Morgunblaðið - 22.04.1990, Page 22

Morgunblaðið - 22.04.1990, Page 22
22 C MORGUNBLAÐIÐ MENIMINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 22. APRÍL 1990 Astraltónleikar Heiðar dansar cha-eha. Afmælishátíð Júpíters ASTRALJASSSVEITIN Júpíters hélt afinælistónleika á efstu hæð Klúbbsins fyrir stuttu, en þá varð sveitin árs- gömul. Sveitin tilkynnti reyndar andlát sitt seint á síðasta ári, en það var ótímabært, því snemma á þessu ári undu sveitarmenn ekki lengur við aðgerðarleysið og hrundu henni af stað á ný og hyggjast halda í hljóðver innan skamms tilað hljóðrita breiðskifú sem gefin verður út í sumar eða haust. Afmælistónleikarnir, sem haldnir voru fimmtu- dags- og föstudagskvöld, voru vel sóttir. Sveitin lék lög úr smiðju sinni og ýmsir fyrr- um meðlimir komu á svið og léku með, eftir því sem við átti. Auk þess dansaði Heiðar Ástvaldsson cha-cha við lag sveitarinnar Heiðar dansar cha-cha. Upphitunarsveit var kvennasveitin Afródíte, sem vakti mikla hrifningu við- staddra.' ■ FORSIÍ 77 Tékkóslóvakíu, Vaclav Havel kom hingað til lands, eins og margir muna, á leið til Banda- ríkjanna fyrir nokkru. I Bandaríkjunum átti hann viðræður við þarlenda ráða- menn og sótti rokkklúbbinn CBGB í New York með kvik- myndagerðarmanninum Mi- los Forman sem þar var tíður gestur í eina tíð. Þeir félagar drukku þar nokkra bjóra og hlustuðu á rokk- sveitina Children ofBabyl- on. Havel hitti einnig að máli tónlistarandófsmanninn Frank Zappa og sagði að hann hefði alla tíð haft mikið dálæti á plötum Zappas, og þá sérstaklega plötunni Bongo Fury, sem þeir Zappa og Captain Beefheart gerðu saman. Zappa hann hyggst veita fjármálaráðhen-um Tékkóslóvakíu ráðgjöf við að reisa úr rústum efnahag landsins og segist vita jafn mikið um efnahagsmál og hvaða hagfræðingur sem er. ■ UM þessar mundir eru lið- in 25 ár síðan Zappa sendi frá sér sína fyrstu plötu og bandaríska fyrirtækið Ryko- disk, sem m.a. gefur út plöt- ur Davids Bowies á geisla- diskum, hefur samið við Zappa um að hann mundi hafa yfirumsjón með útgáfu á öllum plötum sínum á geisladiskum. árum. * ■ LA MBA DA -æðið sem ís- lendingar hafa ekki farið varhluta af var hugarfóstur franskra ævintýramanna, sem skrásettu Lambada sem vörumerki og urðu vell- auðugir fyrir vikið. Fyrir stuttu féli þó dómur í Frakkl- andi um það að Lambada- lagið, sem selst hefur i yfír fimm milljónum eintaka um heim allan, var í raun samið af bólivísku bræðrunum Gonzalo og Ulises Hermosa fyrir níu árum og hét þá Llor- ando se fue. Hermosa-bræð- ur fá í sinn hlut um 200 milljónir kr. og í málarekstr- inum kom í ljós að lagið er alls ekki lambadalag, heldur bólivískt sayalag, sem á lítið skylt við brasilíska lambada- dansinn. DÆGURTÓNLIST Hvad er venjulegt fólk? ekki að fá erlendar stór- stjörnur, en þess í stað voru fengnar hingað franska þjóðlagapoppsveit- in Les Negresses Vertes og malíski tónlistarmaður- inn Salif Keita, sem kemur hingað með 17 mannasveit sinni. í því er Listahátíð að gegna hlutverki sínu; að fá hingað til lands tón- listarmenn sem að öllu jöfnu myndu ekki troða upp hér og kynna fyrir mönnum nýja tónlistarstrauma að utan. Finnist einhveijum sem það væri kjörið að fá hingað til lands „heims- fræga“ popptónlistarmenn á við Sinéad O’Connor, sem vissulega væri gaman að sjá á tónleikum hér á landi, þá er það tilvalið hlutverk fyrir einkaaðila, sem mættu gjarnan vera um- svifameiri (og skynsamari) í poppsveitainnflutningi en hingað til. Til gamans má svo geta þess að sú Listahátíð sem er flestum minnisstæð, er Listahátíðin 1975, þegar engin erlend poppsveit hélt hér tónleika. Listahátíö fyriralla LISTAHÁTÍÐ í Reykjavík verður haldin fyrstu tvær vikurnar í júní nk. Þar koma fram ýmsir listamenn, sem ekki er hægt að vænta að muni koma hingað til Iands alla jafna. Ein spurning hefúr þó heyrst oft síðustu daga: Hvaða popphljómsveitir koma hingað á Listahátíð? Fyrir stuttu heyrði ég dagskrárgerðarmann á einhverri rásinni kvarta yfir því af fágætu dóm- greindarleysi að þessi lista- hátíð væri ekki fyrir „venju- legt“ fólk“. Sú ályktun var byggð á því að ekki kæmu eftir Árna Matthíasson hingað til iands „heims- frægar“ hijómsveitir til tónleikahalds líkt og svo oft áður. Ekki treysti ég mér til að segja til um hvað „venjulegt fóik“ er, né heidur ætla ég að fara að þræta við menn um jafn fánýt atriði og hvort popp- tónlist sé tónlist, eða