiðli bandalagsins, er
talin hafa beðið verulegan hnekki.
Ýmsir frammámenn íhaldsmanna
gagnrýna ráðherrann harkalega og
kenna henni um ófarirnar; neikvæð
afstaða hennar til EB hafi verið
frambjóðendum fjötur um fót. Ut-
anríkisráðherrar Frakka og Vest-
ur-Þjóðveija funduðu í gær í París.
Þeir sögðu að ríkin tvö teldu rétt
að á næsta leiðtogafundi EB, sem
haldinn verður í lok mánaðarins,
yrðu tillögur Jacques Delors, for-
seta framkvæmdastjórnar banda-
lagsins, um aukna samvinnu í gjald-
eyris- og efnahagsmálum sam-
þykktar óbreyttar.
Sósíalistaflokkar héldu víða
sínum hlut eða bættu við sig fylgi,
m.a. bættu ítalskir sósíalistar við
sig fylgi og stjórnarflokkur
spænskra sósíalista undir forystu
Felipe Gonzales hélt velli.
Sjá einnig: „Kosningar í Evr-
ópu“ á bls.30.
Palme-réttarhöldin:
Lisbet viss í sinni sök
Stokkhólmi. Frá Claes von Hofsten, fréttaritara Morgunblaðsins.
LISBET Palme, ekkja Olofs heitins Palme, fyrrum forsætisráð-
herra Svíþjóðar, benti í gær á manninn, sem sakaður er um að
hafa myrt eiginmann hennar, og fullyrti, að hann væri morðinginn.
vafa. Þykir fumlaus framburður
Sakborningurinn, Christer Pett-
ersson, var ekki leiddur inn í rétt-
arsalinn fyrr en Lisbet var um það
bil að ljúka vitnisburði sínum en
þá var hún spurð hvort Pettersson
væri maðurinn, sem hefði skotið
mann hennar til bana og sært
hana sjálfa. „Já,“ svaraði Lisbet
skýrum rómi. Veijandi Petterssons
dró í efa, að Lisbet gæti þekkt
sakborninginn aftur með vissu þar
sem þijú ár væru liðin frá morðinu
en hún kvaðst ekki vera í neinum
hennar hafa snúið málinu aftur í
vil ákæruvaldinu.
Við réttarhöldin í gær lýsti Lis-
bet Palme kvöldinu örlagaríka og
sagði, að eftir að maður hennar
hafði verið skotinn og hún sjálf
særð hefði hún séð Pettersson á
vel lýstum stað í um fimm metra
fjarlægð, síðan aftur þegar hann
leit til þeirra handan götunnar og
loks í þriðja sinn í um 40 metra
fjarlægð.
fylgi í mörgum ríkjum
A