Morgunblaðið - 22.04.1990, Síða 28

Morgunblaðið - 22.04.1990, Síða 28
MORGUNBLAÐIÐ VELVAKANDI SUNNUDAGUR 22. APRÍL 1990 28 C HCÍMfW ... að þola enga frekju. TM Reg. U.S. Pat Off.—all rights resorvad © 1990 Los Angeles Times Syndicate Pétur vill ekki að við gift- um okkur fyrr en við höf- um unnið í einhveiju stór- happdrættinu ... Við verðum að vera hér. Mamma hans finnur hvergi slökunarpillurnar smar ...: Á FÖRNUM VEGI Hitaveitu- geymarnir hverfa úr Öskjuhlíð ÞAÐ er kominn kaffitími hjá hópnum sem er að rífa klæðn- inguna utan af hitaveitugey- munum í Öskjuhlíðinni I Reykjavík. Grétar Sveinsson, sem tekið hefur þennan hluta verksins að sér og menn hans fara niður úr vinnupöllunum sem slegið hefur verið upp ofan á gömlum vörubíl, draumavagni sérhvers hörkutóls. Búið er að rífa klæðinguna utan af hinum geyminum og niðurrifinu miðar vel áfram. Það sem nýtanlegt er verður notað í nýja geyma sem reistir verða á Reynisvatns- heiði og tengdir verða Nesja- vallaæðinni. Verkinu er brátt lokið láti veðurguðirnir og útsendarar heimspressunnar Grétar og menn hans í friði. Geymarnir í Öskjuhlíðinni voru byggðir iyrir rúmum 20 árum. Þeir eru risastórir; 9.000 rúm- metrar hvor. Hjá Hitaveitu Reykjavíkur áætla menn að unnt verða að nýta rúman helming þess efnis sem til fellur við niðurrifið. Kostnaður við niðurrif geymanna Vinnufiokkurinn í Öskjuhlíðinni. Frá vinstri: Gunnar Jósepsson, Sigmundur Jóhannesson, Björgvin Sig- urðsson, Jón Geirsson, Jóhannes Steinþórsson, Grétar Sveinsson. HÖGNI HREKKVISI BFTlRLýsTOR | 22S§j ó $ \jezÐL auh „VEZPLAUH... 25 PÓSII? AF KA~tTA/\AAT ■ ■ - " Víkverji skrifar Víkveiji er enginn sérstakur tón- listaraðdáandi, en fáa þætti í Sjónvarpi hefur hann haft meiri ánægju af að horfa og hlýða á en Kontrapunkt, þar sem fulltrúar fjögurra þjóða á Norðurlöndum reyndu með sér á sviði sígildrar tónlistar. Yfirgripsmikil þekking þátttak- enda leyndi sér ekki, en sérstaklega var skemmtilegt að fylgjast með, ef þeir höfðu ekki heyrt tónsmíðarn- ar áður, hvernig spyrillinn ýtti und- ir þá og þeir nálguðust lausnina skref fyrir skref. Fyrir leikmann var með ólíkindum hve langt þeir komust oft á tíðum. Þá spillti ekki fyrir hve lífleg framkoma spyrils, dómara og keppenda kitlaði oft hláturtaugamar. Þótt íslendingar yrðu þarna í neðsta sæti var framganga fulltrúa okkar þeim og okkur til mikils sóma. Væri óskandi að öll norræn samvinna um sjónvarpsefni heppn- aðist jafn vel. Allir hljóta að vera sammála um að neyta þurfi allra ráða til þess að draga úr slysum í umferð- inni. Þar skipta að sjálfsögðu mestu máli þau slys sem leiða til dauða eða örkuml hljótast af. Þá er eigna- tjónið ótalið, en það hefur verið gífurlegt núna á síðustu mánuðum. Nú er það svo með slysin að í mörgum tilfellum fær maðurinn ekki við þau ráðið, en umferðarslys- in eru þar þó sér á blaði því að í langflestum tilfellum er það öku- maðurinn sem bregst. Algeng orsök er of hraður akstur og glannaskap- ur, en þó þarf ekki svo að vera, heldur hitt að bílstjórinn metur að- stæður ekki rétt eða hreinlega er að hugsa um eitthvað annað en aksturinn. Víkveiji hefur heyrt því fleygt að íslendingar séu þannig gerðir að þeir geti aldrei tileinkað sér neitt sem kalla mætti umferðar- menningu. Auðvitað erum við ekki svo iila á vegi staddir, þótt við hög- um okkur stundum í umferðinni eins og vegurinn sé fyrir okkur eina og aðrir þar aðeins til þess að þvæl- ast fyrir. xxx Samkvæmt skýrslum verða flest tjón á ökutækjum við aftaná akstur. Athygli ökumanna hefur nú að undanfömu sérstaklega verið vakin á þessu og þeir hvattir til að vera ætíð viðbúnir því að næsta bíl á undan sé snögglega hemlað. Þá er skiljanlega nauðsynlegt að nægi- legt bil sé á milli bílanna þannig að hægt sé að stöðva í tæka tíð. Víkvetji hefur tamið sér slíkt aksturslag, en tvívegis á skömmum tíma hefur munað litlu að hann lenti í árekstri einmitt vegna þess. í bæði skiptin skutust bílar í bilið rétt framan við trýnið á Víkveija. Ósjálfráð viðbrögð — kannski ekki rétt — voru að snögghemla, en sem betur fer voru þeir sem á eftir komu vakandi við stýrið og allt fór vel. Já, það þurfa margir að flýta sér og hver mínúta er dýrmæt, jafnvel svo dýrmæt að menn verða að gjalda fyrir hana með lífi sínu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.