hverra það sé að ákveða hvað sé list og hvað ekki. Popptónlist á í sjálfu sér, að mínu mati, jafn mikið erindi á dagskrá listahát- Salif Keita Tónlist fyrir venjulegt fólk? íðar og hver önnur tónlist, en þá með sömu formerkj- um og önnur atriði sem hingað til lands koma á vegum hátíðarinnar: að hingað komi listamenn sem ekki kæmu alla jafna. Ég hef fyrir því heimild- ir að stjórn Listahátíðar hafi ákveðið í upphafi að hafa enga popptónleika að þessu sinni, minnugtapsins á síðustu slíkum Listahá- tíðartónleikum. Það hafi svo verið fyrir þrýsting að stjórnin lét undan og fór að kanna hvort einhveijar hljómsveitir væru á lausu. Af ýmsum orsökum, sem ekki verða raktar hér, tókst Tíu lög enn HLJÓMSVEITIN Stjórnin er sem stendur að leggja síðustu hönd á sína fyrstu breiðskífú, sem Skífan gefur út um sama leyti og sveitin verður stödd í Júgóslavíu í Eurovisionkeppninni með lagið Eitt lag enn. Platan vænt- anlega á reyndar að heita Eitt lag enn, enda verður á henni það fræga lag með níu öðrum lögum. IHljóðrita fyrir skemmstu voru þau Sigríður Bein- teinsdóttir og Grétar Örvars- son að ljúka við upptökur. Á plötunni verða lög úr ýmsum áttum, eurovisionlög, lög eftir Hörð Ólafsson og Jóhann G. Jóhannson, Eyjólf- ur Kristjánsson og Friðrik Karlsson eiga sitt lagið hver tvö erlend iög og lag eftir Grétar verður aukalag á geisladisk og kassettu. Grét- ar sagði hljómsveitina ekki eiga mikið af lögum sjáif á Stjórnin Sigríður Beinteins- dóttir og Grétar Örvarsson í Hijóðrita. Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir plötunni, enda hafi hún svo mikið að gera alla jafna, að enginn tími sé til að fást við lagasmíðar. Þá loks að menn fái frí séu þeir ekki í stuði tii að fara að semja. „Ég kalla það gott að við skulum ná að koma frá okkur plötu, því þetta er sú gerð hljóm- sveitar sem sendir yfirleitt ekki frá sér plötu, eins og fjölmörg dæmi sanna.“ Sigríður og Grétar sögðu plötuna spegla vel hljóm- sveitina Stjórnina, lögin væru ijölbreytt líkt og pró- gramm sveitarinnar, enda þyrftu þau að geta spilað hvaða tónlist sem er þegar verið væri að leika fyrir dansi á Hótel Islandi. Þeirri spila- mennsku er þó lokið í bili, því 21. apríl, í gær, hélý sveit- in lokaball á Hótel Islandi. Við tekur Eurovision og síðan stutt frí, en 18. og 19. maí heldur sveitin tónleika í Vestmannaeyjum og síðan verður lagst í ferðalög um land allt og búið að bóka nánast allt sumarið og reynd- ar fram til 1. október, að tekið verður stutt frí. SUÐUR- RÍKJA- ROKK BANDARÍSKT suðurríkja- rokk hefur á sér sérstakan blúsblæ, eins og heyra má í tónlist fremstu slíkra sveita, s.s. Z.Z. Top. Síðustu mánuði hefur hasl- að sér völl á þeim vett- vangi hljómsveitin Raging Slab, sem reyndar er ekki suðurríkjasveit, heldur frá Manhattan í New York. Raging Slab sendi frá sér sína aðra breiðskífu fyr- ir stuttu og utan á þeirri plötu má sjá hljómsveitar- meðlimi í leðurfatnaði með kúrekahatta og tilheyrandi. Tónlistin á sér iíka rætur í bandarísku blúsrokki sveita á við Lynyrd Skynyrd, en þunginn. og keyrslan er öllu Raging Slab Suðurrikja- sveit frá New York. meiri og þykir minna meira á sveitir á borð við Metallicu. Stofnandi og helsti Iaga- smiður Raging Slab, Greg Strempka, kallaði til liðs við sig slidegítarleikarann Elyse Steinman og bassaleikarann Alec Morton 1984. Þau léku hvar sem þau komust að og slógu til þegar þeim bauðst að taka upp piötu á vegum smáfyrirtækis í New York. Þegar kom að upptökum fengu þau ekki nema einn dag í upptökur og fyrir vikið gera þau sem minnst úr þeirri plötu, Assmaster, sem jók þó hún hróður sveitarinn- ar. Eftir að piatan kom út lagðist sveitin í ferðalög um þver Bandaríkin og lék á öll- um stöðum þar sem hægt var að finna áheyrendur. Snemma á síðasta ári kom svo út EP-platan True Death, sem fékk framúrskarandi dóma. Þá loks lögðu plötuút- gefendur við hlustir og sló- gust um sveitina þar til RCA-fyrirtækið gerði henni tilboð sem sveitarmenn gátu fallist á. Ekki er svo langt síðan Raging Slab sendi frá sér fyrstu „alvöru" breiðsk- ífuna á vegum RCA, sem ber einfaldlega nafn sveitarinn- ar, Raging Slab. Sú plata hefur fengið frábæra dóma í flestum tónlistartímaritum og þá heist í þeim sem sér- hæfa sig í rokktónlist í þyngri kantinum, líkt og breska blaðið Kerrang!, sem gaf plötunni hæstu einkunn, 5 K.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.