Morgunblaðið - 06.02.1990, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 06.02.1990, Blaðsíða 56
Bílaborg hf; Synjað um framlengda greiðslu- stöðvun SKIPTARÉTTUR Reykjavíkur hefur synjað Bílaborg hf. um framlengingu á greiðslustöðv- un. Tveggja mánaða greiðslu- stöðvun félagsins rann út á sunnudag. Á föstudag óskuðu forsvarsmenn Bílaborgar eftir framlengdum greiðslustöðvun- artíma. Borgarfógeti hafnaði beiðninni með úrskurði uppkveðn- um á sunnudag. Að sögn Kristins Breiðfjörð, stjórnarformanns Bílaborgar, leita forsvarsmenn fyrirtækisins nú leiða til að fínna lausn á mál- um þess. Hann sagði að í því sambandi væru í gangi tilraunir til að selja húseign fyrirtæksins við Fossháls og að fá inn aðila með nýtt rekstrarfé. Kristinn sagði að stefnt væri að því að finna endanlega niðurstöðu á næstu vikum. Morgunblaðið/Grímur Bjarnason Havel sér „Endurbyggingn “ ífyrsta sinn Vaclav Havel, forseti Tékkóslóvakíu, kemur til ís- lands laugardaginn 17. febrúar næstkomandi og verður viðstaddur sérstaka hátíðarsýningu á verki sínu Endurbyggingu sama kvöld. Þetta er í fyrsta skipti sem Havel sér þetta verk sitt á sviði, en það hefur aðeins einu sinni verið sýnt áður, í Ziirich í september í haust. Verkið verður frumsýnt 16. febrú- ar og var myndin tekin á æfingu nýlega. Frá vinstri eru Erlingur Gíslason, Helga Jónsdóttir, María Ell- ingsen bakvið Sigurð Sigurjónsson, Jón S. Gunnars- son, Þórunn Magnea Magnúsdóttir og Þór Tulinius. Havel fer héðan daginn eftir til Kanada. Andri enn við festar NU ER búizt við því að ákvörðun um framvindu mála útgerðar Andra BA liggi fyrir næstu daga. Skipið liggur enn við festar á ytri höfninni við Dutch Harbour á Aleuta-eyjum í Alaska. Sævar Björnsson skipstjóri segir mann- skapinn taka þessu með mikilli ró, enda fái menn greidd laun og allt gert fyrir þá, sem beðið sé um. Sævar sagði, í samtali við Morg- unblaðið, að mikið væri af alls kon- ar kolategundum þarna. Vinnslu- leyfið væri komið og nú væri bara að bíða framhaldsins. Aldrei fleiri án atvinnu á Akureyri ATVINNULEYSI er meira nú en nokkru sinni áður hefur verið skráð á Akureyri. Þar var 331 skráður atvinnulaus um síðustu mánaðamót. Fyrstu tvo daga febrúarmánaðar komu 32 til nýskráningar og eru þar því 363 án atvinnu. Sjá Akureyrarsíðu á bls. 34. Ný lyfta fyrir börnin Ný skíðalyfta var tekin í notkun í Hlíðarfjalli síðastliðinn laugar- dag og er hún einkum ætluð börnum og byrjendum. Góð að- sókn var að skíðasvæðinu alla helgina og í gær var þar um að litast eins og á sunnudegi. Hér er ungur Akureyringur að leggja á brattann og þá er betra að njóta stuðnings fyrstu skiptin. Morgunblaðið/Rúnar Þór Alumax formlegur aðili að álviðræðum ALUMAX, bandaríska álfyrirtækið hefur formlega þegið að ger- ast aðili að viðræðum hollenska fyrirtækisins Hoogovens, sænska fyrirtækisins Granges og íslenskra stjórnvalda um byggingu nýs álvers á íslandi. Fyrsti formlegi samningafundur aðila hefur verið ákveðinn í Amsterdam nú á fimmtudag, þann 8. febrúar. Jón Sigurðsson, iðnaðarráð- herra, sagði í samtali við Morgun- blaðið í gær að Hoogovens, Gráng- es og fulltrúar ráðuneytisins hefðu í síðustu viku ritað Álumax bréf og boðið fulltrúum þess til form- legra viðræðna. Fyrirtækið hefði svarað bréfínu jákvætt, „og því hefur formlegur samningavið- ræðufundur með þessum aðilum verið ákveðinn í Amsterdam nú á fimmtudag,“ sagði ráðherra í sam- tali við Morgunblaðið í gær. Hann sagðist telja að undirbúningur að þessum viðræðum hefði gengið vel og í síðustu viku hefðu ýmis atriði varðandi laga- og skattamál verið rædd og þau skýrst. Alumax hefur sýnt áhuga á ál- veri á íslandi frá miðju árinu 1988, en fulltrúar fyrirtækisins áttu fyrst formlegar viðræður við íslensk stjórnvöld í byijun janúar á þessu ári. Alumax hefur höfuð- stöðvar í Atlanta í Bandaríkjunum en er með úrvinnslufyrirtæki í Bretlandi, Hollandi, Frakklandi og Þýskalandi. Fyrirtækið framleiðir nálega eina milljón tonna af áli árlega. Fiskverð enn óákveðið: Deilt um bónus við löndun í heimahöfíi síðdegis hafði nýr fundir ekki ver- ið boðaður. Talið er að ákveðnar verði beinar hækkanir á fiskverði þær sömu og samizt hefur um í almennum kjarasamningum. Um það mun ekki ágreiningur innan ráðsins. Heimalöndunarbónusinn hefur hins vegar sett strik í reikn- inginn. Tekjur útgerða og sjó- manna, sem búa við það að megn- inu af afla þeirra eða öllu sé land- að beint til vinnslu, eru mun lægri en hinna, sem sigla og landa á fiskmörkuðunum innanlands. Guðjón A. Kristjánsson, forseti Farmanna- og fískimannasam- bands íslands, segir enga lausn í sjónmáli. Hann telur að málið verði að leysa innan Verðlagsráðsins sjálfs. Verði því vísað til yfirnefnd- ar, sé enginn vafi á því að odda- maður ákveði verð með kaupend- um. Fulltrúar sjómanna hafi þar ekkert að gera og taki ekki þátt í þeim leik. Með þeim hætti verði því ekki tekið á vandanum, sem felist í misjöfnum tekjum sjó- manna. Sá vandi færist heim í héruðin og valdi mönnum áfram- haldandi erfiðleikum. VERÐLAGSRÁÐ sjávarútvegsins hefiir enn ekki ákveðið nýtt fisk- verð, sem taka átti gildi um síðustu mánaðamót. Jöfnun tekna milli útgerða og sjómanna er það, sem helzt dvelur samkomulag. Fulitrúar seljenda, sjómenn og útgerðarmenn, vilja taka upp sér- stakan heimalöndunarbónus, sem komi fram í hækkandi verði, sé um þremur fjórðu hlutum aflans eða meiru landað heima. Verðlagsráðið fundaði í gær án þess að ná samkomulagi og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.